Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Side 9
DV. LAUGARDAGUR 21. JÚNl 1986. 9 Ferðamál Ferðamál Ferðamál Andlitsmyndir af sérstöku fólki eru með skemmtilegri og áhrifameiri Ijósmyndum. Taktu betri myndir í sumarfríinu - hvemig geturðu bætt Ijósmyndatókur þínar? Þegar farið er í ferðalög þykir til- heyra að taka með sér myndavélina, þessa sem annars fær að dúsa lang- dvölum óhreyfð inni í skáp. Teknar eru myndir af fallegu útsýni, skemmtilegum augnablikum og öðru er fyrir augu ber. En oftar en ekki eru hinar dæmigerðu ferðamyndir lítt spennandi myndir af einhverjum stöðum sem þótt hafa áhugaverðir er komið var á þá. Útsýnismyndir, teknar úr mjög mikilli fjiirlægð, valda oft vonbrigðum, því minningin um fallegan stað verður ekki nærri eins áhrifamikil við þess háttar myndatökur. Auðvitað leggur fólk mismikið upp ár því að taka góðar og skemmtilegar myndir. Margir notast bara við gömlu góðu vasa- myndavélina en öðrum er líklega alveg sama að sleppa algjörlega allri ljósmyndatöku. En fyrst við þvæl- umst með myndavélina á annað borð er vert að vanda sig dálítið. Sjálfsagt er að taka myndir af sér- stöku útsýni eða öðrum fallegum stöðum, en af hverju ekki að prófa að nota aðdráttarlinsu? Þannig gæt- irðu tekið mun áhrifameiri myndir en ella. Nærmyndir af ákveðnum flötum úr fallegu útsýni varðveita minningar um fagra staði ótrúlega mikið betur en útsýnismyndir teknar úr mikilli fjarlægð. Um leið og þú ferð að spá af fullum krafti í þau tækifæri sem nærmynda- taka býður upp á verður þú að veita meiri athygli þeim aðferðum og tækjum sem þú notar. Auðvitað gild- ir enn gamla góða aðferðin í nærmyndatökum, þ.e. færa sig bara nær því sem taka á mynd af. En oft kemstu ekki nógu nálægt, samanber í útsýnismyndatökum eða þegar þú vilt taka mynd af ljóni í dýragarðin- um. í þessum tilvikum skaltu nota aðdráttarlinsu til að ná stærri og um leið áhrifameiri og skemmtilegri myndum. Því meiri sem brennivídd linsunnar er þeim mun stærri verður hluturinn sem þú tekur mynd af. Með 35 mm myndavél og 200 mm aðdráttarlinsu nærðu hlutnum fjórum sinnum stærri en notirðu sömu myndavél og venjulega 50 mm linsu. Hafðu í huga að með aðdráttar- eða súmlinsu er lágmarks skerpufjarlægð frá mynda- vél til hlutarins nokkur fet. T.d. verður fjarlægðin að vera minnst sex fet ef notuð er 70-210 mm aðdráttar- súmlinsa, annars nærðu myndinni ekki í fókus. Nú að sumarlagi er ágætt að æfa sig í að taka nærmyndir með því að mynda blómin sem prýða garða okk- ar. Taktu heildarmyndir af fallegum blómabeðum og æfðu þig svo í að ná góðum myndum af einstöku blómi o.sfrv. Fljótt muntu taka eftir hve nærmyndir koma til með að auðga ljósmyndatökur þínar. Hyggirðu á ferðalag erlendis er viðbúið að á vegi þínum verði sér- kennilegt fólk, ef svo má segja. Fólk af suðrænum eða austrænum slóðum sem klædd eru þjóðlegum búningum frá sinum heimaslóðum, fólk sem með tilveru sinni hefur eitthvað sér- stakt að segja, þar sem andlitin lýsa betur en nokkur orð við hvers konar aðstæður manneskjan hefur lifað. Andlitsmyndir af fólki eru oft með skemmtilegustu og áhrifamestu ljós- myndum. Hafirðu áhuga á að taka þess konar myndir ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu. Farðu samt varlega að fólki er þú biður það um leyfi til myndatöku. Flestir verða þó bara upp með sér ef einhver sýnir þeim áhuga og vill taka mynd. En búast má þó við að sumir bregðist öðruvísi við. Hér gæti aðdráttarlinsa komið að góðum notum, þá geturðu laumast til að taka mynd úr nokk- urri fjarlægð án þess að viðkomandi viti af því. Einnig er hægt að fá tæki til að setja framan á myndavél- ar, Circo Mirrotach, sem er nokkurs konar spegill. Þá geturðu beint myndavélinni í aðra átt en ætlað er að taka mynd úr. Notkun þess hátt- ar tækis krefst þó mikillar þjálfunar þannig að viðvaningum er varla hægt að ráðleggja notkun þess. En að lokum, viljirðu taka •skemmtilegar myndir í sumarfríinu er auðvitað fyrst og fremst að æfa sig. I ljósmyndun gildir eins og í öllu öðm: æfingin skapar meistarann. Gangi ykkur svo bara vel. -RóG. Til að ná valdi á notkun aðdráttarlinsu getur verið gott að æfa sig á blóma- myndatökum. Gott tækifæri Hurðalager og mjög gott hurðaumboð ásamt fleiru er til sölu, þeir sem hafa áhuga sendi nafn og símanúmer á auglýsingadeild DV merkt „Gott tækifæri“. Saumakonur/fatatæknar Saumakonur óskast til sumarafleysinga í júlí eða lengri tíma. Fatatæknir óskast til framtíðarstarfa við sniðagerð, sníðslu og umsjón með saumastofu, þarf að geta byrjað fljótlega. Upplýsingar milli kl. 4 og 6 í versluninni M. Manda, Kjörgarði, Laugavegi 59. Sigurberg Gröndal húsasmíðameistari Tilboð - reikningsvinna Heimilisaðstoð Starfsmaður óskast til að annast heimilishald á sam- býli fyrir 4 ellilifeyrisþega í Breiðholtshverfi. Vinnutími 4-6 stundir á dag. Nánari upplýsingar gefnar í síma 681200, Elín Snædal, mánudaginn 23. júní og þriðju- daginn 24. júní. HELLISSANDUR Umboösmaður óskast. Uppl. gefur Kristín í síma 6724 og afgreiðsla DV í síma 91-27022. Listahátíð í Reykjavík Smásagnasamkeppni Þeir höfundar sem sendu inn smásögur í samkeppni Listahátíðar í Reykjavík 1986 geta vitjað sagnanna á skrifstofu Listahátíðar, Amtmannsstíg 1, Reykjavík, vikuna 23. júní til 27. júní milli kl. 10.00 og 16.00. Opið laugardag kl. 12-16. Ath. breyttan opnunartíma. TÖGGURHH UMBOÐ FYRIR SAAB OG SEAT Bíldshöfða 16, símar 681530 - 83104. Saab 900 GLS árg. 1981, 4ra dyra, Ijos- Range Rover árg. 1978, 2ja dyra, grár. blár, sjálfskiptur, ekinn aðeins 53 þús. beinskiptur, 4ra gira, með yfirgir. ekinn km. Verð 320 þús. 100 þús. km, mjög góður og fallegur á mjög góðu verði og kjörum. Skipti á ódýrari bíl möguleg. Seljum í dag Saab 900 GLE árg. 1981, 4ra dyra sil- ver, sjálfsk. + vökvastýri, litað gler og fl., ekinn aðeins 63 þús. km. Mjög fallegur og góður bill. Verð kr. 350 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.