Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1986, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1986, Qupperneq 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 1986. Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Ámi Stefánsson, fyrrum markvörður með ÍBA, Fram og landsliðinu, tók lífinu létt þegar hann fylgdist með Tinda- stóli keppa. „Held að Frakkar verði heimsmeistarar." DV-mynd JGH. Kann vel við mig hér á Sauðárkróki - segir Ámi Stefánsson, fymim landsliðsmarkvörður Jón G. Haukæan, DV, Akureyri; Ámi Stefánsson, fyrrum Iandsliðs- markvörður í knattspymu, flutti beint frá Svíþjóð til Sauðárkróks fyrir ijórum árum. Þar starfar hann sem iþróttakennari. Við rákumst á hann sem áhorfanda á vellinum á Króknum á dögunum þar sem hann var að horfa á Tindastól keppa. „Ég kann ákaflega vel við mig hér á Sauðárkróki og er alls ekkert að flytja í burtu,“ sagði Ámi. „Ég hef fest hér rætur.“ Ámi þjálfaði og lék með Tinda- stóli síðastliðin fjögur sumur, en í ár breytti hann til. „Ég þjálfa og leik með Hofetrendingum á Hofeósi í 4. deildinni." - Nú, er HM í Mexíkó í algleym- ingi. Með hvaða liði heldurðu þar? „Núna eftir að Danimir em dottn- ir út veit ég ekki hvað skal segja. Ég hef samt trú á að Frakkar eigi eftir að verða heimsmeistarar." Ný bygging íþrótta- miðsföðvar- innar í Laugardal Ný bygging Iþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal er nú fullgerð og var lokaáfangi hennar tekinn í notkun um helgina. Hiisið er 3 hæðir og saman- lagður gólfflötur þess um 1665 fm. I nýju byggingunni er gistiaðstaða, 13 tveggja manna herbergi með snyrt> ingu, kaffltería fyrir 60 manns, fundar- salir fyrir stærri og minni fúndi auk kennsluherbergja og skrifetofa Í.S.Í og ólympíunefndar Islands. Hótelið er ekki síst ætlað íþróttahópum og ein- staklingum sem eiga leið til Reykja- víkur í keppniserindum, á fimdi, námskeið o.fl. Nú þegar hafa ýmsir hópar pantað gistingu í sumar, þ.á.m. íþróttafólk frá Færeyjum, Svíþjóð, Þýskalandi og Sviss auk innlendra aðila. -S.Konn. Norræn rannsókn a Suðurlandsskjálfta Jarðskjálftafræðingar á Norður- löndum hafa ákveðið að sameinast um ítarlegar rannsóknir á jarðskjálfta- svæðinu á Suðurlandi. Rannsóknimar miða að þvi að öðlast betri skilning á þeim kröftum sem leiðá til jarðskjálfta og að geta sagt fyrir um þá. Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræð- ingur sagði að verkefhið kæmi til með að kosta nær 30 milljónir króna. Væri þetta langstærsta samnorræna verkef- nið á þessu sviði. Sótt verður um fjárveitingu til Norðurlandaráðs. Á ráðstefiiu norrænna jarðskjálfta- fræðinga á Laugarvatni í síðustu viku var sérstaklega fjallað um Suður- landssvæðið. Skýrsla um rannsókn- aráætlunina, sem tekur til sex ára, var kynnt og rædd. Skýrslan er unnin af jarðskjálfta- fræðingum frá öllum Norðurlöndum. Telja þeir að á Suðurlandsundirlend- inu megi safha reynslu og þekkingu, sem að gagni getur komið í baráttunni við jarðskjálftahættu, ekki aðeins á Islandi, heldur hvarvetna, þar á meðal á hinum Norðurlöndunum, þar sem jarðskjálftar geta einnig valdið tjóni. Ráðstefnan á Laugarvatni, sem um fimmtíu jarðskjálftafræðingar sóttu, var haldin í umsjá Veðurstofu íslands. I undirbúningsnefiid sátu Ragnar Stef- ánsson, formaður, Hlynur Sigtryggs- son og Páll Halldórsson, Veðurstofu íslands, Páll Einarsson, Raunvísinda- stofnun háskólans, og Ólafur Flóvenz, Orkustofnun. -KMU Húsaleiga: Hækkar um fimm prósent Leiga fyrir íbúðar- og atvinnuhús- næði, sem lög nr. 62/1984 taka til, hækkar um 5,0% frá og með júlíbyrjun 1986. Reiknast hækkun þessi á þá leigu sem er í júní 1986. Kristinn Karlsson, deildarstjóri hjá Hagstofunni, sagði í samtali við DV að hér væri um að ræða hækkun leigu á því húsnæði þar sem samið hefur verið um að hafa verðbótahækkun húsaleigu, sem Hagstofan gefur upp, til viðmiðunar eða það sem miðað er við vísitölu húsnæðiskostnaðar. Eins og kunnugt er er allur gangur á hvem- ig um er samið þegar húsnæði er leigt. Hagstofan miðar þessa verðbóta- hækkun við hlutfallslega breytingu meðallauna síðustu þrjá mánuði á undan. Samkvæmt áætlun Þjóðhags- stofhunnar hafa atvinnutekjur í heild nú hækkað um 5% þó taxtahækkun hafi aðeins verið 3,5%. -RóG. I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I gegnum eld og brennistein Fátt hefúr verið til frásagnar að undanfömu fiá því Davíð rúllaði upp kosningunum fýrr í þessum mánuði. Þjóðin hefúr legið yfir fótbolta í sjónvarpinu sem hefur gefið löggilt- um nöldurseggjum tilefhi til að skammast út af efhi sem enginn hef- ur beðið þá um að horfa á. Um helgina dró þó til tíðinda sem ástæða er til að gera að umtalsefiii. Fyrst ber að nefha brunann í Iðn- aðarmannahúsinu við Vonarstræti. Síðla eftirmiðdags á laugardaginn sáu vegfarendur reyk leggja upp af húsinu og fyrir einhvem misskilning var slökkviliðið kallað út. Slökkvi- hðið hefúr haft lítið að gera að undanfömu og dreif sig á staðinn með sérstöku neyðarútkalli og áður en varði hafði því tekist að breiða eldinn út um húsið allt. Slökkvi- menn gengu í það af atorku að bijóta allar rúður í húsinu og hleypa súr- efiii inn í glæðumar, þannig að þetta gamla og lúna hús varð brátt alelda fyrir vasklega framgöngu slökkvi- liðsins. Því miður hafði á sínum tíma verið reistur eldvamarveggur milli Iðnaðarmannahússins og Búnaðar- félagshússins, sem er áfast, og reyndist því útilokað á svo stuttum tíma að koma eldinum yfir í suðu- rendann. Verður þó að segja slökkviliðinu það til hróss að um tíma’ virtist þetta ætla að takast. Allt frá því íslendingar reistu sér dönsk hús úr bárujami og tré hefúr það verið útbreidd skoðun að slík hús biynnu fyrr og betur en önnur hús. Margfrægir eru eldsvoðar í næsta nágrenni við Iðnaðarmanna- húsið og hafa þar mikil verðmæti farið forgörðum. Þessu hafa þeir Leikfélagsmenn sjálfeagt gert sér grein fyrir enda kemur nú í ljós að þeir hafa haft vit á því að geyma biíninga, segulbandsspólur og sögu- legar menjar Leikfélagsins á efri hæðum þessarar eldgildru. Gátu þeir nokkum veginn treyst því að allt myndi þetta fiiðra upp strax og kviknaði í kofanum. Fór það og eftir og er ekki að spyrja að þeirri for- sjálni sem í því er fólgin að koma eldfimum verðmætum fyrir þar sem líklegast þykir að síst megi bjarga' þeim. Ástæða er til að hrósa bæði Slökkviliðinu og Leikfélaginu fyrir góða samvinnu í þessum merka bruna. Hitt málið sem athygli vakti um helgina var frammistaða sjónvarps- ins þetta sama kvöld. Andstæðingar fótboltans hafa kvartað undan því að alltof mikill tími fari í þessa kapp- leiki og helst er að skilja að þeir telji meira en nóg að sýna einn hálf- leik úr hverjum kappleik og þá þann fyrri. Þessu virðist sjónvarpið vera samþykkt og þegar spennan var um það bil að ná hámarki í leik Frakka og Brasílíumanna rauf fiéttastofan útsendinguna til að koma á framfæri nýjustu fréttum úr Náttúrugripa- safiii íslands og Landgræðslunni. Að þeim merku fiéttum loknum flutti Páll veðurfræðingur langan fyrirlestur um veðurfar og lofthita á Grímsstöðum á Fjöllum. Ekki er að efast um að gerður verður góður rómur að þessari ný- breytni sjónvarpsins, að flytja okkur fréttir af fúglalífinu á Fróni og hita- stiginu á Grímsstöðum þegar kemur fram í seinni hálfleik í fótboltaleikj- um. Það er hvort sem er ekki nema helmingur alls mannkyns sem fylgist með þessu sparki. Hinn helmingur- inn á auðvitað sinn rétt og sín áhugamál og þau þurfa að komast að, sér í lagi þegar þau þola enga bið. Það hefðu verið hrapalleg mis- tök að fresta frásögnum úr Náttúru- gripasafhinu fyrir það eitt að til úrslita dró í kappleik milli fjarlægra þjóða. Og hver heföi viljað missa af fyrirlestri Páls Bergþórssonar um veðurfarið á Fjöllum? I kjölfar þessara atburða má búast við að fljótlega verði stofhuð samtök til vemdar brunarústunum í Vonar- stræti. Ekki má það spyrjast að þjóðin láti eldinn og slökkviliðið eyðileggja fyrir sér menningarlegar brunarústir. Og svo verða sennilega stofiiuð önnur samtök sem vemda vilja fslendinga gegn þeirri ósvinnu að sýna bæði fyrri og seinni hálfleik í kappleikjum sem standa lengur en tvo tíma. íslenska þjóðin hefúr annað að gera en sitja löngum stundum yfir erlendum kappleikjum og það í miðj- um fréttatímum. Náttúrugripasaf- nið, sálarlífemyndir eftir Ingmar Bergman og framhaldsþættir frá Eden verða að ganga fyrir, jafhvel þótt bróðurparturinn af þjóðinni hafi annaðhvort ekki lyst á Bergman eða hafi horft á Aftur til Eden í vídeóinu í fyrra og hitteðfyrra. Það er nefhilega eins með sjónvarpið og slökkviliðið. Hvomtveggja verð- ur að ganga í gegnum eld og brennistein, jafnvel þótt eldurinn brenni heitast á þeim sjálfúm. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.