Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1986, Side 19
18
DV. FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986.
DV. FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986.
31
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir
• Carlos Salvador Bllardo, landsliðsþjálfari Argentínu, á fréttamannafundi i Mexíkó og til haegri fyrirliðinn Diego "
Armando Maradona. |
Fer gullið til
Aigentínu?
- læknirinn Bilardo veit sínu viti
i
I
i
I
i
I
I
I
I
I
I
I
I
i
i
i
I
L.
Hann er einum leik frá heims-
meistaratitlinum. Enginn landsliðs-.
þjálfari HM-liðanna í Mexíkó hefur
verið gangrýndur meira með fyrrum
landsliðsþjálfara Argentínu, Cæsar
Menotti, fremstan í flokki. Gagn-
rýnisröddunum hefur þó fækkað
síðustu daga. Enginn ásakar „stóra
nefið“ um heimsku lengur og þeim
fjölgar stöðugt sem kalla hann bara
doktorinn.
Calos Salvador Bilardo, þjálfari
HM-liðs Argentínu, er 44 ára að aldri
og doktorsnafhbótin er ekki af neinu
titlatogi. Hann er einfaldlega læknir
að mennt. Á leið Argentínu í úrslita-
keppni HM var hann rakkaður
niður heima fyrir. Aldrei hefur önn-
ur eins gagnrýni verið þar á lands-
liðsþjálfara. Það munaði ekki miklu
að Argentína kæmist ekki í úrslita-
keppnina. Fyrra markið gegn Perú
í 2-1 sigrinum, sem öllu máli skipti,
var skorað þegar tíu mínútur voru
eftir af leiktímanum. Með sigrinum
komst Argentína í úrslitakeppnina í
Mexíkó en allir helstu knattspym-
usérfræðingar Argentínu sögðu þá
þegar að Argentína ætti enga mögu-
leika í Mexíkó.
í dag er Bilardo aðeins einum leik
frá HM-gullinu. Þegar hann stund-
aði nám í læknisfræði gekk hann
sjaldan undir öðru nafiii en „stóra
nef ‘ enda nef hans með þeim glæsi-
legri, eins og beint úr grískum
goðasögum. Kónganef. Læknir arg-
entínska liðsins í Mexíkó er Raul
Horario Madero, skólafélagi Bilardo
í læknadeildinni.
Óþekktir þjálfarar
Þeir félagamir ásamt þjálfaranum,
Carlos Oscar Patíhame, sem er að-
stoðarþjálfari í Mexíkó, vom nær
óþekktir, þegar þeir tóku við stjóm
HM-liðs Argentínu. Bilardo hafði
sem leikmaður að baki heldur lit-
lausan feril hjá liðinu Estuiantes de
la Plata. Það var þekkt lið áður.
Vann suður-ameríska meistaratitil-
inn þijú ár í röð á árunum 1968-1970.
Þekkt þá fyrir mjög grófa leikmenn.
1968 lék það við Man. Utd um heims-
meistaratitil félagsliða. Sigraði
samanlagt í leikjunum tveimur, 2-1
(1-0 og 1-1). Sagt að liðið léki án
bolta í leikjum sínum, níu af hverjum
tíu spörkum leikmanna lentu í mót-
herjunum.
Það merkilega er-jafiivel ótrúlegt
- að grundvallarhugmyndir Bilardos
í knattspymunni eru komnar frá
þjálfara þessa argentínska liðs á
veldistíma þess, Osvaldo Cubeldia.
„Hann var langt á undan samtíð
sinni, einstaklega séður þjálfari og
snjall að „lesa“ leikinn. Vissulega
spiluðum við fast en það var gert
of mikið úr þvf í fjölmiðlum,“ segir
Bilardo. „Við vorum fyrsta liðið í
Suður-Ameríku, kannski í heimin-
um, sem lékum maður-á-mann.
Eltum sérstaklega fremstu menn
mótheijanna. Þetta höfúm við nú
hvað eftir annað reynt, meðal ann-
ars gegn Englandi í átta liða úrslit-
ura. Það gafst vel gegn miðheijunum
Lineker og Beardsley og stjómanda
leiks Englands, Glenn Hoddle.“
Tók við af Menotti
Carlos Bilardo tók við sem lands-
liðsþjálfari Argentínu þegar Menotti
I
lét af störfúm 1982 eftir heimsmeist- |
arakeppnina á Spáni. Hann hafði -
áður verið landsliðsþjálfari Kólomb- |
íu frá því hann hætti að leika ■
knattspymu 1975. Mikill styr um I
hann í því starfi og þegar Kólombía I
komst ekki í úrslit HM 1982 lét hann ■
af störfum þar. Hann hélt heim til I
Argentínu, tók við sem þjálfari hjá ’
sínu gamla félagi, Estudiantes. Það |
vann sinn fyrsta meistaratitil undir .
hans stjóm frá því 1967 þegar hann |
var sjálftir leikmað(ur með liðinu. |
„Maður vinnur ekki neitt án aga, .
einbeitni og æfinga. En taktíska ■
hliðin hefúr þó hvað mest að segja I
þar þarf að breyta helst frá leik til 1
I
I
leiks," segir Bilardo og hefúr þar
hugmyndir sínar frá Cubeldia. En
það sigrar ekkert lið í heimsmeist-
arakeppni án sterkra einstaklinga. I
liði sínu hefúr Bilardo þann besta,
Diego Armando Maradona. Undir |
hans stjóm er Maradona allt annar ■
og betri leikmaður en á Spáni fyrir |
fjórum árum. Þá lék harrn fyrir sjálf- g
an sig, ætlaði allt að gera sjálfúr, I
hundeltur af mótherjum. Nú leikur I
hann fyrir liðið með stórsprettum á ■
milli. |
„Þegar ég gerði Diego að fyrirliða |
landsliðsins fékk hann meiri ábyrgð- _
artilfinningu. Hann er greindur og |
veit að liðsheildin skiptir öllu máli ■
og samleikurinn. Að hann nýtir svo I
einstaka hæfileika sína hefúr svo I
sitt að segja. Það skorar enginn leik- ■
maður í heiminum nema hann mark I
eins og annað mark hans í leiknum *
við Englendinga,“ sagði Carlos I
Salvador Bilardo að lokum. I
hsím
Sex mánaða banninu aflétt, viku-
bannið staðfest og allt í háalofU
- Mikil harka komin í mál Sigurðar Björgvinssonar efdr úrskurði dómstóls KSÍ. Tapar ÍBK þremur stigum?
í gærkvöldi felldi dómstóll Knatt-
spymusambands íslands úr gildi dóm
sem héraðsdómstóll UMSK dæmdi í
máli Sigurðar Björgvinssonar frá Kefla-
vík en dómur undirréttar hljóðaði upp
á leikbann til næstu áramóta. Ástæðan
var sú að Sigurður sparkaði í afturend-
ann á Gunnari Jóhannssyni dómara í
æfingaleik með ÍBK í vor. Dómstóllinn
vítti hins vegar Sigurð fyrir framkomu
hans.
Forráðamenn ÍBK, sem DV ræddi við
í gærkvöldi, voru að vonum ánægðir
með þennan úrskurð dómstólsins en
Sex leikir
íkvold
Þrír leikir eru á dagskrá 1. deildar
íslandsmótsins í knattspymu í kvöld
og sömuleiðis þrír leikir í 2. deild karla.
• í 1. deild mætast lið Breiðabliks
og FH í Kópavogi og hefet leikur lið-
anna klukkan tuttugu.
• Víðismenn frá Garði leggja land
undir fót og leika í Vestmannaeyjum
gegn heimamönnum klukkan tuttugu.
• Þriðji og síðasti leikur 1. deildar
er svo viðureign Keflvfkinga og Þórs-
ara frá Akureyri og verður ömgglega
hart barist þar.
• í 2. deild leika Völsungur og Ein-
heiji á Húsavík klukkan tuttugu.
• Víkingar frá Reykjavík ferðast
norður í land og leika gegn KS frá
Siglufirði á Siglufirði,
• Loks leika í 2. deildinni KA og
Njarðvík og hefet leikurinn á Akur-
eyri klukkan tuttugu.
-SK
máli Sigurðar Björgvinssonar er þó
hvergi nærri lokið.
Vikubannið staðfest
í fyrradag kom dómstóll KSÍ saman
og staðfesti dóm héraðsdómstóls UMSK
frá 11. þessa mánaðar þess efnis að Sig-
urður Björgvinsson væri í leikbanni frá
11. júní til 18. júní vegna þess að hann
hefði ekki mætt fyrir dómi á sínum tíma.
Á þessum tíma lék Sigurður sem kunn-
ugt er með ÍBK gegn Víði frá Garði og
vann ÍBK þann leik. Víðismenn kærðu
úrslit leiksins á þeirri forsendu að Sig-
urður hefði verið í leikbanni og í gær
var málið tekið fyrir á Suðumesjum hjá
Iþróttabandalagi Suðumesja. Keflvík-
ingar fóm fram á frest til 7. júlí til áð
leggja fram vöm í málinu og fengu hann.
Mikil harka í máli Sigurðar
Eins og fram kemúr í viðtölum hér á
síðunni em menn ekki á eitt sáttir varð-
andi framgang mála fyrir leik ÍBK og
Víðis. Samkvæmt staðfestingu dómstóls
KSf í fyrradag á vikubanninu var Sig-
urður ólöglegur með ÍBK gegn Víði og
þvi kann svo að fara að Keflvíkmgar
tapi stigunum þremur. Keflvíkingar em
hins vegar mjög ósáttir við staðfestingu
dómstóls KSÍ og telja sig hafa verið
beitta blekkingum er þeir leituðu ráða
hjá Jóni Steinari Gunnlaugssyni, for-
manni dómstóls KSÍ, fyrir leik ÍBK og
Víðis varðandi það hvort Sigurður væri
löglegur eða ekki (sjá viðtöl annars
staðar á síðunni).
Annað „Jónsmál“
Svo virðist sem annað „Jónsmál" sé í
uppsiglingu. í samtali við DV í gær-
kvöldi sagði einn forráðamanna ÍBK að
þeir myndu fara alla leið í þessu máli
og ekkert yrði gefið eftir. Útlit er fyrir
að nokkuð langur tími líði þar til endan-
lega liggur ljóst fyrir hvort Keflvíkingar
tapa stigunum sem þeir fengu gegn Víði.
Tekur eflaust langan tíma
Reikna má með því að nokkur tími
líði þar til það verður endanlega ljóst
hvort Sigurður var löglégur eða ekki.
Vonandi verður þó úrskurðar ekki mjög
langt að bíða þar sem mál af þessu tagi
em ávallt leiðinleg og setja ljótan svip
á viðkomandi íþrótt. _SK
• Oddný Arnadóttir.
Oddný setti
„Jón Steinar sagði
Sigurð löglegan“
- segir Kristján Ingi, form. knattspymuráðs Keflavíkur
I
I í gærkvöldi setti Oddný Ámadóttir, ÍR, |
* nýtt íslandsmet í 400 metra hlaupi á móti .
I í Svfþjóð. Oddný hljóp á 54,37 sek. en eldra *
_ metið, sem hún átti sjálf, var 54,53 sek. ■
I Tveir aðrir íslenskir fijálsíþróttamenn I
Ikepptu í gærkvöldi. Einar Vilhjálmsson I
varð þriðji í spjótkasti og kastaði 73,50 ■
Imetra. Svíinn Dag Wennlund sigraði með I
76,36 metra. Þá hljóp Oddur Sigurðsson 400 ■
I metrana á 46,66 sek. sem er hans besti tími |
■ á þessu keppnistímabili. Ó/-SK. j
„Það kom okkur ekki á óvart að
dómstóllinn skyldi aflétta banninu á
Sigurð til áramóta. Það var mjög rétt-
látt. Hins vegar erum við furðu lostnir
yftr staðfestingu dómstólsins á viku-
banninu og sá úrskurður kom okkur
mjög á óvart. Sá dómur getur engan
veginn staðist," sagði Kristján Ingi
Helgason, formaður knattspymuráðs
Keflavíkur, í samtali við DV í gær-
kvöldi er hann var inntur álits á
nýjustu atburðum í máli Sigurðar
Björgvinssonar.
„Við höfðum samband við Jón Stein-
ar Gunnlaugsson, formann dómstóls
KSÍ, fyrir leik okkar gegn Víði. Við
spurðum hann álits á því hvort okkur
væri óhætt að láta Sigurð leika með
gegn Víði ef við áfrýjuðum úrskurði
héraðsdómstóls UMSK til KSÍ. Hann
sagði að þá væri 100% öruggt fyrir
okkur að láta Sigurð leika með. Ég
hef aldrei staðið Jón Steinar að öðm
en heiðarleika og trúi ekki að hann
andmæli þessu.“
„Dæmdur sjö tímum fyrir boð-
un“
„í skeyti því sem við fengum frá
héraðsdómstól UMSK og lesið var
fyrir Jón Steinar og okkur var til-
kynnt um vikubannið á Sigurð
Björgvinsson kom fram að Sigurður
hafði verið dæmdur í bannið klukkan
10.00 þann 11. júní. Sigurður var hins
vegar boðaður fyrir dóminn klukkan
17.00 sama dag. Það er því engu líkara
en að búið hafi verið að dæma hann
sjö klukkustundum áður en hann átti
að mæta fyrir dómnum og það er
greinilegt að margir gallar em á þess-
um dómi. Þetta er orðið alveg fárán-
legt mál og ég hef aldrei vitað aðra
eins vitleysu. Ég vil taka það skýrt
fram að ef fram hefði komið minnsti
vafi á því að Sigurður væri ólöglegur
gegn Víði hefðum við að sjálfeögðu
aldrei látið hann leika. Við munum
ekkert gefa eftir í þessu máli og sækja
það eins langt og við þurfum," sagði
Kristján Ingi. -SK
Völler
• Rummen-
igge
Garre
Becken-
Förster
bauer
Giusti
Pascoli
• Buruchage
Vareno
Maradona
Þessir leikmenn leika úrslvtaleikinn á HM í Mexíkóborg á sunnudaginn
Samvinnuferóir
Landsýn
Sigurður Björgvinsson - löglegur eða ólöglegur?
„Rakalaus
þvættingur‘
- segir Jón Steinar Gunnlaugsson
„Þetta er alrangt, rakalaus þvætt-
ingur sem tekur engu tali,“ sagði Jón
Steinar Gunnlaugsson, lögfræðingur
og formaður dómstóls KSI, í samtali
við DV í gærkvöldi þegar undir hann
vom borin ummæli Keflvíkinga þess
efnis að hann hefði gefið þeim grænt
ljós á Sigurð Björgvinsson fyrir leik-
inn fræga gegn Víði.
„Það er hins vegar rétt að bæði
Hólmbert Friðjónsson, þjálfari Kefla-
víkurliðsins, og lögfræðingur þeirra
hringdu í mig og spurðu mig hvort
ekki væri rétt að áfrýjun frestaði fram-
kvæmd dóms. Því svaraði ég að sjálf-
sögðu játandi. En að ég hafi á þeirri
stundu vitað um úrskurð dómstóls
UMSK er alveg út i hött. Ég hafði
enga hugmynd um niðurstöðu dóm-
stólsins, það er af og frá.“
„Af hverju voru þeir að hringja
í mig?“
„Ég á dálítið erfitt með að skilja af
hveiju Keflvíkingar vom að hringja í
mig til að afla upplýsinga um það
hvort Sigurður Björgvinsson væri lög-
legur eða ekki. Af hveiju vom þeir
að hringja í mig með hálfkveðnar eða
engar vísur? Ég vil ítreka að ég sagði
þeim aðeins að áfrýjun frestaði fram-
kvæmd dóms. Mér hefði aldrei komið
til hugar að segja þeim af eða á um
hvort Sigurður væri löglegur eða ekki.
Það er alrangt að ég hafi gert það,“
sagði Jón Steinar Gunnlaugsson.
-SK
• Jón Steinar Gunnlaugsson lög-
fræðingur.
HANDKNATTLEIKS-
ÞJÁLFARI
Annarrar deildar félag í nágrenni Reykjavíkur óskar
eftir þjálfara næsta vetur. Nafn og símanúmer skilist
inn á auglýsingadeild DV í lokuðu umslagi merkt „T-
3575".