Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Page 4
4
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Sólþorsta svalað
Mynd GVA
Sólþyrstir sundlaugargestir breiddu úr sér á sólpöllum lauganna um helgina.
Veður var eindæma gott viða á landinu og Sunnlendingar voru greinilega
orðnir langþreyttir á sólarleysinu. Þeir notuðu því tækifærið heilshugar til að
njóta góða veðursins og sóla sig i laugunum. -S.Konn.
Það myndaðist mikil örtröð við sundlaugarnar um helgina og mátti víða sjá
margra metra biðraðir óþolinmóðra sóldýrkenda. Þessi mynd var tekin við
sundlaugina í Laugardal þar sem fjöldi fólks beið eftir að komast að til að fá
sér sundsprett. -S.Konn.
LHandi þorskar
að landi
Rannsókn á hringormasýkingum
í þorski er nú hafin á vegum Rann-
sóknarstoíhunar fiskiðnaðarins. I
þetta sinnið er nýrri aðferð beitt
og er ætlunin að ná nokkuð hundr-
uð lifandi þorskum, sem sýktir eru
af hringormi, og ala í keijum. Að
sögn Bjöms Dagbjartssonar, for-
stjóra Rannsóknarstofhunar fisk-
iðnaðarins, hefur þessi rannsókn
staðið til nokkuð lengi en nú hefur
verið ráðist í framkvæmdir.
„Ætlunin er að taka nokkur
hundruð þorska, sem sýktir eru af
hringormi, og ala þá í nokkra
mánuði og rannsaka hvort magn
hringorma minnkar ekki eitthvað.
Niðurstöður rannsóknanna geta
skipt miklu máli í sambandi við
þá stefhu sem tekin verður varð-
andi selveiðar því niðurstöður
sýna væntanlega hvemig hring-
ormur í þorski hegðar sér þegar
hann er alinn á ósýktu fæði og
selurinn er ekki til staðar," sagði
Bjöm Dagbjartsson.
I lok þessa árs verður fiskinum
slátrað og hringormasýking könn-
uð og í framhaldi af því má gera
ráð fyrir að einhveijar niðurstöður
liggi fyrir um tengsl selsins og
hringormsins. -S.Konn.
Kjartan Thors á Bláskel hefur verið að ná lifandi þorskum í ker á Vestra-
Hrauni. Ætlunin er að ná nokkur hundruð iifandi þorskum og ala í kerjum
í sex mánuði. Mynd S.
20 punda lax
í Laugardalsá
162 laxar hafa veiðst í Elliðaánum
og em tveir 14 punda, mikið er af laxi
í ánni en hann er tregur að taka agnið.
Korpa (Ulfarsá) hefur gefið 2 laxa
og veiðimaður sem renndi um helgina
sá einn urriða í ánni og tók hann ekki.
Veiðin í Þverá hefur verið góð en
verri í Kjarrá, alls hafa veiðst 512 lax-
ar í báðum ánum, aðeins 144 laxar í
Kjarrá.
Sigmar Jónsson veiddi 20 punda lax
í Myrkhyl í Norðurá og tók hann
maðk, buffið eins og einhver sagði,
veiðst hafa 340 laxar í Norðurá.
Jónas Magnússon veiddi 20 punda
lax í Laugardalsá og tók fiskurinn
maðk. Að sögn Siguijóns Samúelsson-
ar hafa veiðst í ánni 25 laxar og er
fullt af fiski í ánni. Laxamir em væn-
ir og enginn undir 10 pundum. „Áin
er svört af laxi í neðri gljúfrum en
erfitt að veiða vegna vatnavaxta."
Veiðin hófst 12. júní.
„Veiðin hefur gengið vel og það er
mikið af laxi víða í ánni,“ sagði Sig-
urður Fjeldsted er við leituðum frétta
um Grimsá. „Síðasti hópur veiddi 40
laxa og það em komnir um 300 laxar,
hann er 18 punda sá stærsti. Það em
útlendingar að byija hjá okkur í dag.“
G. Bender
í dag mælir Dagfari
Allt er enn í fullkominni óvissu
um málalok og eftirköst af heilsubót-
arstyrknum sem Guðmundur J. fékk
hjá vini sínum Albert. Heldur hefur
málið þótt óþægilegt fyrir flokkana
sem þeir vinimir tilheyra. Þannig
hafa sjálfstæðismenn haldið einn
fund um málið, þar sem Albert gaf
skýrslu, en að öðm leyti hafði eng-
inn þingmannanna skoðun frekar
en góðum stjómmálamönnum sæm-
ir. Sömu sögu er að segja af Al-
þýðubandalaginu, nema hvað þar
hafa þeir hætt við halda fúnd um
Guðmund og formaðurinn fer undan
í flæmingi og hefur ekki skoðun
frekar en sjálfstæðismennimir. Bæði
Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu-
bandalagið virðast hafa ákveðið að
umgangast Albert og Guðmund eins
og AIDS-sjúklinga sem ekki má
snerta og alls ekki tala um opin-
berlega af ótta við smit og útbreiðslu
faraldsins. Það skyldi þó aldrei vera
að fleiri á þeim bæjum viti upp á sig
samskonar skandala eða annarskon-
ar heilsubótarstyrki í nafni vinátt>
unnar?
Af Guðmundi J. Guðmundssyni er
það helst að fi-étta að hann hefúr
gengið um bæinn og sagt af sér trún-
aðarstörfum um stundarsakir meðan
rannsókn stendur yfir. Guðmundur
Ef ég væn Albert
krafðist sjálfur opinberrar rann-
sóknar á því hver hefði gefið sér
heilsubótarstyrkinn. Eins og Dagfari
hefur sýnt fram á áður mun þetta í
fyrsta skipti sem rannsóknarlögregl-
an er fengin til þess að finna út
hveija beri að sakfella fyrir að skjóta
saman í heilsubótarferð fyrir las-
burða fólk. Og þetta mun áreiðan-
lega í fyrsta skipti sem valinkunnur
sómamaður tekur við tvö hundmð
fimm hundruð króna seðlum án þess
að gefa kvittun og heimtar síðan
rannsókn á því hveijir séu svona
góðir við sig.
Af Albert er ennþá minna af frétta,
enda er maðurinn hættur að tala við
fjölmiðla eftir að í Ijós kom hvemig
kálfar launa ofeldi. Það liggur fyrir
að Albert Guðmundsson hafði milli-
göngu um að afhenda Guðmundi
heilsubótarstyrkinn og er ofsóttur
fyrir vikið. Lögreglan yfirheyrir
hann, flokkurinn heimtar af honum
skýrslu og Guðmundur vinur hans
Guðmundsson lætur opna einka-
reikninga Alberts með sakadómsúr-
skurði. Allt út af því að Albert vildi
vera góður við þennan vin sinn.
Enn sem komið er hefúr enginn
þorað að segja það opinberlega að
Albert eigi að segja af sér. Ekki
Sjálfstæðisflokkurinn, ekki ríkis-
stjómin. Enda erfitt að reka menn
úr vinnunni fyrir að vera góðir við
vini sína. Hinsvegar hefur forsætis-
ráðherra tekið upp á því snjallræði
að segja að ef hann væri Albert þá
mundi hann biðjast lausnar meðan
á rannsókn standi.
Nú er það að vísu svo að Stein-
grímur er ekki Albert og Albert er
ekki Steingrímur en greinilegt er að
Steingrímur hefur velt þessum
möguleika fyrir sér. Honum hefur
dottið í hug að hann geti verið Al-
bert. Þetta er alls ekki vitlaus
hugmynd og í rauninni ætti einhver
góður maður í ríkisstjóminni að
stinga formlega upp á þvi að Stein-
grímur verði Albert. Þá mundi
Steingrímur segja af sér eins og fyrr
segir og þannig losnaði ríkisstjómin
við þá báða. Tvær flugur í einu
höggi.
Ef Steingrímur væri Albert yrði
þetta skandalmál sömuleiðis miklu
auðveldara viðureignar fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn og Morgimblaðið.
Meðan Steingrímur er bara Stein-
grímur og passar sig á því að gera
ekki vinum sínum greiða, þegar þeir
eru veikir, getur vitaskuld enginn
ráðist á Steingrím fyrir að vera góð-
ur við vini sína. En þegar Steingrím-
ur er orðinn að Albert, eins og hann
sjálfúr getur hugsað sér, og verður
uppvís að vináttu, gæti Mogginn ög
íhaldið tekið heilshugar undir það
að svoleiðis fantur eigi að segja af
sér fyrir siðlausa framkomu. Meðan
Albert er Albert verður að hlífa hon-
um af tillitssemi við hagsmuni
flokksins. En þegar Steingrímur
verður Albert, og viðurkennir sekt
sína með því að segja af sér, verður
bæði siðgæðinu, ríkisstjóminni og
flokknum borgið.
Vandinn er hinsvegar sá að meðan
Steingrímur er Albert, þarf Albert
að vera Steingrímur. Annað væri
ósanngjamt. Og þá er spumingin
hvort Albert mundi samþykkja að
Steingrímur segði af sér. Albert er
áreiðanlega þeirrar skoðunar að
Steingrímur segi af sér, meðan Stein-
grímur er Steingrímur, en vafasamt
er aftur á móti að hann féllist á
lausnarbeiðnina ef Steingrímur er
Albert. Þannig getur Albert komið
með krók á móti bragði. Ekki nema
þá að Steingrímur geti gert sjálfan
sig að Albert og Albert að Þorsteini
og Þorstein að Steingrími. Það
mundi auðvelda málið og gera það
nokkum veginn ömggt að Stein-
grímur gæti sagt af sér ef hann væri
Albert. Dagfari