Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Qupperneq 8
8
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Heitast
í Vestur-
Þýskalandi
Mikil hitabylgja hefur gengið
yfir Vestur-Evrópu að undanfómu.
Hefur hitastigið í norður- og
vesturhluta álfunnar víða verið
töluvert yfir hitastigi sólríkari
sumarleyfislanda í suðri, svo sem
Ítalíu, Spáni og Grikklandi-
Hlýjast hefur þó verið í ýmsum
borgum Vestur-Þýskalands að
undanfömu, til dæmis náði hitinn
33 stigum í Köln, 31 í Frankfurt
og 29 í Miinchen.
Á sama tíma var hitastigið í
Aþenu, á Rimini á ftalíu og Ma-
deira á Spáni „aðeins" rétt rúm-
Iega 25 gráður á Celsíus.
Argentínumenn í skýjunum eftir úrslitaleikinn á HM
Milljónir fögnuðu
á gótum úti
Milljónir Argentínumanna flykkt-
ust í sigurvímu út á götur borga og
bæja eftir 3-2 sigur argentínska
landsliðsins í úrslitaleik heimsmeist-
arakeppninnar í Mexíkó gegn
Vestur-Þjóðverjum.
Að sögn lögregluyfirvalda hafa að
minnsta kosti tveir látið lífið í gífur-
legum fagnaðarlátum landsmanna
eftir sigurleikinn og orðið hefur að
handtaka yfir 200 æsta stuðnings-
menn landsliðsins er gengu ber-
' serksgang eftir að flautað hafði verið
til leiksloka.
Ekki sást sála á ferli á meðan á
úrslitaleiknum stóð en eftir leikinn
fylltust götumar af sigri hrósandi
Argentínumönnum er öskruðu
„Argentína og Maradona" á meðan
ökumenn þeyttu bílflautur sínar.
„Þetta er gleðistund í lífi Argen-
tínubúa," sagði forseti Argentínu,
Raúl Alfonsín, í símtalið við Carlos
Bilardo, þjálfara landsliðsins, um
leið og hann þakkaði honum fyrir
stórglæsilegan árangur.
Blöð og tímarit í Argentínu voru
með sérstök aukablöð í morgun þar
sem fjallað var um sigurleikinn og
er þessa stundina um fátt annað
rætt í Argentínu.
„Sigur fólksins“
Ríkissjónvarpið spáði því að yfir
ein milljón fagnandi landsliðsað-
dáenda hefði komið saman á
Lýðveldistorginu í Buenos Aires,
einu stærsta torgi í höfuðborginni,
þar sem þjóðfána Argentínu hafði
verið komið fyrir á risastórri brodds-
úlu.
„Þetta er fyrst og fremst sigur
fólksins í landinu," er haft eftir
verkalýðsleiðtoganum Saul Ubald-
ini eftir leikinn. „Það er þessum
leikmönnum að þakka að alþjóð
þekkir nú heimsmeistarana frá Arg-
entínu og frá þessari stundu verðum
við að beijast fyrir því að umheimur-
inn líti einnig á Argentínu sem
frjálst, réttlátt og sjálfstætt þjóð-
félag,“ sagði verkalýðsleiðtoginn.
Hindúar i ríkinu Punjab á Indlandi, þar sem ákkar eru í meirihluta, hafa boðað skæruverkfali í dag til að mótmæla
auknum ófbeldisaðgerðum sikka í garð minnihluta hindúa
Fjoldahandtokur
í Chandigarh
Yfirvöld í norðurhluta Punjab-fylkis
á Indlandi hafa undanfarinn sólar-
hring handtekið á þriðja hundrað
herskáa hindúa í tilraun til að koma
í veg fyrir ofbeldisaðgerðir vegna mót-
mælaverkfalls hindúa í ríkinu sem
boðað hefur verið í dag.
Segist lögregla í borginni Chandig-
arh hafa handtekið velflesta forystu-
menn úr flokki öfgasinnaðra hindúa
er kallast Hermenn guðsins Shíva, en
forystumenn flokksins boða í dag til
skæruverkfalla hindúa til að mótmæla
ofbeldisaðgerðum öfgasinnaðra síkka
gegn hindúum í Punjab, en þar eru
síkkar í meirihluta.
Forystumenn hindúa hafa fram að
þessu vísað öllum tilmælum yfirvalda
í Punjab á bug um að aflýsa skæru-
verkfalli sínu.
í fregnum frá Punjab í morgun segir
að svo virðist sem þátttaka verði lítil
í boðuðu skæruverkfalli, að minnsta
kosti líti út fyrir að það hafi takmörk-
uð áhrif á verslun ög viðskipti í ríkinu
en flestar verslanir í eigu hindúa voru
opnar í morgun eins og venjulega.
Lögreglan taldi þó að búast mætti
við meiri þátttöku í verkfallinu á
svæði er liggur að hinni helgu borg
Amritsar, höfuðvígi síkka í Punjab,
og útilokaði ekki möguleikann á átök-
um öfgamanna úr' röðum hindúa og
síkka.
Hrísgrjón á
stærð við hnetur
Japanskir vísindamenn sögðu í gær En einn galli er þó á gjöf Njarðar. Bru hærri og því viðkvæmari fyrii
að þeim hefði tekist að rækta nýtt af- Risahrísgij ónin bragðast ekki allt regni og vindum en hefðbundnar hris-
brigði af hrísgijónum er væru á stærð of vel, auk þess sem stönglar þeirra gijónaplöntur.
við hnetur og væru svipuð að þyngd.
Að þeirra sögn er ræktun risahrís-
gijónanna afleiðing tíu ára ítarlegra
rannsókna við Kyushu landbúnaðar
vísindastofnunina.
Umsjón: Ólafur Arnarson og
Hannes Heimisson
Viðræður um
framtíð Macao
Kínverjar hófu í dag viðræður
við Portúgali um framtíð Macao,
sem er portúgölsk nýlenda og er
rekin á mjög kapítalískan hátt.
Macao hefur verið undir stjóm
Portúgals í meira en fjögur hundr-
uð ár.
Zhou Nan, aðalsamningamaður
Kínveija, sagði við viðsemjanda
sinn, Rui Medina, að báðar þjóðir
myndu hagnast á þessum tveggja
daga viðræðum um framtíð Macao
sem er miðstöð spilavíta og mikil
vefriaðarvörumiðstöð með um
hálfa milljón íbúa rétt hjá Hong
Kong.
Portúgölsk stjómvöld viður-
kenna yfirráðarétt Kínveija yfir
Macao og hafa tvisvar reynt að
skila nýlendunni en Kínverjar
hafa hafiiað því í bæði skiptin.
Viðræðumar núna koma í kjölfer
samninga milli Breta og Kínveija
um að Bretar skili Hong Kong
árið 1997.
Búist er við að viðræðumar
verði hreinskilnar og árangursrík-
ar.
Ekki er vitað hvenær Kínverjar
vilja fá yfirráð yfir Macao, sem
Portúgalir hafa haft á sínum snær-
um í 429 ár.
Kínversk stjómvöld hafa ítrekað
lýst yfir að þau vilji að framtíð
Macao verði í samræmi við fram-
tíð Hong Kong sem mun halda nær
óskertu sjáifstæði þrátt fyrir kín-
verska stjóm.
Enn ósamkomulag
hjáOPEC
Búist er við því að ráðstefnu olíu-
málaráðherra OPEC ríkjanna, á
eyjunni Brioni í Júgóslavíu, ljúki í
dag. Litlar líkur em taldar á því að
einróma niðurstaða verði á fundinum
um leiðir til að hækka olíuverð aftur
og ná fyrri áhrifum á olíumarkaðnum.
Fulltrúar á fundinum sögðu að í
mesta lagi mætti búast_ við því að
meirihlutasamþykkt fengist um að á
næstu mánuðum skuli stefht að
ákveðnu framleiðslumagni og verði á
framleiðslunni.
Fjögur ríki, íran, Algería, Lýbía og
Gabon, hafa neitað að taka þátt í
umræðum um minnkun framleiðslu-
magns, sem leið til að ná verðinu á
olíu upp í 17-20 dollara, en nú er það
11,50 dollarar.
í dag átti að fastsetja kvóta ein-
stakra ríkja, en Tchioba, olíuráðherra
Gabon, sagði að slíkt væri fáránlegt
vegna þess að ekkert heildarþak fyrir
framleiðslu væri til.
Olíumálaráðherrar OPEC rikjanna virðast ekki ætla að geta komið sér saman
um aðgerðir til aö hækka oliuverö. Þaö eru helst fjögur riki, íran, Algería,
Lýbia og Gabon, sem strandar á.