Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Síða 9
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNl 1986.
9
Útlönd Útlönd Utlönd Utlönd
Willy Brandt
varar
við byltingu
i Peru
Willy Brandt, fyrrum kanslari
Vestur-Þýskalands, sem nýkominn
er heim frá þingi alþjóðasamtaka
jafiiaðarmanna í Perú, segir að
yfirvofandi hætta sé á stjómar-
byltingu í landinu.
Ummæli þessi er höfð eftir kansl-
aranum fyirverandi á fundi með
forystumönnum vestur-þýskra
jafnaðarmanna í kjölfar heimsráð-
steíhunnar og blóðbaðs í þrem
fangelsum í Perú þar sem talið er
að herinn hafi myrt yfir 300 skæru-
hða vinstrimanna með köldu blóði.
Er haft eftir Brandt að stjómar-
herinn í Perú sé ekki alls kostar
ánægður með yfirlýsingar Alans
García, forseta landsins, um hugs-
anlega ábyrgð hersins á fjölda-
morðum eftir fangauppreisnir í
landinu og að hershöfðingjar
kunni nú að nýta sér óvinsældir
Alans García í forsetastól og taki
völdin.
Póstþjófar
í Peking
Dagblað alþýðunnar í Peking
skýrir svo frá í gær að þjófnaður
úr blaða- og bréfasendingum kín-
versku póstþjónustunnar sé
vaxandi vandamál í höfúðborg
kínverska alþýðulýðveldisins.
Segir blaðið að þeir sem ábyrgir
séu fyrir þjófiiuðunum séu starfs-
menn póstþjónustunnar er með
athæfi sínu reyni að drýgja tak-
markaðar tekjur sínar með endur-
sölu blaða og tímarita.
í frétt blaðsins segir að á hverjum
degi hverfi yfir átta þúsund tölu-
blöð dagblaða sem gefin eru út í
borginni, þar á meðal yfir þúsund
eintök af síðdegisblaði borgarbúa.
Er fúllyrt að starfsmenn póstsins
laumi blaðapökkunum undan og
selji blöðin síðan á eigin vegum í
lausasölu.
Blaðið segir ennfremur að á
fyrstu 20 dögum aprílmánaðar hafi
alls séx þúsund pokar af Peking-
pósti gersamlega horfið og ekki
fúndist þrátt fyrir ítarlega eftir-
grennslan.
Dæmi eru einnig um að bréf, er
send hafa verið innan höfúðborg-
arinnar, hafi verið allt að þrjár
vikur á leiðinni, segir síðan að lok-
um í frétt Dagblaðs alþýðunnar.
Miklir
við ferðamanna-
staðinn
Algarve
Yfirvöld í Portúgal hafa hand-
tekið tvo menn er þau gruna um
að hafa af ásettu ráði kveikt mikla
skógarelda í nánd við ferðamanna-
staði i Algarve héraði.
Hafa skógareldamir þegar eyði-
lagt ótaliia hektara skóglendis auk
þess sem margir bóndabæir og grö-
sug engi hafa orðið eldinum að
bráð.
Slökkviliðsmönnum tókst í gær
að ná yfirráðum yfir miklum skóg-
areldi í Rio Formosa þjóðgarðin-
um, sem kunnur er fýrir mikla
náttúrufegurð og fjölmarga ferða-
menn.
Skógareldar valda árlega miklu
tjóni í Portúgal yfir sumartímann
og íhuga yfirvöld nú að herða til
muna dóma yfir brennuvörgum er
uppvísir verða að því að kveikja
skógarelda.
Sprenging í strætis-
vagni í Tel Aviv
Talið er að fimm manns að minnsta um gatnamótum í mikilli morgun- sjúkrahús.
kosti hafi særst í öflugri sprengingu umferð í höfuðborginni í morgun. í fréttum frá Tel Aviv í morgun
í strætisvagni í Tel Aviv, höfuðborg Öryggislögregla lokaði þegar af vett- segir að yfirvöld hafi þegar hand-
Israels, í morgun. vang sprengjutilræðisins og voru tekið fjölda araba og séu þeir nú
Sprengingin átti sér stað á fjölföm- hinir særðu fluttir á nærliggjandi yfirheyrðir.
Sprengingin í strætisvagninum i Tel Aviv í morgun er fyrsta slík sprenging í borginni frá þvi í febrúar síðastliðnum
og óttast nú yfirvöld nýja hermdarverkaöldu arabískra öfgahópa.
Eiturlyfja-
braskarar
forðast
nú Belgrad
Eiturlyfjalögreglan í Belgrad í
Júgóslavíu hefur að undanfómu
unnið marga frækna sigra yfir al-
þjóðlegum eiturlyfjasmyglurum er
athíifnað hafa sig í borginni und-
anfarin ár.
Júgóslavneska Tanjug frétta-
stofan skýrir frá því í gær að nú
sé svc komið að alþjóðlegir eitur-
lyfjahringir, er haft hafi útibú í
torginni, séu orðnir svo smeykir
um starfeemi sína að þeir forðist
eins og heitan eldinn að eiga við-
skipti sín í borginni.
Belgrad hefúr löngum verið mið-
punktur eiturlyfjasmyglara í
Suðaustur-Evrópu er smyglað hafa
vöm sinni frá Asiu til Vestur-
Evrópu.
Kínversk nærsýni
vegna námsálags
Tveir þriðju hlutar kínverskra
skóla bama í efri stigum grunn-
skóla þjást af nærsýni vegna of
mikils námsálags og iélegrar birtu,
að því er segir i Ðagblaði alþýð-
unnar í dag.
Blaðið segir að sjón skólabama
hafi versnað mjög á undanfömum
árum og að kínverskir lætoiar eigi
erfitt með að lækna nærsýni.
Kenndi blaðið um of mikilli
heimavinnu, lélegri birtu í skóla-
stofúm og slæmum lestrarvenjum
bama.
HJÖLALEGUR, DRIFLEGUR
0G PAKKDOSIR
I AMERISKAR JEPPABIFREIÐAR
JEPPAEIGENDUR NOTA AÐEINS ÞAÐ BESTA -
AMERÍSKT í AMERÍSKA JEPPA
Póstsendum um allt land
IPORFÆRU-
ISEH SKIIA ÞÉR
Á LEIÐARENDA
FIRESTONE RADIAL ATX og
ATX 23° hjólbarðarnir hafa ver-
ið margprófaðlr við erfiðustu
hugsanlegar aðstæður og út-
koman er stórkostleg. Þelr eru
prælsterklr og grlpmikllr í tor-
færuakstrl en samt þýðlr og
hljóðlátir á malbikl.
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2 • SÍWII 42600