Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Page 10
10
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
Útlönd Útlönd Utlönd Útlönd
Finnland:
Baráttan að hefjast fyrir
forsetakosningarnar 1988
Mjög fallegt er í Helsinki en hér sést hið fræga Finlandia-hús og í bakgrunni til vinstri má sjá þinghöllina. Nú er hafin óformleg kosningabarátta fyrir
forsetakosningamar árið 1988 í Finnlandi og reikna margir með að í þeim verði mjótt á mununum milii Mauno Koivisto, núverandi forseta, og Paavo
Váyrynen, frambjóðanda framsóknarflokksins.
Guðrún Helga Siguröardóttir, DV, Hebmld
Finnski framsóknarflokkurinn, ef
svo mætti kalla þennan stærsta
miðjuflokk finnskra stjómmála,
varð fyrir mikilli niðurlægingru, að
áliti eigin flokksmanna, er flokkur-
inn tapaði baráttunni í forsetakosn-
ingunum 1982. Jafnaðarmaðurinn,
Mauno Koivisto, varð þá forseti og
þá varð hljótt um finnska framsókn-
arflokkinn um tíma.
Flokkurinn hafði ætíð „átt“ forset-
ann og nú hyggst hann „eignast"
hann aftur. Á flokksþingi, sem hald-
ið var fyrir nokkrum vikum, var
utanríkisráðherrann, og formaður
flokksins, Paavo Váyrynen, til-
nefridur sem frambjóðandi flokksins
í forsetakosningunum árið 1988. Það
var einhuga flokkur sem tilnefndi
Váyrynen, flokkur fúllur baráttu og
sigurvilja.
Síðasti „séns“
Þegar forsetakosningamar verða
haldnar árið 1988 verður Paavo Váy-
rynen aðeins fjörutíu og eins árs að
aldri, þremur mánuðum yngri en
yngsti forseti landsins hingað til,
Lauri Kristian Relander, flokks-
bróðir Váyrynen. Kosn’ngamar
verða því síðasti „séns“ fyrir Váy-
rynen að verða yngsti forseti lands-
ins.
Á fyrmefhdu flokksþingi fram-
sóknarflokksins má segja að ný
kynslóð hafi tekið við öllum völdum
í flokknum, kynslóð jafiialdra Váy-
rynens. Aðeins einn þingmaður
flokksins er yfir miðjum aldri. Það
er því ferskt blóð í flokknum og við
öllu frá honum að búast.
Baráttan tvísýn?
Málgagn framsóknarflokksins,
„Keskisuomalainen", lauslega þýtt
„Miðjufinninn“, skrifaði í leiðara
fyrir nokkru að Mauno Koivisto for-
seti væri-ekki lengur umvafinn sömu
blindu aðdáun og 1982 er hann var
kjörinn eftirmaður Urhos Kekkon-
en. Blaðið segir að það sé þó erfitt
að ímynda sér að Koivisto nái ekki
kosningu ef hann bjóði sig fram -
enda hafi hann alltaf haft 50% fylgi
í skoðanakönnunum til þessa.
Ef Koi visto býður fram, sem reynd-
ar flestallir í Finnlandi gera ráð
fyrir, gæti baráttan orðið tvisýn milli
hans og Váyrynens. „Miðjufinninn“
Mauno Koivisto er vinsæll maður i
Rnnlandi. Almennt er við því búist
að hann bjóði sig aftur fram í emb-
ætti forseta árið 1988 og vinni sigur
þrátt fyrir mótframboð Váyrynens.
fúllyrðir til dæmis að þeir verði ein-
ir frambjóðenda um að „leika í fyrstu
deild“, eins og blaðið kemst að.orði.
Sennilegur frambjóðandi hægri-
flokksins í finnskum stjómmálum,
svokallaðs „Kokoomus“, Harri Hol-
kery, sem einnig bauð fram fyrir
hönd flokksins í síðustu forsetakosn-
ingum, „leiki í annarri deild“ - ekki
síst vegna þess hve hljótt hefúr verið
um hann síðustu árin. í þriðju deild
leika svo frambjóðendur litlu flok-
kanna, flokka eins og frjálslynda
þjóðarflokksins, kristilegra, sænska
þjóðarflokksins og kommúnista.
Biðlað til hægri
Eftir flokksþingið komust Váyryn-
en og flokksfélagar hans mikið í
fjölmiðla, ekki síst vegna yfirlýsinga
um hugsanlegt ríkisstjómarmynstur
eftir þingkosningamar 1987 en þær
em taldar skipta miklu máli fyrir
framgang Váyrynens í forsetakosn-
ingunum ári síðar.
í fjölmiðlum var því haldið fram
af hálfú framsóknarflokksins að
þjóðin þyrfti á breiðu stjómmálalegu
samstarfi að halda eftir þingkosn-
ingamar. Svokölluð „Rauðmylla",
það er núverandi samstarf jafnaðar-
manna, framsóknarflokksins,
sænska þjóðarflokksins og flokks
landsbyggðarinnar, ætti minna er-
indi en áður í ríkisstjóm. Váyrynen
sagði að eftir þingkosningarnar ætti
að byggja á „þjóðlegum grunni“ og
leita samstarfs til hægri og miðju
þó að „Rauðmyllan“ væri hugsan-
legur kostur númer tvö.
Græðir á litlu flokkunum
Váyrynen setur allt sitt traust á
hægri vænginn og miðjuna. Hann
hefur sagt opinberlega að hann
græði á því að litlu flokkamir bjóði
fram sína eigin fulltrúa við fyrstu
umferð forsetakosninganna. Síðan
gengur hann út frá því sem vísu að
hann komist áfram í seinni umferð
ásamt Koivisto og þá styðji miðju-
flokkamir og Kokoomus frambjóð-
anda framsóknarflokksins,
Váyrynen sjálfan.
Þetta byggir Váyrynen í fyrsta lagi
á því að enginn einn frambjóðandi
hljóti hreinan meirihluta í fyrstu
umferð kosninganna. í öðm lagi
gerir hann ráð fyrir því að hinir
miðjuflokkamir safnist smám saman
á bak við hann sjálfan. í þriðja lagi
að hægriflokkurinn styðji hann eftir
að frambjóðandi flokksins, sem að
öllum líkindum verður Harri Hol-
kery, dettur út.
Til að þetta gangi upp verður fram-
sóknarflokkurinn að byggja upp
samstarf við miðjuflokkana og hæg-
riflokkinn, þó að flokkurinn verði
þar með að halda jafnaðarmönnum
úti í kuldanum en þeir hafa hingað
til harðneitað að starfa með hægri
mönnum.
Líkurnar allgóðar
Líkumar á að hlutimir gangi upp
hjá Váyrynen, að minnsta kosti lík-
umar á að hann komist áfram í
seinni umferð kosninganna þótt
hann sigri ef til vill ekki, virðast
allgóðar. Allt bendir til að litlu
miðjuflokkamir bjóði fram sundrað-
ir í forvalinu, nema kannski sænski
þjóðarflokkurinn, sem styður senni-
lega jafnaðarmanninn Mauno
Koivisto forseta ef ritstjóri Huf-
vudstadsbladet, málgagns sænska
minnihlutans í Finnlandi, Jan-
Magnus Jansson, ekki fómar sér og
býður fram fyrir hönd flokksins, líkt
og í síðustu kosningum.
Það kemur fyrst í ljós í haust eða
á næsta ári hver verður frambjóð-
andi hægriflokksins þótt Harri
Holkery sé talinn líklegastur. Og
litlu miðflokkamir og Kommúnista-
flokkur Finnlands ákveða fyrst á
næsta ári hvemig þeir haga fram-
boðsmálum sínum. þaó á því enn
eftir að renna mikið vatn til sjávar
áður en allt liggur ljóst fyrir um
næsta forseta Finnlands.
Paavo Vayrynen hefur verið til-
nefndur forsetaframbjóðandi
finnska framsóknarflokksins fyrir
næstu forsetakosningar 1988. Hann
segist bjartsýnn á að honum takist
að fella Koivisto úr forsetastóli og
verða yngsti forseti Finnlands frá-
upphafi.
Umsjón: Ólafur Arnarson