Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Page 12
12
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
Neytendur Neytendur Neytendur
Höldum húsdýrunum
hraustum og fjörugum
- þau þarfnast vrtamína rétt eins og fólk
Húsdýrin okkar þurfa, rétt eins og
við mennimir, á öllum næringareín-
um að halda þótt þarfir þeirra séu
vissulega ekki þær sömu og okkar.
Fullorðinn hundur þarf 4,4 g af
prótíni á dag ásamt 1,4 g af fitu, 0,4
g af línólsýru og 15,4 g af kolvetnum.
Hvolpar þurfa tvöfalt magn.
Hvítuefnin eru hundinum nauð-
synleg til vaxtar og viðhalds.
Hvítuefni með mikið lífrænt gildi,
s.s. egg, fiskur, sojabaunir, mjólk og
ger, eru best. Viljirðu gefa hundinum
þínum egg verða þau að vera soðin.
f hrárri eggjahvítu er avidin sem
kemur í veg fyrir frásog bíotíns. Þó
að mjólk sé góð fyrir hunda getur
hún valdið niðurgangi. f stað hennar
er mælt með jógúrt og kotasælu.
Kolvetnin nota hundar í orku en
mælt er með að aðeins 50-60% af
mat þeirra innihaldi þau.
Fita, sem er samþjöppuð upp-
spretta orku, leggur til nauðsynlegar
fitusýrur fyrir húð og feld. Fituskort-
ur getur dregið úr vaxtarhraða
hvolpa og valdið stríðum feldi og
flögnun. Teskeið af maís- eða sól-
blómaolíu út á þurra hundamatinn
getur bætt úr því.
Haldið kisu frískri
Kettir þarfnast mikillai’ hvítu,
töluvert meiri en hundar eða mann-
fólkið. Og kettlingar þurfa 1/3 meira
af hvítu en fullorðnir kettir. fnn-
matur, fiskur, fuglakjöt, ostar, egg
og mjólk eru góðar hvítulindir. Gefir
þú kettlingi mjólk skaltu nota þurr-
mjólk í tvöföldum þeim styrkleika
sem ungabam myndi fá, kúamjólk
er ekki nógu næringarrík fyrir kettl-
ing. Kolvetni eru kettinum ekki
nauðsynleg en þau nýtast sem orka.
Fita er stærsta orkulind kattarins.
Kettir geta neytt allt að 64% fitu
að staðaldri án merkjanlegra æða-
vandamála. Fjölómettuð fita er ekki
góð fyrir ketti, of mikið af henni
vinnur gegn E-vítamíni og fituforði
kattarins líður fyrir það. Kettir þurfa
mikið A-vítamín. Fiskur, smjör,
mjólk og ostar innihalda mikið af
því. Kettir þurfa almennt tvöfalt
meira B-vítamín en hundar og getur
það valdið B-hópskorti að gefa ketti
hundamat í lengri tíma. Fái köttur
hins vegar eingöngu fiskmeti getur
það valdið E-vítamínskorti. Lystar-
leysi, hiti, sársauki og tregða til
hreyfinga eru sígild einkenni þess.
Læður líða sjaldan af blóðleysi ef
matur þeirra inniheldur innmat, soð-
inn fisk og kjúkling, grænmeti og
vítamínbættan þurrmat. Munið að
kettlingafullir og mjólkandi kettir,
sem gjaman borða 300 til 450 gr
matar á dag, þurfa tvö- eða þrefaldan
vítamínskammt meðalkattar.
-RóG.
Hundar eru oft kallaðir bestu vinir mannsins. Þeir, sem og önnur húsdýr,
eiga skilið að fá næringarrikan og hollan mat rétt eins og við mennirnir.
Hvað kostar
bílaleigubíllinn?
Neytendafélag Reykjavíkur og ná-
grennis og aðildarfélög ASÍ og BSRB
gangast fyrir könnun á verði bíla-
leigubíla dagana 23.- 25. júní.
Könnunin nær aðeins til hluta alira
þeirra bílategunda sem í boði eru hjá
bílaleigunum. Hvorki er tekið tillit til
fylgihluta né árgerða bílanna. Hér er
um sumarverð að ræða sem nýlega tók
gildi. Bílaleigumar gefa í öllum tilfell-
um upp verð án söluskatts en hér hefur
honum verið bætt við.
Athygli er vakin á því að um ýmiss
konar afslátt getur verið að ræða ef
bíll er tekinr á leigu til lengri tíma,
t.d. í eina viku. Launþegum, sem þurfa
á bílaleigubíl að halda, er bent á að
kanna hvort aðild þeirra að stéttar-
eða starfsmannafélagi veiti þeim rétt-
indi til afsláttar. Nefna má sem dæmi
að Bílaleiga Akureyrar veitir aðilum
margra slíkra félaga afslátt.
Sjálfsábyrgð leigutaka getur verið
mismunandi há eftir bílaleigubílum. Á
það er bent að sumar bílaleigumar
bjóða upp á fulla kaskótryggingu gegn
aukagjaldi.
Skýringin á lágu verði hjá Bílaleig-
unni Bónus er sú að þar em flestir
bílar af árg. ’79- ’80. -RóG.
VIiltDKÖNNUN 8 © § NRON ódýrasti fólksbillinn, daggjald / kin.gjald Litill jeppi 4x4 daggjald / kni.gjald StÆrri jeppi 4x4 daggjald / km.gjald 8-12 sæta bilar, daggjald / km.gjald
A G bilaleiga Tangarliöföa 8-12, R Fiat Uno 1313/13,13 Mitsub. Pajero 2438/24,30 Subaru 8 sæta 1750/17,50 Ford Econol. 12 s. 2188/21,88
ALT, bilaleigan Illaöbrekku 2,Kóp Fiat Uno 1238/12,38 Lada Sport 1813/18,13 Mitsub. Pajero 2188/21,88 Mitsubishi 9 sæta 1813/18,13 Ford Club W. 12 s. 2188/21,88
Bilaberg, bilaleiga Hraunbergi 9,R Fiat Uno 1188/11,88
Bílaleiga Akureyrar Skeifunni 9,R Lada seckm/station 1188/11,88 Lada Sport 2000/20,00 Suzuki Fox 2063/20,63 Iand I’over 2063/20,63 Mitsub. Pajero 2438/24,38 Mitsubishi 9 sæta 2250/22,50 Ford Econol. 12 s. 2500/25,00
Bilaleiga Flugleiða Reykjavikurflugvelli Fiat Uno 1244/12,44 Suzuki Fox 2075/20,75 Mitsub. L 200, yfir- byggður 2438/24,38 VW diesel 8 sæta 2338/23,38
Bilaleiga Ilúsavikur Hanvu’shöfóa 8,R Daihatsu Qiarade 1244/12,44 Lada Sport 1750/17,50 Mitsubishi 9 sæta 2000/20,00
Bilaleigan As Skógarhlið 12,R Mazda 323 1244/12,44 Dailiatsu Taft 2063/20,63 tozda diesel 12 s. 2438/24,38
Bilaleigan Ðónus v/Lhif erðamiðstöðina, R Daihatsu Qiarade 825/8,25
Bilaleigan Geysir Borgartúni 24,R Fiat Uno, Lada 1313/13,13 Lada Sport 1850/18,50 Dailiatsu Rocky Mitsub. Pajero 2475/24,75 Range Rover Mitsubishi 9 sæta 2313/23,13
Bilaleigan ós Langholtsvegi 109,R Colt, Datsun Qierry 1313/13,13
Bilaleigcin Portið Reykjavikurv. 64, Hafn. Datsun Pulsar 1500/15,00
BÍlcileigan Vik v/Miklatorg,R Nissan Micro 1375/13,75 Lada Sport 2063/20,63 Daihatsu Rocky 2475/24,75
E G bilaleigan Borgartúni 25,R Fiat Panda 1125/11,25
SH bilaleigan Nýbýlavegi 32,K Daihatsu Charmant 1244/12,44 Lada Sport 1813/18,13 Tóyota diesel 2625/26,25 Mazda diesel 9 s. 2438/24,38 Ford Econol. 12 s. 2313/23,13
Raddir neytenda
Víða óliðlegt starfsfólk
Berti hringdi:
„Ég vildi bara aðeins vekja athygli
á hve víða óhæft starfsfólk er til stað-
ar í verslunum og á veitingastöðum.
Vissulega er það mjög misjalht, á sum-
um stöðum er starfsfólkið ekkert nema
liðlegheitin en alltof oft verður maður
var við að afgreiðslufólkið nennir bara
alls ekki að afgreiða eða er að drepast
úr fylu. Ég ætla nú ekki að nefna nein
nöfn núna en þar sem mér finnst skipta
svo miklu máli að fá vinsamlegt við-
mót, er maður er að versla, gat ég
ekki setið á mér. Ég er viss um að
verlsunareigendur em tilbúnir til að
hvetja starfsmenn sína til að vera dá-
lítið glaðlegri því það er eitthvað sem
maður tekur eftir og skiptir miklu
máli.“
Neytendasíðan getur vel tekið undir
þessi orð Berta því víða er pottur brot-
inn í þessum efhum. Sjálfsagt er að
láta viðkomandi verslunar- eða veit-
ingahússeigendur vita verði fólk vart
við sérstaklega óviðkunnanlegt við-
mót afgreiðslufólks. Eigendur þessa
staða yrðu eflaust fegnir því oft vita
þeir sjálfir ekkert um hvemig starfs-
fólkið hagar sér dags daglega.
-RóG.
Mikill
verðmunur á
Ólafsfirði
Húsmóðir á Ólafsfirði skrifar:
„Nú, á tímum verðkannana, sem em
besta aðhaldið að vömverði, er undan-
tekning að birtur sé verðkönnunarlisti
nema frá Reykjavík og nágrenni. Hér
á Ólafsfirði ætti að vera auðvelt að
gera verðkönnun því hér em aðeins
tvær matvömverslanir, KEA og Val-
berg. Ég sendi hér með eitt lítið dæmi:
Kjama sveskjugrautur kostar 69 kr. í
Valberg en 79.40 í KEA. Þetta er ná-
kvæmlega sama vara og sami fram-
leiðsludagur. Hér er um að ræða mál
sem getur orðið stærra sé ekkert að
gert því eitt er dýrara í KEA og annað
í Valbergi en mjög stutt er á milli
þessara verslana."
-RóG.
”(6»fc1l»6hfctorw"
fiTuTm i i j ’ii
W, W mWuiTm
Lesandi segir mikinn verðmun vera
á Ólafsfirði. Þar eru aðeins tvær versl-
anir, Valberg og KEA, og er ein
vörutegundin dýrari í Valbergi og
önnur i KEA.
Hvemig get ég nýtt banana?
Ardís hringdi:
„Er ekki einhver sem á uppskrift eða
sniðuga hugmynd í pokahominu þar
sem þroskaðir bananar myndu nýtast
vel. Þar sem bananar em vinsælir er
gaman að geta notað þá öðmvísi en á
hinn hefðbundna hátt. Ég yrði mjög
glöð ef einhver kæmi með skemmtilega
hugmynd."
-RóG.
Léttur og sumarlegur réttur
Spínat-skinkufrauð
I þennan rétt á að nota spínat en
allt eins má nota brokkál, grænkál eða
eitthvert annað kál og smátt skoma
skinku. Tilvalin uppskrift þar sem af-
gangar em gerðir að spennandi rétti.
1 msk. 'smjörl.
2 msk. hveiti
3/4 bolli undanrenna eða léttmjólk
3/4 bolli rifinn ostur (ekki of feitur)
4 eggjarauður
1 bolli spínat(eða annað kál)
1/2 bolli smátt skorin skinka
4 eggjahvítur
Bræðið smjörl. í potti og hrærið hveit-
inu út í. Sjóðið upp með mjólkinni og
hrærið vel í. Bætið rifha ostinum út í
og hrærið þar til osturinn er bráðinn.
Takið pottinn af hitanum. Hrærið
eggjarauðumar þar til þær em orðnar
þykkar og ljósgular. Hrærið ostasó-
sunni smám saman saman við þær.
Bætið spínatinu/kálinu og skinkunni
út í. Stífþeytið eggjahvítumar og hræ-
rið þeim varlega saman við. Látið í
ósmurt frauðfat (með beinum hliðum)
og bakið við 220 gráðu hita í 60 mín.
Ath. styttri bökunartími ef notuð em
einstaklingsskálar. Berið fram
STRAX. Það er sagt að það eigi að
láta gestina bíða eftir frauði en ekki
frauðið eftir gestunum, þá fellur það!
Þetta er nægilegt í forrétt handa
fjórum. Reiknað er með að hver
skammtur sé um það bil 250 hitaein-
ingar. Hráefniskostnaður við þennan
rétt er ekki mjög mikill, ætti varla að
fara mikið yfir 100 kr.
-A.BJ.