Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Síða 17
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
17
?r,í$:«SS!
»*»««<
tsmm
Lesendur Lesendur Lesendur
Sundlaugagestur vill fá að synda í friði í laugunum.
Buslugangur
í krökkunum
Sundlaugagestur skrifar:
Ég er einn þeirra sem stunda laug-
amar reglulega og hef af því mikla
ánægju. Oftast fer ég á morgnana en
það kemur einnig fyrir að ég fari eftir
vinnu.
Þá hef ég tekið eftir að allt annað
fólk er í laugunum. Þetta er aðallega
ungt fólk sem mér virðist koma til
þess eins að busla og leika sér í laug-
inni. Hamagangurinn í þessum
krökkum er oft svo mikill að maður
kemst vart laugina á enda án þess að
gangi yfir mann gusur og oft verður
maður að stoppa vegna bægslagangs-
ins. Hvemig er það, em laugamar
ekki til að synda í þeim?
Annars langar mig líka til að nota
tækifærið og þakka fyrir hvað sund-
laugamar í Laugardalnum em orðnar
fínar. Búningsklefamir em stórglæsi-
legir og allt svo skjannahvitt. En ég
vil einnig mælast til þess að sund-
laugayfirvöld sjái svo um að maður fái
að synda í friði í lauginni. Til þess
kemur maður.
SUMARTIMI!
Opnum klukkan átta virka daga
og lokum klukkan fimm, nema
föstudaga klukkan sex. Opið í há-
deginu.
Lokað á laugardögum til 1. sept.
HARSNYRTISTOFA
RnGnnRS & hprðpr a
VESTURCÖTU 48 - SÍMI: 24738
ATHUGIÐ
Lokað mánudaginn 30. júní
___vegna vörutalningar.
Opnum kl. 10 þriðjudaginn 1. julí.
Kringlunni 7
Málningarvinna
Tilboð óskast í að mála að utan húseignina að Háaleit-
isbraut 68 (Austurver). Útboðsgögn verða afhent á
skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, miðviku-
daginn 2. júlí 1986.
Stjórn húsfélagsins.
fFrá söludeild borgar-
innar, Borgartúni 1
Til sölu er mjög fullkomið magnarakerfi fyrir
tal og hljómflutning, úti sem inni. Hentar t.d.
fyrir íþróttavelli og reyndar allan útvarpsflutn-
ing. Gott verð. Einnig höfum við verkstæðis-
hurðir á rennibrautum, hæð 3,44 cm, breidd
3,50 cm. Höfum einnig mikið af öðrum tegund-
um hurða, skrifborð, stór og lítil, og margt
fleira notadrjúgra muna.
WIBAU BPF 50 M20/17
Steypudæla til sölu, árgerð 1972, á Mercedes
Benz 1113. Lengd á bómu 18 m út á hlið. Lengd
á bómu upp 21 m. Afköst 50 rúmmetrar á
klukkustund.
Verð tilboð. Ýmis skipti möguleg. Upplýsingar
í síma 76827.
Þvottavélar og þurrkarar
.eins og hlutirnir gerast bestir:
«l)::: <D <!)••• í _
Árangur náinnar samvinnu sænsku neytendastofnunarinnar KONSUMENTVERKET,
textilrannsóknastofnunarinnar TEFO og tæknirisans ASEA. Nýsköpun sem fær hæstu
einkunnir á upplýstasta og kröfuharðasta markaði heims fyrir árangur, taumeðferð
og rekstrarhagkvæmni.
ASEA CYLINDA tauþurrkari
Skynjar sjálfur hvenær tauið er þurrt, en
þú getur líka stillt á tíma.
114 lítra tromla, sú stærsta á markaðin-
um. Það þarf nefnilega 2,5 sinnum stærri
tromlu til að þurrka í en til að þvo í.
Tekur því úr þvottavélinni í einu lagi.
Mikið tromlurými og kröftugt útsog í
stað innblásturs stytta þurrktíma, spara
rafmagn og leyfa allt að 8m barka.
Neytendarannsóknir sýna að tauið slitnar
ekki né hleypur í þurrkaranum, heldur
losnar aðeins um lóna af notkunarslitinu.
Það er kostur, ekki síst fyrir ofnæmisfólk.
Sparar tíma, snúrupláss og strauningu.
Tauið verður mjúkt, þjált og slétt, og æ
fleiri efni eru gerð fyrir þurrkara.
Getur staðið á gólfi eða ofan á þvottavél-
inni.
ASEA CYLINDA þvottavélar
Þvo best, skola best, vinda best, fara best
með tauið, nota mtnnst rafmagn.
Vottorð upp á það.
Gerðar til að endast, og í búðinni bjóðum
við þér að skyggnast undir glæsilegt
yfirborðið, því þar er ekki síður að finna
muninn sem máli skiptir: trausta og
stöðuga undirstöðu, vöggu á dempurum
í stað gormavpphengju, ekta sænskt
ryðfrítt krómnikkelstál, SKF-kúlulegur á
35 mm öxli, jafnvægisklossa úr járni í
stað sandpoka eða brothætts steins o.fl.
Athyglisverð er líka 5-laga ryð-og rispu-
vörn, hosulaus taulúga, hreinsilúga,
grófsía, sápusparnaðarkerfi með lyktar-
og hljóðgildru, stjórnkerfi með framtíð-
arsýn og fjölhraða lotuvinding upp í
1100 snúninga.
ASEA CYLINDA er nú eini framleiðandi heimilisþvottavéla á Norðurlöndum.
Með stóraukinni framleiðslu og tollalækkun er verðið hagstætt. Og víst er,
að gæðin borga sig, STRAX vegna betri og ódýrari þvottar, SÍÐAR vegna
betri endingar.
iFonix
HÁTÚNI6A SlMI (91)24420