Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Page 18
18
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
Við erum með hagstœðu
verðin og úrvalið líka!
.Gabriel
I HÓOQDCVfAB_
IMIKUJ
ÚRVALI
7!
tyAlternatorar
Startarar
Nýtt Ofl/*ða y»rtumlðtuuppo»iölr
VHr ötal g«rðlr og limayrortal vorahlutlr
Kúplingsdiskar
og pressur >
enrrtalda lólktóila og |»ppa:
Amerlska — Enaka
Franska — italska
Saanaka — Þýaka
Ennlremur kúptmgsdrska i
BENZ - MAN - SCANIA - VOLVO
HABERGf HABERG f haberg
Spennustillar
M
Bremsuklossar
í úrvali
„Fijðtondl gler"
Bílabón
sérflokki
• Auðvelt í notkun
• Auðvelt að þrifa
• Margfðld endlng
Bónoöu td. brattl oa geröo
tomonburö vtö oörar
bönteoundrr Þú tekgr engo
óhcottu
vlö endurgrelöum
lónotoöar etttrjJöövar eí þú erl
ekki fytweoa önceoö/ur meö
órangurlnn.
Betri
bíll
fyrir
lítinn pening
Varahlutir f
kveikjukerfíð
i jfa Einnig úrval kvelkjuioka.
[ B hamra..Hlgh Energy"
É
H afUi hásponnukofla
■ og transistorkvelkjuhluta
I amerlska
m\ bíla. frá 1976 og yngri.
KERTAÞRÆÐIR
kðpa f«n deyTtr tnHtondi rort>ytc>m
Glóöarkerti
í úrvali fyrir
TOYOTA
ISUZU
DATSUN
MERCEDES BENZ
O.FL.
Oiíusíur
Spíssadísur
Fœðidœlur
Auk þess
meðal annars:
Stýrisendar
Splndilkúlur
Vatnsdœlur
Miðstöðvar og mótorar
Ljös og perur
HÁBERGf HABERG r HABERG
SKEIFUNNI 5A. SIMI:91-8 47 8
SKEIFUNNI 5A. SIMI. 91-8 47 8
SKEIFUNNI 5A. SIMI:91-8 47 8
píX, Húsnæöisstofnun ríkisins
L-yyJ Tæknidcíld / .luyjvegi 77. H. Simi28500.
ÚtboÓ
Hellissandur - Rif.
Stjórn verkamannabústaða Neshrepps utan Ennis
óskar eftir tilboðum í byggingu fjögurra íbúða í tveim
einnar hæðar parhúsum, byggðum úr steinsteypu.
Verk nr. U.05.01 úr teikningasafni tæknideildar Hús-
næðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál hvors húss 195 m2 Samt. 390 m2.
Brúttórúmmál hvors húss 673 m3 Samt. 1346 m3.
Húsin verða byggð að Munaðarhóli 11, Hellissandi
og Háarifi 73, Rifi og skal skila fullfrágengnum, sbr.
útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á sveitarstjórnarskrifstofu
Neshrepps utan Ennis og hjá tæknideild Húsnæðis-
stofnunar ríkisins frá þriðjudeginum 1. júlí til föstu-
dagsins 11. júlí 1986 gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðar en þriðju-
daginn 15. júlí kl. 11.00 og verða þau opnuð að
viðstöddum þjóðendum.
F.h. stjórnar verkamannabústaða
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
BYGGINGAR- OG
VERKTAKATÆKI
Erum með á sölulista verkfæri og tæki
tilheyrandi byggingariðnaðinum,
vegagerð og annarri verktakastarfsemi.
Á sölulistanum eru tæki í eftirfarandi löndum:
Danmörku,
Svíþjóð,
Noregi,
Hollandi.
Vinsamlega hafið samþand í síma, á
dönsku eða ensku, getum svarað
þréfum á íslensku.
Salgskonsulent Uffe Kjær
Tlf. 03-45 32 55. Bil 049-3 82 55.
Telefax 03-45 45 43.
Priv. Birkeparken 22 DK-4540
Farevejle St.
BRAMSEN & C0.
BYGGESTYRING ApS
Gerritsgade 24, Postbox 202, 5700 Svendborg.
Tlf. 09-21 83 90. Telefax 09-22 11 90.
springur út
Gunnar Jóhannsson, formaöur framkvæmdanefndar, og Kjartan Ólafsson fram-
kvæmdastjóri fyrir framan 300 fermetra veitingahöll. DV-mynd ej.
Hella
Það hefur vart farið framhjá neinum
hestaáhugamanninum að landsmót
verður haldið á Hellu í þessari viku.
Þetta verður fimm daga mót og hefet
mótið 2. júlí en lýkur 6. júlí. Hesta-
menn alls staðar af landinu munu
koma á þetta lEmdsmót og jafnframt
hópur erlendis frá. Er jafhvel búist við
að á milli 15 og 20 þúsund muni koma
á mótið. Það þýðir að aukning í Hellu-
þorpinu verður 2500 prósent þar sem
íbúafjöldi þar er um 600 manns. Það
eru 15 hestamannafélög vestan úr
Hvalfirði austur að Lómagnúpi sem
sjá um mótshaldið auk Landssam-
þands hestamanna. Þessi hesta-
mannafélög leigja mótssvæðið af
félaginu Rangárbökkum sem er í eigu
9 hestamannafélaga austan Hellis-
heiðar.
Þau 15 hestamEmnafélög, sem sjá um
mótið, kusu eftirtalda menn í fram-
kvæmdanefnd: Gunnar Jóhannsson
(Geysi), sem er formaður neíhdarinn-
ar, Öm Ingólfeson (Fáki), Hrein
Ámason (Gusti) og Bjama Ansnes
(Smára). Auk þess tilnefndi Landssam-
band hestamanna Sigurð Haraldsson
í nefridina. Kjartan Olafeson frá Sel-
fossi var ráðinn framkvæmdastjóri
mótsins.
Geysimiklar framkvæmdir hafa ve-
rið á svæðinu. Nú em þrír 300 metra
keppnisvellir þar ásamt hringvellinum
stóra. 300 fermetra veitingahús, sem
reist var fyrir nokkrum árum, hefur
verið endurbætt og salemi færð úr því
húsi í nýtt snyrtihús. Allmörg salemi
verða víða um svæðið. Reist hefur
verið 48 hesta hús fyrir stóðhesta en
þeir verða 37 á þessu móti. Gæsla verð-
ur í húsinu allan sólarhringinn.
TjEddstæði em rúm og góð aðstaða
fyrir ferðafólk. Girt hefur verið í
kringum 250 hektara hagabeitarsvæði
fyrir alla hesta sem verða á svæðinu.
Hagabeitarsvæðinu er skipt í nokkur
hólf og verður smalað reglulega í hólf-
unum eftir sérstakri tímaáætlun,
Bílastæði hafa verið rýmkuð. Þau em
stutt frá aðalsvæðinu og er talið að
umferð ætti að geta gengið mjög vel,
jafnvel þó að margt fólk muni koma.
600 hross hafa verið skráð til keppni
utan þeirra sem fylgja afkvæmasýn-
ingum. Stóðhestar verða 37, hryssur
71, gæðingar í A og B flokki 144, gæð-
ingar unglinga 122, keppendur í tölti
17 og keppendur í kappreiðum 79. Víst
er að hér er um bestu hross að ræða
í hverjum flokki því lágmörk vom
höfð mjög ströng til að takmarka
þátttakendafjölda og eins til að gera
mótið eftirminnilegra.
Ekki verður einungis um keppni að
ræða. Skemmtanir verða ýmiss konar;
dansleikir á föstudagskvöld og laugar-
dagskvöld í Njálsbúð, fræðslufundur í
Hellubíói um hestamennsku en þar
mun dr. Þorvaldur Ámason verða
framsögumaður, sameiginlegur út-
reiðartúr um Rangárvelli undir stjóm
Sigurðar Haraldssonar frá Kirkjubæ.
Grillveisla verður í þessum útreiðart-
úr. Kvöldvaka verður laugardags-
kvöldið og stjómar henni Sigurgeir
Hilmar Friðþjófeson. Lögð verður
áhersla á samspil manns og hests á
þessari kvöldvöku .
Það er næsta víst að þetta er mikil
breyting fyrir 600 manna Jrorp að fa
15000 manns skyndilega inn á svæðið.
Þjónustuaðilar á Hellu hafa haft
samráð um að reyna að leysa Eillan
VEinda sem upp mun koma. Þjónustu-
fyrirtæki verða opin lengur en venja
er til. UpplýsingEimiðlun verður í
Kaupfélaginu Þór og verður opið alla
daga. Bæklingi verður dreift til allra
mótsgesta með upplýsingum um hvað
Hella hefur að bjóða. Blaðafulltrúi
Hellu á þessu móti verður Sigurður
Jónsson frá Selfossi. Flugbjörgunar-
sveitin á Hellu verður með vakt alla
daga, reiðubúin ef óhöpp verða. Það
mun kosta 1200 krónur inn á mótið í
upphafi en fer stiglækkandi.
Landsmót er fyrst og fremst hátíð
hestamanna, kynning á íslenska hest-
inum. Búist er við allt að 2000 erlend-
um gestum. fslenski hesturinn er
verðugur sendiherra íslands. Vonandi
að þetta landsmót breyti engu þ£u- um.
Eskifjorður:
Bæjarstjóri
ráðinn um
mánaðamót
Regína Thararensen, DV, Eskifiiði:
Nýkjörin bæjarstjóm Eskifjarðar
mun ganga frá ráðningu nýs bæjar-
stjóra um næstu mánaðamót.
Að sögn Hrafiikels Jónssonar, for-
seta bæjEirstjómar, vom umsóknir um
starfið opnaðar í fyrrakvöld. Alls sóttu
sjö um. Fjórir þeirra óskuðu nafri-
leyndar og einn dró umsókn sína til
baka þegar hann vissi hversu margir
hefðu sótt um. Hinir tveir, sem sóttu
um án nafnleyndar, em Gunnar
Finnsson, skólastjóri á Finnbogastöð-
um, og Bjami Stefánsson, sýslufulltrúi
á Eskifirði.
Dagskrá landsmóts
Miðvikudagur:
Kl.
13.00 Dómstörf hefjast. Kynbótahross og afkvæmahópar dæmdir allan
daginn. Geysisvöllur og Gaddstaðavöllur.
Fimmtudagur:
Kl.
9.00 Dómstörf, kynbótahross, hryssur. Geysisvöllur og Gaddstaðavöllur.
9.00 Dómstörf, gæðingakeppni B fl. Brekkuvöllur.
10.00 Dómstörf, unglingakeppni 13-15 ára. Rangárvöllur.
21.00 Fræðslufundur í Hellubíói. Framsögumaður Þorvaldur Ámason.
Föstudagur:
Kl.
9.00 Kynbótadómar, stóðhestar. Geysisvöllur og Gaddstaðavöllur.
9.00 Gæðingadómar A fl. Brekkuvöllur.
10.00 Unglingar 12 ára og yngri. Rangárvöllur.
14.00 Kynning Félags hrossabænda á söluhrossum.
16.00 Töltkeppni. Rangárvöllur.
16.30 Kaupstaðarferð kemur á svæðið. •
19.00 Sameiginlegur útreiðatúr um Rangárvelli.
21.30 Dansleikur í Njálsbúð.
Laugardagur:
Kl.
10.00 Mótssetning.
10.15 Sýning kynbótahrossa, afkvæmahópa og stóðhesta. Ath. Öll dag-
skrá laugardag og sunnudag fer fram á Geysisvelli.
13.00 Sýning B fl.
13.30 Sýning, unglingar 12 ára og yngri.
14.00 Sýning, unglingar 13-15 ára.
14.30 Sýning kynbótahrossa, hryssur.
16.30 Sýning, Á fl.
17.30 Kappreiðar.
20.00 Úrslit í töltkeppni. Gaddstaðavöllur.
21.00 Kvöldvaka.
21.30 Dansleikur í Njálsbúð.
Sunnudagur:
Kl.
11.00 Hátíðardagskrá. - Hópreið. Helgistund - Séra Sváfnir Sveinbjarnar-
son prófastur. Ávörp - Jón Helgason, Ásgeir Bjamason.
12.30 Ræktunarhópar - kynning.
13.00 Unglingar, verðlaun.
13.30 Kynbótahross, verðlaun.
15.30 Úrslit B fl.
16.00 Úrslit A fl.
16.30 Kappreiðar, - úrslit.
18.00 Mótsslit.
Dagskrá þessi er gerð með fyrirvara um að breytingar geti orðið á tíma-
setningu dagskrárliða.
I