Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Blaðsíða 22
22
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
Iþróttir
Iþróttir
Iþrottir
iþróttir
• Sigurður Hallvarðsson skorar hér þriðja mark sitt í leiknum gegn Skalla-
grími á laugardag. DV-mynd Gunnar Sverrisson
•Nikulás Jónsson skoraði tvö mörk fyrir Þrótt gegn Skallagrími. Hér skorar
hann annað þeirra með skalla. DV-mynd Gunnar Sverrisson
Ellefu mörk og
loks Þróttarsigur
Sigurður skoraði þrjú og Þróttur vann UMFS 9-2
Það var mikið skorað af mörkum í
leik Þróttar og Skallagríms í 2. deild
er liðin léku í Laugardalnum á laugar-
dag. Þróttarar unnu sinn fyrsta sigur
í deildinni, 9-2, eftir að staðan hafði
verið 6-1 í leikhléi.
Páll Ólafsson handknattleiksmaðiu-
með meiru lék nú sinn fyrsta leik með
Þrótti á keppnistímabilinu og hefur
ekki glatað skotskónum. Hann skor-
aði tvö mörk Þróttar. Enn betur gerði
þó Sigurður Hallvarðsson en hann
skoraði þrennu. Nikulás Jónsson
skoraði tvö mörk og þeir Atli Helga-
son og Ásmundur sitt hvort markið.
Þór Daníelsson skoraði bæði mörk
Skallagríms. Hann náði forystunni
fyrir Skallagrím strax á 8. mínútu en
þeirri forystu tókst leikmönnum Skall-
agríms ekki að halda nema í fimm
mínútur. Þá jafnaði Atli Helgason
metin. Síðan kom hvert markið af
öðru hjá Þrótturum og sigur þeirra á
eflaust eftir að hleypa nýju blóði í leik-
menn Þróttar sem verið hafa hálf
blóðlausir í leikjum sínum til þessa í
2. deildinni.
-SK.
Sigurður lék á
einu undir pari
á öðrum fætinum
- Þorsteinn og Gunnlaugur sigmðu á 9. GR-open golfmótinu
„Það náðu margir kylfingar mjög
góðu skori á þessu móti sem við erum
í alla staði mjög ánægðir með,“ sagði
Björgúlfur Lúðvíksson, framkvæmda-
stjóri GR, og mótsstjóri á 9. GR-open
golftnótinu sem fór íram i Grafarholti
um helgina. Sigurvegarar urðu þeir
Þorsteinn Lárusson, GS, og Gunn-
laugur Jóhannsson, NK, en þeir
kræktu sér í 92 punkta sem er met-
fjöldi frá því að mótið var fyrst haldið
árið 1978. Margir kylfingar náðu mjög
góðu skori á mótinu en mest á óvart
kom Sigurður Pétursson íslandsmeist-
ari. Hann meiddist mjög illa á knatt-
spymuæfingu á gervigrasinu í síðustu
viku en mætti engu að síður með
golfgræjumar í Grafarholtið um helg-
ina. Ekki leist mönnum á blikuna er
ljóst varð að Sigurður hugðist keppa
með eina hækju en hann gat varla
stigið í annan fótinn. Þrátt fyrir þessa
„bæklun“ lék Sigurður stórgott golf á
næstsíðasta keppnisdeginum og kom
inn á einu höggi undir pari sem ótrú-
legur árangur. Bestu skori allra á
mótinu náði þó Hannes Eyvindsson,
GR, er hann lék 18 holumar á 69 högg-
um, tveimur undir pari vallarins.
Hannes lék seinni níu á fjórum undir
pari og þar af tvær holur á tveimur
yfir pari.
Gulli ætti að komast til útlanda
í sumar
Sigurvegaramir á mótinu, Þorsteinn
Lárusson og Gunnlaugur Jóhannsson,
fengu að launum sólarlandaferð með
Úrvali. Gunnlaugur krækti sér í aðra
utanlandsferð með þvi að vera næstur
holu á 17. braut þar sem Seat Ibiza
bifreið var í verðlaun fyrir að vera
næstur holu. Litlu munaði að Gulla
tækist að næla sér í bifreiðina en fyrir
að vera næstur holunni fékk hann sem
sagt aðra utanlandsferð, nú til Kaup-
mannahafhar með Samvinnuferðum
Landsýn. Hann ætti því að geta
skroppið til útlanda á næstunni.
Feðgar í öðru sæti
„Tvenn pör“ af feðgum komu mikið
við sögu á þessu móti. Annars vegar
þeir Guðmundur S. Guðmundsson og
Guðmundur Ó. Guðmundsson, báðir í
GR, en þeir urðu í öðm sæti og unnu
sér inn flugferðir til London fyrir vik-
ið. Þeir hlutu 91 punkt, aðeins einum
punkti færra en sigurvegaramir. Hins
vegar þeir Ólafur Bjarki Ragnarsson
og Ragnar Ólafsson, báðir GR. Þeir
höfðu forystuna eftir fyrri daginn og
vom þá með 50 punkta sem er met á
18 holum í þessari keppni. Sérstaklega
lék „gamli maðurinn" Ólafur Bjarki
vel en hann kom inn á 75 höggum
eftir fyrri daginn. Sýndi hann að lengi
lifir í gömlum glæðum en Ólafúr var
einn besti kylfingur landsins á árum
áður. Hann er 52 ára gamall.
Dekk, gullhringir og hóteldvöl
í þriðja sæti höfnuðu þeir Lúðvík
Georgsson og Viggó Viggósson en
þeir hlutu 89 punkta og hlutu að laun-
um utanlandsferð með Amarflugi.
Hannes Guðmundsson og John
Drummond urðu í fjórða sæti með 87
punkta og urðu gullhringjum ríkari.
Fjölmörg aukaverðlaun vom veitt á
mótinu sem er eitt hið allra kræsileg-
asta hvað það varðar hér á landi.
Jóhann Einarsson, NK, var næstur
holu á 2. braut og hlaut ferð til Salz-
burg fyrir vikið. Pétur Elíasson, GK,
vann sér inn dekkjagang undir bílinn
sinn með þvi að vera næstur holu á
6. braut. John Drummond varð næstur
holu á 11. braut og vann sér inn helg-
ardvöl á Hótel Stykkishólmi. Gunn-
laugur Jóhannsson varð síðan næstur
holu á 17. braut eins og áður sagði.
Met þátttaka
Alclrei hafa fleiri keppendur tekið
þátt í GR-open golfmótinu en þeir vom
170 að þessu sinni og slagar þátttak-
endafjöldi og umfang þessa móts hátt
i landsmót. Framkvæmd mótsins tókst
í alla staði mjög vel og var þeim GR-
mönnum til sóma.
Þess má í lokin geta að næsta mót
hjá GR er opið unglingamót, 18 ára
og yngri, Nissan-mótið, og fer það fram
á morgun. Ræst verður út frá klukkan
fimm. -SK
Öruggt hjá Úlfari í Eyjum
- á unglingameistaramóti íslands í golfi
Friðbjöm Ó Valtýsson, DV, Vest>
mannaeyjum:
Unglingameistaramót íslands í golfi
fór fram í Vestmannaeyjum um helg-
ina. Mikil þátttaka var á mótinu og
var keppnin skemmtileg og spennandi
í flestum flokkum.
í piltaflokki var það Úlfar Jónsson,
GK, sem sigraði á 280 höggum. í öðm
sæti varð Þorsteinn Hallgrímsson,
GV, á 292 höggum og þriðji varð Sig-
urjón Amarsson, GR, á 293 höggum.
I drengjaflokki sigraði Bjöm Knúts-
son, GK, á 294 höggum. Magnús
Karlsson, GA, varð annar á 303 högg-
um en Halldór Birgisson, GH, varð
þriðji á 306 höggum.
I stúlknaflokki sigraði Ragnhildur
Sigurðardóttir, GR, ömgglega á 325
höggum. Ámý Ámadóttir, GA, varð
önnur en Linda Hauksdóttir varð í
þriðja sæti.
Karen Sævarsdóttir, GS, varð ör-
uggur sigurvegari í telpnaflokki á 364
höggum. Rakel Þorsteinsdóttir, GS,
varð örrnur en Andrea Ásgrímsdóttir
varð i þriðja sæti. -SMJ
„Hirtu ekki um að kynna sér málið sjálfir“
- opið biéf til DV frá Jóni Steinari Gunnlaugssyni vegna máls Sigurðar Björgvinssonar
Á íþróttasíðu DV í dag, 27. júní,
var fjalláð um mál sem rekin hafa
verið fyrir dómstóli KSÍ og varða
leikmann frá ÍBK, Sigurð Björgvins-
son. Haft er eftir formanni knatt-
spymuráðs Keflavíkur að ég hafi,
verandi formaður dómstóls KSÍ, ve-
rið spurður álits á því hvort ÍBK
væri óhætt að láta Sigurð leika með
ÍBK gegn Víði. Hafi ég svarað því
til að það væri óhætt.
f tilefni af þessu og þar sem skrif
blaðsins sýnast ekki skýra þetta mál
alveg nægilega vel vil ég taka fram
eftirfarandi:
1. Fimmtudaginn 12. júní sl.
hringdi Hólmbert Friðjónsson, þjálf-
ari IBK, í mig og hafði uppi fyrir-
spumir um áfrýjanir á dómum og
réttaráhrif þeirra. Kom fram í máli
Hólmberts að þeim Keflvíkingum
hefði borist tilkynning frá héraðs-
dómstóli UMSK um að einn leik-
manna fBK, Sigurður Björgvinsson,
hefði verið dæmdur í leikbann. Ég
ráðlagði Hólmbert að þeir Keflvík-
ingar skyldu fá sér lögmann í málið
og benti honum jafnframt á, að gefnu
tilefni hans, að um starfsemi dóm-
stóla íþróttahreyfingarinnar giltu
svonefnd dóms- og refsiákvæði fyrir
ÍSf. Hólmbert spurði hvort áfrýjun á
úrskurði héraðsdómstóls um leik-
bann frestaði gildistöku leikbanns-
ins. Og þó að ég hafi það fyrir reglu
að gefa aldrei neinar fyrirfram yfir-
lýsingar um sakarefni dómsmála sem
til dómstóls KSÍ kann að verða skot-
ið taldi ég óhætt að segja Hólmbert
það, sem hveijum manni á að vera
ljóst, að áfrýjun á úrskurði um leik-
bann frestar vitaskuld gildistöku
þess, enda væri áfrýjun tilgangslaus
ef svo væri ekki.
2. Föstudaginn 13. júní sl. hafði
lögmaður nokkur samband við mig
og tjáði mér að ÍBK hefði falið sér
að áfrýja úrskurði héraðsdómstóls
UMSK frá því fyrr í vikunr.i um leik-
bann. Ég sagði honum að hann gæti
áfrýjað með símskeyti til mín og lát-
ið gögnin fylgja síðar. í samtali
okkar kom fram hið sama og áður
að áfrýjun úrskurðar um leikbann
frestar framkvæmd. í hvorugu fram-
angreindra símtali tjáði ég mig neitt
uramál Sigurðar Björgvinssonar sér-
staklega enda vissi ég ekkert um
málsatvik í því. Lögmaðurinn sendi
mér svo símskeyti daginn eftir þar
sem hann krefst þess fyrir hönd Sig-
urðar Björgvinssonar að úrskurðað
keppnisbann héraðsdómstóls
UMSK, dags. 11. júní 1986, verði fellt
úr gildi.
3. Þegar forsvarsmenn ÍBK fóru að
kynna sér úrskurð þann, sem þeir
höfðu áfrýjað, kom í ljós að alls ekki
var um að ræða dóm í máli Sigurð-
ar, eins og þeir virtust sjálfir hafa
talið, heldur var um það að ræða að
héraðsdómstóllinn hafði beitt Sig-
urði sérstakri bráðabirgðasviptingu
hlutgengis í eina viku, þar sem hann
hafði ekki mætt á boðað dómþing í
málinu. Um slíka ákvörðun dómstóls
gilda vitaskuld aðrar reglur varð-
andi réttaráhrif áfrýjunar. Aðili
getur áfrýjað en brjóti hann gegn
bráðabirgðabanni tekur hann sjálfur
(eða hans félag) áhættuna af því,
hvort bráðabirgðabannið verði stað-
fest eða fellt úr gildi.
4. Ég hafði auðvitað, þegar fyrr-
greind símtöl áttu sér stað, enga
hugmynd um að ákvörðunin sem
þeir Keflvíkingar vildu áfrýja væri
um bráðabirgðabann. Keflvíking-
arnir vissu það raunar ekki sjálfir
þar sem þeir höfðu ekkert kynnt sér
málið hjá hérðaðsdómstólnum eins
og þeir hefðu þó þurft að gera til að
vera færir um að gæta hagsmuna
sinna.
5. Öllum mönnum á að vera ljóst
að ekki er unnt að hafa samband við
dómara áður en málsmeðferð hefst
og fá frá honum fyrirfram skuld-
bindingu um hvemig dæmt verði.
Þetta er svo augljóst að það er alveg
furðulegt að forráðamenn ÍBK skuli
bera það á borð að þeir hafi verið
að leita eftir slíku. Svör mín við þá
gáfu þeim heldur engin tilefni til
þess að misskilja málið með þeim
hætti sem þeir gerðu. Misskilningur
þeirra stafar sýnilega af því að þeir
hirtu ekkert um að kynna sér mál
sitt sjálfir áður en þeir tóku ákvarð-
anir.
Reykjavík 27., júní 1986,
Jón Steinar Gunnlaugsson,
formaður dómstóls KSÍ.
• Janus Guðlaugsson.
Janus með
í kvöld?
- þegar Fram mætir KR
Janus Guðlaugsson knattspymu-
maður er orðinn löglegur með Fram í
1. deild. 1 kvöld leika Framarar gegn
KR í Laugardal og verður að telja
mjög líklegt að Janus leiki með Fram-
liðinu. Leikur liðanna hefst klukkan
átta og ef Framarar sigra verða þeir
einir á toppi 1. deildar með þriggja
stiga forskot á Val.