Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Page 24
24
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
Afturelding
enn án taps
4. deild
A-riðill:
Haukar-Snæfell 3-2. Lýður Skarphéðins-
son skoraði 2 mörk fyrir Hauka og Grétar
Hilmarsson eitt. Rafn Rafnsson skoraði
bæði mörkin fyrir Snæfell. f>ór, E> -Grund-
arfjörður 5-1. Mörk Þórs: 4rmann Sig-
urðsson 2, Jón Hreiðarsson, Ellert
Hreinsson og eitt sjálfemark.
Skotf. Rvík.- Augnablik 2-2.
Snæfell 6 3 12 12-10 10
Haukar 4 3 0 1 9- 5 9
Skotf.Rvfk 6 2 2 2 12-11 ,8
Augnablik 4 2 11 12-10 7
Þór, Þ 6 2 13 11-13 7
Grundarfj 4 0 13 4-11 1
B-riöill:
Víkingur, ól- Hveragerði 3-0. Mörkin
skoruðu þeir Viðar Gylfason, Arnljótur
Arnarsson og Villi Pétursson. Afturelding
Vikverji 3-1. Mörk Aftureldingar skor-
uðu Einar Kr. Guðmundsson, Óskar
Óskarsson og Lárus Jónsson. Mark Vík-
verja skoraði Níels Guðmundsson.
Markvörður Aftureldingar var rekiirn í
bað í leiknum.
Léttir Stokkseyri 3-2. Kári Ragnarsson
skoraði tvö mörk fyrir Létti en þriðja
markið skoraði Ingólfur Proppé, Mara-
dona þeirra Léttismanna.
Afturelding
Léttir
Hveragerði
Víkingur, Ól.
Víkverji
Stokkseyri
C-riðill:
Hafnir-Árvakur 2-5. Mörk Árvakurs
gerðu þrír gamlir KR-ingar, þeir Sigurður
Indriðason, Friðrik Þorbjömsson og Björn
Pétursson 3.
Grótta-Eyfellingur frestað.
Árvakur 5 4 1 0 21- 8 13
Leiknir, Rvk. 4 2 11 11- 8 7
Grótta 4 2 0 2 9- 5 6
Hafnir 5 2 0 3 12-12 6
Eyfellingur 4 0 0 4 3 22 0
D-riðill:
Geislinn Bolungarvík 1-3. Jóhann Æv-
arsson skoraði tvö fyrir Bolvíkinga og
Ámi Pétur Jónsson eitt. Bæði lið misnot-
uðu víti í leiknum.
Geislinn-Höfrungur 8 0.
15
12
6
4
Bolungarvík 3 5 0 0 : 12 5
Geislinn 5 4 f I : A - 3
B.Í. 4 2 0 2 7-10
Stefnir 4 112 6-12
Reynir, Hn. 6 114 6-34
Höfrungur 6 10 5 3 24-
E-riðill:
Svarfdælir-Höfðstrendingur 1-0. Mark
Svarfdæla gerði Bjöm Friðþjófeson.
Hvöt-Vaskur 3-0. Þeir Garðar Jónsson,
Ásgeir Valgarðsson og Kristinn Guðmunds-
son gerðu mörkin fyrir Hvöt í uppgjöri
toppliðgnna á Blöndudósi.
Hvöt
Vaskur
Svaxfdælir
Kormákur
Höfðstrendingur
4-deild
F-riðill:
Austri, Raufarh.-Tjömes 0-5. Mörk Tjör-
nnsinga gerðu Guðmundur Siguxjónsson,
Sigurður Illugason 2 og Friðrik Jónasson 2.
Mývetningar halda sigurgöngu sinni
áfraín og nú sigruðu þeir Núpa 44). Mörk
Mývetninga skomðu Ingvi Ragnar Kristj-
ánsson, Hörður Benónýsson, Haraldur
Bogason og Róbert Agnarsson.
HSÞ-b
Tjömes
Núpar
Æskan
Austri
G-riðill:
Huginn-Sindri 1-4
Neisti-Hrafhkell 0-2. Mörk Hrafnkels gerðu
þeir Vignir Garðarsson og Sigurður Elísson.
Súlan- Höttur leika 2/7.
Höttur
Sindri
Hrafnkell
Súlan
Huginn
Neisti
HV hættir
Ekki kemur til þess að HV leiki
fleiri leiki á yfirstandandi íslandsmóti
3. deildar í knattspymu. Þeim HV-
mönnum hefur gengið mjög erfiðlega
að skrapa saman í lið hingað til í
mótinu og nú ha£a þeir gefist upp á
öllu saman, dregið lið sitt út úr ís-
landsmótinu. -SK
Þjóðverjamir
mjög ánægðir
- þvátt fyrir tapið
Mikil gleði ríkti í Þýskalandi í gær
þrátt fyrir ósigurinn gegn Argentínu.
Fólk þusti út á götur eftir leikinn og
víða var hálfgerð kamival-stemmning.
Menn gengu fylktu liði eftir götum i
V-Berlín og veifuðu þýska fánanum
og kölluðu „Þýskaland, Þýskaland".
Víða var flugeldum skotið á loft og
þýski fáninn var hvarvetna dregirm
að húni. Sala á áfengi hefúr aukist
um helming í stórmörkuðum í Þýska-
landi síðan ljóst varð að Þjóðverjar
lékju til úrslita. Þá hefur sjónvarpss-
ala einnig aukist verulega.
Almenn ánægja ríkir í Þýskalandi
með árangur landsliðsins sem var í
raun miklu betri en bjartsýnustu menn
höfðu þorað að vona. „Þýska liðið
komst miklu lengra en nokkur hafði
þorað að láta sig dreyma um, við verð-
um að játa það ef við eigum að vera
heiðarlegir," sagði Richard von
Weizaecker forseti sem horfði á leik-
inn í sjónvarpinu eins og 20 milljónir
Þjóðverja gerðu.
Þýsku sjónvarpsþulimir sögðu eftir
leikinn að þýska liðið hefði staðið sig
frábærlega í keppninni og tapað með
sóma fyrir Argentínu.
-SMJ
Staðan í 1.
Staðan í 1. deild eftir leiki helgarinn-
ar: Valur-ÍA ÍBK-Þór, Ak.. .1-0 2-3
UBK-FH .2-1
Fram - ...8 5 2 1 17-4 17
Valur ...9 5 2 2 10-4 17
Keflavík ...9 5 0 4 10-12 15
Akranes ...9 4 2 3 15-7 14
Þór, Ak ..9 4 2 3 14-16 14
KR ...8 3 4 1 11-5 13
UBK ..9 3 2 4 7-11 11
FH ..9 3 1 5 13-16 10
Víðir ...8 2 2 4 3-9 8
ÍBV ..8 0 1 7 5-21 1
og 2. deild
Áttunda umferðin í 2. deild var leikin
um helgina. Úrslit urðu þessi.
KA Njarðvík .4-0 0-1
KS-Víkingur .0-2
bróttnr-Skallaffrímur... .9-2
1-3
Staðan er nú þannig.
Selfoss 8 5 3 0 16-4 18
KA 8 4 4 0 25-6 16
Víkingur 8 5 1 2 26-8 16
Einheiji 8 4 2 2 11-12 14
Völsungur 8 3 2 3 12-8 11
Njarðvík 8 3 2 3 15-18 11
KS 8 2 3 3 13-12 9
ísafjörður 8 1 5 2 12-14 8
Þróttur 8 1 2 5 14-20 5
Skallagrímur....8 0 0 8 4-46 0
• Jorge Valdano skorar hér annað mark Argentinu gegn Vestur-Þýska-
landi í gær án þess að Tony Schumacher komi vörnum við. Simamynd/
Reuter
H I > JK ■ ■ ■ ■ ■
„Þjoðmm vertir
ekki af svona
gleðigjafa“
- sagði Aifonsin, forseti Argentínu
„Þetta er sarrnur gleðidagur fyrir
argentínsku þjóðina. Á þeim erfiðu
tímum sem þjóðin gengur í gegnum
núna veitir henni ekki af svona gleði-
gjafa,“ sagði Raul Alfonsin ,forseti
Árgentínu, við fréttamenn eftir leik-
inn. Alfonsin hringdi í Carlos Bilardo,
þjálfara liðsins, og óskaði hinum og
liðinu til hamingju með sigurinn. Al-
fonsin hrósaði þeim fyrir leikinn og
sagði að frammistaða þeirra og fram-
koma hefði verið til fyrirmyndar og
að sigurinn hefði verið sanngjam og
„óumdeilanlegur". Bilardo þakkaði
forsetanum þessi fögru orð og sagði
argentínska liðið með Maradona
fremstan í flokki vera „agað, hógvært,
trúað og fullt af sjálfstrausti".
Alfonsin sagði að það hefði óneitan-
lega farið um hann þegar Þjóðverjar
hefðu jafhað leikinn en sem betur fer
hefði Argentínumönnum tekist að
bæta við markinu sem þurfti.
Þjódhátíð í Argentínu
Það má segja að sannkölluð þjóð-
hátíðarstemmning hafi ríkt í Argen-
tínu eftir leikinn. Strax eftir að
leiknum lauk fylltust götur í Buenos
Aires, höfuðborg landsins, af fagnandi
fólki. Flautur voru þeyttar á bílum,
fólk dreifði konfekti úti á götum og
ókunnugir föðmuðust í gleði og víða
þaut fólk út á götur á nærfötunum
einum. Þá var víða slegið upp götu-
veislum og vín var teygað ótæpilega
enda annríki mikið hjá lögreglunni.
I La Rioja fylkinu hefur öllum verið
gefið frí á morgun og þar hefur verið
boðað til mikillar hátíðar. -SMJ
Argentí
i styrjo
signiðu V
„Þetta var sigur liðsheildarinnar -
við sigruðum vegna þess að leikmenn
Argentínu hrífast og leggja sig alla
fram. Taktískt eru lið Suður-Ameríku
langt á eftur evrópskum liðum en
tæknilega séð stöndum við framar.
Þegar hægt er að ná saman hrifhing-
unni og tækninni þá erum við sigur-
vegarar. Leikmenn mínir höfðu nóg
úthald síðustu fimmtán mínútumar
og ég hafði litlar áhyggjur af því þó
Þjóðverjar jöfnuðu. Við beittum
skyndisóknum allan leikinn og hefð-
um átt að skora fleiri mörk,“ sagði
þjálfari Argentínu, Carlos Salvador
Bilardo, 44 ára læknir, eftir að lið
hans hafði tryggt sér heimsmeistara-
titilinn í knattspymu á Azteca-leik-
vanginum í Mexíkó-borg í gær.
Verðskuldaður sigur, 3-2, í leik sem
lengstum líkist styrjöld milli liðanna
en var mjög spennandi lokakaflann.
Þýsku leikmönnum tókst að vinna upp
tveggja marka forustu Argentínu á
átta mín. kafla þegar langt var liðið á
leikinn. Jorge Bumuchaga átti hins
vegar síðasta orðið. Skoraði sigur-
mark Argentínu fimm mínútum fyrir
leikslok. Úrslitaleikur sem ekki verð-
ur lengi í minnum hafður, lengstum
stríð og ljót brot. Miklu betri leikir
áður sést á HM, einkum hjá Frökkum,
Brasih'umönnum og Dönum. Argen-
tínumenn verðskulduðu heimsmeist-
aratitilinn í þessari viðureign við
Þjóðverja - af tvennu illu eins og
nokkrir fréttamenn hafa látið í ljós
og undir það er tekið. Önnur lið í
keppninni, sem frekar hefðu verðskul-
dað titilinn. Þvi verður þó ekki breytt.
Argentínumenn heimsmeistarar í ann-
að sinn. Áður 1978. Fimmti úrslitaleik-
ur Vestur-Þýskalands.
„Ég óska Argentínumönnum til
hamingju með sigurimi. Þeir eru verð-
ugir heimsmeistarar og við varaheims-
meistarar. Ég tel að Diego Maradona
hafi ekki haft úrslitaáhrif í leiknum
og í sigri Argentínu. Ástæðan var fyrst
og fremst sú að á hættulegum augna-
blikum tókst leikmönnum mínum ekki
að einbeita sér nægilega. Öll þrjú
mörk komu eftir slíkar stöður. Hins
vegar gerðum við allt til þess að jafna
og tókst að vinna upp tveggja marka
mun. I lokin hegndum við sjálfúm
okkur. Það hefði átt að vera hægt að
komast hjá öllum mörkunum," sagði
Franz Beckenbauer, þjálfari Vestur-
Þýskalands, eftir leikinn.
Ekki Schumacher að kenna.
„Tapið var ekki markverði okkar,
Tony Schumacher, að kenna. Hann
er einn besti markvörður heims og
sýndi það alla heimsmeistarakeppn-
ina. Þetta var ef til vill ekki heppnis-
dagur hans en við getum ekki ásakað
hann fyrir það,“ sagði Beckenbauer.
„Við töpuðum vegna þess að ég var
svo lélegur. Ég vil ekkert segja meira
um það,“ sagði Schumacher eftir leik-
inn, sár út í sjálfan sig, og fleira fékkst
ekki upp úr honum.
„Við beittum rangstöðutaktíkinni
of mikið og ég held að annað mark
Argentínu hafi verið skorað eftir rang-
stöðu. En línuvörðurinn vai- á sínum
stað og hann var á annarri skoðun.
Við urðum að taka áhættu í vamar-
leiknum og það er útilokað gegn
Argentínu. Ég hef verið þátttakandi í
þremur heimsmeistaramótum og þetta
er það árangursríkasta hjá mér. Það
er erfitt fyrir Evrópulið að leika hér
vegna hæðarinnar og þunna loftsins.
Ég tel að við höfum náð frábærum
árangri,“ sagði Franz Beckenbauer í
lok fréttamannafúndarins. Hann var
fyrirliði heimsmeistara V-Þýskalands
1974.
„Það er hægt að gagnrýna þjálfara
en það kemur málinu ekki við. Þjálf-
ari þarf að ná saman hæfhi einstakl-
inganna í liðsheild og það held ég að
mér hafi tekist," sagði Bilardo, þjálfari
á fundinum, þegar hann var spurður
um þá miklu gagnrýni sem hann hefði
fengið heima fyrir.
Dapur leikur lengstum
Úrslitaleikurinn var lengstum held-
ur dapur og lítið fyrir augað. Mikið
um brot og mikið dæmt. Þó var dóm-
gæslan langt frá því að vera viðunandi
í úrslitaleik heimsmeistarakeppni.
Brasilíski dómarinn Romualdo Arppi
stóð sig ekki í stykkinu. Sýndi ekki
það vald sem honum var fengið. Þó
dæmdi hann á 45 brot eða rangstöður
í leiknum. 22 á Argentínu, 23 á Vest-
ur-Þýskaland. Ef farið er frekar yfir
leikinn í tölum þá áttu Argentínu-
menn sex skot á mark, Þjóðverjar
aðeins tvö og skoruðu úr báðum (skalli
síðara markið). Argentína átti fjögur
skot framhjá, Vestur-Þjóðverjar sjö.
Argentína fékk átta homspymur, V-
Þýskaland sex. Fjórir leikmenn
Argentínu bókaðir, tveir Þjóðverjar.
Lineker
marka-
kóngur
Þrátt fyrir að Argentínumanninum
Diego Maradona sé flest til lista lagt
í knattspymunni tókst honum ekki
að verða markakóngur á HM í Mex-
íkó. Það var Englendingurinn Gary
Lineker sem varð markakóngur og
skoraði hann sex mörk. Fimm mörk
skomðu þeir Emilio Butrageno, Spáni,
Diego Maradona, Argentínu, og
Careca, Spáni. Fjögur mörk skomðu
þeir Preben Elkjær, Danmörku,
Sandrto Altobelli, Ítalíu, Igor Belanov,
Sovétríkjunum, og Jorge Valdano,
Argentfnu. Þrjú mörk skomðu eftir-
taldir leikmenn: Rudi Völler, Vestur-
Þýskalandi, Jesper Olsen, Danmörku,
Jan Caulemans, Belgíu og Nico Vlaas-
en, Belgíu. Alls skomðu fjórtán
leikmenn tvö mörk í keppninni og á
meðal þeirra var Frakkinn Michel
Platini. -SK
^ J
'
fi*- .
* -
■
• Diego Maradona fékk oft óbliðar i
lika ansi vel. Enginn leikmaður á H
eins og þessi lágvaxni snillingur frá
dona í einni af mörgum „flugferð