Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Page 25
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
25
róttir íþróttir__________________íþróttir__________________íþróttir__________________Iþróttir
numenn sigraðu
Idinni á Azteca
'Þjóðveija, 3-2, í grófum en spennandi úrslitaleik
Miðvörðurinn Jose Luis Brown
skoraði fyrsta mark leikins á 22. mín.
eftir aukaspyrnu Burruchaga. Skall-
aði í mark eftir slæmt úthlaup
Schumacher sem náði ekki til knattar-
ins. Aukaspyman dæmd þegar
Matthaeus braut á Maradona og var
bókaður. Furðulegt hjá Beckenbauer
að láta Matthaeus elta Maradona
lengi vel - láta leikstjómanda liðsins
og besta mann í það hlutverk. Loks
þegar hann var látinn hætta því lagað-
ist leikur þýskra.
Jorge Valdano, miðherji Real
Madrid, skoraði annað mark Argent-
ínu á 56. mín. Maradona upphafsmað-
ur upphlaupsins. Gaf á Enrique,
Valdano komst írá gæslumanni sínum.
Fékk knöttinn frír og skoraði á mjög
sannfærandi hátt. í byrjun síðari hálf-
leiksins meiddist miðvörðurinn Brown
illa á öxl. „Ég hafði miklar áhyggjur
af meiðslum hans þar sem hann er
aftasti maður í vöm okkar. Þegar
Þýskaland jaíhaði var leikurinn allt í
einu orðinn miklu erfiðari en við héld-
um að hann yrði. En guði sé lof fyrir
mark Burruchaga," sagði hinn mið-
vörður argentínska liðsins, Oscar
Ruggeri, eftir leikinn. Brown slasaðist
á hægii öxl og átti í miklum erfiðleik-
um eftir það, handleggurinn máttlítill.
Þó lék hann til loka og á fréttamanna-
fundinum var Bilardo spurður hvers
vegna hann hefði ekki skipt um leik-
mann. „Hættið þessu nú - ekki spyija
mig frekar. Ég get ekki sagt meira,“
og tárin streymdu niður kinnar hans.
Rudi Völler hafði komið í stað All-
ofs hjá þýskum í byijun síðari hálfleiks
og á 61. mín. sendi Beckenbauer Diet-
er Hoeness inn á í stað Magath
jafnframt sem hann breytti leikaðferð
liðsins. Argentinumenn drógu sig
mjög í vöm, greinilega staðráðnir í
að halda fengnum hlut. Það tókst þeim
ekki. Á 74. mín. tók Bremhe hom-
spymu. Knötturinn skallaður áfram
til Rummenigge, sem var frir á mark-
teig og skoraði. 2-1 og fyrsta skot
þýskra á rammann í leiknum. Á 82.
mín. tókst Rudi Völler að jafha. Breh-
me gaf fyrir. Berthold skallaði til
Völler sem stýrði knettinum með höfð-
inu í mark. 2-2 en gleði þýskra var
skammvinn. Aðeins þremur mín. síðar
skoraði Burmchaga. Fékk langa send-
ingu fram. Þýsku vamarmennimir
allt of framarlega og eftirleikurinn var
auðveldur, 3-2, og síðan rann leik-
tíminn út.
„Það vom mikil mistök hjá okkur
að leika sóknarleik áfram eftir að við
höfðum jafhað. Það var gert í ein-
hverri sæluvímu. Áuðvitað er það
frábær árangur að hafa komist í úrslit
en ég er mjög vonsvikinn vegna taps-
ins í þessum frábæra úrslitaleik. Ég
veit ekki hvort ég hætti núna í lands-
liðinu. Fer nú í fri og hugsa þá málið,“
sagði Rummenigge eftir leikinn.
„Ég var sannfærður um að framlengt
yrði eftir að ég hafði jafhað. Ég held
að við hefðum þá átt góða sigurmögu-
leika þar sem við erum sterkari
líkamlega. Ég er ánægður með árang-
urinn á HM þó ég sé nú í augnablikinu
sár,“ sagði Rudi Völler eftir leikinn.
„Þetta var síðasti landsleikur minn.
Lið, sem leikur sóknarleik áffarn eins
og við gerðum eftir að hafa jafhað í
2-2, á ekki skilið að sigra. Vonbrigði
mín eru mikil," sagði Briegel eftir leik-
inn. „I framtíðinni mun ég minnast
HM sem yndislegs íþróttaviðburðar. í
dag lék ég minn síðasta leik,“ sagði
Felix Magath.
Liðin í úrslitaleiknum voru þannig
skipuð: Argentína. Pumpido, Cuciuffo,
Brown, Ruggeri, Olarticoechea, En-
rique, Giusti, Batista, Burruchaga
(Trobbiani 89. mín) Maradona, Vald-
ano.
V-Þýskaland. Schumacher, Brehme,
Eder, Jakobs, Föster, Briegel, Bert-
hold, Matthaeus, Magath (Hoeness),
Rummenigge, Allofs (Völler).
Eftir leikinn tók fyrirliði Argentínu,
Diego Maradona, við HM-styttunni,
glaður mjög. Hann var stóra stjaman
í keppninni - þetta var heimsmeistara-
keppni Maradona þó oft hafí hann
verið atkvæðameiri í öðrum leikjum
en í gær. Síðan hlupu leikmenn Arg-
entínu heiðurshring og voru hylltir
mjög af 114 þúsund áhorfendum. Það
voru lokin á heimsins mestu sýningu.
hsím
Burrachaga skorar hér sigurmark Argentínumanna og tvímælalaust mikilvægasta mark þeirra i HM-keppninni. Símamynd/Reuter
„Diego Maradona -
eina stjaman á HM I Heimsmet
• Emilio Butrageno, Spáni, skor-
aði eftir aðeins 63 sekúndur.
Simamynd/Reuter
132 mörk í
52 leikjum
f leikjunum 52 á HM í Mexíkó voru
skoruð 132 mörk sem gerir að meðal-
tali 2,8 mörk í leik. Metið í úrslita-
keppni er síðan 1954 en þá voru skoruð
að meðaltali 5,3 mörk í leik.
• Heimsmeistarar Argentínuskoruðu
flest mörk allra liðanna i Mexíkó eða
14.
• Sá sem skoraði flest mörk í einum
og sama leiknum var Spánveijinn
Emilio Butrageno en hann skoraði
fjögur mörk í 5-1 sigrinum gegn Dön-
um.
• Tveimur liðum tókst að skora sex
mörk í einum leik. Dönum í leiknum
gegn Uruguay og Sovétmönnum gegn
Ungveijalandi.
• I tveimur leikjum voru alls skomð
sjö mörk. Annars vegar í leik Dana
og Urugauy (6-1) og hins vegar í leik
Belga og Sovétmanna (4-3).
• Carlos, markvörður Brasilíu, hélt
markinu lengst hreinu eða í heila 401
mínútu. Hann var 41 mínútu frá meti
Englendingsins Gordon Banks frá
1966.
• Spánverjinn, Emilio Butrageno,
þurfti skemmstan tíma til að skora
mark í leik í Mexíkó. Hann skoraði
eftir aðeins 63 sekúndur í leik Spán-
verja og Norður-íra.
• Alls var átta leikmönnum vísað af
leikvelli í leikjunum 52 á HM. Þeir
sem fengu rauða spjaldið vom: Mike
Sweeney, Kanada, Ray Wilkins, Eng-
landi, Basil Gourgies, frak, Miguel
Bossio, Uruguay, Jose Batista, Uragu-
ay, Frank Amesen, Danmörku,
Thomas Berthold, Vestur-Þýskalandi
og Mexíkaninn Javier Aguirre. -SK
Fagnað sem
þjóðhetjum
Knstján Bemburg, DV, Belgíu.
Belgar sem lentu í fjórða sæti á HM,
koma heim í dag eftir 20 klukkustunda
erfiða ferð frá Mexíkó. Það verður
tekið á móti þeim sem þjóðhetjum.
Verða hylltir á svölum ráðhússins í
Brússel og síðan verða skór þeir, sem
þeir léku i á HM, seldir á uppboði.
Allur ágóði rennur til munaðarlausra
bama í Mexíkó. Eftir athöfnina á ráð-
hústorginu í Brússel fer HM-hópurinn
í veislu til Belgíukonungs. Þessu verð-
ur öllu sjónvarpað beint. -hsím
sagði Hidalgo, fyrrum landsliðsþjálfari Frakka
móttökur hjá Þjóðverjum í gær en lék
M sló eins virkilega i gegn í Mexikó
Argentinu. Á þessari mynd er Mara-
um“ sinum f úrslitaleiknum í gær.
Símamynd/Reuter
„Hann er sá besti síðan Pele hætti
að leika í landsliði Brasilíu. Hann var
langbesti leikmaðurinn á HM. Hann
skorar mörk - hann býr til mörk og
hann gerir það á yndislegan, einstakl-
ingsbundinn hátt. Stórkostlegur
leikmaður. Stendur einn á hátindi
knattspymunnar og er svo ólíkur öðr-
um. Það er hugarflug í leik hans,“
sagði Giovanni Facchetti, fyrrum fyr-
irliði Ítalíu, eftir úrslitaleikinn á HM
í gær.
„Diego Maradona er virkileg
stjama, eina stjaman í þessari heims-
meistarakeppni. Stórkostlegur leik-
maður, sem einn getur breytt gangi
leiks og á sama tíma leikið fyrir liðs-
heildina. Ég líki honum við Pele. Hann
hefur hugmyndaflug og hæfni Pele.
Enginn leikmaður heims nú á skilið
að vera borinn saman við Mara-
dona,“ sagði Michel Hidalgo, fyrrum
landsliðsþjálfari Frakka.
„Argentína treystir á Maradona,
hann er innblástur leikmanna liðsins.
Þó hans hafi verið stranglega gætt í
úrslitaleiknum sannaði Maradona að
hann er sá besti í heimi. En þó ég við-
urkenni að hann er sá langbesti í dag
stenst hann ekki samanburð við þá
bestu áður - ekki enn,“ sagði Paul
Breitner, fyrrum fyrirliði Vestur-
Þýskalands.
„Hann er án efa sá besti í dag en
ég tel að hann verði að sanna enn
betur að hann jafhist á við Pele. Það
er mikill vamarleikur leikinn í dag
en hæfhi Maradona til að leika á jafri-
vel þá bestu með undraverðum hraða
skilur hann nú frá öllum öðrum,“ sagði
Trevor Brooking, sem skoraði þrennu
í úrslitaleik HM 1966. hsím
jafnað
- tveir yfír 80 m
Heike Drechsler, A-Þýskalandi, sem
setti heimsmet nýlega í langstökki
kvenna, jafnaði í gær heimsmetið í 200
m hlaupi á móti í Austur-Berlín. Hljóp
á 21,71 sek. Sami tími og Marita Koch,
A-Þýskalandi, hefúr hlaupið á. Á mót-
inu sigraði Detlef Michel í spjótkasti.
Kastaði 82,84 m. Gerald Weiss annar
með 80,88 m og Thomas Scháffner
þriðji með 79,86 m. hsím