Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Side 28
28
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
íþróttir__________________Iþróttir__________________Iþróttir Iþróttir
Þórsarar rufu 5 leikja
sigurgöngu Keflvíkinga
- sigruðu 3-2 í 1. deildinni í Keflavík
1. deildj Keflavíkur-
^ völlur, IBK-Þór, 2-3 (0-1)
Fimm leikja sigurganga ÍBK var
rofin af norðanpiltum Þórs í Keflavík
á fostudagskvöldið þegar gestimir
báru sigurorð af heimamönnum með
eins marks mun, 2-3. Fyrri hálfleikur
var mjög þófkenndur og bar fátt til
tíðinda en hinn seinni var hins vegar
líflegri, hraður og opinn, með mörgum
góðum tækifærum, þar sem fjögur
nýttust, tvö hjá hvoru liði, en það sem
á milli skildi var að Þórsarar höfðu
nýtt eiginlega sitt eina tækifæri í fyrri
hálfleik og fengu þvi öll stigin þrjú í
sinn hlut og áttu það raunar skilið -
þeir voru öllu ákveðnari og ljónviljug-
ir þegar á heildina er litið. Þrátt fyrir
ósigurinn geta Keflvíkingar vel við
T unað - liðið sýndi oft góða kafla og
þeir verða vafalítið fleiri þegar lengra
líður.
Norðanmenn voru fremur seinir í
gang. Menn voru að gera því skóna
að viðbrigðin við að koma úr sólskin-
inu og ylnum fyrir norðan og í
suddann og svalann fyrir sunnan ættu
þar sök á - þeir hafi verið svona lengi
að hitna. En hvað sem öllum vanga-
veltum líður áttu Keflvíkingar aðeins
tvö skot í fyrri hálfleik sem vert er að
geta, skot Óla Þórs, sem geigaði, og
skot Skúla Rósantssonar, sem Baldvin
■* Guðmundsson varði. Halldór Áskels-
son var sá norðanmanna sem fyrstur
kom Þorsteini Bjamasyni markverði
til að reyna eitthvað virkilega á sig á
milli stanganna og ekki brást Þor-
steinn, varði fast skot hans, en hann
réð samt ekki við þrumuskot Kristjáns
Kristjánssonar á 41. mín., þegar
Kristján fékk sendingu frá Hlyni Birg-
issyni, þaut í gegnum ÍBK-vömina og
sendi knöttinn fram hjá Þorsteini í
marksúlu og í netið, 0-1. Ingvar Guð-
mundsson var nærri því að jafna rétt
fyrir hlé en var ekki nógu ákveðinn í
markteigshominu og náði ekki að
miða skotið sem geigaði og lenti rétt
utan við marksúlu.
Kristján Kristjánsson ögraði Þor-
steini aftur snemma í s.h. en skaut
gróflega yfir markið. Keflvíkingar sáu
að við svo búið mátti ekki standa og
Skúli Rósantsson sannaði að aldrei
má gefast upp - hann elti knöttinn
fram að endamörkum og tókst á sein-
ustu sentímetmnum að spyma honum
fyrir markið, en þangað var Einar
Ásbjöm Ólafsson miðvörður kominn
og skallaði knöttinn undir þverslá og
í netið, 1-1.
Mikið kapp hljóp í leikmenn við
jöfnunarmarkið. Jafritefli var alls ekki
það sem þeir gætu sætt sig við. Sigur
og ekkert annað skyldi það verða enda
lifnaði yfir áhorfendum sem varla
höfðu gefið frá sér svo mikið sem eina
stunu í fyrri hálfleik. Norðanmenn
hopuðu um sinn nokkuð í vömina því
heimamenn hertu sóknaraðgerðir sín-
ar svo allt benti í þá átt að þeir fæm
að koma knettinum í norðanmarkið,
en dæmið snerist óvænt heldur betur
við. I skyndisókn leika þeir Halldór
Áskelsson og Kristján Kristjánsson
skemmtilega vel saman sem endar með
því að sá síðamefndi kemst inn fyrir
vöm ÍBK og lyftir knettinum yfir
Þorstein og í markið, 1-2, á 67. mín.
Keflvfldnga tók það svo sjö mín. að
jafiia eftir allgóðar sóknaraðgerðir.
Or homspymu er Rúnar Georgsson
að kljást við nokkra Þórsara. Hefúr
betur og lyftir knettinum að marki
Þórs þar sem Freyr Sverrisson kemur
aðvífandi og breytir stefiiu hans með
höfðinu og í markið, 2-2. Kannski
nældi hann í markið af Rúnari því
knötturinn hefði sennilega hafhað í
markinu hvort eð var.
Eftir markið var aldeilis líf í tuskun-
um. Knötturinn gekk marka á milli
með miklum hraða enda höfðu leik-
menn nægilegt þrek og gátu því tekið
vel á, svo sem þlautur og háll völlur-
inn leyfði. Heimamenn vom öllu
ágengari en svo kom reiðarslagið. Á
86. mín. nær Jónas Róbertsson knett>
inum á vítateigslínu, sendir til Sigur-
óla Kristjónssonar. í stað þess að
reyna sjálfur að skjóta skallar hann
knöttinn til Nóa Bjömssonar vamar-
manns sem var þama eins og óboðinn
gestur. Nói sýndi þá HM-látbragð -
Maradonatakta - og sendi knöttinn
með utanfótarspymu undir þverslá og
í netið, 2-3. Mjög laglega gert og þessu
marki tókst heimamönnum ekki að
svara þær fáu mínútur sem eftir vom.
Einar Ásbjöm, Óli Þór, Skúli Rós-
antsson og Freyr Sverrisson vom
virkastir í IBK-liðinu, sem barðist vel
en uppskar ekki alveg í samræmi við
það - en hraði, kraftur, samleikur og
viljinn er fyrir hendi þótt hittnin hafi
yfirgefið liðið í bili.
Þórsarar sýndu nú það sem menn
þóttust vita að byggi í þeim og miðuðu
þá við liðið eins og það var í fyrra.
Snerpan og frískleikinn, sem það sýndi
þá, kom í ljós núna og þeir verða öllum
skeinuhættir haldi þeir áfram á sömu
braut. Kristján Kristjánsson, Nói
Bjömsson og Hlynur Birgisson vom
ásamt Baldvini Guðmundssyni mark-
verði einna bestir í Þórsliðinu, ef hægt
er á annað borð að gera upp á milli
manna þar.
Dómari var Oh Olsen sem búinn er
að temja sér traustvekjandi og ömggt
fas - kannski dregið dám af kollegum
sínum í HM, lét leikinn ganga og hafði
gott vald á því, en slíkt er ekki á allra
færi.
Lið ÍBK: Gísli Grétarsson, Þorsteinn
Kristján Kristjánsson skoraði tvivegis
í leiknum.
Bjamason, Rúnar Georgsson, Einar
Ásbjöm Ólafeson, Valþór Sigþórsson,
Freyr Sverrisson, Gunnar Óddsson,
Siguijón Sveinsson, Ingvar Guð-
mundsson, Skúli Rósantsson, Óli Þór
Magnússon. Varam. í s.h. Sigurður
Guðnason og Jón Sveinsson.
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson,
Sigurbjöm Viðarsson, Jónas Róberts-
son, Nói Bjömsson, Ámi Stefánsson,
Siguróli Kristjánsson, Halldór Áskels-
son, Júlíus Tryggvason, Kristján
Kristjánsson, Hlynur Birgisson, Bald-
ur Guðnason.
Gul spjöld: Ámi Stefánsson og Hlynur
Birgisson.
Áhorfendur 565.
Maður leiksins: Kristján Kristjánsson,
Þór.
emm
„Við áttum að deila 3. sætinu
á HM eftir venjulegan leiktíma“
- sagði Guy Tliys, landsliðsþjálfari Belgíu. Frakkar í 3.sæti
„Við höfum viljann til að sigra og
þetta hefur verið mjög góð keppni fyr-
ir Frakkland þegar leikurinn við
Vestur-Þjóðverja er undanskilinn. Ég
get ekkert um það sagt hvort lið okk-
ar gegn Belgíu er hið nýja landslið
Frakklands. Það er alltof fljótt að spá
•Genghini átti stórleik á laugardag.
nokkm um það. Við sjáum hvað skeð-
ur þegar Frakkland fer að verja
Evrópumeistaratitil sinn. Platini, sem
er andlega mjög þreyttur, bað um að
verða hvfldur og það var ágætt því ég
ætlaði að gefa öllum leikmönnum mín-
um tækifæri til að leika á HM,“ sagði
Henri Michel, landsliðsþjálfari Frakk-
lands, á laugardag eftir að lið hans
hafði tryggt sér þriðja sætið á HM,
sigrað Belgíu 4-2 í framlengdum leik.
2-2 eftir venjulegan leiktíma.
„Að leika um þriðja sætið og þurfa
framlengingu til að fá úrslit er of mik-
ið af því góða. Þegar liðin vom jöfri
eftir venjulegan leiktíma áttu þau að
deila með sér þriðja sætinu. Þetta var
í þriðja skipti á HM sem leikmenn
mínir þurftu að leika í 120 mínútur.
Það hlaut að koma niður á þeim í
framlengingunni. En ég er mjög án-
ægður með frammistöðu leikmanna
minna á HM. Það er frábært að eiga
þijá tvítuga leikmenn í liðinu, Vervo-
ort, Demol og Scifo, sem efldust með
hveijum leik. Auðvitað viðurkenni ég
- um það þarf ekki að deila - að Frakk-
ar eiga sterkara lið en það sem lék
gegn okkur í dag. Þessar breytingar
drógu þó ekki úr getu franska lands-
liðsins," sagði Guy Thys, hinn 62 ára
landsliðsþjálfari Belgíu, sem fyrir leik-
Heimsmet hjá Gross
Vestur-þýski sundmaðurinn Micha-
el Gross setti um helgina nýtt heims-
met í 200 metra flugsundi. Afrekið
vann hann á móti í Hannover í Vest-
ur-Þýskalandi. Hann synti vegalengd-
ina á 1:56,24 min. en sjálfur átti hann
eldra metið sem var 1:56,65 mín. og
setti hann það á móti í ágúst í fyrra.
-SK
inn skrifaði undir nýjan tveggja ára
samning sem landsliðsþjálfari. Hann
hefur verið með liðið í 10 ár.
Það sýnir mikinn styrk franskrar
knattspymu að aðeins þrír af aðal-
mönnum Frakka á HM, Amoros,
Battiston og Tigana, voru í byijunar-
liðinu gegn Belgíu. Battiston fyrirliði.
Bossis kom inn á 57. mín. þegar Yvon
Le Roux meiddist. Tigana, sá mikli
snillingur, hvíldur á 84. min. Merki-
legt að Albert Rust, 32 ára markvörð-
ur, lék þama sinn fyrsta landsleik í
aðalliðinu eftir að hafa verið fjögur ár
í landsliðshópnum. Hins vegar hefur
hann leikið landsleiki áður. Varð
ólympíumeistari 1984. Hann lék þó
aðeins á laugardag vegna þess að ann-
ar markvörður Frakka, Philippe
Bergeroo, er meiddur.
Leikurinn á laugardag var að mörgu
leyti skemmtilegur. Jan Ceulemans,
sá stórgóði leikmaður, skoraði fyrsta
markið á 11. mín. Jean Marc Ferreri
jainaði fyrir Frakkland á 27. mín. og
Jean Pierre Papin kom Frökkum yfir
á 43. mín. Nico Clasen jafhaði í 2-2 á
73. mín. 2-2 eftir venjulegan leiktíma.
Þeir Bemard Genghini, sem átti stór-
leik í franska liðinu, og Manuel
Amoros skoruðu á 104. og 109. mín.
Mark Amoros úr vítaspymu. Liðin
vom þannig skipuð.
Frakkland: Rust, Bibard, Re Roux
(Bossis), Battiston, Amoros, Tigana
(Tusseau), Ferreri, Vercmysse, Geng-
hini, Papin og Bellone.
Belgía. Pfaif, Gerets, Demol, Ren-
quin (Frankie van der Elst 46. mín.),
Vervoort, Grun, Scifo (Leo van der
Elst 64. mín.), Mommens, Cuelemans,
Veyt og Claesen. hsím
Fyrsta tap ÍR í 3. deild
ÍR-ingar töpuðu sínum fyrsta leik
í A-riðli þriðju deildar þegar þeir
sóttu Fylki heim. Fylkismenn sigr-
uðu með einu marki gegn engu og
skoraði Óskar Theódórsson sigur-
markið. Stjaman úr Garðabæ tapaði
þriðja leik sínum í röð eftir annars
ágæta byijun. Stjaman fékk Grind-
víkinga í heimsókn og lauk leiknum
með sigri Grindvíkinga, 2-1. Ragnar
Eðvaldsson og Ólafur Ingólfsson
skomðu fyrir gestina en Bjami Ben-
ediktsson minnkaði muninn fyrir
Garðbæinga.
ÍK tryggði sér toppsætið í riðlinum
með 4-2 sigri á Ármenningum. Þeir
Jóhann Pálmason og Gunnar Þ.
Guðmundsson gerðu báðir 2 mörk
fyrir Kópavogsbúa en Smári Jósa-
fatsson og Ari Már Torfason skomðu
fyrir Ármenninga.
Staðan í A-riðli
ÍK
Fylkir
ÍR
Grindavík
Reynir Sandg.
Stjaman
Ármann
5 4 0 1 9-5
5 3 11 12-4
5 3 11 6-1
5 2 0 3 6-8
4 1 2 0 4—4
4 1 0 3 3-5
6 0 2 4 5-18
HV er hætt keppni.
12
10
10
6
5
3
2
Þriðja jafntefli Þróttar í röð
Þróttarar frá Neskaupstað gerðu
þriðja jafnteflið í röð þegar þeir
fengu Tindastól í heimsókn. Her-
mann Þórisson og Hólmar Ástvalds-
son skomðu fyrir aðkomumennina
en þeir Magnús Jónsson og Marteinn
Guðgeirsson jöfnuðu fyrir heima-
menn á síðustu 10 mínútunum.
Leiftur frá Ólafefirði heldur enn
sínu striki í B-riðli 3. deildar, sigraði
Leikni á Fáskrúðsfirði 2-1. Einar
Áskelsson og Óskar Ingimundarson
skoruðu fyrir Leiftur en Bergþór
Friðriksson skoraði fyrir heima-
menn. Magni og Austri gerðu jafn-
tefli, 0-0. Reynir Árskógsströnd
sigraði Val frá Reyðarfirði 3-2 í bar-
áttuleik. Júlíus Guðmundsson, 2, og
Garðar Níelsson skomðu fyrir Reyni
en þeir Agnar Amþórsson og Stein-
þór Stefánsson fyrir Val.
Staðan í B-riðli
Leiftur
Tindastóll
Þróttur
Austri
Magni
Reynir Ár.
Valur
Leiknir
6 4 2 0 12-4 14
6 3 3 0 10-6 12
6 2 4 0 12-6 10
6 2 2 2 7-7 8
6 2 2 2 6-6 8
6 2 2 2 10-11 8
6114 6-11 4
6 0 0 6 2-14 0