Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Síða 31
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
31
Kúlað á rækjuna. Vanir menn á afiahæsta bátnum á Norðurlandi á síðustu vertíð, Siguriara ÓF 30. Við „splæsum i gegn“ og gefum upp nöfnin. Kjartan
Gústafsson matsveinn, Númi Jóhannsson skipstjóri og Jóel Kristjánsson stýrimaður. DV-mynd JGH
DV á Ólafsfirði:
Aflaklær
kúla
Jón G. Ifenkssan, DV, Akureryri;
Aflahæsti bátur á Norðurlandi á
nýlokinni vertíð, Sigurfari ÓF 30,
frá Ólafsfirði, verður á rækjuveið-
um i sumar. Báturinn er senn að
verða klár enda hafa þau verið
snör handtökin að undanfömu við
að útbúa rækjuvörpuna.
„Við verðum á rækju fram að
síld,“ sagði Númi Jóhannsson,
skipstjóri á Sigurfara, við DV.
„Okkur líst vel á rækjuna, það er
nóg af henni meðfram öllum land-
kantinum út af Norðurlandi.“
Sigurfari veiddi 1045 tonn á ver-
tíðinni í vetur og þau tonn skutu
áhöfninni á toppinn. Vanir menn,
Númi og kó.
4
Jónína Árnadóttir Dalvíkingur hjólar
eins og allir aðrir Dalvíkingar. Ástæð-
an er flatlendi Dalvíkur.
DV-mynd JGH
DV á Dalvík:
„Hef
alttaf
hjólað“
Jón G. Haúkssan, DV, Akureyri;
Á Dalvík hjóla allir. Og þar kippir
sér enginn upp við að sjá virðulegar
frúr í pilsum á hjóli. Ekki í pilsi, en
virðuleg samt, Jónína Ámadóttir, sex-
tugur Dalvíkingur: „Ég fer allar mínar
ferðir á hjóli og hef alltaf gert,“ sagði
hún við'DV.
„Annars er umferðin orðin svo mikil
hér að ég er alltaf skíthrædd um að
verða keyrð niður. Það er því vissara
að vera varkár."
Jónína sagði að hún gerði nokkuð
af því, eins og aðrir Dalvfldngar, að
fara í hjólaferðir á kvöldin. „Það er
stórkostlegt að fá sér hjólasprett út
að bænum Hóli, hér við bæjarmörkin,
á kvöldin. Mjög hressandi."
En hjólreiðar hafa ekki aðeins góð
áhrif á heilsuna. „Þetta er líka svo
ódýrt. Ekkert bensín þó það sé nú að
lækka.“
-Tilbúin í myndatöku, Jónína?
„Ekkert sjálfsagðara, það verður að
birtast mynd af þeirri gömlu,“ sagði
hún hlæjandi.
Þaðerdýrt
raftnagnið sem þú dregur að borga
Rafmagn er svo snar þáttur
í lífi okkar að við veitum því
varla athygli. Flest heimilistæki
og vélar á vinnustað ganga
fyrir rafmagni og við erum svo
háð þeim að óbeint göngum
við sjálf fyrir rafmagni.
Þessu ,,sjálfsagða“ raf-
magni er dreift til okkar af
rafmagnsveitu. Rafmagnsveita
Reykjavíkur leggur metnað
sinn í stöðuga og hnökralausa
dreifingu til neytenda. Dreif-
ingarkostnaður greiðist af
orkugjaldi.
Ógreiddir reikningar hlaða
á sig háum vaxtakostnaði sem
veldur því að rafmagnið er nær
þriðjungi dýrara hjá þeim
skuldseigustu — þar til þeir
hætta að fá rafmagn.
Láttu orkureikninginn hafa
forgang!
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SÍMI686222
ARGUS/SÍA