Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Blaðsíða 39
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
39
Sandkorn Sandkorn
Túrismi
Hún Maríanna Trausta-
dóttir, hótelstýra sumarhót-
elsins að Laugalandi, komst
svo að orði í viðtali nýlega.
Hún sagði: „Túrisminn er í
rauninni heljarstór mann-
fræðirannsókn." Það viður-
kennist að oft er gónt á
túrhesta en ekki svona.
Að heita Þór-
arinn
í sveitarstjómarkosningum
í Kelduneshreppi kom upp
skrýtin staða. Á bænum Vog-
um eru þrír menn sem allir
heita Þórarinn Þórarinsson.
Þórarinn, sonur hans Þórar-
inn og svo aftur sonur hans,
Þórarinn. Þórarinn í miðið
féll úrhreppsnefnd. Hann fékk
30 atkvæði, öll sérmerkt hon-
um. En átta atkvæði voru
merkt Þórarni Þórarinssyni í
Vogum. Þessi átta atkvæði
voru dæmd ógild og það réð
úrslitum, því næsti á undan
fékk 30 atkvæði. Svona er að
heita Þórarinn.
Hálfeitt
Það vakti nokkra athygli
þegar Sjallinn tók upp á því
að loka miðasölunni klukkan
hálf eitt á kvöldin um helgar.
Menn héldu að staðurinn
myndi guggna á þessu en nú
er komið á nóttina að allir
skunda í Sjallann fyrir kl.
hálf eitt. Má sj á langa biðröð
við húsið þegar um miðnætti.
Mikið er sungið í röðinni,
enda flestir þá að sötra síðustu
dropana af gargolíunni.
Stillitugga
EnnumSjallann:
Þrátt fyrir marga ferðamenn
á Akureyri þessa dagana hef-
ur hæsti maður í heimi,
Gabríel Monjane frá Mos-
ambique, 2 metrar og guð ma
vita hvað í viðbót, ekki komið
ennþá. Sennilega þyrftum við
líka að vita af komu hans fyr-
irfram.
Úr þýddu viðtali við hann í
Degi nýlega:
„Til að verða saddur eftir
máltíð þarf ég að borða að
minnsta kosti einn brauðhleif,
11/2 kíló af kjöti, fjórar kart-
öflur, hrísgrjón og heilmikið
af grænmeti. Fyrir mig er einn
kjúklingur bara stillitugga."
Rúvak
Nú heyrist að Jónas Jónas-
son, sem afhendir starf út-
varpsstjóra Rúvak til Emu
Indriðadóttur, sé á leiðinni til
Kaupmannahafnar að „hlusta
á götur“. Penninn með og því
væntanlega bók á leiðinni frá
Jónasi.
Hákur etur
Nú er verið að dýpka höfn-
ina á Skagaströnd, áætlað er
að dæla 12-15000 rúmmetrum
úr höfninni. Það kom því fáum
á óvart að það var dýpkunar-
skipið Hákur sem sent var á
staðinn.
Vantarfólk?
Slysagildra er í kirkjugarð-
inum á Húsavík. Þar er búið
að merkja fyrir fráteknum
gröfum með því að stinga
steypustyrktarjárnum niður í
jörðina og standa þau 30-40
sm upp úr jörðinni. Nú segja
menn á Húsavík að ekki líði
á löngu þar til járnin tínist
eitt af öðru upp úr jörðinni,
enda á þessum tíma mikið af
fólki að huga að leiðum í garð-
inum.
Siggi hættur
Sigurður Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Sjallans, hætti
þar fyrir fáeinum vikum. Á
meðan verið er að fmna nýjan
stjóra stýrir Halla Sigurðar-
dóttir veitingastjóri staðnum.
Það er af Sigurði að segja
að hann réð sig sem kokk í
veiðiskála í sumar og mun
jafnframt vera fluttur suður
til Reykjavíkur. ,
Nýr ritstjóri
Yngvi Kjartansson, áður
blaðamaður á Degi, hefur ver-
ið ráðinn sem ritstjóri Norð-
urlands, málgagns Alþýðu-
bandalagsins: Yngvi var í
framboði fyrir Alþýðubanda-
lagið á Akureyri í vor. Sagan
segir að það hafi ekki verið
allt of vel séð af yfirmönnum
hans, eins ku Yngvi ekki hafa
kunnað of vel við sig á Degi
svo...
Verði Ijós
Saumastofan Berg á Ólafs-
firði, sem stofnuð var á síðasta
ári, hefur ekki gengið eins vel
og til var ætlast. Fyrirhugað
var að stofan saumaði fyrir
Álafoss, en þar er nú sam-
dráttur í sölu og slæmur
gangur. Þrátt fyrir sólskinið
að undanfömu hér fyrir norð-
an sagði forstjóri Bergs á
Ólafsfirði í blaðaviðtali: „Við
bíðum eftir að birti til.“ Verði
ljós.
Umsjón
Jón G. Hauksson.
Jóhannes Karl Engilbertsson tekur hér við bankabók með 1 milljón króna úr hendi sjávarútvegsráðherra. Til vinstri
eru Sveinn Guðmundsson og Eiríkur Hervarsson, úr stjóm Sigurfarasjóðs, og á milli þeirra er Gunnlaugur Haraldsson
safnvörður.
Milljón í
kútter Sigurfara
Haialdur Bjamasan, DV, Akianesi:
Kútter Sigurfari, sem varðveittur er
við Byggðasafhið að Görðum á Akra-
nesi, fékk óvæntan stuðning fyrir
skömmu er Halldór Ásgrímsson sjáv-
arútvegsráðherra kom færandi hendi
hingað á Akranes með eina milljón
króna í bankabók til stuðnings við
viðhald og rekstur þessa merka skips.
Peningar þessir eru hluti af allmörg-
um milljónum sem ákveðið var að
verja til verkefna, sem tengjast sjávar-
útvegi, eftir að sjóðakerfi sjávarút-
vegsins var lagt niður og komu þá 8
milljónir til varðveislu sjóminja.
Jóhannes Karl Engilbertsson, for-
maður stjómar Sigurfarasjóðs, tók við
peningunum úr hendi ráðberra og í
þakkarræðu sinni sagði hann meðai
annars að þessir peningar gerðu mikið
til að bjarga „útgerð“ þessa merka
skips sem að sjálfsögðu væri baslborin
eins og önnur útgerð í landinu.
í máli sjávarútvegsráðherra kom
m.a. fram að hann hefði alla tíð dáðst
að því þrekvirki sem unnið hefði verið
hér við varðveislu þessa gamlá skips.
Fimmtudaginn 3. júlí kl. 20.00 á Kjóavöllum.
Rallycross bílar, buggy bílar og amerískir bíl-
ar.
Skráning keppenda og upplýsingar í síma
73234 og á skrifstofu BÍKR, Skemmuvegi
22L, milli kl. 14.00 og 17.00.
— sumar sem vetur —
NORÐDEKK
valin munstur fyrir
íslenskar aðstæður.
NORÐD
KK
íslensk framleiðsla í hæsta gaeðaflokki.
UMBOÐSMEIMIM UIVI
LAND ALLT
Holtadekk sf. Bjarkarholti, Mosfellssveit. S. 91-666401
Hjólbarðaviðgerðin sf. Suðurgötu 41, Akranesi. S. 93-1379
Hjólbarðaviðgerðin sf. Dalbraut 14, Akranesi. S. 93-1777
Hjólbarðaþjónustan, Borgarbraut 55, Borgarnesi. S. 93-7858
Sveinn Sigmundsson, Grundartanga 13, Grundarfirði. S. 93-8792
Hjólbarðaverkstæðið Suðurgötu, ísafirði. S. 94-3501
Vélsm. Bolungarv. hf. Hafnarg. 57 — 59, Bolungarvík. S. 94-7380
Vélaverkstæði Gunnars, Tálknafirði. S. 94-2633
Vélsmiðjan Vik hf., Hafnarbraut 14, Hólmavík. S. 95-3131
Bílaverkstæðið Klöpp, Borðeyri. S. 95-1145
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi. S. 95-4200
Hjólbarðaverkstæöi Hallbjörns, Blönduósi. S. 95-4400
Hjólið sf. Norðurlandsvegi, Blönduósi. S. 95-4275
J.RJ. bifreiðasmiðja hf., Varmahlíð. S. 94-6119
Áki hf., bifreiðaverkst., Sæmundargötu, Sauðárkróki. S. 95-5141
Vélsmiðjan Logi Sauðármýri 1, Sauðárkróki. S. 95-5165
Bifreiðaverkstæði Ragnars, Ránargötu 14, Siglufirði. S. 96-71860
Hjólbþjónusta Heiðars, Draupnisgötu 7k, Akureyri. S. 96-24007
Hjólbarðaþjónusta Hvannavöllum 14b, Akureyri. S. 96-22840
Smurst. Olís og Shell, Fjölnisg. 4a, Akureyri. S. 96-21325
Kambur hf., bifreiðaverkstæði, Dalvík. S. 96-61230
Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík. S. 96-41444
Hjólbarðaþjónustan Borgarfirði, Borgarfirði eystra. S. 97-2980
Dagsverk sf. Vallavegi, Egilsstöðum. S. 97-1118
Ásbjörn Guðjónsson, Strandgötu 15a, Eskifirði. S. 97-6337
Benni og Svenni, Strandgötu 14, Eskifirði. S. 97-6399
Vélaverkstæði Björns og Kristjáns, Reyðarf irði. S. 97-4271
Felgan s.f. Fáskrúðsfirði. S. 97-5108
Kristján Ragnarsson, Hátúni, Djúpavogi. S. 97-8999
Smurstöð og dekkjaþjónusta, Hafnarbraut 45, Höfn. S. 97-8392
Verslun Sig. Sigfússonar Skólabrú 4, Höfn. S. 97-8121
Bifr.verkst. Gunnars Valdimarss. Kirkjubæjarklaustri. S. 99-7630
Bflaþjónustan, Dynskálum 24, Hellu. S. 99-5353
Gunnar Vilmundarson bifvélavirki, Laugarvatni. S. 99-6215
Hjólbarðaverkstæðið, Flúðum. S. 99-6618
Gúmmlvinnustofan, Austurvegi 58, Selfossi. S. 99-1626
Þórður G. Sigurvinsson, Lýsubergi 8, Þorlákshöfn. S. 99-3756
Aðalstöðin hf., Hafnargötu 86, Keflavík. S. 92-1515
Smurstöð og hjólbarðaþjón. Vatnsnesvegi 16, Keflavík. S. 92-2386
Dekkið, Reykjavfkurvegi 56, Hafnarfirði. S. 91-51538
Hjólbarðahöllin Fellsmúla 24, Reykjavik. S. 91-81093
Hjólbarðastöðin sf. Skeifunni 5, Reykjavík. S. 91-33804
Hjólbarðaverkstæði Ásgeirs, Hátúni 2a, Reykjavik. S. 91-15508
Hjólbarðaverkst. Jóns Ölafssonar Ægislöu, Reykjavík. S. 91-23470
Höfðadekk hf. Tangarhöfða 15, Reykjavík. S. 91-685810
Gúmmlkarlarnir, Borgartúni 36, Reykjavík. S. 91-688220
NORÐDEKK
öryggisins vegna
GUMMI
VINNU
STOfAN
RÉTTARHÁLSI2 s. 84008/84009 ISKIPHOLTI35 s. 31055