Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Síða 40
40
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
Andlát
Auðbjörg Maria Guðlaugsdóttir
frá Ártúnum, Rangárvöllum, Boða-
hlein 18, Garðabæ, verður jarðsung-
in að Odda á Rangárvöllum
þriðjudaginn 1. júlí kl. 14.
Guðrún Jónsdóttir, Skaftahlíð 25,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 1. júlí kl. 13.30.
Guðrún Sigurgarðsdóttir Hólm
lést fimmtudaginn 19. júní. Jarðar-
förin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Karl Söring lést í Landakotsspítala
18. júní. Jarðarförin hefur farið fram.
Fríða Eggertsdóttir, Hringbraut
45, lést 26. júlí. Jarðarförin verður
auglýst síðar.
Eggert Hannah úrsmíðameistari,
Glaðheimum 4, verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 1.
júlí kl. 13.30.
Lára M. Lárusdóttir Knudsen
verður jarðsett frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 1. júlí kl. 15.
Sigurlaug Guðmundsdóttir, Bar-
ónsstíg 43, sem andaðist 21. júní,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kapellu þriðjudaginn 1. júlí kl. 10.30.
Guðmundur Benediktsson lést 22.
júní sl. Hann var fæddur á Sauð-
húsum í Laxárdal f Dalasýslu 22.
október 1898. Hann lauk námi í hús-
gagnasmíði og vann alla tíð við þá
iðn. Hann starfaði um 20 ára skeið
hjá Húsgagnaverslun Reykjavíkur
og í 25 ár á trésmíðaverkstæði
Reykjavíkurborgar. Guðmundur
giftist Helgu Sigurðardóttur en hún
lést fyrir noKkrum árum. Þeim hjón-
um varð fimm bama auðið. Utför
Guðmundar verður gerð frá Foss-
vogskirkju í dag kl. 15.
Ýmislegt
Timaritið Þroskahjálp,
2. tölublað 1986, er komið út. Útgefandi
er Landssamtökin Þroskahjálp.
Að venju eru í ritinu ýmsar greinar,
upplýsingar og fróðleikur um málefni fatl-
aðra. Sem dæmi má nefna leiðara sem ber
yfirskriftina Mótmæli íklædd gamalkunnu
gervi og er hann eftir Ástu Þorsteins-
dóttur. Samantekt birtist írá Vestmanna-
eyjum þar sem sitt af hverju kemur fram
í viðtölum við foreldra, fagfólk og fram-
kvæmdastjóra Svæðisstjómar Suður-
lands. Fjallað er um skipulagsbreytingu á
starfsemi í Kjarvalshúsi í spjalli við fyrr-
verandi deildarstjóra, Önnu Hermanns-
dóttur, og nýráðinn forstöðumann
Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins,
Stefán Hreiðarsson. Magnús Einarsson
ritar grein sem hann nefnir Hvers vegna
hlaup sem þáttur í þjálfun einhverfra? og
Dagný Harðardóttir skrifar tvær ferðasög-
ur. Þá er í ritinu frásögn frá fræðslunám-
skeiði fyrir foreldra fatlaðra bama og sagt
er frá norrænni ráðstefnu um bækur á
léttu máli fyrir þroskahefta.
Af öðm efni má nefna fasta þætti, s.s.
Af starfi samtakanna þar sem jafnan er
greint frá þeim verkefnum sem Þroska-
hjálp vinnur að hveiju sinni.
Tímaritið Þroskahjálp kemur út fjórum
sinnum á ári. Það er sent áskrifendum og
er til sölu á skrifstofu Þroskahjálpar að
Nóatúni 17,105 Reykjavík. Ritið er einnig
hægt að fá keypt í bókabúðum og blaðsölu-
stöðinn. Áskriftarsíminn er 91-29901.
AA-samtökin.
Skrifstofa opin frá kl. 13-17. Símavakt kl.
17-20 alla daga vikunnar í síma 16373.
Fréttatilkynning
frá fjármálaráðuneytinu
Fjármálaráðherra hefur skipað Gunnar
Rafn Einarsson, viðskiptafræðing og lög-
giltan endurskoðanda, i embætti skatt-
stjóra Norðurlands eystra frá 1. júlí nk.
að telja, en þá lætur Hallur Sigurbjöms-
son af embætti að eigin ósk.
Sex umsækjendur voru um embættið
auk Gunnars. Þeir voru Grétar Már Sig-
urðsson lögfræðingur, Guðmundur
Gunnarsson skattendurskoðandi, Haukur
Sigurðsson viðskiptaíræðingur og Jón
Dalmann Ármannsson skrifstofustjóri.
Tveir umsækjenda óskuðu nafnleyndar.
Afmæli Bolvikingafélagsins
í Reykjavík
Um þessar mundir er Bolvíkingafélagið í
Reykjavík 40 ára. Af því tilefni hefur
stjóm þess ákveðið að efna til hópferðar
þangað vestur um verslunarmannahelg-
ina, dagana 1.-4. ágúst nk.
Tónlistarskóli Rangæinga
I tilefni af tíu ára afmæli Barnakórs Tón-
listarskóla Rangæinga fór kórinn til
Færeyja í söngferðalag. dagana 11.-20.
júní. Tókst ferðin í alla staði mjög vel og
var undirbúningur og móttökur af hálfu
Færeyinga til fyrirmyndar. Bamakórinn
hélt sex tónleika, þar af tvenna hér á
landi. Kórinn söng tvisvar í Norðurlanda-
húsinu í Þórshöfn. Ýmsir aðilar í héraði
og utan styrktu ferð kórsins og em þeim
færðar þakkir.
Sumarhótel í Skálholti
Sumarhótelið í Skálholti er tekið til starfa.
Hótelið er í ágætum húsakynnum Lýð-
háskólans. Boðið er upp á fullt fæði og
gistingu í eins og tveggja manna her-
bergjum auk þess svefnpokapláss er til
reiðu. Góð aðstaða er fyrir minni ráðstefn-
ur og námskeið. Þessi fornfrægi sögustað-
ur hefur miklu að miðla bæði af fróðleik
og sérstakri tilfinningu fyrir fortíðinni
sem ein sér nægir til að gefa dvöl á þessum
stað mikið gildi. Staðsetning hótelsins
gerir það kjörið aðsetur fyrir þá sem vilja
skoða sig um á Suðurlandi, t.d. er örstutt
til allra helstu skoðunarstaða á fslandi
eins og Gullfoss, Geysis og Þingvalla.
Sundlaugar, heitir pottar og ljósabekkir,
hestaleiga og veiðileyfi, allt er þetta fáan-
legt innan seilingar. Um helgar em
tónleikar í Skálholtskirkju sem Helga Ing-
ólfsdóttir stendur fyrir. Sérleyfisbílar
Selfoss hafa viðkomu daglega.
Fréttatilkynning frá fjármála-
ráðuneytinu
Fjármálaráðherra hefur skipað Sigmund
Stefánsson, núverandi skattstjóra á Skatt-
stofi’ Reykjanesumdæmis, skattstjóra
Reykjanesumdæmis frá 1. júlí nk. að telja
en þá lætur Sveinn Þórðarson af störfum
fyrir aldurs sakir. Auk Sigmundar sóttu
þeir Ingvar J. Rögnvaldsson lögfræðingur
og Magnús Jóhannesson um embættið.
; Útvárp . Sjónvarp
Henny HeimannsdótHr danskennari:
Fyrirmyndaifaðir
uppáhaldsþátturinn
Mér fannst helgardagskráin í sjón-
varpinu alveg stóigóð og horfði hér
um bil á hana alla enda var ég heima
um helgina og slappaði af. Á föstu-
dagskvöldið var sá gamli á sínum
stað og bíómyndin var alveg ágæt.
Hins vegar fannst mér vanta Kast-
ljós eða annan góðan fréttaskýring-
arþátt þetta kvöld, fréttimar eru of
stuttaralegar, það ætti að vera meira
af góðum fréttaskýringaþáttum til
þess að kafa dýpra ofan í málin.
Á laugardaginn passaði ég mig á
að missa ekki af fótboltanum enda
er ég mikil áhugamanneskja um
þetta heimsmeistaramót og hef varla
látið nokkum leik fara fram hjá
mér. Um kvöldið kom þátturinn
Kvöldstund með listamanni þar sem
Björgvin Halldórsson var gesturinn.
Skemmtilegur þáttur. Síðan kom eitt
það besta sem birst hefur á sjón-
varpsskjánum frá upphafi held ég,
þátturinn um Fyrirmyndarfóðurinn.
Hreint út sagt frábærir þættir og í
algjöru uppáhaldi hjá mér. Laugar-
dagsmyndin var þolanleg, það mátti
alveg horfa á hana en annars fannst
mér helgarmyndimar að þessu sinni
í slappara lagi.
Það var stórkostlegt að horfa á
úrslitaleikinn á sunnudag og ég er
fyllilega ánægð með úrslitin, hefði
ekki þolað að sjá V-Þjóðverja vinna.
Argentínumenn áttu sigurinn líka
skilinn. Aftur til Eden var á dag-
skránni um kvöldið og lífgaði upp á
sunnudaginn því dagskráin þá er
vanalega í lélegra lagi.
Þótt helgardagskráin hafi verið
góð vantaði tilfinnanlega bamaefhi
á hana. Ég vona að það verði bætt
úr því.
Utvarpið var líka ágætt um helg-
ina, mér finnst mjög góður þátturinn
á sunnudagskvöldum, á milli mið-
nættis og klukkan eitt, Milli svefiis
og vöku. Réttur þáttur á réttum stað,
og notalegur endir á helginni.
-BTH
Ferðalög
Útivistarferðir
Sumarleyfi í vistlegum skálum Útivistar
í Básum, Þórsmörk.
Hægt að fara á föstudagskvöldum, sunnu-
dagsmorgnum og miðvikudögum. Mið-
vikudagsferð verður 2. júlí kl. 8.00.
Tilvalið að dvelja heila eða hálfa viku á
einum friðsælasta stað Þórsmerkur. Ein
skemmtilegasta og besta gistiaðstaða í
óbyggðum. Sérstakt hús fyrir sumar-
dvalargesti. Fullkomin snyrtiaðstaða með
vatnssalernum og sturtum. Verð á viku-
dvöl kr. 3.420,- (félagar) og 4.490,- (utan-
félagsmenn). Kynnið ykkur ódýrasta
ferðamöguíeika sumarsins.
Sumarleyfisferðir á Hornstrandir.
8.-17. júlí Hornstrandir - Hornvík,
tjaldbækistöð.
8.-17. júlí Hesteyri - Aðalvík - Hornvík.
Bakpokaferð.
16.-20. júlí Hornvik - Reykjafiörður.
18.-25. júlí. Strandir - Reykjafjörður -
Hornstrandir.
Kjölur - Sprengisandur - Skagi. 2.-6.
júlí. Einnig siglt í Drangey. Uppl. og farm.
á skrifst., Grófmni 1, símar: 14606 og 23732.
Sjáumst.
Lögregla og slökkvilið var kallað út til að dæla vatni úr bátnum Hafsteini
GK-131 í Reykjavíkurhöfn. Eigandi bátsins hafði komið að honum nokkuð
signum í höfninni því vatn fossaði inn um gat meðfram stýrisstöng sem
liggur eftir bátnum endilöngum. Höfð voru snör handtök við að dæla vatn-
inu úr bátnum og fyllt í gatið. DV-mynd S.
Veiðin í Laxá i Aðaldal hefur verið góð og laxarnir vænir og fallegir, sá stærsti 22 pund. Veiðimennirnir Gunnar Másson, Harry Harryson, Þröstur
Elliðason, Ámi Baldursson, Valgerður Bjarnadóttir og Skúli Kristinsson veiddu þessa fallegu laxa í Laxá á þremur dögum, 10 laxa. Stærstu laxarnir
voru 17 pund og sá minnsti 12 pund, glæsileg veiði. Veiðst hafa 314 laxar.
Munið spumingakeppni Sprengisands