Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Blaðsíða 42
42
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
■>
*
Joan Collins
sexbomban á sextugsaldrin-
um, sem leikur hina kaldrifj-
uðu Alexis Carrington í
Dynasty þáttunum, nýtur ekki
mikillar hylli amerískra sjón-
varpsaðdáenda. í könnun,
sem gerð var nýlega, kom það
í Ijós að þegar imbakassagláp-
arar voru beðnir um að nefna
þá stjörnu sem færi mest í tau-
garnar á þeim, nefndu flestir
leikkonuna og sögðust jafn-
framt fá klígju er þeir sæju
hana.
sá er lék aðalsögupersónuna
í kvikmyndinni „Back to the
future", er geysivinsæll um
þessar mundir. Bæði streyma
giftingartilboðin til stráksa og
einnig vilja kvikmyndafram-
leiðendur, auglýsendur og
aðrir slíkir fá afnot af vinsæld-
um hans. Svo rammt hefur að
þessu kveðið að foreldrar
hans hafa nú skipt um síma-
númer eftir að hafa haft það
sama í rúm 20 ár. Hafa þau
nú fengið leyninúmer og von-
ast eftir að fá svefnfrið fram-
vegis.
Madonna
er alveg villt í poppkorn og
alls kyns snakkfæði. Þegar
söngstjarnan var í London fór
hins vegar í verra. Þrátt fyrir
mikla leit tókst henni ekki að
hafa upp á eftirlætissnakkinu
sínu neins staðar í höfuðstað
Bretaveldis. Hún dó þó ekki
ráðalaus heldur hringdi í snar-
hasti til New York og lét senda
sér sextíu poka af sérstakri
tegund ostasnakks sem hrað-
sendingu með næsta flugi.
Ert þú afbrýðisamur persónuleiki?
Afbrýðisemi getur brotist út í ýmsum myndum.
Afbrýðisemi er skapgerðarein-
kenni sem allir hafa en í mismiklum
mæli þó. Ef þú fínnur fyrir reiði þeg-
ar maki þinn brosir til aðila af
gagnstæðu kyni, þá veistu sjálf að
um einkenni afbrýðisemi er að ræða.
Þó þú vitir að það sé ekkert á milli
þeirra tveggja ertu samt pirraður/
pirruð. Afbrýðisemi er erfitt rann-
sóknarefni ogaf hverjusumir verða
afbrýðisamir en aðrir ekki hefur oft
valdið sálfræðingum og öðrum heila-
brotum. Dr. Salvatore V. Didato
hefur gert lítið sjálfspróf sem hann
segir ákveðinn mælikvarða á hversu
viðkvæmt fólk er fyrir afbrýði. Prófið
fylgir hér með til gamans en það er
að sjálfsögðu ekki marktækt nema
fólk svari sannleikanum samkvæmt.
Ef fólk er ekki gift eða í föstu sam-
bandi verður það bara að ímynda sér
að svo sé.
Útreikningar
Ef þú kippir þér ekki upp við atvikið
= 1 stig.
Ef þú verður óánægður = 2 stig.
Ef þú verður reiður = 3 stig.
F/þú verður mjög reiður = 4 stig.
Ef þú verður alveg frá þér af reiði =
5 stig.
Spurningar
1. Hvernig verður þér við ef maki
þinn fær hringingu frá gömlum sjens
sem er ógiftur í þokkabót og biður
'hana/hann að hitta sig á veitinga-
stað.
2. Hvemig liði þér ef besti vinur þinn
yrði skyndilega ástfanginn og myndi
hætta að vera jafnmikið með þér og
áður.
3. Hver verða viðbrögð þín ef þú og
vinnufélagi þinn hafið unnið lengi í
sameiningu að ákveðnu verkefni en
forstjórinn þakkar honum aðallega
fyrir.
4. Hvernig liði þér ef maki þinn
myndi eyða tveim kvöldum og laug-
ardagseftirmiðdegi í hverri viku í
líkamsrækt, sund o.þ.h. sem þú hefð-
ir ekki gaman af og værir einn heima
á meðan.
5. Hvemig liði þér ef maki þinn og
vinnufélagi hans af gagnstæðu kyni
væm miklir vinir sem borðuðu oft
saman í hádeginu, veittu hvort öðm
styrk og ráð og treystu hinu fyrir
vandamálum sínum. Þó maki þinn
tali mikið um þennan vin sinn mynd-
irðu þar að auki ekki þekkja hann
neitt.
6. Hver yrðu viðbrögð þín ef þú fynd-
ir maka þinn inni í lokuðu herbergi
kyssandi einhvern gestanna. Hann/
hún myndi afsaka sig með því að
hafa verið svo dmkkin(n) og ekki
meint neitt alvarlegt með þessu.
7. Hvernig líður þér ef þú ert búinn
að reyna að ná í maka þinn í yfir
klukkutíma en síminn er sífellt á tali.
8. Hvemig liði þér ef þú værir stadd-
ur á dansleik og maki þinn, sem
finnst gaman að dansa, væri búinn
að dansa við myndarlegan einstakl-
ing af gagnstæðu kyni í meira en
klukkutíma. Þú dansar að vísu frek-
ar illa og finnst miklu skemmtilegra
að sitja með vinum ykkar og ræða
málin.
Niðurstaða
Að sjálfsögðu er próf þetta enginn
stóri dómur og frekar til gamans en
alvöru, leggðu nú saman stigin og
athugaðu hvað þú færð.
0-19 stig: Það þarf eitthvað mikið til
að þú verðir afbrýðisamur/afbrýði-
söm. Þú ert ömggur með að maki
þinn sé þér trúr. Þú mátt samt passa
þig á því að vera ekki of auðtrúa eða
öruggur því freistingarnar em marg-
ar í henni veröld.
20-27 stig: Þú ert svona frekar eðli-
lega afbrýðigjam(gjörn). Ef hlutun-
um væri snúið við ert þú sennilega
frekar trygglynd(ur).
28-40 stig: Þú ert hinn afbrýðisami
einstaklingur. Reyndu að komast að
því af hverju svo er. Örvæntu samt
ekki, sérfræðingar segja afbrýði al-
veg eðlileg viðbrögð þegar fólk er
óöruggt með samband sitt við þann
sem því þykir vænt um.
Eðlileg viðbrögð þegar fólk er óöruggt.
er
ég!
Nú er sumarfrí framundan hjá
mörgum og eflaust ætla ein-
hverjir að halda út fyrir land-
steinana. Fólk sem fer út meö
lítil börn hefur oft áhyggjur af
því að börnin geti týnst í mann-
hafinu en nú hefur snjallt fólk í
Bretlandi fundið lausn á þelm
vanda. Lausnin er einföld og
ódýr og með því að festa blöðru
við barnið verður það áberandi
og sést langt að.
ErGeorgeMichael
orðinn
Líöur honum best svona klædd-
um?
Þegar poppgoðið, George Micha-
el sást á gangi tötrum klæddur í
stórborginni Los Angeles leist
mönnum ekki á blikuna. Spruttu
strax upp sögur um að poppgoðið
hefði farið algerlega út í öfgar við
að breyta ímynd sinni og ætlaði sér
að að gerast þungarokkari um
skeið. Slíkt var auðvitað bölvað
bull og kom hið rétta strax í ljós.
Stráksi hafði verið heima hjá sér í
mestu makindum og ákveðið að
skjótast út eftir myndböndum.
Nennti söngvarinn ekki að skipta
um föt, kom til dyranna eins og
hann var klæddur og skaust út.
Veit nú alþjóð hvernig George
Michael klæðist heima fyrir.