Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Side 43
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
43
Sviðsljós
Hér sjáum við teikningu af því
hvernig draumagestirnir líta út.
Ef þú mættir bjóða einhverri
stjörnu til kvöldverðar, hverri mynd-
ir þú þá bjóða? Sennilega myndu Jón
Páll og Hófí fá góðan stuðning hér-
lendis en nú nýverið fengu lesendur
bandaríska tímaritsins The Star að
velta spurningunni fyrir sér. Útkom-
an úr könnuninni var fróðleg og kom
nokkuð á óvart. Jafnframt því að
segja nafnið átti að nefna helstu
spurningu sem fólk vildi spyrja.
Vinsælasti matargesturinn var út-
nefndur Johnny Carson með 'tæp
28% eftir harða barátttu við Clint
Eastwood. Næst komu frekar jöfn,
nýstimið Michael J. Fox (Baek to
the Future), Bill Cosby og Lucille
Ball. Tony Danza lenti í sjötta sæti
með 25% en tæpum 5% á eftir honum
var Don Johnson og Diana Breta-
prinsessa stóð honum ekki langt að
baki. Níunda varð Joan Collins og á
hæla hennar kom Linda Evans, sam-
starfsaðili úr Dynasty-þátttunum.
Helstu spurningar
Spurningar þær, sem brunnu á vör-
um fólks, voru margar og margvís-
legar. Þótti Bandaríkjamönnum
alveg tilvalið að svala forvitni sinni
yfir málsverðinum og spyrja stjörn-
urnar spjörunum úr. Johnriy Carson
hefur í um aldarfjórðung séð um
geysivinsælan sjónvarpsþátt og var
fólk æst í að vita hve lengi hann
hygðist halda áfram með þáttinn sem
nefnist „The Tonight Show“. Gést-
gjafar Michael J. Fox vildu allra
helst fá að vita hve gamall stjarnan
er og til gamans má geta þess að
hann er nýorðinn 25 ára. Fólk fýsir
að vita hvort æska Bill Cosby hafi
verið jafn spaugileg og hann leikur.
Svarið við því er nei, þvert á móti.
Lucille Ball yrði spurð að því hvort
rauði liturinn í hárinu væri ekta, en
svo er víst ekki, hennar náttúrulegi
hárlitur er brúnn. Fólk vill fú að vita
hvernig Diana prinsessa slappar af,
hvort Joan Collins telji sig ekki of
gamla til að vera kyntákn og hvern-
ig Linda Evans fari að því að líta
svona unglega og hressilega út.
Fleiri spurningar virtust brenna á
vörum fólks og hefðu stjörnumar
vart tíma til að gera matnum skil ef
þær ættu að svara öllu sem fólk fýsir
að vita. Hver veit nema með góðum
málsverði og kertaljósi mætti fá
þetta fólk í heimsókn og það yrði sko
veisla sem segði sex.
Diana Ross og Arne Næss flýja frá Noregi
Kikki Næss er hin reiðasta um þess-
ar mundir.
Frægðin vill oft reynast fólki íjötur
um fót - það hafa þau hjónakornin
Diana Ross og Arne Næss fengið að
reyna. Þegar þau voru nýverið í
Noregi fengu þau engan írið og hvar
sem þau birtust voru þau með hala-
rófu af fréttamönnum í eftirdragi.
Móðir Arne, Kikki Næss, er hrædd
um að fá ekki að sjá þau fyrr en eft-
ir langan tíma og jafnvel að tengda-
dóttirin sé orðin hrædd við að koma
í heimsókn. „Þetta jaðrar við ofsókn-
ir,“ segir Kikki reið og bendir á að
fréttamenn virðist ekki bera minnstu
virðingu fyrir einkalífi fólks. „Þeir
ruddust inn á landareignina, bönk-
uðu upp á í tíma og ótíma og voru
auk þess sífellt að þvælast kringum
húsið. Þau urðu að fara upp á aðra
hæð hússins til að geta verið í næði,“
heldur hún áfram. Það var einmitt í
tengslum við afmæli Kikki sem þau
hjónin komu til Noregs, enda er sam-
band Diönu við tengdamóðurina
mjög náið, þrátt fyrir að þær hafi
lítið sést. Ætlunin var að halda í
heimsókn til Kikki þegar þau Diana
og Arne hefðu slappað af í húsi Ame
á eyjunni Hankö. Hankö er venju-
lega róleg eyja, tilvalin til afslöppun-
ar, en breyttist skyndilega í
friðlausan stað. Því ákváðu þau
hjónin að halda aftur til London og
báru sig illa vegna ágangs norskra
fjölmiðla. Hvenær þau koma næst til
Noregs er ekki vitað en þau segjast
alveg örugglega ekki koma með
áætlunarflugi. „Við neyðumst til að
ferðast með leynd næst því annars
verðum við komin með íjölmiðlana á
hælana um leið og við förum í gegn-
um tollinn," segir Ame Næss. Það
er greinilega ekki alltaf gaman að
vera frægur.
Hér sjást þau hjónakornin á gangi, og auðvitað var fréttasnápur nálægt
og smellti af mynd.