Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Side 45
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
45
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Feðgar
á
floti
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Steingrímur Sigfússon alþing-
ismaður var einn þeirra fyrstu
sem leigðu sér lítinn gúmbát á
Pollinum á Akureyri á dögunum
þegar ný bátaleiga tók þar til
starfa. Áð sjálfsögðu fékk litli
guttinn, Sigfús, að sitja í bátnum
með pabba.
Það er Magnús Ólafsson,
sjúkraþjálfari á Akureyri, sem
rekur leiguna. Svæðið á Pollin-
um, þar sem bátarnir sigla, er
girt af. Mjög skemmtilegt fram-
tak hjá Magnúsi enda eru
Akureyringar og ferðamenn þeg-
ar farnir að sigla óspart.
Steingrimur Sigfússon og sonurinn fljótandi á fleyinu á Pollinum á Akureyri sl. sunnudag. DV-mynd JGH
r
Lánamál íslenskra náms-
manna hafa frá stofnun
Lánasjóðsins verið sífellt til
umræðu og oft vakið deilur
á opinberum vettvang'i.
Sjaldan eða aldrei hafa öld-
ur þó risið jafnhátt og
síðustu mánuði. Sverrir
Hermannsson menntamála-
ráðherra hefur boðað brey t-
ingar á málefnum lána-
sjóðsins og fyrir skömmu
var hann í París og hélt fund
með námsmönnum. Á fund-
inum útskýrði Sverrir
framtíðarstefnuna i lána-
málum fyrir þungbúnum
námsmönnum. í umræðum
á fundinum kom fram að
námsmenn óttuðust mjög að
þurfa að hverfa frá námi og
voru menn ekki á eitt sáttir
um hina nýju framtíðar-
skipan.
DV-mynd baj
Fulltrúar á Sjálfsbjargarþingi snæða kosningasteikina
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Fyrir nokkru var 23. þing
Sjálfsbjargar haldið á Stór-
utjörnum, Ljósavatns-
skarði. 15 félagsdeildir eru
í Sjálfsbjörg og sóttu rúm-
lega 40 fulltrúar þingið, en
með starfsmönnum voru þar
á milli 50 og 60 manns. Hús-
næðismál voru þar mest
rædd en atvinnumál, bíla-
mál, félagsmál og trygg-
ingamál voru einnig í
sviðsljósinu. Þingið var sett
laugardaginn 31. maí en að
kvöldi þess dags var keyrt
til Akureyrar og snædd
kosningasteik í boði Út-
gerðarfélags Akureyrar.
Eftir að hafa sporðrennt
steikinni var aftur haldið á
þingstað og fylgst með
kosningasjónvarpi langt
fram á nótt.
Ronald
Reagan
kvik-
hefur
blað
Bandaríkjaforseti og
myndaáhugamaður,
þann ávana að krota
þegar hann situr langa og
stranga fundi. Hann teiknar
alls kyns verur; hesta, kúreka
og fleira og gerir það alls ekki
illa. Nú hefur forsetinn fallist
á að selja nokkrar teikningar
og mun verð þeirra vera 400.
000 kr. Dýrmætt krot það.
Ólyginn
sagði . . ■ r
Elton John
knattspyrnuliðseigandanum
og poppstjörnunni, hefur þrá-
faldlega tekist að vekja athygli
með bæði höttum og gleraug-
um. Nú hefur kappinn breytt
um stíl og er farinn að nota
hárið til þess arna. Hann
mætti á tónleika í V-Þýska-
landi með nýja og frekar
pönkaða hárgreiðslu og
mæltist þetta uppátæki hans
vel fyrir. Ekki getur Elton kall-
inn heldur kvartað yfir eftir-
tektarleysi því síðustu daga
hafa fjölmiðlar kepptst við að
birta myndir af Elton John og
nýju klippingunni.
Linda Evans
hefur að undanförnu hámað
í sig pizzur með góðri lyst og
án samviskubits. Framleið-
endum og leikurum
Dynasty-þáttanna fannst
Krystle Carrington vera orðin
heldur of grönn og báðu hana
að gera eitthvað í málunum.
Linda hefur því farið í „fitun"
og segist búast við að ná
„réttri" þyngd eftir skamman
tíma.