Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Page 48
FRÉTTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju umfrétt-
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert f réttaskot, sem
birtist eða er notað i DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
JónLá
siguibraut
'•* - gæti náð
stórmeistaratrtli
Eftir fimm umferðir af ellefu á skák-
móti í Plowdiw í Búlgaríu deilir Jón
L. Ámason efsta sæti með Evrópu-
meistara unglinga, Khalifinan. Hvor
hefur 3 1/2 vinning. Mótið er af 10.
styrkleika og þarf Jón 7 1/2 vinning
til þess að ná þriðja og síðasta áfanga
til stórmeistaratitils.
Jón L. hefur ekki tapað skák á mót-
inu. Hann vann Búlgarana Kirov,
stórmeistara, og Kurtenkov. Þá hefur
hann gert jafntefli við stórmeistarana
Gligoric frá Júgóslavíu, Uhlman frá
Austur-Þýskalandi og Inkioff frá
, Búlgaríu.
HERB
Floöin við Eyjafjorö:
Tjón hjá
kartóflu-
^ bændum
Jón G. Hauisson, DV, Akureyri;
„Það var rúmlega hektari sem fór
undir vatn og mér sýnist að fiórðungur
af uppskerunni í haust, eða um 20
tonn, sé ónýtur," sagði Sigurður
Helgason, kartöflubóndi á Grund í
Höfðahverfi við Eyjafjörð. í gær.
Gríðarlegur vöxtur varð í Fnjósk-
ánni um helgina og rann hún yfir
hluta af kartöflugörðum Sigurðar og
bóndans á næsta bæ við, Sævars
Magnússonar á Syðri-Grund. Tjón
þeirra er umtalsvert.
„Leysingamar náðu hámarki á
fóstudagskvöld og á laugardaginn, ég
veit ekki hvort þeim er lokið. Vorið
Á var kalt og það er enn nokkur snjór
í ^öllunum."
Sigurður áætlar að tjón hans sé í
kringum 500 þúsund krónur. „Þetta
em náttúruhamfarir og hugsanlega
bætir viðlagasjóður tjón okkar. Eg
ætla að kanna það á næstu dögum.“
ALLAR GERÐIR
SENDIBÍLA
Rauði krossinn að
kaupa Hótel Hof?
„Viðræður við Framsóknarflokk-
inn um kaup á húseign flokksins við
Rauðarárstíg em á frumstigi. Það
kemur vel til greina að kaupa húsið
fyrir starfsemi sjúkrahótelsins og
skrifstofur okkar,“ sagði Guðjón
Magnússon aðstoðarlandlæknir, ftýr
formaður Rauða kross íslands.
Sjúkrahótelið er nú rekið í Skip-
holti. Þar er aðstaða ófúllnægjandi,
meðal annars er engin lyfta í hús-
inu. „Sérstök stjóm sjúkrahótelsins
hefúr skoðað marga möguleika. Það
sem helst kemur til álita er að kaupa
af Framsóknarflokknum eða að
byggja nýtt, sérteiknað hús. Það er
sterklega í myndinni einnig," sagði
formaður Rauða krossins. Málin
skýrast í þessari eða næstu viku.
Húseign Framsóknarflokksins er
nú notuð fyrir skrifstofur flokksins,
þar er rekið Hótel Hof með allstórum
fúndarsal og veitingasal og fleira er
í húsinu. Það er nú þijár hæðir og
kjallari en flokkurinn hefúr fengið
heimild til þess að byggja hæð ofan
á húsið. Formaður Rauða krossins
segir að undanfarin misseri hafi
húsakaup eða bygging fyrir sjúkra-
hótelið verið á döfinni og lagt hafi
verið til hliðar fé þess vegna. Á-
kvörðun er sem sagt á næstu grösum.
HERB
Vegurinn um Ólafsfjarðarmúla rofnaði i flóðunum um helgina. Eins og myndin sýnir kom stórt skarð í veginn og hann
hrundi bókstaflega á um 10 metra kafla. Norðanmenn muna vart aðrar eins leysingar í hálfa öld. DV-mynd JGH
LOKI
Rauði krossinn stendur
víða í hjálparstarfi.
Veðrið á morgun:
BjarMðri
Nú ættu sunnan- og vestanmenn
að taka gleði sína um leið og birtir
til á landinu öllu. Á morgun verður
hæg, austlæg átt. Úrkomulaust
verður um landið allt og víðast hvar
mun sjást til sólar. Hiti verður á
bilinu tíu til sextán stig.
Hafís ógnar
Norðuriandi
Hafís er skammt undan norðanverðu
landinu eftir suðvestlægar vindáttir
að undanfömu. Næst landi sást ísinn
í gær frá flugvél Landhelgisgæslunnar
um 32 sjómílur frá Homi en syðst
norður af Skaga.
„Ég held að það sé ástand sem gæti
snúist til hins verra," sagði Þór Jak-
obsson á hafíssdeild Veðurstofunnar.
Taldi hann að norðanátt í tvo til þrjá
daga gæti hrakið ísinn upp að landinu.
ísinn bráðnaði hins vegar ört í hlýjum
sjónum.
Þór sagði að ísinn gæti lokað fiski-
miðum og siglingaleiðum en taldi áhrif
hans á veðurfar hérlendis lítil að
sumri. -KMU