Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1986, Side 27
DV. FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1986.
39
Eiður Guðnason: Fréttalestur iðu-
lega óboðlegur.
Magnús Erlendsson: „Enn einu
sinni hafa fámenn samtök sér-
hyggjufólks náð að misnota hljóð-
varpið."
Inga Jóna Þórðardóttir: Fréttamaður
kom með athugasemd frá eigin
brjósti
Ámi Bjömsson: „Áratugum saman
hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
útvarpsráði reynt að berja það i
gegn að fréttamat Morgunblaðsins
skuli gilda sem fréttamat Ríkisút-
varpsins.“
Haraldur Blöndal: Ekki á að birta
myndir af grunuðum eða sökuðum
mönnum sem ekki hafa verið
dæmdir.
ur á rós 2 um Líbýu þar sem
fréttamaður kom með athugasemd
frá eigin brjósti.
Sneru menn sér þá að máli Magn-
úsar Erlendssonar. Formaður út-
varpsráðs bauð fréttastjóra og
fúlltrúa fréttastofú velkomna en þeir
höfðu óskað eftir að koma á fundinn
vegna bókunar Magnúsar Erlends-
sonar frá 4. apríl. Margrét Indriða-
dóttir lagði síðan fram bókun fyrir
hönd fréttastofúnnar þar sem gagn-
rýni Magnúsar er svarað. Á eftir
Ingibjörg Hafstað lét bóka að með
bókun sinni hefði Magnús Erlends-
son verið að reyna að gera friðar-
sinna tortryggilega.
25. apríl: Fréttir og aftur fréttir.
Á tuttugasta fundi útvarpsráðs á
þessu ári, 25. apríl, kom fram þó-
nokkur gagnrýni á fréttir og þá
sérstaklega fréttalestur í sjónvarpi.
Ekki voru allir jafnánægðir með
hann.
um útvarpsráðs um val á þátttak-
endum.
Lagt var fram bréf frá Samtökum
kvenna á vinnumarkaði þar sem
mótmælt er fréttaflutningi Ríkisút-
varpsins af aðgerðum í Reykjavík
1. maí og fleira. Ingibjörg Hafstað
tók undir efiii bréfsins en fimm út-
varpsráðsmenn töldu ekkert at-
hugavert við fréttir þennan dag.
Haraldur Blöndal gerði athuga-
semd við að umsjónarmenn þátta
létu eigin skoðanir í ljósi, eins og
kostnað við hana. Voru skiptar
skoðanir um hvort rétt hefði verið
að taka þátt í henni. Pétur Guð-
finnsson sagði að þetta væri alfarið
mál fréttastofu og að hann mundi
afla nánari upplýsinga.
23. maí: Hafskipsmálið.
Mikið var rætt um fréttir af Haf-
skipsmálinu á fundi útvarpsráðs 23.
maí og voru myndbirtingar sjón-
varpsins harðlega gagnrýndar.
2Tammmwm...
Fréttamenn sjónvarps kynna sér tölvutæknina fyrir útsendingu kosningasjónvarps.
fylgdu umræður um fréttamat og
sjöttu grein Reglna um fréttaflutn-
ing í Ríkisútvarpi þar sem fjallað er
um mannfundafréttir. Vafasamt var
talið að það væri fréttaefni að geta
um fundi fyrirfram. Fram kom að
regla hefúr verið að geta um alla
fúndi fyrirfram sem fréttastofu er
kunnugt um en að jafnaði ekki í
hádegisfréttum. Eiður Guðnason
taldi það mistök að birta frétt um
fúnd hemámsandstæðinga í hádeg-
inu þann dag. Fréttastjóri viður-
kenndi að um mistök hefði verið að
ræða.
Þá lagði Ámi Bjömsson fram bók-
un þar sem segir meðal annars:
„Áratugum saman hafa fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins í útvarpsráði
reynt að berja það í gegn að frétta-
mat Morgunblaðsins skuli gilda sem
fréttamat Ríkisútvarpsins. Frétta-
stofum nkisfjölmiðlanna er sómi að
því í hvert sinn sem þær beygja sig
ekki undir þetta flokkspólitíska ok.“
2. maí: Þingsjá og árekstrar.
Viku síðar óskaði Magnús Er-
lendsson eftir því að allt efni eftir
Ólaf Hauk Símonarson yrði sérstak-
lega yfirfarið fyrir útsendingu „til
að forðast eilífa árekstra".
Athugasemd var gerð við að klippt
væri á sjónvarpsfréttir í miðri mynd.
Eiður Guðnason gagnrýndi það
form að ætla sex fúlltrúum stjóm-
málaflokka að fjalla um störf
Alþingis í þinglok í rúmlega tuttugu
mínútna langri Þingsjá.
9. maí: Úkraína og eigin skoð-
anir.
Föstudaginn 9. maí voru gerðar
athugasemdir við fréttir í hljóðvarpi
kvöldið áður um kjamorkuslysið í
Úkraínu. Sjónvarpsfréttir af kjam-
orkuslysinu vom einnig gagnrýndar.
Misjafnar skoðanir vom um fíkni-
efnaþátt í sjónvarpi 7. maí og að
ekki hefði verið farið eftir ábending-
gerst hefði í lokaorðum umsjónar-
manna þáttarins Hafa sveitarfélögin
stefnu í umhverfismálum? Ámi
Bjömsson taldi það ekkert nýmæli.
Ingibjörg Hafetað taldi óeðlilegt
að í lestri úr leiðurum dagblaða 1.
maí hafði þeim hluta leiðara DV
verið sleppt sem snerti Kvennalist-
ann.
Formaður útvarpsráðs, Inga Jóna
Þórðardóttir, spurði hve mikið
fréttamönnum væri leiðbeint um
lestur.
16. maí: Hrós!
Á fundi ráðsins 16. maí síðastliðinn
kom fram ánægja með Kastljós
Guðna Bragasonar um kjamorku-
ver. Aftur á móti vom skiptar
skoðanir um dagskrárgerð í Kast-
ljósi um Landhelgisgæsluna.
Á sama fundi spurðist Haraldur
Blöndal fyrir um þátttöku sjón-
varpsins í skoðanakönnun Félags-
vísindadeildar Háskóla íslands og
Haraldur Blöndal lýsti þeirri skoðun
sinni að ekki ætti að birta myndir
af gmnuðum eða sökuðum mönnum
sem ekki hefðu verið dæmdir.
Þá vom gerðar athugasemdir við
nafnbirtingar í fréttum og „niður-
lægjandi“ þátt annan í hvítasunnu,
Hafa karlmenn kímnigáfu?. Var þvi
haldið fram að þar hefði verið á ferð-
irrni áróðursþáttur fyrir stjómmála-
flokk sem bauð fram við borgar-
stjómarkosningamar í Reykjavík.
27. maí til 6. júní: Kosningar.
Rólegt var á fundum ráðsins 27.
og 30. maí. Starfsfólki útvarpsins
vom færðar sérstakar þakkir fyrir
„mjög gott“ kosningaútvarp á fúndi
ráðsins 6. júní. Starfsfólki sjónvarps
vom einnig færðar þakkir fyrir „vel
heppnað" kosningasjónvarp.
Þá kom fram gagntýni nokkurra
útvarpsráðsmanna á fréttaflutning
um reikninga Granda hf. Talið var
óæskilegt að hafa fréttir í framhalds-
söguformi, öll sjónarmið þyrftu að
koma fram í sama fréttatímanum.
Ingibjörg Hafstað gagnrýndi
stjómanda umræðuþáttarins Borg-
arstjómarkosningar sem sjónvarpað
var 30. maí.
Einnig var gagnrýnt hversu greið-
an aðgang viðskiptafréttir, „sem em
beinar auglýsingar“, ættu orðið í
sjónvarpsfréttir. Ámi Bjömsson
gerði sérstaka athugasemd við að
getið var um vörumerki á tölvunni
sem notuð var í kosningasjónvarpi.
13. og 20. júní: Ályktunin
mikla.
Fundurinn 13. júní var viðburða-
snauður en á fundinum 20. þess
mánaðar dró heldur betur til tíð-
inda. Segir svo í fundargerðabók
útvarpsráðs: „Allmiklar umræður
urðu um fréttaflutning hljóðvarps
og sjónvarps undanfama daga um
mál Guðmundar J. Guðmundssonar.
Skylt væri að birta slíkar fréttir en
skyldan endaði þar sem staðreynd-
um sleppti." Ráðið samþykkti síðan
samhljóða eftirfarandi ályktun: „Út-
varpsráð lýsir yfir óánægju með
fréttaflutning Ríkisútvarpsins af
málefnum Guðmundar J. Guð-
mundssonar að undanfömu. Hefúr
umfjöllunin um of einkennst af stað-
hæfingum í stíl æsifregna og í
viðtölum hefur á stundum gætt
slíkrar ágengni að ekki sæmir óhlut-
drægum fréttamiðli. Útvarpsráð
telur að hætta sé á að slíkur frétta-
stíll rýri traust á fréttastofum
Ríkisútvarpsins og leggur áherslu á
mikilvægi þess að almenningur geti
ætíð reitt sig á að þær fréttir, sem
Ríkisútvarpið flytur, séu réttar og
heiðarlega fram settar.“
Ályktun þessi olli miklum úlfaþyt.
Varafréttastjórar útvarps og sjón-
varps, þeir Kári Jónasson og Páll
Magnússon, sögðust báðir vera mjög
ósáttir við ályktunina. „Mér finnst
þessi ályktun útvarpsráðs gjörsam-
lega út í hött,“ sagði Páll. Inga Jóna
Þórðardóttir, formaður útvarpsráðs,
sagði hins vegar að ályktunin kæmi
í beinu framhaldi af gagnrýni út-
varpsráðs á fréttaflutning ríkisfjöl-
miðlanna að undanfömu. Það yrði
að skoða þetta mál í víðara sam-
hengi.
Kominn tími til að halda fund
Og nú hefúr útvarpsráð ákveðið
að efna til fímdar með útvarpsstjóra
og fréttastjórum útvaups og sjón-
varps til að ræða þessa ályktun
nánar. Væntanlega verður fundur-
inn notaður til að ræða almennt um
fréttaflutning hjá Rfkisútvarpinu.
En hvort einhverra breytinga er að
vænta í kjölfar þeirrar umræðu er
ógjömingur að segja til um. Á næstu
vikum verður lögð fram ný reglugerð
um starfsemi Rikisútvarpsins og má
þá reikna með að reglur um frétta-
flutning verði endurskoðaðar.
Reglumar um fréttaflutning em
ákveðnar af útvarpsstjóra en háðar
samþykki útvarpsráðs. Verður fróð-
legt að sjá hvemig þeirri viðureign
lýkur.
-EA