Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1986, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1986, Page 36
FRETTASKOTIÐ Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Hafirþú ábendingu eða vitneskju um frétt - hringdu þá í síma 62-25-25 Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greiðast 1.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 3.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 4. JÚU 1986. Krafa um afsogn vegna fjárstuðnings: Kann að gilda um Guðmund Einavsson „Guðmundur Einarsson kastar steinum úr glerhúsi. Það er hægt að krefjast, afsagnar manna vegna íjár- stuðnings sem þeir þiggja óafvitandi, en það kann að gilda um fleiri, til dæmis formann þingflokks jaíhaðar- manna.“ Þetta sagði yfirmaður hjá Hafskip, er DV bar undir hann full- yrðingar, sem fram komu í grein eftir Magnús Bjamfreðsson i DV í gær, j>ess efnis að Bandalag jafnaðar- mamia og Alþýðubandalagið heíðu þegið fé af Hafskip. Yfirmaðurinn heldur éfram: „Nið- urstöður Magnúsar BjatiTfreðssonar eru réttar. Það vita allir sen* standa í rekstri að stærri fyrirtæki veita flestum stjómmálaflokka styrki. Þau kaupa happdrættisiniða og borga auglýsingareikninga. Þetta gildir ekki bara um Hafskip heldur um flest stórfyrirtæki og alla stjóm- málaflokka." Yfirmaðurinn hjá Hafskip óskaði nafnleyndar. „Mér er ekki kunnugt um að Bandalag jafnaðarmanna hafi fengið nokkurt fé frá Hafskip. Ef um ein- hverja stærri upphæð væri að ræða væri mér eflaust kunnugt um það,“ sagði Guðmundur Einarsson, for- maður Bandalagsins, er DV bar undir hann fullyrðingar Magnúsar Bjamfreðssonar um að flokkur hans hefði þegið fé frá Hafskip. „Það get- ur vel verið að einhvem tímann hafi verið keypt auglýsing eða örfair happdrættismiðar, en mér er ókunn- ugt um það. Ég hafði samband við Magnús Bjamfreðsson eftir að ég las greinina og hann hafði engar upp- lýsingar um málið annað en það sem kemur fram þar. Við bandalagsmenn höfum sent einstaklingum og fyrirtækjum bréf þar sem við óskum eftir fjárstuðn- ingi enda er ekki hægt að reka stjómmálahreyfingar án þess að fé sé fyrir hendi. Þetta er ekkert feimn- ismál, en því rniður skilaði þetta okkur allt of litlum peningum og ég efast um að eitt einasta stórfyrirtæki hafi brugðist við á jákvæðan hátt. Ég er fylgjandi því að það verði settar reglur um íjárstuðning við stjómmálaflokka. Það má setja regl- ur um hámark slíkra greiðslna og þetta ætti skilyrðislaust að vera op- inbert. Ég tel óeðlilegt að aimennings- fyrirtæki veiti slíka styrki án þess að vilji meirihluta hluthafa liggi fyr- ir,“ sagði Guðmundur Einarsson. as. Danadrottning kemur í dag Margrét II. Danadrottning er vænt- anleg hingað til lands í dag í boði forseta íslands. Flugvél hennar há- tignar og Hinriks prins lendir á Reykjavíkurflugvelli klukkan 16.00 og munu þau hjón búa í Ráðherrabú- staðnum á meðan á heimsókn þeirra stendur. Danadrottning mun ferðast um landið á næstu dögum, heimsækja Vestmannaeyjar, Skaftafell, Egilsstaði og Borgarfjörð eystri. Þá mun Hinrik prins renna fyrir lax í Elliðaánum í boði borgarstjóra. Margrét Danadrottning og Hinrik prins halda til Kaupmannahafnar að loknum hádegisverði í Höfða á mánu- daginn. -EIR ALLAR GERÐIR SENDIBÍLA Jón Páll sigraði með yfirburðum. I gærkvöldi fór fram á Kjóavöllum fyrsta rallýkrosskeppni sumarsins. Keppnin var hin fjörugasta og skemmtu fjölmargir áhorfendur sér vel. í hléi kepptu þeir Jón Páll Sigmarsson og Ómar Ragnarsson í reiptogi og naut Ómar aðstoðar gamallar Prins-bifreiðar. Skipti það engum togum, Jón Páll sigraði með yfirburðum og sá ekki á kappanum. Hins vegar fór kúplingin í Prinsinum í átökunum enda ekki við neinn áukvisa að etja. Sigurvegari í Rallykrossinu var Steingrímur Ingason á Datsun Nizzan eftir harða baráttu við Eirik Friðriksson á Ford Escort. Athygli vakti að íslandsmeistaranum frá því í fyrra, Jóni Hólm, tókst ekki að Ijúka keppni vegna vélarbilunar en hann var kominn í úrslit DV-mynd S/JFJ Skemmuvegur 50 LOKI Mér er sagt að vinningur- inn í happdrættinu hafi verið ferð til Nissa.. Veðrið á morgun: Bjart suðvestan- lands Á morgun verður norðlæg átt á landinu og fer veður kólnandi. Rign- ing og súld verður um norðan og austanvert landið en bjart veður suðvestanlands. Hiti verður á bilinu 8-12 stig. Heit- ast fyrir sunnan. Bolungarvík hafnað í Reykjavík - Hafnarfjorður hækkar Bæjarráð Hafharijarðar hefur sam- þykkt að hækka laun bæjarstarfs- manna um allt að 15%. Tillaga , borin 1 upp af Alþýðubandalagi, Alþýðuflokki og Kvennalista, um að hækka lág- markslaun í 30 þúsund krónur, var | hins vegar vísað frá á borgarstjómar- fúndi í gær. Samkomulagið í Hafharfirði genr ] ráð fyrir að laun bæjarstarfsmanna hækki að meðaltali um 8,6%. Mest er hækkunin í lægstu launaflökkunum, eða 15%, og minnst í þeim efstu eða 3%. Hækkanimar em afturvirkar frá 1. febrúar á þessu ári. Kostnaðarauki bæjarsjóðs er áætlaður um 8 milljónir og lágmarkslaun verða um 29 þúsund krónur. Tillagan, sem borin var upp í borgar- stjóm, gerði ráð fyrir að lágmarkslaun hækkuðu í 27 þúsund krónur frá 1. júlí og svo í 30 þúsund krónur frá 1. september. ' Fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins töldu að með tillögu þessari væri verið að bijóta samkomu- lagið á vinnumarkaðinum frá því í vor | og vísuðu henni frá. Fulltrúi Fram- sóknarflokksins sat hjá. -APH | f A 4 f 4 Banaslys í Miklaholtshreppi é Banaslys varð við bæinn Hofsstaði'P^ í Miklaholtshreppi um hálftvöleytið : nótt. Fólksbifreið valt og kastaðist, einn fjögurra farþega, 27 ára gömul kona, út úr bifreiðinni. Talið er að hún hafi látist samstundis. Hinir þrír far- þegarnir sluppu ómeiddir. Sú látna var búsett í Reykjavík. -ÞJV 4 4 Verslunar- é ráðið vefengir könnun Verð-1 lagsstofnunar é F.íT Cfpf 11f 1A oarrf QirnoÁ an oA órr „Ég get lítið sagt annað en að ég mun rita Verðlagsstofhun og gera at- hugasemd við hvemig staðið var að þessari verðkönnun, bæði við þau vinnubrögð sem viðhöfð vom við gerð könnunarinnar og einnig við hvemig staðið var að birtingu hennar," sagði Ámi Ámason, framkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands, er DV spurði hann um verðkönnun Verðlagsstofn- unar í Glasgow og Reykjavík. „Það var fundur í verðlagsráði dag- inn sem könnunin birtist en ráðinu ekki gefinn kostur á að fjalla um hana því hún var þá þegar komin til fjöl- miðla.“ sagði Ámi Ámason. -A.BJ. 4 4 4 14 Barði sjö árasonsinn ^ Um kvöldmatarleytið í gær var lög- reglan kölluð að húsi einu í austur- bænum. Þegar lögregumenn komu á staðinn var ölvaður heimilisfaðir að berja sjö ára son sinn. Skakkaði lög- reglan leikinn og var drengurinn fluttur á slysadeild með töluverða áverka. Meiðsli hans reyndust þó ekki eins alvarleg og í fyrstu var talið. Fékk hann að fara heim síðar um kvöldið. Faðirinn var fluttur í fangageymslur lögreglunnar og hafður í haldi í nótt. -ÞJV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.