Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986. Atvinnumál Stjóm Búnaðarsambands Suðuriands biýtur lög - segja félög háskólamanna og mötmæla ráðningu framkvæmdastjóra Ráðning framkvæmdastjóra Bún- aðarsambands Suðurlands hefur skapað úlfuð. Stéttarfélög hafa mót- mælt og telja að lög séu brotin. Landbúnaðarráðuneytið hefur ósk- að skýringa frá stjóm Búnaðarsam- bandsins. Hjalti Gestsson lætur af starfi framkvæmdastjóra fyrir aldurs sakir um næstu mánaðamót. Tveir menn sóttu um starf hans, Gunnar Guð- mundsson, tilraunastjóri að Laugar- dælum, og Kjartan Ólafsson garðyrkjuráðunautur. „Formaður stjómar Búnaðarsam- bands SuðurlEmds tilkynnti mér munnlega í maí að stjómin hefði ákveðið að ráða Kjartan Ólafsson," sagði Gunnar Guðmundsson, hinn umsækjandinn, er DV spurði hann um málið. Er blaðið spurði hvort hann væri sáttur við þá niðurstöðu svaraði hann: „Ég er í sjálfú sér ekkert hress með að ákvæði laga um menntun starfs- manna búnaðarsambanda séu brot- in.“ Vísaði Gunnar til jarðræktarlaga og búfjárræktarlaga. Þar segir að héraðsráðunautar skuli vera fram- kvæmdastjórar búnaðarsamband- anna. Skuli þeir hafa lokið kandídatsprófi í búfræði. Kjartan Ólafsson er menntaður frá Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í ölfúsi en var auk þess tvö ár í námi erlendis. Gunnar Guðmunds- son hefur lokið búfræðikandidats- prófi fiá Hvanneyri. Þá hefúr hann doktorsgráðu frá landbúnaðarhá- skólanum í Ási í Noregi. Launamálaráð Bandalags há- skólamanna hefur ásamt Félagi íslenskra náttúrufræðinga sent mót- mæli til Búnaðarsambands Suður- lands, Búnaðarfélags íslands og landbúnaðarráðuneytis. „Við ráðningu framkvæmdastjóra hefúr ekki verið farið eftir lögum sem kveða stíft á um að maður með ákveðin háskólapróf skuli ganga fyrir,“ sagði Birgir Bjöm Sigurjóns- son, hagfræðingur BHM. Guðmundur Sigþórsson, skrif- stofústjóri landbúnaðarráðuneytis, sagði að ráðuneytið hefði sent bréf vegna málsins og óskað skýringa. Stefan Jasonarson, formaður stjómar Búnaðarsambands Suður- lands, gaf óljós svör er DV spurði hann. „Mér dytti ekki í hug að segja þér hvaða bréf hafa borist," sagði hann er spurt var um mótmælabréf. Ekki fengust skýr svör við því hvort búið væri að ráða Kjartan Ólafsson sem eftirmann Hjalta Gestssonar. „Ég býst við því,“ svaraði Stefán. „Málið er í athugun,“ bætti hann við.“ -KMU Stjóm Sambands islenskra loödýraræktenda á tundi sfnum á Akureyri i gær. Ekkert var rætt um hvalkjötið, enda fréttu loðdýraræktendur um hugsanlega notkun hvalkjötslns f loödýrafóður i fréttum f fyrrakvöld. „Það hefur ekkert samband verið haft við okkur." DV-mynd JGH Kaup loðdýraba&nda á hvalkjöti: „Greiðum í hæsta lagi 3 kr. fyrir kflóið“ - segir Jón Ámason, ráðgjafi loðdýrabænda í fóðnin og foðurgerð Jón G. Haukæon, DV, Akureyri: „Við höfum aðra kosti en hvalkjöt, sem veldur því að við erum ekki til- búnir að greiða nema í hæsta lagi 3 krónur fyrir hvert kíló af hvalkjöti," Jón Ámason, fóðurfræðingur og ráðgjafi loðdýrabænda í fóðrun og fóður- gerð, á Akureyri i gær. sagði Jón Ámason, fóðurftæðingur og ráðgjafi loðdýrabænda í fóðrun og fóð- urgerð, í gær. Jón sagði að innan loðdýraræktun- arinnar hefði kaup á hvalkjöti ekki verið á dagskrá: „Við höfum ekkert heyrt um þetta nema í fféttunum." „Það er ljóst að loðdýraræktunin getur tekið 2000 tonn af hvalkjöti á ári en nú er um 18000 tonna fram- leiðsla af loðdýrafóðri á ári og hún fer vaxandi," sagði Jón. Hvað um næringargildið, er það hagstæðara en til dæmis fiskúr- gangur? „Nei, það er það ekki en í fóðrinu þarf að vera visst hlutfall af físki, komi og sláturmat, og hvalkjötið kæmi þá í staðinn fyrir sláturmatinn sem hefiir reyndar stundum verið erfitt að fá.“ Að sögn Jóns yrðu loðdýrabændur að fa vitneskju um vítamíninnihald og þungmálmainnihald hvalkjötsins áður en farið yrði að ræða um kaup á hvalkjötinu. „En aðalatriðið er verð- ið. Við erum ekki tilbúnir að yfirgreiða hvalkjötið neitt,“ sagði Jón Ámason. Það kostaði sitt að taka þðtt i þjóðhátiöinni en vonandi hefur það verið þess virði. DV-mynd Grimur Verðþensla á þjóðhátíð Eyjamenn höfðu ríka ástæðu til að fagna um síðustu helgi. Peningaflæðið inn í „landið" var gífurlegt enda olh það verðþenslu. Það vom ýmsir séðir og högnuðust vel á útihátíðum um allt land, enda vart við öðm að búast þegar fjöldi manns vill fa sömu þjón- ustu. Þessi fjöldi er þar að auki kominn til að skemmta sér og lítið að hugsa um einhverjar krónur, þó að eftir á að hyggja þyki mönnum verð- lagið heldur hátt. „Ég get sagt þér dæmi um gróðasjón- armiðið sem þama réð ríkjum. Rútubílstjóramir, sem fluttu fólkið til mótshaldara inni í dal, vom látnir borga sig inn á svæðið ef þeir vildu koma fólkinu inn. Ég undrast það mest að löggan skyldi ekki vera látin borga inn,“ sagði þjóðhátíðargestur úr Reykjavík. Öðrum þjóðhátíðargesti varð tíðrætt um sturtumar: „Það kostaði 100 krón- ur inn í sturtumar sem vom auglýstar sem eina baðaðstaðan en síðasta dag- inn komst ég að því að hægt var að fara í sund fyrir 40 krónur. Sturtuað- staðan var 160% dýrari en samt verri en í sundlauginni, þar leyfðu þeir manni þó að komast ókeypis á klóset- tið.“ Þó var ekki allt í sama dúr. í Eyjum var öryggisgeymsla þar sem hægt var að geyma töskur fyrir 200 krónur á dag en 500 fyrir allan tímann. Eigand- inn gat gengið í töskuna að vild endurgjaldslaust og vom gestir án- ægðir með þessa þjónustu. „Blessaður vertu, þetta em smápeningar á móti því að það verðmætasta sé óhult,“ sagði þriðji viðmælandi blaðsins. Virt> ist þessi geymsla hafa verið traust og mikið notuð. 25% verðbólguholskefla! Ferðir til og frá bænum vom einnig rakin gróðaleið. Þó að spölurinn sé ekki langur virtust fjölmargir heykjast á að nota tvo jafnfljóta. Þeir fengu líka að borga sitt gjald fyrir þessa 2 mínútna ökuferð. „Þetta kostaði venjulega 80 krónur en þegar ég var að fara heim á mánudeginum hafði verðbólga greinilega gengið jffir ey- jamar því farið var komið í 100 krónur ef maður vildi komast með upp á flug- völl, annars var þama svo misjafnt á hveijum maður lenti. Ég get líka sagt þér frá því að ég heyrði að lambasteik- in inni í bæ hefði kostað 1000 krónur, hugsaðu þér!“ sagði fyrsti viðmæl- andinn. Þjóðhátíðinni er lokið og hún heppnáðist vel. Þrátt fyrir smákvart- anir vom viðmælendur DV ánægðir með helgina og sögðu hana meiri hátt- ar. Miðað við skemmtunina var þetta ef til vill alls ekki dýrt þegar allt kem- ur til alls; að minnsta kosti mætir þetta fólk galvaskt að ári. _jpj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.