Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986.
Utlönd
Craxi stóð af
sér vantraustið
- fertugasta og fímmta ríkisstjóm á Ítalíu eftir stríð
Ný samsteypustjóm jafaaðar-
mannaleiðtogans Bettino Craxi
stóðst atkvæðagreiðslu um van-
traust í neðri deild ítalska þjóð-
þingsins í gær og hefur nú hlotið
fulla staðfestingu og umboð ítalska.
þingsins til áframhaldandi stjómar-
athafna.
Fimm flokka samsteypustjóm
Craxis hlaut 352 atkvæði gegn 227
atkvæðum stjómarandstæðinga.
Áður hafði efri deild þingsins fellt
tillögu um vantraust með traustum
meirihluta atkvæða.
Stjómarandstæðingar, aðallega
þingmenn kommúnista, gagnrýndu
Fimm flokka samsteypustjórn Bett-
ino Craxi stóð af sér tillögu um
vantraust á ítalska þinginu í gær
með miklum mun.
hina nýju ríkisstjóm harðlega á
þingfundi í gær áður en gengið var
til atkvæðagreiðslu og kváðu hana
í mesta lagi endast í nokkra mánuði
sökum eigin sundurlyndis.
Craxi vísaði gagnrýni stjómarand-
stæðinga á bug, sagði að ítölsku
þjóðina þyrsti í starfhæfa og stöðuga
ríkisstjóm og lofaði að efna gefin
fyrirheit um stöðugleika og ábyrgð
í stjómarathöfhum.
Ríkisstjóm Craxis er sú fertugasta
og fimmta á Ítalíu fiá stríðslokum.
Ævintýrafflóttinn
tóm lygi og uppspuni
Peningamarkaður
VEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggö
Sparisjóðsbækur óbundnar a-9 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 8.5-10 Ab.Lb.Vb
6 mán. uppsögn 9.5-12.5 Ab.Vb
12 mán. uppsögn 11-14 Ab
Sparnaður- Lánsréttur
Sparad i 3—5 mán. 8-13 Ab
Sp. i 6 mán. og m. 9-13 Ab
Ávísanareikningar 3-7 Ab
Hlaupareikningar 3-4 Lb.Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1 Allir
6 mán. uppsögn 2.5—3.5 Lb
Innlán með sérkjörum 8-16
Innlán gengistiyggð
Bandaríkjadalur 6-7 Ab
Sterlingspund 9-10.5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3.9-4 Ab
Danskar krónur 9-7.5 Ab.Sb
lltlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 15.25 Allir
Viðskiptavíxiar(forv.)(1) kge og 19.5
Almenn skuldabréf(2) 15.5 Allir
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 7-9
Utlán verðtryggð
Skuldabréf
Að 2.5 árum 4 Allir
Til lengritíma 5 Allir
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 15
SDR 8
Bandaríkjadalur 8.25
Sterlingspund 11.75
Vestur-þýsk mörk 6
Spariskirteini
3ja ára 7
4ra ára 8.5
6ára 9
Með vaxtmiðum(4 ár) 8.16
Gengistryggð(5 ár) 8.5
Almenn verðbréf 12-16
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala 1463 stig
Byggingavísitala 272.77 stig
Húsaleiguvisitaia Hækkaði 5% 1. júli
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnverðs:
Eimskip 200 kr.
Flugleiðir 140 kr.
Iðnaðarbankinn 98 kr.
Verslunarbankinn 97 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, af þriðja aðila, er
miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
flestum bönkum og stærri sparisjóðum.
(2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs
vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð
og óverðtryggð lán. Skammstafanir:
Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðar-
bankinn, Ib = Iðnaðarbankinn, Lb =
Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn,
Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunar-
bankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast í DV á fimmtudögum.
Ásgar Eggerlssan, DV, Mindien:
Mikill fjöldi blaða- og fréttamanna
hlýddi í síðustu viku með andakt á
frásögn Austur-Þjóðveijans Heinz
Braun af ævintýralegum flótta hans
frá Austur-Berlín ásamt þremur útr
stillingarbrúðum. Útstillingarbrúð-
umar sagðist Braun hafa klætt upp í
einkennisbúninga sovéskra liðsfor-
ingja í Ladabifreið er máluð hafði
verið í litum sovéska hersins.
í húsi því er blaðamannafundurinn
átti sér stað er safn þar sem varðveitt
em hin ýmsu tæki og tól er notuð
hafa verið af austur-þýskum flótta-
mönnum allt frá þvi Berlínarmúrinn
var reistur fyrir réttum aldarfjórðungi.
Braun sagði nákvæmlega frá því
hvemig hann hefði blekkt landa-
mæraverðina með útstillingarbrúðun-
um og sjálfur klæddur í búning
óbreytts sovésks hermanns.
Fjölmiðlar trúðu ævintýralegri sögu
Braun eins og nýju neti og var Braun
þegar farinn að ræða alvarlega samn-
inga um kvikmyndarétt að flóttanum
við bandarísk og bresk kvikmyndafé-
lög.
Þýsku æsifréttablöðin tóku þessari
frétt fagnandi enda mikil gúrkutíð á
þeim vettvangi þessa dagana.
Tvisvar áður hefur flóttamönnum
að austan tekist að flýja á sama hátt
og Braun sagðist hafa gert.
Árið 1963 tókst fjórum ungum Aust-
ur-Þjóðveijum, búnum sovéskum
einkennisklæðnaði, að komast yfir
lrndamærin og aftur léku tveir landar
þeirra sama leikinn árið 1965, en þá í
bandarískum hermannabúningum.
Sérstakir samningar, sem gilda í
samskiptum fjórveldanna í Berlín,
segja að ekki sé heimilt að hafa eftir-
lit með farartækjum fjórveldanna í
borginni.
Eftir að AND, austur-þýska frétta-
stofan neitaði harðlega að umtalaður
atburður hefði átt sér stað komu fleiri
og fleiri fréttir af atburðarásinni er
leiddu að lokum til þess að sarrnað
þótti að saga Braun hefði verið upp-
spuni frá rótum.
Hermannabúningamir reyndust
viðvaningslega gerðir og tollgæslan i
Vestur-Berlín sagði að samkvæmt
dagbók hefði ekkert sovéskt eftirlits-
farartæki farið yfir til Vestur-Berlínar
á umræddum degi.
Eitt af stærstu dagblöðum Berlínar
fann að lokum manninn, er sprautað
hafði Ladabifreiðina græna, og stað-
festi framburður hans lygar Brauns.
í yfirheyrslum hjá lögreglu í Vestur-
Berlín sagði Braun að ástæðan fyrir
sögu sinni hefði verið sú að hann hafi
viljað vekja athygli á byggingu Berlín-
armúrsins fyrir aldarfjórðungi.
Vestur-þýskir fjölmiölar hafa nú flett ofan af lygasögu Austur-Þjóöverjans Heinz
Braun um ævintýralegan flótta frá Austur-Berlin með þrem sovéskum liös-
foringjabrúðum
Ljótastl hundur
í heimi
Chi-Chi heitir hvuttinn og þykir af ýmsum býsna ófrýnilegur. Chi-Chi bar um
daginn sigur úr býtum í mikilli keppni suður í Kalifomíu um titilinn ljótasti
hundur í heimi. Sigraði Chi-Chi þar 35 aðra fjórfætta keppinauta eftir harða
og spennandi keppni.
Biskupar Norðurianda þinga á Gotlandi:
Spá aðskilnaði
ríkis og kirkju
fyrir árið 2000
Gunnlaugur A Jónæan, DV, Lundi:
Verður aðskilnaður ríkis og kirkju
orðixm að veruleika fyrir árið 2000?
Þeirri spumingu svara flestir
þeirra fjörutíu norrænu biskupa er
nú þinga í Visby á Gotlandi játandi.
Nokkra athygli sænskra flölmiðla
vakti í því sambandi sérstaða Is-
lands, að íslenski biskupinn, Pétur
Sigurgeirsson, hafði aðra skoðun en
flestir starfsbræðra hans.
Einn sænsku fjölmiðlanna orðar
það svo að íslenski biskupinn hafi
flutt lofsöng um gott samband kirkju
og stjómvalda á Islandi og um það
jafiiræði sem þar ríkti.
Má í því sambandi minna á að
Sigurbjöm Einarsson biskup hefur
og látið svipuð sjónarmið í ljósi á
prenti nýlega, það er að spumingin
um aðskilnað ríkis og kirkju á Is-
landi sé ekki tímabær og íslenska
kirkjan þurfi ekki að kvarta undan
sambúðinni við ríkisvaldið.
Meginumræðuefiii biskupanna á
fundinum í Gotlamdi er annars
hvemig þjóðkirkjunum eigi að tak-
ast að ná til fólksins.
„Það em bömin sem við verðum
að ná til. Kynslóð sú sem fædd er
eftir síðari heimsstyrjöld hefur á ein-
hvem hátt misst trúna,“ sagði John
Vikström, erkibiskup Finnlands.
„Við verðum að stunda trúboð í
okkar eigin löndum,“ sagði Andreas
Aarflot, biskup frá Osló. Hann og
fleiri biskupar lélu í ljós þá skoðun
að þjóðkirkjur Norðiulandanna
væm orðnar allt of einhliða þjón-
ustustofiianir og þyrfti að snúa
þróuninni við.