Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Side 16
16 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986. Rokkspildan ,Súpersveitin“ Dúndur byrjaði á að endurvekja fimmtudagskvöldin i Borgartúni. DV-mynd Kristján Ari Alltaf a nmmtudögum Tónlistarkvöldin í ákveðnu húsi við Borgartún hafa nú verið endur- vakin. Nú er þar til húsa skemmti- staðurinn Evrópa og hefur meðal annars á skemmtanaskrá sinni lif- andi tónlist. Tilvalið þótti að nota fimmtudagskvöldin til að fá hljóm- sveitir til að spila enda voru þau kvöld afar vel sótt hér í eina tíð. Á fimmutdagskvöldið tók hljóm- sveitin Dúndur upp þráðinn þar sem honum var sleppt á sínum tíma og var Bjami Tryggva þeim til full- tingis. Bjami bauð jafnframt Bubba Morthens að stíga rétt sem snöggvast á svið, sem hann og gerði. Dúndrið tók síðan við. Sveitin hef- ur innan' sinna vébanda marga reyndustu tónlistarmenn landsins og var uppákoman í fyrrakvöld fyrstu spor meðlima í þessu sam- starfi. Á efnisskránni voru innlend og erlend lög og var tónlistin leikin afmiklum krafti. Nafn sveitarinnar er sannarlega réttnefni. Skothelt dansband. Stefnuskráin Á stefnuskránni er að allar þekktustu sveitir landsins spili í Evrópu á næstkomandi vikum og mánuðum, svo sem Bítlavinafélag- ið, MX 21, Skriðjöklar, Rikshaw og Greifarnir. Jafnframt verður ungum sveitum gefinn kostur á að koma fram. Er áhugasömum tón- listarmönnum bent á að hafa samband við Pétur Kristjánsson sem sér um að skipuleggja þessar uppákomur. -ÞJV m MX 21 leikur á afmælishátíðinni. Myndin er tekin á nokkurra daga afmæli sveitarinnar. DV-mynd PK Atta sveitír á afmælishátíð Nú hafa verið valdar þær hljóm- sveitir sem eiga að leika á afmælis- hátíð Reykjavíkurborgar 19. ágúst. Auglýst var eftir umsóknum hljóm- sveita og sérstök dómnefiid hefur valið átta sveitir úr þeim hópi. Hátíðin hefet klukkan sjö og er áætlað að hún standi fram til klukkan eitt. Meðal þeirra sveita sem ríða á vaðið í upphafi eru Byl- ur, Rauðir fletir, Tic Tac og Vunderfoolz. Þá taka Greifamir út hluta verðlauna sinna á Músíkt- ilraunum, hver voru að fá að leika á umræddri hátíð. Seinast á dag- skrá kvöldsins verða svo MX 21 og Stuðmenn. Nýja bandið hans Bubba kom einmitt fram í fyrsta skipti á Gauknum um síðustu helgi og Stuðmenn léku, eins og flestum er kunnugt, fyrir dansi á Gulleyj- unni. Þessar tvær sveitir verða hápunktur kvöldsins. Þarfaþingiö Að sjálfsögðu verður hið um- deilda hljóðkerfi borgarinnar notað við þetta sérstaka tilefhi, jafnt sem á öðrum uppákomum á afmælinu. Sannarlega þarfaþing. Þá hefúr heyrst að sjónvarpið hyggist senda beint út frá tónleik- unum frá klukkan níu um kvöldið. Af hverju á borgin ekki oftar stór- afinæli? -ÞJV Guð sá til þín, vonda barn Heldur hljótt var um hljómsveitakeppnina að Laugum um versl- unarmannahelgina. Sex sveitir tóku þátt í keppninni og bar ein þeirra sigur úr býtum, eins og vera ber. Það var sveitin Guð sá til þín, vonda barn, frá Vopnafirði. „Við erum mjög ánægðir með sigurinn en ekki eins ánægðir með nafnið, það er frekar óþjált," viðurkenndi Svanur Kristbergsson, söngvari og bassaleikari, í samtali við DV. „Það gefur heldur ekki góða mynd af okkur sem tónlistarmönnum. Við spilum ekkert Jesúpopp. Kunningi okkar stakk bara upp á þessu. Fyrsta bamabókin, sem gefin var út á íslandi, hét víst þessu nafni.“ Aðrar sveitir í keppninni á Laugum hétu reyndar ekki síðri nöfnum: Marcos, Hross í haga, Meramar, Grandmaster gámur og Kyndaramir. Röð þeirra í keppninni var samkvæmt þessari uppt- alningu. Röð sveita í keppninni skipti hins vegar ekki máli þegar allt kom til alls. Engin verðlaun vom greidd vegna bágs fjárhags hátíðarinnar - alveg með eindæmum. Undir öðru nafni Guð sá til þín, vonda barn (skammstafað GSTÞVB, borið fram gstþvb), samanstendur af Svani Kristbergssyni, Magnúsi Úlfari Kristjánssyni, Viðari Sigurjónssyni og Sigurjóni Ingibjömssyni. Svanur og Magnús vom áður í hljómsveitinni Coma sem meðal annars tók þátt í tveim hljómsveitakeppnum í Atlavík. Viðar og Sigurjón hafa einnig komið við sögu í þeirri keppni. „Tónlistin hefur lést mikið miðað við það sem við Magnús vorum að gera með Coma,“ sagði Svanur. „Textamir eru nú á íslensku og lögin meira grípandi. Við emm nú komnir með átta laga pró- gramm og stefnum að því að halda tónleika á Vopnafirði í lok ágúst. Síðan höfum við sett stefhuna á næstu Músíktilraunir. Við emm ákveðnir í að láta heyra í okkur aftur, þó líklega verði það undir öðm nafni." -ÞJV Alls ekki hættir“ „Við viljum fyrir alla muni leiðrétta þann misskilning að Rödd- in hafi lagt upp laupana. Við erum alls ekki hættir. Þrátt fyrir brottför Davíðs söngvara höldum við þrír, sem eftir emm, áfram samstarfi. Við emm ákveðnir í því,“ sagði Einar Ármannsson, trommuleikari Raddarinnar, í samtali við DV. Eins og skýrt hefur verið frá sagði Davíð Traustason söngvari skilið við sveitina fyrir skemmstu. Hann hefur nú stofnað nýtt band, Rauða fleti, ásamt tveim meðlimum úr Lalla og Ijósastaura- genginu. Hinir þrír hyggjast halda ótrauðir áfram samstarfi og leita nú logandi ljósi að nýjum raddara. Röddin heyrir sem sagt ekki sögunni til. „Tónlist Raddarinnar á eftir að breytast," sagði Einar. „Við þrír, sem eftir erum, viljum nú fást við þyngri og harðari tónlist. En þetta skýrist allt saman á næstunni. Við látum heyra frá okkur innan tíðar.“ -ÞJV Ameríski draumurínn Slík er yfirskrift tónleika í Roxzy á fimmtudagskvöldið. E'ram koma Svart/hvítur draumur, Professor X og amerísk sveit, Gold Box. Þetta, verða að öllum líkindum seinustu tónleikar SH draums hér í bili. Sveitin heldur senn í vetrarfrí en ekki er loku fyrir það skotið að áður verði haldið í hljóðver. Professor X er ný sveit sem Óskar Þórisson, áður í Taugadeildinni, og Pétur Hallgrímsson, sem var í Cosa Nostra, standa að ásamt fleirum. Gold Box skipa hins vegar amerísk hjón sem leika bæði á gítar og hafa segulband sér til fulltingis. Tónleikarnir hefjast klukkan tíu. Aðeins er krafist rúllugjalds við innganginn. Ódýrir draumar en athyglisveröir draumar atarna. -ÞJV Umsjón: Þorsteinn Vilhjálmsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.