Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986.
23
Hin hliðin
•Ásgeir Eliasson langar mest til að hitta Bob Paisley, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Liverpool.
„Gummi Torfa er
uppáhalds-
söngvarinn minn“
- segir Ásgeir Bíasson, þjálfari Fram í knattspymu
Ásgeir Elíasson verður að
teljast til merkari íþrótta-
manna þessa lands. Um
langt árabil hefur hann ver-
ið í eldlínunni, eins og sagt
er, en nú hefur hann loks
lagt knattspyrnuskóna á
hilluna. Hann hefur gert það
gott í sumar sem aðalþjálfari
Fram í 1. deildinni í knatt-
spyrnu og sem stendur er lið
hans í efsta sæti deildarinn-
ar og hefur reyndar verið
það um nokkurt skeið. Þeg-
ar við fórum þess á leit við
Ásgeir að hann svaraði eft-
irfarandi spumingum brást
hann vel við og svörin fara
hér á eftir:
Fullt naíri: Ásgeir Elíasson.
Aldun 36 ára.
Maki: Soffia Guðmundsdóttir.
Laun: Þokkaleg.
Bifireið: Suzuki Fox jeppi.
Helsti veikleiki: Verð að teljast
heldur latur á sumum sviðum.
Helsti kostur. Rólyndi.
Hvað myndir þú gera ef þú ynnir
tvær milljónir i happdrætti? Vænt-
anlega borga skuldir til að byrja
með og reyna að byggja bílskúr
yfir bílinn.
Langar þig til að verða ósýnilegur
í einn dag? Nei, það held ég ekki.
Mestu vonbrigði í lífinu: Að Fram
skyldi ekki hafa orðið íslandsmeist-
ari í íyrra.
Mesta gleði í lífinu: Til dæmis þeg-
ar krakkamir fæddust.
Mestu mistök sem þú hefur gert í
lífinu: Maður hefur gert þau mörg,
get ekki nefht einhver ein mistök.
UppáhakLsmatUr: Hangikjöt með
baunum, öriitlu rauðkáli, örlítið
sætu uppstúfi og kartöflum og ekki
er verra að hafa smálaufabrauð
með.
Uppáhaldsdrykkur: Drekk einna
mest af kaffi og Egilsbjór.
Uppáhaldslag: Eitthvert Bítlalag,
enda flest góð.
Uppáhaldshljómsveit: Bítlamir.
Uppáhaldssöngvari: Guðmundur
Torfason.
Umsjón
Stefán Kristjánsson
Uppáhaldsstjómmálamaður: Guð-
mundur J. Guðmundsson.
Uppáhaldsíþróttamaður: Pele.
Uppáhaldssjónvarpsmaður ómar
Ragnarsson.
Uppáhaldsblað: DV.
Uppáhaldstimarit: fþróttablaðið.
Uppáhaldsrithöfundur, íslenskur:
Jónas Ámason.
Ef þú yrðir bóndi á morgun, með
hvaða skepnur vildir þú helst búa
og af hverju? Helst vera með hesta
og geta lifað af því. Mér finnst þeir
skemmtilegastir.
Við hvaða skepnur ert þú mest
hneddur? Ekki hneddur við neitt
af þessu. Ég var í sveit í mörg ár.
Ætlar þú að kjósa sama flokk í
komandi alþingiskosningum og þú
kaust síðast? Geri ekki ráð fyrir því.
Hlynntur eða andvígur núverandi
ríkisstjóm: Frekar á móti henni
eins og er.
Hlynntur eða andvígur núverandi
meirihluta í Mosfellssveit: Hvorki
með eða á móti.
Hvaða verk ert þú ánægðastur með
af verkum þínum í sumar? Ánægð-
astur með að hafa hreinsað kartöfl-
ur frá í fyrra, sem voru orðnar
frumskógur af spírum, úr kjallaran-
um hjá mér.
Eitthvað séretakt sem þú stefnir að
næsta vetur. Stefhi að því að byggja
bílskúr og klára hann í vetur.
Ef þú yrðir að syngja eitt lag á
Amarhóli að viðstöddu fjölmenni,
hvaða lag myndir þú velja þér? Lík-
lega ólaf liljurós.
Myndir þú telja þig góðan eigin-
mann? Þokkalegan.
Vaskar þú upp fyrir eiginkonuna?
Já, það geri ég oft.
Besta bók sem þú hefur lesið: Bók
Guðmundar Daníelssonar um
heimsmeistaraeinvígið í skák 1972.
Fallegasti kvenmaður seni þú hefur
séð: Konan.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Bob Paisley, fyrrverandi
stjóra hjá Liverpool.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu: Ég
fór í Landmannalaugar og að
Klaustri.
f lokin œtla ég að biðja þig um að
semja eina stöku:
Illa Stefán að mér sótti,
átti að skrifa í blaðið grein.
Var það sem að verst mér þótti
að vera skyldi staka ein. -SK
SJÚKRAHÚSIÐ HÚSAVÍK
Starf hjúkrunarforstjóra við sjúkrahúsið í Húsavík er
laust til umsóknar. Upplýsingar gefur framkvæmda-
stjóri í síma 96-41333.
KENNARAR
Kennara vantar við Grenivíkurskóla. Almenn kennsla í
1.-9. bekk. Frítt húsnæði í boði í góðri íbúð. Upplýsing-
ar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri í síma 96-33131 á
kvöldin.
ATVINNA
Lausar stöður á Dalvík:
Eftirtaldar stöður hjá Dalvíkurbæ eru lausar til um-
sóknar:
Bæjarritari
I starfinu felst dagleg stjórnun bæjarskrifstofu, umsjón
með fjárreiðum bæjarsjóðs og rekstri. Góð bókhalds-
þekking auk þekkingar á sviði tölvunotkunar nauðsyn-
leg. Launakjör skv. launakjörum Starfsmannafélags
Dalvíkurbæjar.
Aðalbókari
í starfinu felst umsjón með bókhaldi bæjarsjóðs og
bæjarfyrirtækja auk færslu bókhalds. Launakjör skv.
launakjörum Starfsmannafélags Dalvíkurbæjar.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf sendist
til bæjarstjórans á Dalvík
fyrir 12. ágúst.
Allar frekari upplýsingar gefa bæjarritari og bæjarstjóri.
Dalvíkurbær, Ráðhúsinu, 620 Dalvík.
Cirkus Arena sýnir
í Reykjavík
Vestan við hús T.B.R. og Glæsibæjar,
Laugardaginn 9. ágúst kl. 16.00 oi
Sunnudaginn 10. ágúst kl. 16.00 oi
Mánudaginn 11. ágúst kl. 20.00