Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986. Að tefla við tómarúm frá heimsmeistaraeinvíginu í London Skákmenn hvaðanæva að úr heim- inum eru þessa dagana samankomn- ir í London til þess að íylgjast með heimsmeistaraeinvíginu í skák. Ein- vígið vekur geysilega athygli og hefur fengið mun meiri umfjöllun í fjölmiðlum hér en skipuleggjendur þess þorðu að vona. í upphafi hverr- ar skákar saihast þyrping blaðaljós- myndara og kvikmyndatökumanna saman fyrir framan sviðið og yfir- dómarinn Lothar Schmid, á í mestu erfiðleikum með að reka stóðið brott eftir þær þijár mínútur sem leyfilegt er að mynda. Hlutverk hans hér er þó afar lítilíjörlegt miðað við ein- vígið í Laugardalshöllinni 1972. Skákmeistaramir hafa vitaskuld kvartað yfir hávaða fyrstu mínút- umar en þar fyrir utan hefur allt verið með ró og spekt. Nema hvað Kasparov hafði orð á því að stóll sinn væri of hár. Úr því var snarlega bætt og stóllinn var styttur um tvo sentímetra og skipti þá engu að hann er hundrað og fimmtíu ára fomgrip- ur. Stól! Karpovs er aftur á móti ann- arrar gerðar og svipar reyndar til Fischer-stólsins fræga, sem snúa mátti í hringi og halla aftur að vild. Hann var svartur en Karpov hefúr látið sér nægja h-stól. Taflborðið sjálft er ósköp venjulegt að sjá og skákklukkan er sömu gerðar og Fischer og Spassky notuðust við Prúðmannleg framkoma Enginn efast um að tveir fremstu skákmeistarar heims eigast við í Ixindon en spennan er þó langtum minni en í Laugardalshöllinni ’72. Þar náði sálfræðilegi skæmhemað- urinn langt út fyrir 64 reiti tafl- borðsins og hver dagur bar í skauti sér ófyrirsjáanleg atvik - duttlungar Fischers réðu þar mestu. Karpov og Kasparov haga sér rnvrn betur. Þeim var prýðilega til vina er þeir hófu fyrsta einvígi sitt fyrir tveim árum en síðan hefur smám saman slest upp á vinskapinn. Þó em þeir engir hatursmenn, eins og t.d. Karpov og Kortsnoj. Og fram- koma þeirra við taflborðið er ávallt prúðmannleg og í sönnum íþrótta- anda - ef undan em skildar örfáar illilegar augnagotur á báða bóga. Skákimar hér í London hafa einn- ig verið mun varlegar tefldar heldur en í einvígi Fischers og Spasskys. Þá komu skákmeistaramir „sér- fræðingum" hvað eftir annað á óvart með leikjum sem enginn sá fyrir og þeir hleyptu taflinu upp til skiptis. í London er undiraldan þyngri en sjórinn lygn á yfirborðinu. Svo gæti- lega tefldu þeir að eftir fyrsta jafri- teflið, er stórmeistarinn Kavalek var spurður að því hvenær hann byggist við fyrstu vinningsskákinni, svaraði hann: „á næstu öld“ og stökk ekki bros. Campo vill peninga Verðlaun í einvíginu nema 1,8 milljónum svissneskra franka og fær sigurvegarinn 5/8 af þeirri upp- hæð en sá sem bíður lægri hlut fær 3/8. Meistararnir hafa báðir lýst yfir því að þeir muni láta verðlaun- afé sitt renna óskert í sjóð til styrktar fórnarlömbum Tsjernó- bíl-kjarnorkuslyssins. Sagt er að Kasparov hafi riðið á vaðið og þetta hafi ekki eingöngu verið gert af góðvild heldur einnig og ekki síður til þess að angra Karpov, sem hefur alla tíð verið talinn sínkur á fé. Auðvitað gat Karpov ekki verið minni maður og þar með rann verð- launaféð úr höndum hans. Aðrir segja að þetta komi Karpov vel því að eftir að hann missti heimsmeist- aratitilinn hafi hann átt undir högg að sækja og með þessu móti nái hann að skapa sér velvild heima fyrir. Florencio Campomanes, forseti FIDE, Alþjóðaskáksambandsins, er ekki jafnrausnarlegur og skákkapp- amir. Hann hefur lýst því yfir að eins og í síðasta einvígi muni FIDE skattleggja hvert jafntefli með ein- um hundraðshluta af verðlaunafénu, burtséð frá því hvort barist er í skák- inni eða ekki. „Engum hefði getað komið slík vitleysa i hug nema Campomanes," sagði Nigel Short frammi fyrir fjögur htmdruð manns í skákskýringasalnum og síðan hefur hann ekki fengið að skýra skákim- ar. Short er fremur illa við FEDE- forsetann eftir að hann skammaði hann fyrir að mæta í stuttbuxum í eina skákina á millisvæðamótinu í Biel í fyrra. Auk verðlaunafjárins eiga skák- meistaramir möguleika á að vinna sér inn tíu þúsund pund (yfir sex hundmð þúsund íslenskra króna) með því að tefla fallega. Það er fyrir- tækið Save og Prosper, sem hefur lagt til svo ríkuleg fegurðarverðlaun sem em þau hæstu í skáksögunni. Fyrstu fegurðarverðlaun í heims- meistaraeinvígi vom veitt Steinitz fyrir 8. skákina í einvígi við Tsígorín 1889 og námu þau 300 frönskum frönkum. Skákpólitískt andrúmsloft Andrúmsloftið í London dregur keim af því að í haust fara fram kosningar um forseta Alþjóðaskák- sambandsins samhliða ólympíu- skákmótinu í Dubai. Skipuleggjend- ur einvígisins, einkum stórmeistar- inn Raymond Keene, vinna að þvf öllum árum að hnekkja veldi Campomanesar. Sjálfur hefin- Keene verið virkur innan FIDE og vera má að hann bjóði sig fram til forseta innan tíðar. Nú hefur hann og fleiri hins vegar fúndið heppilegan mót- frambjóðanda, sem er brasilískur hagfræðingur og skákblaðamaður - Lincoln Lucena. Hann hagar sér eins og þingmaður fyrir kosningar, Epson heimsmeistarakeppnin: Sjötau þúsund bridgespilarar í sömu keppninni Að fá 70 þúsund bridgespilara til þess að spila í bridgekeppni á sama tíma víðs vegar í heiminum virðist heldur ólíklegt, en það tókst skipu- leggjendum EPSON heimsmeistara- keppninnar hinn 14. júní sl. Sömu spil voru spiluð alls staðar og var bridgemeistarinn og film- stjaman Omar Sharif fenginn til þess að semja skýringar með þeim. Eftir keppnina fékk síðan hver þátttak- andi bók með öllum spilunum, en spilaramir gátu reiknað út árangur sinn jafnóðum eftir fyrirfram gefinni stigagjöf. Það vom tveir Frakkar, Frainais og Bouteille, sem unnu, en þeir náðu 78,8% skor. En við skulum skoða eitt spil frá keppninni með skýringum Sharifs. Vestur gefur - a-v á hættu: N'orðuk AG9 V A1052 0 K1086 ♦ 1085 V Vt5Tl B AuSTUB * D1053 * 8762 <?K6 V 8 0 D4 0 AG75 + D7643 +AKG2 SUÐUR * AK4 V DG9743 0 932 + 9 „Það verður áreiðanlega mikil samkeppni í sögnunum. Þetta er góð sería: Vestur Norður Austur Suður pass pass 1T 1 H ÍS 3H 3S 4H 4S pass pass pass Það er tvennt sem ræður því að suður segir frekar eitt hjarta en tvö. í fyrsta lagi þá gætu tvö hjörtu verið veikari spil á hagstæðum hættum. Og í öðm lagi, þá vill suður ekki láta líta svo út, að hann eigi fáa vamarslagi, því Á K í spaða em góð vamarspil. Vestur getur sagt einn spaða við hjartasögninni, eða doblað (Sputnik), sem sýnir nákvæmlega Qóra spaða. Hvað sem skeður, þá stekkur norður í þijú hjörtu og aust- ur getur ekki látið stinga upp í sig og lokasamningurinn verður því íjónT spaðar. Erfiður samningur en ekki óvinn- andi. Norður gæti spilað út hjartaás sem gæfi vestri möguleika á því að sýna snilldina. Norður skiptir í lauf, blindur drepur og spilar trompi. Suð- ur lætur lágt og vestur gæti hugsað: Til þess að vinna spilið, þá verður norður að eiga tígulkónginn og þá er líklegt að suður eigi tvo hæstu í spaða. Hann setur því spaðadrottn- ingu og meiri spaða. Seinna svínar hann tíglinum og vinnur sitt spil. Sá árangur gefur 87% skor og 97%, ef hann hefur verið doblaður. Varkár pör í a-v gætu látið suður spila fjögur hjörtu, sem em einn nið- ur, ef vestur spilar út tíguldrottn- ingu, en vinnast ef hann gerir það ekki. í síðastnefnda tilfellinu er íhaldsseminni refsað með 10% skor til a-v. EPSON heimsmeistarakeppnin verður haldin aftur laugardaginn 16. maí 1987 og þá held ég að væri ráð fyrir ísland að vera með. Bridcre ______«■> Stefán Guðjohnsen Bikarkeppnin Nú em kunn úrslit i 3 viðureignum í 16 sveita (þriðju) umferð bikar- keppninnar. Auk Samvinnuferða/ Landsýnar eru komnar áfram sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar, sem vann Grím Thorarensen, Kóp., 121-75, og sveit Sigfúsar 'Amar Ámasonar, Rvk, sem velti sveit Delta úr vegi, 104-68. Búast má við að þeir 5 leik- ir, sem er ólokið, verði spilaðir þessa helgi. Fyrirliðar sigursveita em hvattir til að koma úrslitum áleiðs í síma 41507 (Hermann) strax og leikjum er lokið. Opið mót á Egilsstöðum Opið mót, hið annað í röðinni fyrir austan, hefur nú verið sett á helgina 5.-7. sept. Af ástæðum, sem ekki varð við ráðið, hefur það nú verið flutt frá Hallormsstað í Egilsstaðakauptún. Það ætti þó ekki að rýra orðstír fyrsta mótsins því að sögn er mikill hægðarauki að flutningunum. Fyrirkomulag verður með líku sniði og í fyrra; 32-36 para barómeter með veglegum verðlaunum. Stefnt er að tveggja nátta móti, þ.e. spilað föstudagskvöld og laugardag til 8, og kvöldinu síðan varið í léttu tómi við að rifja upp eða öllu heldur gleyma spilunum. Síðan skilja leiðir á sunnudag. Keppnisstjórar verða Hermann Lámsson og Bjöm Jóns- son. Nánar síðar. Opna mótið í Kleppjárns- reykjaskóla Enn er skráð af kappi í helgarmót Ferðaþjónustunnar og Bridgefélags Borgarfjarðar. Útlit er fyrir góða aðsókn af höfuðborgarsvæðinu en eitthvað virðist niðja Egils skorta kjarkinn og svo virðist sem Skaga- menn þori ekki heldur á hólminn. Það væri illt ef „heimamenn" spilltu góðu áræði. Mótið verður tölvureiknaður Mitchell í vönum höndum Vigfúsar Pálssonar. Heildarkostnaður (keppnisgjöld, gisting, matur) er sem fyrr áætlaður 2.700 kr. á spilara. Við skráningu tekur Þorvaldur Pálmason, Kleppjámsreykjum, (s: 93-5174) og veitir frekari upplýsingar. Sumarbridge Það virðist ekki hamla bridgeá- hugafólki neitt þótt hlaupið sé með húsnæði fyrir spilamennskuna um bæinn, að ísfirðingum undanskild- um, auðvitað. Þessa vikuna auðnaðist 54 pömm að finna nýja Sóknarhúsið að Skip- holti 50a, vestan Sjómannaskóla, en ætla má að húsnæðið rúmi ríflega 60 pör vandkvæðalaust. Úrslit urðu þessi sl. fimmtudag: A. stig Guðlaugur Sveinsson-Magnús Sverrisson 187 Birgir Sigurðsson-Hjörtur Cýrusson 174 Ragnar Bjömsson-Þórarinn Ámason 171 Baldur Ámason-Sveinn Sigurgeirsson 166 Steingr. Þóriss. Eyjólfur Magnúss. 156 B. Lárus Hermannsson óskar Karlsson 208 Esther Guðmundsd. Valg. Kristjánsd. 189 Vilhjálmur Sigurðsson Þráinn Sigurðsson 180 Magnús ólafeson Páll Valdimarsson 178 Sigfús Þórðarson Þórður Sigurðsson 177 C. Guðm. Thorsteinss.-Tómas Sigurjónss. 131 Jacqui McGreal Þorlákur Jónsson 124 Högni Torfason-Sigmar Jónsson 117 Daði Bj ömsson G uðj ón Bragason 113 D. Júlíus Sigurjónss. Hrannar Þ. Erlingss. 260 Magnús Aspelund Steingrímur Jónasson 245 Andrés Þórarinsson Halldór Þórólfsson 242 Baldur Ásgeirsson- Magnús Halldórsson 239 Ingólfur Lillendahl Jón I. Bjömsson 229 Böðvar Magnússon Þorfínnur Karlsson 229 Þessir spilarar leiða nú stiga- keppnina á fimmtudögum: Láms Hermannsson, 174, Lárus Arnórsson og Ásthildur Sigurgísladóttir, 154, Sigfús Þórðarson, 148, Magnús Aspelund og Steingrímur Jónasson, 103. Ekki verður spilað nk. þriðjudag en að vanda hefst spilamennska um sexleytið á fimmtudag og er skráð meðan húsrúm leyfir (til hálfátta). Spilað var í tveimur 16 para riðlum og einum 12 para riðli. Hæstu skor hlutu: A. riðill. 1. Jakob Kristinss. Jón Bjömss. 273 2. Bjöm-Stefán 244 3. Albert Þorsteinss.-Kristófer Magnúss. 240 4. Ármann Láruss. Helgi Viborg 231 B. riðill. 1. Bragi M. Bragas. Reynir Hermannss. 255 2. Hulda Hjálmarsd. Þórarinn Andrewss. 237 3. Ragnar Bjömss.-Sævin Bjamas. 235 4. Bemódus Kristinss.-Þórður Bjömss. 228 C. riðill. 1. óskar Karlss.-Sveinn Sveinss. 201 2. Steingr. Jónss. Þoríínnur Karlss. 189 3. Haukur Harðars. Sigrún Steinsd. 183 4. Hrefna Eyjólfsd. Sæmundur Bjömss. 173 Meðalskor A + B 210 Meðalskor C 165 Alls 44 pör. Efst að stigum eru nú: Hulda Hjálmarsdóttir 12.5 Þórarinn Andrewsson 12.5 Hjörtur Cýmsson 11 Sigmar Jónsson 11 Næsta þriðjudag 12. ágúst verður stillt upp fyrir þrjá 16 para riðla og lokað þegar þeir em fullir. Spilað er í Drangey, Síðumúla 35. Bridgedeild Skagfirðinga J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.