Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Qupperneq 34
34
LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986.
Að tefla við tómarúm
frá heimsmeistaraeinvíginu í London
Skákmenn hvaðanæva að úr heim-
inum eru þessa dagana samankomn-
ir í London til þess að íylgjast með
heimsmeistaraeinvíginu í skák. Ein-
vígið vekur geysilega athygli og
hefur fengið mun meiri umfjöllun í
fjölmiðlum hér en skipuleggjendur
þess þorðu að vona. í upphafi hverr-
ar skákar saihast þyrping blaðaljós-
myndara og kvikmyndatökumanna
saman fyrir framan sviðið og yfir-
dómarinn Lothar Schmid, á í mestu
erfiðleikum með að reka stóðið brott
eftir þær þijár mínútur sem leyfilegt
er að mynda. Hlutverk hans hér er
þó afar lítilíjörlegt miðað við ein-
vígið í Laugardalshöllinni 1972.
Skákmeistaramir hafa vitaskuld
kvartað yfir hávaða fyrstu mínút-
umar en þar fyrir utan hefur allt
verið með ró og spekt. Nema hvað
Kasparov hafði orð á því að stóll
sinn væri of hár. Úr því var snarlega
bætt og stóllinn var styttur um tvo
sentímetra og skipti þá engu að hann
er hundrað og fimmtíu ára fomgrip-
ur.
Stól! Karpovs er aftur á móti ann-
arrar gerðar og svipar reyndar til
Fischer-stólsins fræga, sem snúa
mátti í hringi og halla aftur að vild.
Hann var svartur en Karpov hefúr
látið sér nægja h-stól. Taflborðið
sjálft er ósköp venjulegt að sjá og
skákklukkan er sömu gerðar og
Fischer og Spassky notuðust við
Prúðmannleg framkoma
Enginn efast um að tveir fremstu
skákmeistarar heims eigast við í
Ixindon en spennan er þó langtum
minni en í Laugardalshöllinni ’72.
Þar náði sálfræðilegi skæmhemað-
urinn langt út fyrir 64 reiti tafl-
borðsins og hver dagur bar í skauti
sér ófyrirsjáanleg atvik - duttlungar
Fischers réðu þar mestu.
Karpov og Kasparov haga sér rnvrn
betur. Þeim var prýðilega til vina
er þeir hófu fyrsta einvígi sitt fyrir
tveim árum en síðan hefur smám
saman slest upp á vinskapinn. Þó
em þeir engir hatursmenn, eins og
t.d. Karpov og Kortsnoj. Og fram-
koma þeirra við taflborðið er ávallt
prúðmannleg og í sönnum íþrótta-
anda - ef undan em skildar örfáar
illilegar augnagotur á báða bóga.
Skákimar hér í London hafa einn-
ig verið mun varlegar tefldar heldur
en í einvígi Fischers og Spasskys.
Þá komu skákmeistaramir „sér-
fræðingum" hvað eftir annað á óvart
með leikjum sem enginn sá fyrir og
þeir hleyptu taflinu upp til skiptis. í
London er undiraldan þyngri en
sjórinn lygn á yfirborðinu. Svo gæti-
lega tefldu þeir að eftir fyrsta jafri-
teflið, er stórmeistarinn Kavalek var
spurður að því hvenær hann byggist
við fyrstu vinningsskákinni, svaraði
hann: „á næstu öld“ og stökk ekki
bros.
Campo vill peninga
Verðlaun í einvíginu nema 1,8
milljónum svissneskra franka og
fær sigurvegarinn 5/8 af þeirri upp-
hæð en sá sem bíður lægri hlut fær
3/8. Meistararnir hafa báðir lýst
yfir því að þeir muni láta verðlaun-
afé sitt renna óskert í sjóð til
styrktar fórnarlömbum Tsjernó-
bíl-kjarnorkuslyssins. Sagt er að
Kasparov hafi riðið á vaðið og
þetta hafi ekki eingöngu verið gert
af góðvild heldur einnig og ekki
síður til þess að angra Karpov, sem
hefur alla tíð verið talinn sínkur á
fé. Auðvitað gat Karpov ekki verið
minni maður og þar með rann verð-
launaféð úr höndum hans. Aðrir
segja að þetta komi Karpov vel því
að eftir að hann missti heimsmeist-
aratitilinn hafi hann átt undir högg
að sækja og með þessu móti nái
hann að skapa sér velvild heima
fyrir.
Florencio Campomanes, forseti
FIDE, Alþjóðaskáksambandsins, er
ekki jafnrausnarlegur og skákkapp-
amir. Hann hefur lýst því yfir að
eins og í síðasta einvígi muni FIDE
skattleggja hvert jafntefli með ein-
um hundraðshluta af verðlaunafénu,
burtséð frá því hvort barist er í skák-
inni eða ekki. „Engum hefði getað
komið slík vitleysa i hug nema
Campomanes," sagði Nigel Short
frammi fyrir fjögur htmdruð manns
í skákskýringasalnum og síðan hefur
hann ekki fengið að skýra skákim-
ar. Short er fremur illa við FEDE-
forsetann eftir að hann skammaði
hann fyrir að mæta í stuttbuxum í
eina skákina á millisvæðamótinu í
Biel í fyrra.
Auk verðlaunafjárins eiga skák-
meistaramir möguleika á að vinna
sér inn tíu þúsund pund (yfir sex
hundmð þúsund íslenskra króna)
með því að tefla fallega. Það er fyrir-
tækið Save og Prosper, sem hefur
lagt til svo ríkuleg fegurðarverðlaun
sem em þau hæstu í skáksögunni.
Fyrstu fegurðarverðlaun í heims-
meistaraeinvígi vom veitt Steinitz
fyrir 8. skákina í einvígi við Tsígorín
1889 og námu þau 300 frönskum
frönkum.
Skákpólitískt andrúmsloft
Andrúmsloftið í London dregur
keim af því að í haust fara fram
kosningar um forseta Alþjóðaskák-
sambandsins samhliða ólympíu-
skákmótinu í Dubai. Skipuleggjend-
ur einvígisins, einkum stórmeistar-
inn Raymond Keene, vinna að þvf
öllum árum að hnekkja veldi
Campomanesar. Sjálfur hefin- Keene
verið virkur innan FIDE og vera
má að hann bjóði sig fram til forseta
innan tíðar. Nú hefur hann og fleiri
hins vegar fúndið heppilegan mót-
frambjóðanda, sem er brasilískur
hagfræðingur og skákblaðamaður -
Lincoln Lucena. Hann hagar sér
eins og þingmaður fyrir kosningar,
Epson heimsmeistarakeppnin:
Sjötau þúsund bridgespilarar í sömu keppninni
Að fá 70 þúsund bridgespilara til
þess að spila í bridgekeppni á sama
tíma víðs vegar í heiminum virðist
heldur ólíklegt, en það tókst skipu-
leggjendum EPSON heimsmeistara-
keppninnar hinn 14. júní sl.
Sömu spil voru spiluð alls staðar
og var bridgemeistarinn og film-
stjaman Omar Sharif fenginn til þess
að semja skýringar með þeim. Eftir
keppnina fékk síðan hver þátttak-
andi bók með öllum spilunum, en
spilaramir gátu reiknað út árangur
sinn jafnóðum eftir fyrirfram gefinni
stigagjöf.
Það vom tveir Frakkar, Frainais
og Bouteille, sem unnu, en þeir náðu
78,8% skor.
En við skulum skoða eitt spil frá
keppninni með skýringum Sharifs.
Vestur gefur - a-v á hættu:
N'orðuk
AG9
V A1052
0 K1086
♦ 1085
V Vt5Tl B AuSTUB
* D1053 * 8762
<?K6 V 8
0 D4 0 AG75
+ D7643 +AKG2
SUÐUR
* AK4
V DG9743
0 932
+ 9
„Það verður áreiðanlega mikil
samkeppni í sögnunum. Þetta er góð
sería:
Vestur Norður Austur Suður
pass pass 1T 1 H
ÍS 3H 3S 4H
4S pass pass pass
Það er tvennt sem ræður því að
suður segir frekar eitt hjarta en tvö.
í fyrsta lagi þá gætu tvö hjörtu verið
veikari spil á hagstæðum hættum.
Og í öðm lagi, þá vill suður ekki
láta líta svo út, að hann eigi fáa
vamarslagi, því Á K í spaða em góð
vamarspil. Vestur getur sagt einn
spaða við hjartasögninni, eða doblað
(Sputnik), sem sýnir nákvæmlega
Qóra spaða. Hvað sem skeður, þá
stekkur norður í þijú hjörtu og aust-
ur getur ekki látið stinga upp í sig
og lokasamningurinn verður því
íjónT spaðar.
Erfiður samningur en ekki óvinn-
andi. Norður gæti spilað út hjartaás
sem gæfi vestri möguleika á því að
sýna snilldina. Norður skiptir í lauf,
blindur drepur og spilar trompi. Suð-
ur lætur lágt og vestur gæti hugsað:
Til þess að vinna spilið, þá verður
norður að eiga tígulkónginn og þá
er líklegt að suður eigi tvo hæstu í
spaða. Hann setur því spaðadrottn-
ingu og meiri spaða. Seinna svínar
hann tíglinum og vinnur sitt spil. Sá
árangur gefur 87% skor og 97%, ef
hann hefur verið doblaður.
Varkár pör í a-v gætu látið suður
spila fjögur hjörtu, sem em einn nið-
ur, ef vestur spilar út tíguldrottn-
ingu, en vinnast ef hann gerir það
ekki. í síðastnefnda tilfellinu er
íhaldsseminni refsað með 10% skor
til a-v.
EPSON heimsmeistarakeppnin
verður haldin aftur laugardaginn 16.
maí 1987 og þá held ég að væri ráð
fyrir ísland að vera með.
Bridcre
______«■>
Stefán Guðjohnsen
Bikarkeppnin
Nú em kunn úrslit i 3 viðureignum
í 16 sveita (þriðju) umferð bikar-
keppninnar. Auk Samvinnuferða/
Landsýnar eru komnar áfram sveit
Ásgríms Sigurbjörnssonar, sem vann
Grím Thorarensen, Kóp., 121-75, og
sveit Sigfúsar 'Amar Ámasonar,
Rvk, sem velti sveit Delta úr vegi,
104-68. Búast má við að þeir 5 leik-
ir, sem er ólokið, verði spilaðir þessa
helgi.
Fyrirliðar sigursveita em hvattir
til að koma úrslitum áleiðs í síma
41507 (Hermann) strax og leikjum er
lokið.
Opið mót á Egilsstöðum
Opið mót, hið annað í röðinni fyrir
austan, hefur nú verið sett á helgina
5.-7. sept. Af ástæðum, sem ekki varð
við ráðið, hefur það nú verið flutt frá
Hallormsstað í Egilsstaðakauptún.
Það ætti þó ekki að rýra orðstír
fyrsta mótsins því að sögn er mikill
hægðarauki að flutningunum.
Fyrirkomulag verður með líku
sniði og í fyrra; 32-36 para barómeter
með veglegum verðlaunum. Stefnt
er að tveggja nátta móti, þ.e. spilað
föstudagskvöld og laugardag til 8,
og kvöldinu síðan varið í léttu tómi
við að rifja upp eða öllu heldur
gleyma spilunum. Síðan skilja leiðir
á sunnudag. Keppnisstjórar verða
Hermann Lámsson og Bjöm Jóns-
son. Nánar síðar.
Opna mótið í Kleppjárns-
reykjaskóla
Enn er skráð af kappi í helgarmót
Ferðaþjónustunnar og Bridgefélags
Borgarfjarðar. Útlit er fyrir góða
aðsókn af höfuðborgarsvæðinu en
eitthvað virðist niðja Egils skorta
kjarkinn og svo virðist sem Skaga-
menn þori ekki heldur á hólminn.
Það væri illt ef „heimamenn"
spilltu góðu áræði.
Mótið verður tölvureiknaður
Mitchell í vönum höndum Vigfúsar
Pálssonar.
Heildarkostnaður (keppnisgjöld,
gisting, matur) er sem fyrr áætlaður
2.700 kr. á spilara.
Við skráningu tekur Þorvaldur
Pálmason, Kleppjámsreykjum, (s:
93-5174) og veitir frekari upplýsingar.
Sumarbridge
Það virðist ekki hamla bridgeá-
hugafólki neitt þótt hlaupið sé með
húsnæði fyrir spilamennskuna um
bæinn, að ísfirðingum undanskild-
um, auðvitað.
Þessa vikuna auðnaðist 54 pömm
að finna nýja Sóknarhúsið að Skip-
holti 50a, vestan Sjómannaskóla, en
ætla má að húsnæðið rúmi ríflega
60 pör vandkvæðalaust.
Úrslit urðu þessi sl. fimmtudag:
A. stig
Guðlaugur Sveinsson-Magnús Sverrisson 187
Birgir Sigurðsson-Hjörtur Cýrusson 174
Ragnar Bjömsson-Þórarinn Ámason 171
Baldur Ámason-Sveinn Sigurgeirsson 166
Steingr. Þóriss. Eyjólfur Magnúss. 156
B.
Lárus Hermannsson óskar Karlsson 208
Esther Guðmundsd. Valg. Kristjánsd. 189
Vilhjálmur Sigurðsson Þráinn Sigurðsson 180
Magnús ólafeson Páll Valdimarsson 178
Sigfús Þórðarson Þórður Sigurðsson 177
C.
Guðm. Thorsteinss.-Tómas Sigurjónss. 131
Jacqui McGreal Þorlákur Jónsson 124
Högni Torfason-Sigmar Jónsson 117
Daði Bj ömsson G uðj ón Bragason 113
D.
Júlíus Sigurjónss. Hrannar Þ. Erlingss. 260
Magnús Aspelund Steingrímur Jónasson 245
Andrés Þórarinsson Halldór Þórólfsson 242
Baldur Ásgeirsson- Magnús Halldórsson 239
Ingólfur Lillendahl Jón I. Bjömsson 229
Böðvar Magnússon Þorfínnur Karlsson 229
Þessir spilarar leiða nú stiga-
keppnina á fimmtudögum: Láms
Hermannsson, 174, Lárus Arnórsson
og Ásthildur Sigurgísladóttir, 154,
Sigfús Þórðarson, 148, Magnús
Aspelund og Steingrímur Jónasson,
103.
Ekki verður spilað nk. þriðjudag
en að vanda hefst spilamennska um
sexleytið á fimmtudag og er skráð
meðan húsrúm leyfir (til hálfátta).
Spilað var í tveimur 16 para riðlum
og einum 12 para riðli. Hæstu skor
hlutu:
A. riðill.
1. Jakob Kristinss. Jón Bjömss. 273
2. Bjöm-Stefán 244
3. Albert Þorsteinss.-Kristófer Magnúss. 240
4. Ármann Láruss. Helgi Viborg 231
B. riðill.
1. Bragi M. Bragas. Reynir Hermannss. 255
2. Hulda Hjálmarsd. Þórarinn Andrewss. 237
3. Ragnar Bjömss.-Sævin Bjamas. 235
4. Bemódus Kristinss.-Þórður Bjömss. 228
C. riðill.
1. óskar Karlss.-Sveinn Sveinss. 201
2. Steingr. Jónss. Þoríínnur Karlss. 189
3. Haukur Harðars. Sigrún Steinsd. 183
4. Hrefna Eyjólfsd. Sæmundur Bjömss. 173
Meðalskor A + B 210
Meðalskor C 165
Alls 44 pör. Efst að stigum eru nú:
Hulda Hjálmarsdóttir 12.5
Þórarinn Andrewsson 12.5
Hjörtur Cýmsson 11
Sigmar Jónsson 11
Næsta þriðjudag 12. ágúst verður
stillt upp fyrir þrjá 16 para riðla og
lokað þegar þeir em fullir. Spilað er
í Drangey, Síðumúla 35.
Bridgedeild
Skagfirðinga
J