Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Síða 35
LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986.
35
ákaflega vingjamlegur við alla og
er alls staðar nálægur. „Ég er ekki
viss um að Lucena sé rétti maðurinn
en hann er áreiðanlega betri en
Campomanes," er viðkvæði margra
hér í London. Sjálfur heldur Campo-
manes sig í felum utan hvað hann
hóaði saman til blaðamannafundar
á þriðjudag.
Að tefla við tómarúm
Kasparov er vinsælli hér en
Karpov og hann er almennt talinn
sigurstranglegri, eins og glöggt kem-
ur fram í bókum Mecca-veðmang-
arafyrirtækisins. Ef einhver hefði
veðjað einu pundi í upphafi einvígis-
ins á að Kasparov myndi sigra 6-0
(jafnefli ekki talin með), og haft rétt
fyrir sér, hefði sá hinn sami fengið
16 pund að launum. Mun minni líkur
voru aftur á móti taldar á að Karpov
sigraði með fullu húsi. Þá hefði eitt
pund í veðbankann gefið af sér 250
stykki. Líkumar em endurskoðaðar
eftir hveija skák. Eftir sigur Kasp-
arovs í 4. skákinni fann Skotinn
David Levy það út að 85% líkur
væm fyrir því að Kasparov héldi
heimsmeistaratitlinum.
í skemmtilegum sjónvarpsþætti í
BBC-2 sl. laugardag vom saman-
komnir Miles, Keene, Hartston og
fleiri kúnnir skákmenn. Miles var
spurður að því hvemig honum liði
að sitja andspænis Karpov og Kasp-
arov. Hann sagði að honum fyndist
erfiðara að tefla við Kasparov. „Það
er eins og að tefla þijár venjulegar
kappskákir að tefla eina við Kasp-
arov,“ sagði hann. Hann hafði á orði
að Kasparov legði sig allan fram og
reiknaði afbrigðin alveg til enda.
Hann nefndi fyrstu einvígisskákina
við hann í Basel á dögunum. Kasp-
arov átti þá aðeins 5 mínútur eftir
en Miles hálfa klukkustund og staða
hans var í góðu lagi. „Það var hreint
ótrúlegt hvað honum tókst að reikna
á þessum stutta tíma,“ sagði Miles.
„Maður skynjar líkamlega nær-
vem Kasparovs," sagði Miles. „Að
tefla við Karpov er aftur á móti eins
og að sitja andspænis tómarúmi -
en smám saman breiðist tómarúmið
yfir borðið uns það nær tökum á
rnanni." Og Miles taldi Kasparov
sigurstranglegri.
Skák
Jón L. Ámason
Skákfréttir utan úr heimi
í blaðamannaherberginu í London
er fylgst með skákmeisturunum að
tafli á sjónvarpsskjá og annar skjár
sýnir stöðuna. Með segultækni
koma leikir þeirra samstundis upp á
sýningartöflu milliliðalaust og einn-
ig „analýsa" skáksýrandans, sem
situr við að því er virðist ósköp
venjulegt tafl - sannarlega bylting-
arkennd tækni. Margir blaðamanna
hafa litla skákþekkingu og em fljót-
ir að gleypa við orðrómi sem breiðist
um salinn: „Karpov er að vinna,“
heyrðist einhvem tíma og spennan
varð kynngimögnuð í nokkrar mín-
útur.
Eric Schiller, sem tefldi á Reykja-
víkurskákmótinu er „herra" blaða-
mannaherbergisins og sér um að
hlutimir gangi fyrir sig á eðlilegan
hátt. Aðstæður em góðar: Tíu ný-
tískulegir fjarritar með tölvuskjám,
ijöldi símtækja, voldugar rafmagns-
ritvélar og nokkrum mínútum eftir
hveija skák fá blaðamenn í hendur
afrit af skákinni með skýringum
Maxims Dlugy, heimsmeistara ungl-
inga.
Skákfréttir utan úr heimi em einn-
ig vel þegnar ef litið er að gerast í
einvígisskákinni. „Pétursson efstur
í Gausdal," var ein orðsendinganna
uppi á töflu og úrslit í enska meist-
aramótinu í Southamton berast
daglega. Fylgst var með alþjóðlega
skákmótinu í Biel í Sviss, þar sem
Polugajevsky og Lobron deildu sigr-
inum og Ohra-mótinu í Amsterdam
sem er nýlokið.
í efsta flokki tefldu sex skákmeist-
arar og þessi varð niðurstaðan: 1.
Ljubojevic 6,5 v. 2. Van der Wiel 6
v. 3. Ribli 5 v 4.-5. Vaganjan og Tim-
man 4,5 v. 6. Hellers 3,5 v.
Hér er fjörug skák frá mótinu þar
sem Ljubojevic fer á kostum. Hvítt:
Ljubomir Ljubojevic
Svart: Jan Timman
Sikileyjarvöm
l.e4 c5 2.RÍ3 d6 3.d4 cxd4 4.Rxd4
RfB 5.Rc3 e6 6.g4 h6 7.h4 Be7 8.Bg2
g6 9.g5 hxg5 10.Bxg5 a6 U.Dd2 e5
12.Rde2 Be6 13.0-0-0 Rbd7 14.f4
Da5 15-Kbl Hc8 16.Hhfl b5 17.b3
exf4 18.Hxf4 Rh5
abcd ef g h
19.Bxe7!
Upphafið að glæsilegri. fléttu.
Framhaldið er þvingað því 19-
Kxe7? er svarað með 20.Rd5+ og
vinnur drottnirvguna.
19.-Rxf4 20.Dxf4 Kxe7 21.Dxd6+
Ke8 22.Rd5! Bxd5
Eftir 22.-Dd8 23.Ref4 er hvíta
sóknin einnig afar sterk.
23.Bh3!! Dc7 24.Bxd7+ Dxd7 25.
De5+ De6 26.Dxh8+ Ke7 27.Dd4
Bb7 28.Rf4 Dxe4 29.Dd6+ Ke8 30.
Hd2!
Hótunin 31.He2 er. of sterk. Hvítur
vinnur.
30.-Del+ 31 .Kb2 De7 32.He2
Hxc2+ 33.Kxc 2 Be4+ 34.Hxe4
Dxe4+ 35.Kd2 b4 36.DÍ6 a 5 37.Rd3
Dg2+ 38.DÍ2 Dd5 39.Dg3 Kd7 40.
Dg5 Dxg5+ 41.hxg5 Ke6 42.Rc5+
Kf5 43.Rb7 Kxg5 44.Rxa5 og svart-
ur gafst upp. -JLÁ
V estur-Barðastrandarsýsla
V erslunarhúsnæði
Til leigu eða sölu nú þegar er 110 fm verslunarhús, full-
búið tækjum til verslunarreksturs. Húsið er staðsett í
þéttbýliskjarna Barðastrandarhrepps, Krossholti. Áður í
eigu og rekstri Kaupfélags Vestur-Barðstrendinga. Upplýs-
ingar um verð svo og mögulegt umfang verslunar á
staðnum veitir eigandi, Ragnar Guðmundsson, Bijánslæk,
sími 94-2033 eða 94-2020.
Þórshöfn
Nýr umboðsmaður fyrir
Vikuna og Úrval:
VESTUR
ÞÝSKAR
T0RPEMA
LOFT
PRESSUR
HAGSTÆTT
VERÐ
GREWSUIKJÖR
©
MARKAÐSÞJÓNUSTAN
SKIPHOLTI19-105-REYKJAVk-S.26911
Matthildur Jóhannesdóttir,
Austurvegi 14,
Þórshöfn.
Sími 96-81183.
k3TTKtiV
alla vikuna
i VARA'i’
i ' i HlUIIR
r
OPIÐIDAG KL9-2 VARAHLUTAVERSLUNIN RÍLMULI IfsíÐUMÚLA 31
0 3 7 2 7 3
VARMÁRLAUG
Sundkennsla fyrir fullorðna hefst miðvikudaginn 13.
ágúst 1986 kl. 8.00-9.00 fyrir hádegi. Námskeiðið er
í 10 skipti og taka nemendur sundstig að námskeiðinu
loknu. Skrásetning fer fram í sundlauginni og í síma
666254.
Opnunartími
mánudaga 6.30-21.30 gufa fyrir almenning 18.00-
21.30
þriðjudaga 6.30-21.30, gufa fyrir konur 18.00-21.30
miðvikudaga 6.30-21.30, gufa fyrir karla 18.00-21.30
fimmtudaga 6.30-20.00, kvennatími 20-21.30, gufa
fyrir konur 18-21.30
föstudaga 6.30-19.30
laugardaga 10-17.30, gufa fyrir karlmenn 10-17.30
sunnudga 10-15.30, gufa fyrir almenning 10-15.30.
Vatnsrennibraut á staðnum.
ffl
FREEPORTKLÚBBURINN
lOára
afmælisfagnaður Freeportklúbbsins
verður að Hótel Sögu nk. þriðjudagskvöld, 12. ágóst, og
hefst með borðhaldi kl. 20.00.
4 Ræða kvöldsins:
Dr. Frank Herzlin.
Aðgöngumiðar eru seldir í versluninni Bonaparte,
Austurstræti 22-og í Bílaleigu Akureyrar, Skeifunni 9.
Félagar fjölmenni og taki með sér gesti, enda allir
velunnarar klúbbsins velkomnir.
(Ath.: Hófið er að Hótel Sögu, EKKI Á ÞINGVÖLLUM
eins og upphaflega var áætlað).
SELJUM NÝJA
OGNOTAÐA
BÍLA
Tegund
BMW 732i automatic 1981
BMW 728i automatic 1980
BMW 528i automatic 1981
BMW 520i automatic 1982
BMW 520 automatic 1981
BMW 518 1982
BMW 323i 1982
BMW 320i 1983
BMW 320 1982
BMW 318i 1982
BMW 318i 1981
BMW 316 1982
Renault 9 GTS 1982
Renault 5 TL 1982
Opið laugardag 1 — 5.
KOMIÐ SKOÐIÐ OG REYNIÖ VIÐSKIPTIN
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 686633