Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Side 40
vS< FRETTASKOTIÐ 62 25 25 Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Hafirþú ábendingu eða vitneskju um frétt - hringdu þá í síma 62-25-25 Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 3.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. í' J Japanar kaupa ekki hvalkjöt af íslendingum Japanar ætla ekki að kaupa hval- kjöt af Islendingum. DV hefur þetta eftir japönskum embættismanni, sem ekki vill láta nafh síns getið. „Við höfum ákveðið að leyfa ekki innflutning á íslensku hvalkjöti til Japans," sagði þessi embættismaður. „Þessi ákvörðun heíur ekki verið gerð opinber ennþá, en þetta hefur verið ákveðið á æðstu stöðurn," bætti hann við. - En hvers vegna var þessi ákvörð- un tekin, nú þegar samkomulag hefur náðst um hvalveiðamar milli íslendinga og Bandaríkjamanna? „Astæðan er sú að Bandaríkja- menn hafa neitað að gefa okkur tryggingu íyrir því að þeir muni ekki beita okkur efnahagslegum refsiað- gerðum ef við kaupum hvalkjöt af Islendingum. Við getum ekki teflt í tvísýnu. Við höfum það mikil við- skipti í Bandaríkjunum, svo þar er mikið i húfi.“ - Er þetta endanlegt svar Banda- ríkjamanna í þessu máli? „Eins og er virðist það vera. Það eina sem við getum gert í stöðunni er að biða og sjá til hvort Banda- ríkjamenn vilja gefa okkur slíka tryggingu siðar, en ég á ekki von á að á þessu verði nein breyting. Bandaríkjamenn virðast ákveðnir í þessu máli,“ sagði japanski embætt- ismaðurinn. Hann sagði að Japanar væru ekki mjög ánægðir með þessa niðurstöðu, þar sem hvalkjöt væri mjög vinsælt þar í landi. Mikil eftirspum væri eftir hvalkjöti, sem ekki væri hægt að anna, enda væri markaðsverðið mjög hátt þessa daga. - Kemur til greina af ykkar hálfu að reyna einhverja bakleið til að kaupa hvalkjöt af íslendingum? „Nei, við munum ekki taka neina áhættu í þessu máli, því eins og ég sagði, er mikið í húfi fyrir okkur,“ sagði embættismaðurinn. -KÞ Long John Silver hvergi banginn „Ég sé enga ástæðu til að óttast um viðskipti mín við íslendinga vegna hvalamálsins, svo ég er hvergi bang- inn,“ sagði John Toby, forstjóri Long John Silver veitingahúsakeðjunnar í samtali við DV. John Toby kaupir allan sinn fisk af Islendingum, en veitingahúsin, sem hann rekur um öll Bandaríkin, sér- hæfa sig í fiskréttum af öllu tagi. „Ég lít á samkomulag það sem Bandaríkjamenn og íslendingar hafa gert sem lausn á þessu máli og ég vona að það hafi engin vandamál í fór með sér,“ sagði hann. John Toby er kannski sá maður sem hvað mest hefúr orðið fyrir barðinu á Greenpeace og öðrum náttúrufriðun- arsamtökum. Hafa þeir æ ofan í æ hótað honum með áróðursherferð gegn vöru hans, hætti hann ekki að kaupa fisk af íslendingum vegna hvalamálsins. „Ég hcf ekkert heyrt í Greenpeace eða öðrum slikum samtökum í þessari viku en þeir eru kannski ekki enn búnir að átta sig. Þeir eiga áreiðanlega eftir að koma.“ - Áttu von á einhverjum hótunum frá þeim? „Það má vel vera. Hins vegar held ég að þótt þeir fari af stað með áróð- ursherferð muni þeim ekki takast að ná til það stórs neytendahóps að það hafi nein áhrif,“ sagði John Toby. -KÞ Trausti Omarsson þjónn, sonur Ómars Hallssonar veitingamanns, bendir á gluggann þar sem þjófurinn fór inn. DV-mynd Óskar Örn Ávallt feti framar SÍMI 68-50-60. ÞRDSTIIR SÍÐUMÚLA 10 Veðrið á morgun: Lægð 'VP^v. nálgast <fWíz landið Á morgun, sunnudag, verður lægð, sem nálgast landið, á sunnanverðu Grænlandshafi og verður því fremur hæg suðlæg átt. Hitastig verður á bilinu 12-16 stig. LOKI Hvað munar vana menn um eitt kjötfjallið enn! Veðrið á mánudag: Lægðin komin til vestur- strandarinnar Á mánudag verður lægðin frá Grænlandshafi komin til vestur- strandar íslands. og verður því áfram suðlæg átt. Hitastig verður á bilinu 9-15 stig. Aftur brotist inn í Naustið í fyrrinótt var aftur brotist irm í veitingahúsið Naustið við Vesturgötu og stolið þaðan áfengi. Að þessu sinni komst þjófurinn inn um glugga efet á bakhlið hússins. Er talið að hann hafi klifrað upp í gluggann eftir spýtu. Sem fyrr var vín- geymsla á bar brotin upp og nokkru af áfengi stolið. Að sögn starfcmanns Naustsins voru teknar um tíu flöskur af sterku áfengi en aðrar víntegundir að mestu látnar vera. Sem fyrr greinir þá er þetta annað innbrotið í veitingastaðinn á jafri- mörgum dögum. Rannsóknarlögregl- an hefur nú málin til meðferðar. Þau eru bæði óupplýst. -ÞJV Baldridge óánægður „Ákvörðun Islendinga um að auka innanlandsneyslu hvalkjöts er greini- lega ekki í samræmi við friðunarmark- mið Alþjóðahvalveiðiráðsins. Við höfum orðið fyrir miklum vonbrigðum og getum ekki tekið undir þessa ákvörðun Islendinga," segir í yfirlýs- ingu sem Malcolm Baldridge, við- skiptaráðherra Bandaríkjanna, sendi frá sér í gær. _EA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.