Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Síða 40
vS<
FRETTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafirþú ábendingu eða
vitneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
í' J
Japanar kaupa
ekki hvalkjöt
af íslendingum
Japanar ætla ekki að kaupa hval-
kjöt af Islendingum. DV hefur þetta
eftir japönskum embættismanni, sem
ekki vill láta nafh síns getið.
„Við höfum ákveðið að leyfa ekki
innflutning á íslensku hvalkjöti til
Japans," sagði þessi embættismaður.
„Þessi ákvörðun heíur ekki verið
gerð opinber ennþá, en þetta hefur
verið ákveðið á æðstu stöðurn,"
bætti hann við.
- En hvers vegna var þessi ákvörð-
un tekin, nú þegar samkomulag
hefur náðst um hvalveiðamar milli
íslendinga og Bandaríkjamanna?
„Astæðan er sú að Bandaríkja-
menn hafa neitað að gefa okkur
tryggingu íyrir því að þeir muni ekki
beita okkur efnahagslegum refsiað-
gerðum ef við kaupum hvalkjöt af
Islendingum. Við getum ekki teflt í
tvísýnu. Við höfum það mikil við-
skipti í Bandaríkjunum, svo þar er
mikið i húfi.“
- Er þetta endanlegt svar Banda-
ríkjamanna í þessu máli?
„Eins og er virðist það vera. Það
eina sem við getum gert í stöðunni
er að biða og sjá til hvort Banda-
ríkjamenn vilja gefa okkur slíka
tryggingu siðar, en ég á ekki von á
að á þessu verði nein breyting.
Bandaríkjamenn virðast ákveðnir í
þessu máli,“ sagði japanski embætt-
ismaðurinn.
Hann sagði að Japanar væru ekki
mjög ánægðir með þessa niðurstöðu,
þar sem hvalkjöt væri mjög vinsælt
þar í landi. Mikil eftirspum væri
eftir hvalkjöti, sem ekki væri hægt
að anna, enda væri markaðsverðið
mjög hátt þessa daga.
- Kemur til greina af ykkar hálfu
að reyna einhverja bakleið til að
kaupa hvalkjöt af íslendingum?
„Nei, við munum ekki taka neina
áhættu í þessu máli, því eins og ég
sagði, er mikið í húfi fyrir okkur,“
sagði embættismaðurinn. -KÞ
Long John Silver hvergi banginn
„Ég sé enga ástæðu til að óttast um
viðskipti mín við íslendinga vegna
hvalamálsins, svo ég er hvergi bang-
inn,“ sagði John Toby, forstjóri Long
John Silver veitingahúsakeðjunnar í
samtali við DV.
John Toby kaupir allan sinn fisk af
Islendingum, en veitingahúsin, sem
hann rekur um öll Bandaríkin, sér-
hæfa sig í fiskréttum af öllu tagi.
„Ég lít á samkomulag það sem
Bandaríkjamenn og íslendingar hafa
gert sem lausn á þessu máli og ég
vona að það hafi engin vandamál í fór
með sér,“ sagði hann.
John Toby er kannski sá maður sem
hvað mest hefúr orðið fyrir barðinu á
Greenpeace og öðrum náttúrufriðun-
arsamtökum. Hafa þeir æ ofan í æ
hótað honum með áróðursherferð
gegn vöru hans, hætti hann ekki að
kaupa fisk af íslendingum vegna
hvalamálsins.
„Ég hcf ekkert heyrt í Greenpeace
eða öðrum slikum samtökum í þessari
viku en þeir eru kannski ekki enn
búnir að átta sig. Þeir eiga áreiðanlega
eftir að koma.“
- Áttu von á einhverjum hótunum
frá þeim?
„Það má vel vera. Hins vegar held
ég að þótt þeir fari af stað með áróð-
ursherferð muni þeim ekki takast að
ná til það stórs neytendahóps að það
hafi nein áhrif,“ sagði John Toby.
-KÞ
Trausti Omarsson þjónn, sonur Ómars Hallssonar veitingamanns, bendir á
gluggann þar sem þjófurinn fór inn. DV-mynd Óskar Örn
Ávallt feti framar
SÍMI 68-50-60.
ÞRDSTIIR
SÍÐUMÚLA 10
Veðrið á morgun:
Lægð 'VP^v.
nálgast <fWíz
landið
Á morgun, sunnudag, verður lægð,
sem nálgast landið, á sunnanverðu
Grænlandshafi og verður því fremur
hæg suðlæg átt. Hitastig verður á
bilinu 12-16 stig.
LOKI
Hvað munar vana menn um
eitt kjötfjallið enn!
Veðrið á mánudag:
Lægðin komin
til vestur-
strandarinnar
Á mánudag verður lægðin frá
Grænlandshafi komin til vestur-
strandar íslands. og verður því áfram
suðlæg átt. Hitastig verður á bilinu
9-15 stig.
Aftur
brotist inn
í Naustið
í fyrrinótt var aftur brotist irm í
veitingahúsið Naustið við Vesturgötu
og stolið þaðan áfengi.
Að þessu sinni komst þjófurinn inn
um glugga efet á bakhlið hússins. Er
talið að hann hafi klifrað upp í
gluggann eftir spýtu. Sem fyrr var vín-
geymsla á bar brotin upp og nokkru
af áfengi stolið. Að sögn starfcmanns
Naustsins voru teknar um tíu flöskur
af sterku áfengi en aðrar víntegundir
að mestu látnar vera.
Sem fyrr greinir þá er þetta annað
innbrotið í veitingastaðinn á jafri-
mörgum dögum. Rannsóknarlögregl-
an hefur nú málin til meðferðar. Þau
eru bæði óupplýst. -ÞJV
Baldridge
óánægður
„Ákvörðun Islendinga um að auka
innanlandsneyslu hvalkjöts er greini-
lega ekki í samræmi við friðunarmark-
mið Alþjóðahvalveiðiráðsins. Við
höfum orðið fyrir miklum vonbrigðum
og getum ekki tekið undir þessa
ákvörðun Islendinga," segir í yfirlýs-
ingu sem Malcolm Baldridge, við-
skiptaráðherra Bandaríkjanna, sendi
frá sér í gær. _EA