Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1986, Blaðsíða 37
MSINS f %
Ilkomnast
Ráögjafi frá Mandeville of London
verður þessa viku hér á iandi á eftir-
töidum stöðum:
REYKJAVÍK: Rakarastofan Klapparstig, simi 12725, mánudaginn 18. ágúst,
miðvikudaginn 20. águst og föstudaginn 22. ágúst.
AKUREYRI: Reynir Jónsson. rakarastofa, Strandgötu 6, simi 24408, þriöjudag
inn 19. ágúst.
KEELAVÍK: Klippótek, Hafnargötu 23, simi 3428, fimmtudaginn 21, ágúst.
Samstarfshópur kynnti framkvæmdir - Einar Egilsson og Kolbrún Björgólfsdóttir - Kogga - frá Grófarsamtökun-
um, Bjarni Kjartansson, Lilja Grétarsdóttir og Auður Hrönn Guðmundsdóttir arkitektanemar og sá landskunni
Stefán frá Möðrudal.
Grófartorg
í tilefni afmælis hefur borginni
bæst nýtt torg - Grófartorg - sem
hefur ekki endanlega fengið loforð
um lengri lífdaga. Þar verða hinar
ýmsu uppákomur, í horni torgsins
er til dæmis útisvið þar sem borgar-
búum gefst kostur á að láta ljós sitt
skína og þar er það kraftur einka-
framtaksins sem gildir. Afmælis-
morguninn mun óþreyjufullum
bömum á öllum aldri boðið til söngs
og leikja til þess að stytta biðina fram
að opinberum hátíðarhöldum borg-
arinnar. Eftir tertuátið mikla í
Lækjargötunni er síðan hægt að
tylla sér niður á Grófartorgi til þess
að auðvelda meltinguna.
Að sögn Bjarna Kjartanssonar
arkitektanema er þessi sjálfboða-
vinna þeirra komin til af því að
hópinn langaði til þess að sýna
hvernig hægt er að auðga götulíf í
bænum án þess að tilkostnaður og
fyrirhöfn þurfi að verða risavaxið
fyrirtæki.
„Arkitektúr er ekki bara hús held-
ur allt í umhverfinu sem tilkomið er
af manna völdurn," sagði Bjami.
„Með þessari lausn er hægt að
blanda saman verslun og skemmtun,
þótt auðvitað verði þetta árstíða-
bundið fyrirbæri og er þetta nú orðið
sterkara sem staður, dregnar skýrari
línur. Og líklega hefur bara sæmi-
lega til tekist að vekja áhuga veg-
farenda því meðan við vorum að setja
þetta upp beið ég alltaf eftir því að
einhver bílstjórinn æki á ljósastaur."
Einar Egilsson hjá Grófarsamtök-
unum tók það fram að félagsmenn
hefðu verið lítið hrifnir af því að
hafa þarna bílastæði og urðu minna
glaðir þegar á borgarskipulagi var
gert ráð fyrir að leggja veg yfir torg-
ið. Samtökin vilja með framtakinu
leggja áherslu á nauðsyn þess að
glæða svæðið lífi sem tengist á eðli-
legan máta annarri starfsemi á
svæðinu.
Sumsé - Grófartorgið er öllum opið
þessa dagana og fólki bent á að nýta
sér þá möguleika sem slíkur staður
býður íbúum afmælisborgarinnar.
-baj
Torgið var strax komið í notkun og menn ræddu sín hjartans mál undir (jög-
ur augu i góðu veðri á garðbekk.
MODNS
„Komið i Grófina, komið á Grófartorg!" Hlaupandi auglýsingar með hljóði
stormuðu eftir götum og torgum miðbæjarins. DV-myndir Óskar öm.
MNGhOLTSSTRÆTI 1
MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 1986.
DV Sviðsljós
KENNARI GÓÐUR!
Við viljum vekja athygli þína á því að til Vestmanna-
eyja vantar 3 almenna kennara til kennslu við
grunnskólann. Einnig vantar tónmennta-, mynd-
mennta- og sérkennara. Margs konar fyrirgreiðsía er
í þoði, svo sem flutningur á búslóð til Eyja. Útvegum
húsnæði og barna- og leikskólaaðstöðu.
Upplýsingar veita skólastjórar í símum 98-1944 eða
98-2644. Einnig skólafulltrúi í síma 98-1088.
Skólanefnd grunnskóla Vestmannaeyja