Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1986, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1986, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1986. Utlönd Umsjón: Ingibjörg Bára Sveinsdóttir Vestur-þýskir sósíaldemókratar: Nú er röðin komin Evvópu að Vestur-Þýskaland er tákn alls ills í Evrópu. Það er skoðun manna í Washington og allra minnst geðjast mönnum að flokki sósíaldemókrata. Þessi gremja í garð flokksins hófst reyndar ekki í nóvember 1983 þegar sósíaldemókratar greiddu atkvæði gegn því að Pershing-eldflaugum Bandaríkjanna yrði komið fyrir í Þýskalandi en sú ákvörðun markaði tímamót. Flokkurinn virti ekki að- eins að vettugi eigin hefðir heldur einnig þá samstöðu um öryggismál sem ríkt hafði í landinu frá því á sjötta áratugnum. En í þeirri sam- stöðu fólst einnig skilyrðislaus hlýðni við Bandaríkin. í stjórnarandstöðu f janúar næstkomandi eru kosn- ingar í Vestur-Þýskalandi. Sósíal- demókratar hafa verið í stjómarand- stöðu frá 1982. Til þess að geta tekið þátt í baráttunni þurfa þeir að kynna aðra stefnu i öryggismálum en þá sem hafhað hefúr verið. Sú stefha þarf ekki aðeins að sannfæra Vest- ur-Þjóðveija sjálfa heldur einnig að vinna traust bandamanna. Hvað sem sósíaldemókratar taka sér fyrir hendur hefur það áhrif á gang mála í Evrópu. Og þegar sósíal- demókratar tjá sig um framtíðina er ástæða til að leggja eyrun við. Það gera þeir að minnsta kosti í Banda- ríkjunum. Ný stefnuskrá I sumar lagði flokkurinn fram uppkast að nýrri stefnuskrá þar sem allar mikilvægar skoðanir innan flokksins em kynntar. Reynt er að skapa þann einhug sem með þarf til þess að úrslit kosninganna í janúar verði flokknum hagstæð. Núverandi stefiiuskrá var samþykkt í Bad Godesberg árið 1959. Þá var mörgum heilögum kúm slátrað. Arf- inum frá Marx var kastað fyrir borð og frjálslyndi í markaðsmálum var í hávegum haft. Aðild að Atlants- hafsbandalaginu var samþykkt og einnig stefiia kristilegra demókrata í utanríkismálum. Flokkur sósíal- demókrata vildi sem sagt vera öllum opinn. Gullöld Gullöld flokksins var á áttunda áratugnum. Þá vom þeir Willy Brandt og Helmut Schmidt kanslar- ar og nutu álits sem fremstu leið- togar Evrópu. Willy Brandt kom á betri samskiptum við lönd Austur- Evrópu og tókst þar með að létta á spennunni. Sundrung hefur ríkt innan flokks- ins á níunda áratugnum. Hugsjónir hefur vantað. Deilt hefur verið um stefnu í öryggismálum, umhverfis- mál, efhahagsmál og samband flokksins við græningja. Mest hefur þó verið deilt um öiyggismálin. Þegar Brandt fór að beita sér fyrir betri samskiptum við Sovétríkin lagði hann áherslu á að hann nyti trausts bandamanna. En á miðjum áttunda áratugnum fór að gæta tor- tiyggni í garð Sovétríkjanna af hálfu Bandaríkjanna vegna áframhald- andi vígbúnaðar þeirra fyrmefiidu. Vestur-Evrópa og Bandaríkin litu ekki sömu augum á Sovétríkin. Hljóðlátar kröfur Schmidt reyndi ekki einu sinni að dylja hvaða álit hann hafði á Carter Bandaríkjaforseta. En áhersla Cart- ers á mannleg réttindi var svolítið viðkvæmt mál fyrir sósíaldemókrata. Þeir gátu ekki almennilega vísað slíkum kröfum á bug. En vegna við- leitninnar til að halda góðum samskiptum við lönd Austur-Evrópu var talað um slíkar kröfur i lágum hljóðum. Takmörkuðust kröfumar við það að Vestur-Þjóðveijum yrði leyft að flytja frá Austur-Evrópu. Þar sem borgað var fyrir greiðann var heldur ekki svo erfitt að verða við honum. Schmidt var raunsær stjómmála- maður. Það var hann sem benti bandamönnum á SS 20 eldflaugar Sovétmanna. Þar sem Sovétríkin höfðu náð Bandaríkjunum í víg- búnaðarkapphlaupinu þyrfti að gera ráð fyrir að Bandaríkin yrðu ekki jafn fus til þess að taka á sig hættu vegna Evrópu. Með því að koma fyrir Pershing II eldflaugunum í. Evrópu myndi árás Sovétríkjanna sjálfkrafa verða til þess að Banda- ríkin tækju þátt í vöminni. Ákvörðun Atlantshafsbandalags- ins frá 1979 fól í sér að eldfiaugunum skyldi ekki komið fyrir fyrr en reynt hefði verið að telja Sovétríkin á að fjarlæga sínar eldflaugar. Schmidt og flokkurinn höfðu feng- Friðarganga i Vestur-Berlín 1983, sama ár og sósíaidemókratar greiddu atkvæði gegn Pershing II eldflaugunum. Sú ákvörðun markaði timamót i stefnu flokksins. Líklegt þykir að Helmut Kohl fari með sigur af hólmi í næstu kosningum. Willy Brandt stuðlaði að betri samskiptum við Austur-Evrópu. ið vilja sínum framgengt. En vegna þessarar ákvörðunar varð misklíð í flokknum. Friðarhreyfing Það sem kynti undir friðarhreyf- ingunni í Evrópu voru athugasemdir frá Bandaríkjunum sem túlka mátti þannig að Bandaríkin væm að und- irbúa takmarkað kjamorkuvopna- stríð í Evrópu. Ógnunin kom ekki lengur frá Sovétríkjunum. ógnunin kom frá hættunni á því að stórveldin myndu berjast á vestur-þýskri grund. Nú hafa viðræður um að draga úr vígbúnaðarkapphlaupinu hafist aft- ur. En traust sósíaldemókrata á Bandaríkjunum hefur minnkað. Það að vera háður Bandaríkjunum hefur einnig leitt til tortryggni í þeirra garð. Það em margir sósíaldemókratar sem vilja að Vestur-Þýskaland segi upp aðild sinni að Atlantshafe- bandalaginu eða hætti að minnsta kosti hemaðarlegri samvinnu. I uppkastinu að nýrri stefiiuskrá er gert ráð fyrir áframhaldandi aðild en áhersla lögð á að áhrif Banda- ríkjanna þurfí að minnka. Hags- munamál Evrópu og Bandaríkjanna séu ekki þau sömu. En Evrópa verð- ur sjálf að verða sterkari til þess að geta aukið áhrif sín. Þess vegna þurfi ríki Evrópu að sameinast um stefnu í utanríkis- og öryggismálum. Skoðanakönnun Þeir em fáir sem telja að sósíal- demókratar nái meirihluta á þingi. Því hefur verið spáð að þeir hljóti 40 prósent atkvseða en kristilegir demókratar 46 prósent. Samkvæmt síðustu könnun vom tölumar 41 prósent fyrir sósíaldemókrata og 45 fyrir kristilega demókrata. Græn- ingjar fengu 6 prósent en fijálsir demókratar, sem em tengdir kristi- legum, fengu 7 prósent. Kanslaraefni flokksins, Johannes Rau, hefiir gefið þá yfirlýsingu að hann muni ekki mynda stjóm með stuðningi græningja. Þegar Willy Brandt kynnti upp- kastið að nýrri stefhuskrá flokksins viðurkenndi hann að sósíaldemó- kratar hefðu tekið mið af stefhu græningja. En hann lagði áherslu á að þau markmið sem báðir flokkam- ar berðust við að ná gætu aðeins náðst af „reyndum" flokki. Virðist nú sem sósíaldemókratar ætli sér að ná stuðningsmönnum græningja með því að taka að hluta til upp stefnu þeirra. Það sem helst ber á milli er sann- færing græningja um að ekki sé hægt að ná markmiðunum nema með gagngerum breytingum á þjóð- félaginu. Flest bendir til að Helmut Kohl og Hans Dietrich Genscher sitji áfram við völd næstu fjögur árin. En það þýðir ekki að sósíaldemó- kratar verði valdalausir þegar litið er á stefhuskrá þeirra. Og það virð- ist sem menn í Washington hafi gert sér grein fyrir því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.