Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1986, Blaðsíða 32
FRÉTTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.500 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 4.500
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986.
Stefán Benediktsson:
„Það komu
bara engir
* undir regn-
hlrfína‘?
„Bandalag jafnaðarmanna var
stofnað fyrst og fremst um ákveðin
málefni. Við sögðum það strax í upp-
hafi að það ætti ekki að verða eilífur
augnakarl í íslenskum stjómmálum
og síst af öllu að verða óbifanleg stofn-
un,“ sagði Stefán Benediktsson,
þingmaður BJ, í viðtali við DV í nótt.
Stefán sagði að fyrirkomulag Al-
þýðuflokksins. byði upp á að félög
gengju í hann. Hann væri svokallaður
regnhlífarflokkur. „Bandalagið var
stofnað sem regnhlífarsamtök en það
komu bara engir undir regnhlífina.
•Við erum því aðeins að nýta okkur
það skipulag sem aðrir flokkar bjóða
upp á. Og Alþýðuflokkurinn er sá
flokkur sem stendur okkur næst hug-
mvndafræðilega," sagði Stefán.-APH
Kristín S. Kvaran:
„Eini þing-
maður Banda-
iagsins"
„Min staða hefur ekkert breyst. Kg
hef verið þingmaður Bandalags jafh-
aðarmanna frá því að ég var kjörin á
þing þrátt fyrir að ég hafi sagt mig
úr þingflokknum," sagði Kristín S.
Kvaran í viðtali við DV. Eftir þau stór-
tíðindi sem hafa gerst í pólitíkinni er
hún eini þingmaður Bandalagsins.
„Eg er það þrátt fyrir að hinir þrír
þingmennirnir hafi ákveðið að leggja
BJ niður án þess að ráðfæra sig við
mig. Þetta er að sjálfsögðu leikur að
orðum. Að mínu áliti er verið að leggja
niður þann flokk sem stofnaður var á
landsfundi BJ 1985 þegar ákveðið var
að gera Bandalagið að flokki með for-
manni og öllu tilheyrandi.
Þessi ákvörðun kemur mér ekki á
**ovart. Mér hefúr fundist málflutningur
þingflokks BJ hafa færst stöðugt nær
málflutningi Alþýðuflokksins og vart
hefur mátt á milli sjá hver var hvað.
Málflutningur þeirra hefur einkennst
af hentistefhu og skyndiupphlaupum,“
sagði Kristín S. Kvaran.
TRÉSMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF„
IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVÍK.
SÍMAR: 92-4700-92-3320.
LOKI
Blautir og hraktir
leita þeir skjóls undir
krataregnhlifinni!
Bandalag jafnaðannanna lagt niður:
„Engin hrossakaup“
- segir Guðmundur Einarsson um inngönguna í Alþýðuflokkinn
hafa hafist fyrir
þýðuflokkinn
Forustumenn Bandalags jafnaðar-
manna ákváðu á fundi í gærkvöldi
að leggja flokkinn niður og ganga
til liðs við Alþýðuflokkinn sem Félag
frjálslyndra jalhaðarmanna. Þar
með er fjögurra ára sögu Bandalags-
ins. sem Vilmundur Gvlfason heitinn
stofnaði, lokið.
„Við fórum þessa leið vegna þess
að við teljum okkur sjá aðra og betri
Valgerður Bjamadóttir, sem fyrir
ári sagði af sér sem varaformaður
landsnefndar Bandalags jafhaðar-
manna, var fyrst að heyra fréttimar
um afdrif Bandalagsins er DV hringdi
aðferð til að framfylgja okkar pólit-
ík. Við sjáum einfaldlega stærri
ræðupall sem mun nýtast okkur bet-
ur,“ sagði Guðmundur Einarsson,
formaður þingflokks Bandalags
jafnaðarmanna, í viðtali við DV í
nótt þegar fimm klukkutíma fundi
þingflokks og landsnefhdar lauk.
Guðmundur segir að áherslur Al-
þýðuflokksins í stjómmálum hafi
í hana laust eftir klukkan átta í morg-
un. Hún hafði þetta að segja:
„Það er náttúrlega búið að fara illa
með fínustu pólitísku hugmyndir sem
komið hafa fram í mörg ár.
breyst á ýmsum sviðum og samræm-
ist stefnu BJ i fjölmörgum atriðum.
Þetta hafi verið staðfest í síðustu
sveitastjómarkosningum. „Áður var
hann fallegt loforð en eftir kosning-
amar er hann staðreynd sem
möguleiki á róttækum breytingum í
íslenskri pólitík," segir Guðmundur.
Samkvæmt upplýsingum DV
munu viðræður um inngöngu í Al-
Ég hætti að starfa með þessu appar-
ati fyrir ári. Það hefði verið pólitískt
klókara fyrir það fólk, sem gerir þetta
í dag, að gera þetta fyrir níu mánuð-
um.“ -KMU
hálfum mánuði. Guðmundur neitar
því að gerðir hafi verið samningar
milli þingmanna BJ og Jóns Bald-
vins um trygg þingsæti. „Það hafa
engin hrossakaup átt sér stað, enda
er ekki hægt að semja um úrslit
prófkjara. Valið stóð einfaldlega
milli þess að vera áfram í smáflokks-
hlutverkinu eða að nýta okkur þann
möguleika á pólitískri nýsköpun sem
nú er fyrir hendi í fyrsta sinn í lang-
an tíma,“ sagði Guðmundur.
Enn hafa engar ákvarðanir verið
teknar um hvemig þingstörfum
þessara tveggja flokka verður háttað
í vetur. Þó er talið fullvíst að þing-
fundir verði sameiginlegir. Einnig
er talið nokkuð víst að allir þing-
menn BJ stefhi að framboði fyrir
Alþýðuflokkinn í næstu þingkosn-
ingum. -APH
Jón Baldvin Hannibaisson:
Bættfyrirþau
mistök þegar
Vilmundurfór
úr Alþýðu-
flokknum
- flokksþingið sögulegt
„Þetta eru mestu gleðitíðindi sem
ég hef heyrt á mínum stutta formanns-
ferli. Þetta þýðir að flokksþing
Alþýðuflokksins verður ekki bara
fréttnæmt heldur sögulegt og þess
ætíð minnst í framtíðinni,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson, formaður Al-
þýðuflokksins, er hann var inntur álits
á þeirri ákvöiðun BJ að ganga til liðs
við flokk hans.
„Á þessu þingi munu tveir fyrrver-
andi formenn Alþýðuflokksins, þeir
Gylfi Þ. Gísláson og Hannibal Valdi-
marsson, ávarpa þingið og takast í
hendur í sögulegum sættum. Þá mun
Guðmundur Einarsson ávarpa þingið.
Þar með hafa tekist sögulegar sættir
og þar með bætt fyrir þau mistök þeg-
ar Vilmundur Gylfason gekk úr
flokknum. Þetta eru miklilvægar sætt-
ir í upphafi þings og kosningabaráttu,"
sagði Jón Baldvin. -APH
Greinargerð
Ragnars í
póst í dag
Ragnar Kjartansson, fyrrverandi
forstjóri Hafskips, hefur lokið við gerð
greinargerðar sinnar vegna rannsókn-
ar Hafskipsmálsins og mun greinar-
gerðin verða póstlögð í dag til hluthafa
fyrirtækisins og fyrrverandi stjómar.
Ragnar mun í dag sitja fund með
fyrrverandi stjóm Hafskips og kynna
þeim efni greinargerðarinnar sem er
að hans sögn nokkuð ítarlegt plagg
upp á 16 vélritaðar síður. -FRI
Veðrið á morgun:
Skúrir vestan-
landsen þurrtog
bjart veður suð-
austanlands
Það lítur út fyrir norðvestanátt
á landinu með slydduéljum á
Norðurlandi og Vestfjörðum. Gért
er ráð fyrir skúrum vestanlands
en þurru og björtu veðri á Suð-
austurlandi. Hiti verður á bilinu
3-10 stig.
Það er greinilegt að þessi sögulega ákvörðun hefur tekið á þingmenn Bandalags jafnaðarmanna. Hér ræða þeir
við blaðamann DV og skýra frá þvi hvers vegna þeir hafa ákveðið að ganga til liðs við Jón Baldvin og hans menn.
DV-mynd GVA
Valgerður Bjamadóttir:
Klókara fyrir níu mánuðum