Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1986, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1986.
Nauðungaruppboð
annaö og síðasta, á fasteigninni Gaukshólum 2, 2. hæð F„ þingl. eigandi
Sigríður Jónsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 3. okt. 1986 kl.
14.45. Uppboðsbeiðendur eru Jón Hjaltason hrl., Útvegsbanki íslands og
Atli Gíslason hdl.
_________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Tómasarhaga 14, 2. hæð, þingl. eigandi Áslaug Gunnlaugs-
dóttir Nielsen, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 3. okt. 1986 kl. 11.00.
Uppboðsbeiðíendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík og Landsbanki íslands.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Teigaseli 7, íb. 3-3, þingl. eigandi Auður M. Sigurhansdóttir,
fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 3. okt. 1986 kl. 16.30. Uppboðsbeið-
andi er Gjaldheimtan í Reykjavik.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Orrahólum 7, 7. hæð A, þingl. eigandi Páll Valgeirsson og
Sigríður Jónsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 3. okt. 1986 kl.
15.15. Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild Landsbanka Islands, Gjaldheimtan
i Reykjavík og Guðjón Steingrímsson hrl.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Stuðlaseli 33, þingl. eigandi Róbert Þ. Bender, fer fram á eign-
inni sjálfri föstudaginn 3. okt. 1986 kl. 16.15. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Fífuseli 11, 2.h.t.v„ þingl. eigandi Júlíus Hafsteinsson, fer fram
á eigninni sjálfri föstudaginn 3. okt. 1986 kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er
Ingi Ingimundarson hrl.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Fífuseli 25, þingl. eigandi Ómar Þórðarson, fer fram á eigninni
sjálfri föstudaginn 3. okt. kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur eru Guðjón Ármann
Jónsson hdl„ Ólafur Gústafsson hrl. og Gjaldheimtan í Reykjavík.
Borgarfógetaembaettið i Reykjavik,
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Strandaseli 4, ib. 2-2, þingl. eigandi Sigurður H. Tryggvason,
fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 3. okt. 1986 kl. 16.00. Uppboðsbeiðend-
ur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Ásgeir Thoroddsen hdl,, Guðmundur Ingvi
Sigurðsson hrl„ Tómas Þorvaldsson hdl. og Veðdeild Landsbanka islands.
_______Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Flúðaseli 92, 1 ,t.h„ þingl. eigandi Anna Sch. Jóhannsdóttir,
fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 3. okt. 1986 kl. 14.30. Uppboðsbeiðend-
ur eru Árni Guðjónsson hrl. og Gjaldheimtan í Reykjavík.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteignínni Seljabraut 22, 4,t.v„ tal. eigandi Sigurður G. Ólafsson, fer fram
á eigninni sjálfri föstudaginn 3. okt. 1986 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru
Landsbanki íslands og Gjaldheimtan í Reykjavík.
______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Reykjavíkurflugv., fasteign, tal. eigandi Iscargo hf„ fer fram á
eigninni sjálfri föstudaginn 3. okt. 1986 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
_______________Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Utiönd
Skiptar skoðanir eru í Bandarikjunum um fund Reagans og Gorbatsjovs á íslandi. Margir fiokksbræðra Bandaríkjaforseta
í flokki republikana gagnrýna forsetann fyrir linkind gagnvart Sovétmönnum og fullyrða að Sovétmenn hafi boðað hann
á fund eins og hvem annan undirmann. Forystumenn Oemókrataflokksins lofa forsetann aftur á móti fyrir að sam-
þykkja tilboð Sovétleiðtogans um fund í Reykjavík
Kissinger svartsýnn á
árangur í Reykjavík
Skiptar skoðanir Bandaríkjamanna á fyrirhuguðum fundi þjóðarieiðfoganna
Haldór Valdimaisgcin, DV, DaBas:
Henry Kissinger, fyrrum utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, lýsti því
yfir í sjónvarpi í gærkvöldi að hann
óttaðist að afrakstur fundar þeirra
Reagans og Gorbatsjovs í Reykjavík
þann ellefta og tólfta næstkomandi
yrði neikvæður.
Sagði ráðherrann fyrrverandi að
umræðuefnið á feiðtogafundum af
þessu tagi, einkum vígbúnaðarmál,
væru ákaflega tæknilegs eðlis, þjóðar-
leiðtogar væru ekki sérfræðingar í
þessum efhum og því ekki réttir aðilar
til að Qalla um þau án nærveru aðstoð-
armanna er þekktu betur til.
Mátti af orðum Kissingers skilja að
hann óttaðist að fundurinn gæti orðið
til þess að gera leiðtogafundinn, sem
fyrirhugaður er í Washington fyrir
áramót, erfiðari, jafnvel hugsanlega
ómögulegan. Eða þá að þjóðarleið-
togamir gætu átt það til að gera með
sér einhvers konar drög að samkomu-
lagi sem ekki stæðist er nánar væri
að gáð.
Regan, starfsmannastjóri Hvíta
hússins, tók að nokkru í sama streng,
er hann sagði að úr því að leiðtogam-
ir teldu sig geta rætt þessi mál án
aðstoðarmanna, „án okkar“ eins og
hann orðaði það, væri best að þeir
fengju að spreyta sig.
Skoðanir Bandaríkjamanna á leið-
togafundinum í Reykjavík em mjög
skiptar. Telja margir þeirra Reagan
forseta sýna Gorbatsjov of mikla und-
anlátsemi með því að samþykkja
fundinn og hafa jafnvel á orði að Reag-
an láti Sovétmenn boða sig á fund eins
og undirmann.
Margir flokksbræður forsetans í
Repúblikanaflokknum hafa þegar lýst
sig andvígan fúndinum. Þeir em jafh-
vel harðorðir í garð hans fyrir vikið
og telja að hann hafi látið Sovétmenn
yfirbuga sig algerlega í öllu því er lýt-
ur að Daniloff málinu en Reykjavíkur-
fundurinn er hluti af samkomulagi því
er leysti bandaríska blaðamanninn
Nicholas Daniloff úr haldi á mánudag.
Ekki er ólíklegt að þessi viðbrögð
repúblikana séu í tengslum við
kosningar þær sem framundan em.
Kosið verður tif helmings þingsæta
öldungadeildarinnar og allra sæta
fulltrúadeildarinnar.
Má telja víst að einstakir þingmenn
repúblikana, er óttast að stefna forset-
ans í þessum málum eigi ekki traust
fylgi kjósenda, vilji með þessu móti
minnka áhrif á fylgi sitt í héraði.
Svo bregður hins vegar við að all-
margir þingmanna demókrata em
sammála forsetanum í þessum efhum
og lýsa óspart hrifningu sinni á fyrir-
huguðum fundi með Sovétleiðtogan-
um.
Ef til vill ráða væntanlegar kosning-
ar einhverju um liðsskipan líka.
Ef svo er hafa þegar komið fram
ummerki þess er margir Bandaríkja-
menn óttast, það er að Sovétmönnum
takist á fúndi þessum að hafa áhrif á
kosningamar, þá væntanlega demó-
krötum í hag.
Telja sumir þeirra Gorbatsjov ganga
það eitt til að setja á svið leiksýningu
í Reykjavík þar sem hann muni gera
allt til að niðurlægja Reagan til þess
endanlega að rýra hlut repúblikana í
nóvember.
Reagan og ríkisstjóm hans höfðu
sett sig mjög á móti leiðtogafundi fyr-
ir kosningamar. Forsetinn telur sig
ekki hafa slegið af því þar sem ekki
sé um leiðtogafund að ræða heldur
fúnd með leiðtogunum til undirbún-
ings leiðtogafundi.
Hvað sem rétt er í þeim efnum er
víst að margir bandarískir embættis-
menn em súrir út af Reykjavíkurfund-
inum. Telja þeir undirbúningstíma of
skamman, óheppilegt sé að leiðtogam-
ir ræði málefhi á svo óformlegan máta
eins og fyrirhugað er og sérstaklega
að leiðtogamir ætli að ræða saman
án aðstoðar þeirra sjálfra, það er emb-
ættismannanna.
Hið eina sem allir em sammála um
hér í Bandaríkjunum er að leiðtogam-
ir koma væntanlega ekki til með að
gera neina endanlega milliríkjasamn-
inga á fúndinum í Reykjavík þó
hugsanlega verði á íslandi gmnnur
lagður að einhverjum slíkum í fram-
tíðinni.
Friðarverðlauna-
hafi útnefndur
á föstudag
Friðarverðlaunahafi Nóbels 1986
verður útnefndur á föstudaginn og
greint hefúr verið frá að írska rokk-
stjaman Bob Geldof njóti mikils
stuðnings almennings.
Það var Geldof sem var heilinn á
bak við „Band Aid“, tónleika sem
haldnir vom til hjálpar sveltandi í
Afríku. Hefur nefndin, sem sér um
útnefninguna, fengið fleiri hundmð
bréf víðs vegar úr heiminum þar sem
stungið er upp á Geldof sem friðar-
verðlaunahafa. Annars hvílir mikil
leynd yfir öllu tilstandinu og vill
nefndin ekki skýra frá nöfnum þeirra
er til greina koma.
Ýmsir telja írska popparann Bob Gel-
dof nú líklegasta friðarverðlaunahafa
Nóbels.