Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1986, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1986.
25
Sandkom
Marilyn Monroe birtist þessa dag-
ana i einkasamkvæmum hérlendis.
Marilyn Mon-
roe í einka-
samkvæmið
Það nýjasta í samkvæmislíf-
inu hérlendis er að fá Marilyn
Monroe í heimsókn í sam-
kvæmið. Þessari nýjunghafa
dyggir KR-ingar meðal ann-
arra kynnst á herrakvöldi.
Það er ekki afturganga leik-
konunnar bandarísku sem
birtist með aðstoð miðils held-
ur sprelllifandi ensk stúlka.
Sú hefur sérhæft sig i að líkj-
ast Marilyn Monroe og þykir
takast vel. Hún er hingað
komin til lands fyrirmilli-
göngu veitingastaðarins Upp
ogniður.
Fimm sjón-
varpsrásir hjá
Kananum
Hljótt hefur verið um Kefla-
víkursjónvarpið frá því að
Islendingum var endanlega
meinað að horfa á það fyrir
meira en áratug. Kanasjón-
varpið er þó ennþá sprelllif-
andi en sent í gegnum lokað
Úr húsakynnum sjónvarpsstöðvar Varnarliðsmanna.
kapalkerfi innan flugvallar-
girðingar. Um sérstaka jarð-
stöð við hlið Skyggnis við
Úlfarsfell eru tíðar beinar út-
sendingar.
Sjónvarpsrásimar eru fimm
talsins. Tvær flytja almennt
afþreyingarefni, önnur allan
sólarhringinn en hin hálfan
sólarhringinn, 12 stundir á
dag. Þriðja rásin flytur veður-
upplýsingar, sú fjórða til-
kynningar og sú fimmta
fræðsluefni.
Gott að vera á
frystitogara
Hólmadrangur, frystitogari
Strandamanna, hefur aldeilis
gengið vel, þrátt fyrir hrak-
_ spár og mislukkaða sjósetn-
ingu, en togarinn var vart
kominn á flot þegar hann
strandaði.
Þrír menn hafa aðallega
skipst á um skipsstjóm. Hafa
þei r haft ótrúlegar tekj ur, svo
miklar að einn þeirra ætlar sér
ekki að vinna meira á árinu.
Vill hann ekki rjúka upp í
sköttum. Er hann fyrir nokkm
kominn í land til þess að eyða
þeim 2,3 milljónum króna sem
hann hefur fengið í laun fyrir
að stýra skipinu á móti öðrum
það sem af er árinu.
Skattamir í
Eyjum
I vikublaðinu Fréttum í
Vestmannaeyjum í síðustu
viku birtist grein sem undir-
rituð er af Sævari Halldórs-
syni fyrir hönd nýstofnaðs
félags sem sagt er að hlotið
hafi nafnið Félag fyrirbyggj-
andi fátæktar. Segir að
markmið félagsins sé að koma
í veg fyrir fátækt í Vest-
mannaeyjabæ með fjársöfnun
undir yfirskriftinni „Björgum
bágstöddum". Styrkjum verði
úthlutað en aðeins til þeirra
sem farið hafi minnst tvær
sólarlandaferðir á árinu, eigi
nokkrar glæsikerrur, stórt
einbýlishús og hafi endumýj-
að alla innanstokksmuni
árlega.
Ennfremur býðst félagið til
að verða viðkomandi innan
handar við gerð næstu skatt-
skýrslu.
Gunnarafturá
útvarpið?
Fréttastofa útvarps hefur
verið að missa nokkra frétta-
menn, þar á meðal tvo til nýju
sjónvarpsstöðvarinnar,
Stöðvar tvö, einn til Bylgj-
Gunnar Eyþórsson.
unnar og einn til Ríkissjón-
varpsins. Hefur verið auglýst
eftir nýjum. Heyrst hefur að
meðal umsækjendasé gamla
brýnið Gunnar Eyþórsson.
Gunnar starfaði í mörg ár sem
fréttamaður á útvarpinu en
hætti þar í kringum 1980.
Bæjarstjórinn
á leið í bæinn
sinn
Þær fréttir berast nú úr
Kópavogi að bæjarstjórinn
þar undanfarin fjögur ár,
Kristján Guðmundsson, hygg-
ist nú flytja í bæinn sinn.
Hann hefur verið búsettur á
Seltjamamesi.
Bæjarfógeti þeirra Kópa-
vogsbúa, Ásgeir Pétursson, er
búsettur í Reykjavík. Hefur
ekki heyrst að hann hyggist
flytja yfir. Reyndar búa fleiri
toppar í Kópavogi utan bæjar-
markanna, þar á meðal
bæjarlögmaður og bæjarverk-
fræðingur.
Umsjón:
Kristján Már Unnarsson
ísafjörður:
Rannsaka
mannslát
á Flateyri
Sýslumannsembættið á ísafirði ranns-
akar nú mannslát á Flateyri en þar
fannst 58 ára gamall maður látinn
laust fyrir kl. 8 á mánudagsmorgun-
inn. Rannsóknin beinist að því hvort
lát mannsins hafi borið að í framhaldi
af átökum milli hans og annars manns
í húsi því sem hinn látni bjó í.
Að sögn Péturs Kr. Hafstein sýslu-
manns urðu átökin milli mannanna
aðfaranótt sunnudagsins og leið því
sólarhringur á milli þeirra og þess tíma
að maðurinn fannst. Sá er lenti í átök-
unum við hinn látna hefur verið
yfirheyrður og hefur hann greint ítar-
lega frá samskiptum þeirra tveggja.
Pétur sagði að enn sem komið væri
hefði ekki komið fram ástæða fyrir
gæsluvarðhaldsúrskurði í málinu en
frumrannsókn stendur enn yfir og lík
þess er lést hefur verið sent til krufh-
ingar. -FRI
Fíkniefnalögreglan:
Aðstoðaði
Dani
við fanga-
flutning
Fíkniefnalögreglan aðstoðaði
dönsku lögregluna við fangaflutn-
inga um helgina er hér millilentu
tveir Grænlendingar á leið í fang-
elsi á Grænlandi.
Mennimir, sem hafa fengið dóma
fyrir fíkniefnabrot, komu með flug-
vél til Reykjavíkurflugvallar og
stoppuðu hér í um hálftíma. Hafði
fíkniefhalögreglan umsjón með
þeim meðan á stoppinu stóð.
GARNI
Vetrarlitirnir eru komnir. Hjá okkur fást yfir 150 upp-
skriftir trá STAHL’sche WOLLE þýddar á íslensku.
STAHL’sche WOLLE er vestur-þýskt gæðagarn, upp-
skriftir úr því garni eru svo vinsælar að þær birtast
í öllum þýskum prjónablöðum. Tegunda- og litaúrval-
ið sem við höfum á boðstólum er ótrúlegt. Veitum
prjónaráðgjöf. Það er leikur að prjóna fallegar peys-
ur með okkar aðstoð.
Verslunin Ingrid,
Hafnarstræti 9, sími 621530,
JK póstverslun, sími 24311.
Lítil íbúð til sölu,
tvö herbergi og eldhús að Snorrabraut 50. Til
sýnis í dag kl. 15-19.
a
□
□
o
o
o
o
□
AKUREYRI
□ Blaðbera vantar
strax í neðri hluta
Suður-Brekku.
Upplýsingar í síma 25013.
o
o
□
□
□□□□□□□□□□□□
□
Prjónið peysurnar
úr
Sólbaðsstofa
Astu B. Vilhjálms,
Grettisgötu 18,
sími 28705
Nú er komið að hinu vinsæla
hausttilboði okkar sem allir
eru að bíða eftir. 24 timar á
aðeins 1500 krónur.
VERTÐ VELKOMINN
ÁVALLT HEITT Á
KÖNNUNNI