Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1986, Page 26
26
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1986.
Andlát
Margrét Sigurþórsdóttir, Stiga-
hlið 32, andaðist mánudaginn 29.
september.
Klara Helgadóttir, Hólmgarði 58,
lést þann 30. september.
» Guðbjörn Pálsson bifreiðastjóri,
Sólvallagötu 21, lést í Landspítalan-
um þriðjudaginn 30. september.
Bergþóra Einarsdóttir, Hofteigi 6,
(áður Kleppsvegi 44), verður jarðs-
unginn frá Laugameskirkju fimmtu-
dagin 2. október kl. 13.00.
Eyjólfur Einar Guðmundsson frá
Flatey á Breiðafirði verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 3. október kl. 15.00.
Kristbjörg Bjarnadóttir verður
jarðsungin frá Laugameskirkju
föstudaginn 3. október kl. 13.30.
J Tilkyriningar
Vetrarfyrirlestrarskrá Geð-
hjálpar komin út
Geðhjálp, félag fólks með geðræn vanda-
mál, aðstandenda þeirra og velunnara
gengst einu sinni enn fyrir hinum vinsælu
fyrirlestrum í vetur. Fyrirlestramir verða
haldnir á geðdeild Landspítalans, í
kennslustofu á 3. hæð. Þeir verða allir á
fimmtudögum og hefjast kl. 20.30. Fyrir-
lestrarnir eru opnir öllum. Aðgangur er
ókeypis. Fyrirspurnir, umræður. Kaffi
verður eftir fyrirlestrana.
Fyrirlestrarskrá Geðhjálpar veturinn
1986-1987
9. okt. 1986 Páll Eiríksson geðlæknir, Sorg
og sorgarviðbrögð.
30. okt. 1986 Gunnar Eyjólfsson leikari,
Sjálfstraust.
> 20. nóv. 1986 Ingólfur Sveinsson geðlækn-
ir. Starfsþreyta.
8. jan. 1987 Ævar Kvaran leikari, Andleg-
ur stuðningur.
5. febr. 1987 Elfa Björk Gunnarsd. fram-
kvæmdastjóri, Næring og vellíðan.
12. mars 1987 Sigfinnur Þorleifsson
sjúkrahúsprestur Sálgæsla á sjúkrahús-
um.
9. apríl 1987 Grétar Sigurbergsson geð-
læknir. Raílækningar.
30. apríl 1987 Helgi Kristbjamarson geð-
læknir, Svefnleysi.
Heiðurslaun Bruna-
bótafélags íslands 1987
-■i 1 tilefni af 65 ára afmæli Brunabótafé-
lags íslands 1. janúar 1982 stofnaði stjórn
félagsins til stöðugildis hjá félaginu til
þess að gefa einstaklingum kost á að sinna
sérstökum verkefnum til hags og heilla
fyrir íslenskt samfélag, hvort sem er á
sviði lista. vísinda, menningar, íþrótta eða
atvinnulífs. Nefnast starfslaun þess sem
ráðinn er:
Heiðurslaun Brunabótafélags íslands
Stjórn BÍ veitir heiðurslaun þessi sam-
kvæmt sérstökum reglum og eftir umsókn-
um. Reglurnar fást á aðalskrifstofu BÍ að
Laugavegi 103 í Reykjavík.
Þeir sem óska að koma til greina við
ráðningu í stöðuna á árinu 1987 (að hluta
eða allt árið) þurfa að skila umsóknum til
stjórnar félagsins fyrir 10. október 1986.
Bridge
Opna minningarmótið
á Selfossi
Opna minningarmótið um Einar Þorf-
innsson, sem spilað verður á Selfossi 11.
október nk., er að verða eitt vinsælasta
mót sem haldið er hér suðvestanlands.
Fullbókað er í mótið, sem verður 36 para
með barometer-fyrirkomulagi, tvö spil
milli para, alls 70 spil.
Á biðlista eru ein 7-8 pör, þannig að
hæglega hefði mátt halda þarna 44 48
para mót, ef ekki kæmi til að þetta spilast
aðeins á einum degi og flestum fmnst 70
spil duga yfir daginn. Spilamennska hefst
kl. 10 árdegis laugardaginn 11. október og
er spilað í hinu nýja Hótel Selfossi. Um-
sjónarmenn mótsins eru þeir Hermann og
Olafur Lárussynir.
Að vanda eru mjög góð verðlaun í boði
fyrir efstu pör. 1. verðlaun eru kr. 20.000,
2. verðlaun kr. 16.000, 3. verðlaun kr.
12.000, 4. verðlaun kr. 8.000 og 5. verðlaun
kr. 4.000.
Að auki eru eignarverðlaun fyrir þijú
efstu pörin, auk silfurstiga.
Bækur
,7Eilífir sólargeislar“
Ut er komin ljóðabókin „Eilífir sólargeisl-
ar“ eftir Kristin Guðbrand Harðarson.
Þetta er fyrsta ljóðabók höfundar og eru
ljóðin samin á síðastliðnum tveimur árum.
I bókinni, sem er 73 blaðsíður að stærð,
eru 85 ljóð og er henni skipt í fjóra kafla.
Hún er gefin út af höfundi í 300 tölusettum
og árituðum eintökum. Höfundurinn hefur
myndlistarmenntun að baki og starfar sem
myndlistarmaður og kennari. Bókin verð-
ur til sölu í stærri bókaverslunum og hjá
höfundi.
■ Tapað - Fundið
Tík tapaðist í Mosfellssveit
Hún Pollý, sem er lítil ljósbrún tík tapað-
ist sl. laugardag í Mosfellssveit. Þeir sem
hafa orðið varir við hana eru vinsamleg-
ast beðnir að láta vita í síma 666481.
Ymislegt
Alliance Francaise
Vegna mikilla vinsælda verður kvikmynd-
in Kalt borð endursýnd miðvikudaginn 1.
október 1986, kl. 20.30 í Regnboganum.
Þær myndir sem eftirleiðis hljóta mikla
aðsókn á fimmtudögum verða framvegis
endursýndar á miðvikudögum.
Kvenfélag Fríkirkjunnar
í Reykjavík
heldur fund að.Hallveigarstöðum fimmtu-
daginn 2. október nk. kl. 20.30.
Skrifstofur Stjórnarráðsins
Starfsdagur í Stjómarráðinui færist aftur
í fyrra horf yfir vetrarmánuðina. Verða
því skrifstofur Stjórnarráðs íslands opnar
kl. 9 til kl.17 mánudaga til föstudaga frá
og með 1. október nk.
Eyfirðingar
Árlegur kaffidagur Eyfirðingafélagsins
verður á Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudag-
inn 5. október. Húsið opnað kl. 14. Verið
öll velkomin og takið með ykkur gesti.
Sædýrasafnið
Opið alla daga kl. 10-17.
Vetrarstarf
Breiðfirðingafélagsins
hefst sunnudaginn 5. október kl. 14 með
félagsvist og kaffi í Risinu, Hverfisgötu
105, 4 hæð. Allir hvattir til að mæta og
taka með sér gesti.
Myndakvöld Útivistar
fimmtudaginn 2. okt. kl. 20.30. Mætið
vel á fyrsta myndakvöld vetrarins í Fóst-
bræðraheimilinu, Langholtsvegi 109.
Hörður Kristinsson sýnir góðar myndir
úr sumarleyfisferð Útivistar í Þjórsárver
frá í sumar. Þjórsárverin eru mjög áhuga-
verð sem göngusvæði. Eftir hlé verða
kynntar vetrarferðir Útivistar og einnig
sýndar haustlitamyndir þeirra Egils Pét-
urssonar og Lars Björk úr Þórsmörkinni
og víðar. Kvennanefnd Útivistar sér um
kaffiveitingar í hléi. Allir eru velkomnir,
jafnt félagar sem aðrir.
Helgarferðir 3.-5. okt.
Þórsmörk í haustlitum. Gist í skála Úti-
vistar í Básum. Gönguferðir. Síðasta
haustlitaferðin. Einnig verður síðasta
dagsferðin í Mörkina kl. 8 á sunnudaginn.
Haustferð að fiallabaki. Nú er fagurt á
fjöllum. Gist í Emstruhúsi. Gönguferðir
um Emstrusvæðið. Kerið, Markarfljóts-
gljúfur, fossar við Mýrdalsjökul o.fl.
skoðað. Uppl. og farm. á skrifst., Grófinni
1, símar: 14606 og 23732. Ath. takmarkað
pláss í báðar ferðimar. Sjáumst.
Sýningu Jóns Þórs
í Gallerí Gangskör að Ijúka
Fimmtudaginn 2. október nk. lýkur sýn-
ingu á málverkum Jóns Þórs Gíslasonar
í Gallerí Gangskör, Amtmannsstíg 1. Frá
því Jón Þór lauk námi frá Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1981 hefur hann
unnið sjálfstætt að listsköpun sinni og er
þetta þriðja einkasýning hans. Sýningin
er opin frá kl. 12-16.
Harður árekstur
vegna
Mjög harður árekstur varð á
Reykjanesbrautinni í morgun er þar
skullu saman fólksbifreið og jeppi með
þeim afleiðingum að þrennt var flutt
á slysadeild. Areksturinn var um 5 km
innan við Vogaafleggjarann og orsök
hans var hálka á veginum. Annar bíll-
hálku
inn snerist og lenti framan á bíl sem
kom á móti honum. Bílamir eru stór-
skemmdir eftir áreksturinn. Lögreglan
í Keflavík vill vara öktunenn við hálku
á Reykjanesbrautinni en hún fer að
verða vandamál á þessum tíma.
-FRI
I gærkvöldi
Knstin Rut Haraldsdóttir Ijósmóðir:
P.D. James stendur fyrir sínu
Núna byijuðu íréttimar klukkan
hálfátta. Eg held að þetta sé ekki
nógu gott. Nú er komið bæði
skemmtiefni og fréttir inn i kvöld-
matartímann og er ég hrædd um að
hinn hefðbundni kvöldmatur, þar
sem fjölskyldan hittist, leggist af.
Ég horfði á framhaldsþáttinn Vitni
deyr. Þetta em góðir þættir. P.D.
James stendur fyrir sínu. Það var
gaman að fá að skyggnast á bak við
tjöldin í sjónvarpinu í Gegnum tíð-
ina og fróðlegt að sjá hvemig allt
er unnið og uppbyggt, fréttir, veður-
fregnir og fleira. N
Vinnutímans vegna horfi ég yfir
leitt ekki sérstaklega mikið á sjón-
varp. En oft finnst mér vera góðir
fræðsluþættir, Nýjasta tækni og vís-
indi og ýmsir dýralífsþættir,
skemmtilegast finnst mér þó að sjá
slíka þætti um ýmis læknisfræðileg
málefni. Fyrirmyndarföður er gaman
að horfa á, kannski sérstaklega
vegna þess að hann er fæðingar-
læknir í heimalandi sínu.
Ég hlusta mest á Bylgjuna af út-
varpsstöðvunum. Mér finnst hún
alveg ágæt og hafa það helst fram
yfir hinar stöðvamar að á henni er
fjölbreyttara tónlistarval.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Vetrarstarf félagsins hefst fimmtudaginn
2. október kl. 20.30 í safnaðarheimili kirkj-
unnar. Dagskrá verður fjölbreytt, kaffi og
að lokum hugvekja sem sr. Ragnar Fjalar
Lárusson flytur. Allar konur eru velkomn-
ar.
Hjörtur M. Jóhannsson
kjörinn í Útskálaprestakalli
Talin hafa verið atkvæði í prestkosningu
sem fram fór í Útskálaprestakalli nýlega.
Umsækjendur voru tveir. Hjörtur Magni
Jóhannsson cand theol hlaut 620 atkvæði
og lögmæta kosningu. Sr. Kristinn Ágúst
Friðfinnsson hlaut 434 atkvæði. Auðir
seðlar voru 8 og ógildir 2. Á kjörskrá voru
1540 en atkvæði greiddu 1063 eða 69%.
Sr. Helga Soffía ráðin prestur
íslendinga í Svíðþjóð
Sænska kirkjan hefur ráðið séra Helgu
Soffiu Konráðsdóttur til þess að annast
prestþjónustu fyrir Islendinga í Stokk-
hólmi, Uppsölum og þar í grennd. Er sr.
Helga Soffía í hálfu starfi og tekur við af
séra Hjalta Hugasyni sem fluttur er heim
og tekinn við starfi sem lektor við Kenn-
araháskólann. Samkvæmt sænskum
lögum tryggir sænska kirkjan prestþjón-
ustu til handa minnihlutanum í Svíþjóð.
Eru þar þess vegna starfandi allmargir
prestar sem þjóna innflytjendum þar í
landi til að tryggja að þeir fái þjónustu á
eigin tungumáli. Kostar sænska kirkjan
þessa þjónustu eins og prestþjónustu við
þá íbúa Svíðþjóðar sem hafa sænsku að
móðurmáli. Sr. Helga Soffia Konráðsdóttir
hefur aðsetur í Uppsölum og vinnur einn-
ig hlutastarf hjj. Kirkjusambandi Norður-
landa (Nordisk Ekumenisk Instittut) og
er sími hennar 018 165995. Hún tók við
preststarfinu 16. sept. sl. og er nú að undir-
búa vetrarstarfið meðal íslendinga.
Nýr leikskóli á Seltjarnarnesi
Nýr leikskóli, Nýja-Brekka, var opnaður
29. ágúst sl. Leikskólinn er tveggja deilda
og hefur rými fyrir 36-40 börn samtímis.
Við tilkomu þessa nýja leikskóla er hægt
að færa til á öðrum dagheimilum og hefur
nú verið opnuð ný dagheimilisdeild á Sól-
brekku. Segja má að nú sé ekki biðlisti
eftir leikskóla og dagheimilisrými á Selt-
jarnamesi. Hjá dagvistunarheimilum á
Seltjamamesi eins og víðar er nokkur
skortur á starfsfólki og hefur það tafið
nokkuð inntöku bárna á heimilin nú eftir
sumarleyfi.
Skilnaðarráðgjöf
Þessa dagana heldur Stéttarfélag ísl. fé-
lagsráðgjafa námskeið í samvinnu við
dómsmálaráðuneytið um nýjar aðferðir í
meðferð skilnaðarmála. Leiðbeinendur
eru tveir bandarískir sérfræðingar á þessu
sviði, Joan B. Kelly, sem er sálfræðingur,
og Jay Folberg sem er lögfræðingur. Þau
fjalla um þróun skilnaðarmála, ráðgjöf,
miðlun, sameiginlegt forræði barna og
hvernig hægt er að hjálpa fólki til að ná
samkomulagi í stað þess að deila um skiln-
aðarmála varðandi eignaskiptin jafnt sem
forræði bama og umgengnisrétt. Hér er
um að ræða s.k. „mediation" tækni þar
sem unnið er út frá samkomulagi í stað
deilu og áhersla lögð á náið samstarf lög-
fræðinga og fjölskylduráðgjafa. Þátttak-
endur á námskeiðinu eru annars vegar
félagsráðgjafar og sálfræðingar, sem vinna
við barnaverndarmál, umsagnaraðilar
bamanefndarnefnda í forræðismálum og
hjóna/fjölskylduráðgjafar. Hins vegar eru
það lögfræðingar frá dómsmálaráðuneyt-
inu og lögmenn sem vinna að skilnaðar-
málum.
Afmæli
60 ára er í dag, 1. október, Ellert
Erlendsson, Höfðabraut 3, Akra-
nesi, starfsmaður Skeljungs. Hann
er að heiman í dag.
Casio umboöiö opnar
nýja verslun
Casio umboðið hefur nýlega opnað aðra
verslun að Laugavegi 26. Verslunin í
Bankastræti starfar áfram eins og undan-
farin ár. Báðar verslanimar em með mikið
úrval af tölvum, úrum, búðarkössum og
skemmturum. Nýja verslunin að Lauga-
vegi 26 sér um allar viðgerðir fyrir Casio
framvegis. Nýjungar em margar hjá Cas-
io, eins og t.d. tölva í veski sem í jafnframt
er pláss fyrir ávísanahefti. Tölvan er með
tvö föst minni til að halda ijármálunum í
góðu lagi. Þá má geta skemmtara sem
heitir SK-1 með innbyggðu segulbands-
tæki. Myndin hér að ofan er úr nýju Casio
versluninni að Laugavegi 26. Fremst á
myndinni er framkvæmdastjórinn, Gísli
Ulfarsson, og einn af afgreiðslumönnum
verslunarinnar Karl Guðbjörnsson.
Wm á
mmmm .>* * j r\\ . </•
Perusaia Lionsmanna
í Kópavogi.
Næstkomandi fimmtudag, föstudag og
laugardag, þ.e. hinn 2., 3. og 4. október
nk., verður Lionsklúbburinn Muninn með
hina árlegu perusölu sína í Kópavogi. íbú-
ar hafa alltaf tekið þessari perusölu vel
og notað tækifærið til að byrgja sig upp
af ljósaperum fyrir skammdegið. Með því
hafa þeir slegið tvær flugur í einu höggi,
tryggt sig gegn því að þurfa að sitja í
myrkrinu ef pera þilar, jafnframt því að
styðja gott málefni. Að venju rennur allur
ágóði af perusölunni til líknarmála.
Tombola lega tombólu í Breiðholti til styrktar
Þessir tveir 10 ára drengir, Elvar örn lömuðum og fötluðum. Alls söfnuðu þeir
Þórisson og Örvar Gunnarsson héldu ný- 400 krónum.