Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1986, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1986, Page 10
54 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1986. Með þessu rís hann gegn hefð sem rekja má aftur til kreppuáranna og stjómartíðar Roosevelts. Þama er við ramman reip að draga og hug- myndir Reagans um samdrátt fjarri því að auka honum vinsældir. Reag- an á það einnig til að taka upp baráttumál sem fyrir löngu em töp- uð. Skortur á dómgreind? f kosningabaráttunni árið 1980 vildi Reagan halda áfram að berjast fyrir óbreyttri stöðu Taiwan og styðja kröfur stjómarinnar þar til valda á meginlandi Kína. Hann var þó um síðir talinn á að gleyma mál- inu og Ieggja áherslu á aðra hluti. Samt sýnir þetta mál þrjósku Reag- ans sem oft kemur honum í koll. Upphaf afskipta Reagans af stjóm- málum má rekja til ársins 1940. Þá bauð hann sig fram til þings fyrir demókrata en náði ekki kjöri. Það var ekki fyrr en árið 1962 sem hann skipti um flokk og hóf að starfa fyrir repúblikana og hefur verið einn af áhrifamönnum þess flokks síðan. Þegar eftir að ósigur Goldwaters varð ljós árið 1964 hóf hann að gagn- rýna flokksmenn sína fyrir að hafa ekki stutt sinn mann af alhug. Hann líkti þeim flokksmönnum, sem ekki höfðu fylgt Goldwater, við svikara og taldi þá gengna í lið með sósíalist- um. Þá þegar kom fram sú hugmynd í Repúblikanaflokknum að útnefna Reagan sem næsta forsetaefni flokksins. Það væri þó maður sem gæti barist við „sósíalistana“. Svo fór þó ekki heldur var ákveðið að hann reyndi sig við embætti ríkis- stjóra í Kalifomíu. Repúblikaninn Georg Murphy náði góðum árangri þar í kosningum til öldungadeildar- innar. Reagan vann auðveldan sigur í ríkisstjórakosningunum í Kalifor- níu árið 1966. Síðar minntist hann þessara kosninga sem einstaklega auðveldra. Hann hafi jafnvel getað lagt sig síðdegis þá daga sem kosn- ingabaráttan stóð. Leikarinn sigraði Eftir kosningamar var mest mál gert úr ósigri demókrata. Þeir hafi treyst á að kvikmyndaferill Reagans mundi rýra álit almennings á honum sem stjómmálamanni. Reyndin varð allt önnur þá og hefur alla tíð verið á þann veg. Það hefur aldrei dugað að lýsa honum sem ómerkilegum kvikmyndaleikara. Þessi sigur Reagans í Kalifomíu varð til að auka trú hægri arms Repúblikanaflokksins á Reagan sem vænlegum forsetaframbjóðanda. Þeir áköfustu rem að því öllum árum að koma honum að þegar árið 1968. Reagan neitaði því í fyrstu og ætlaði að sitja áfram sem ríkisstjóri í Kali- fomíu. Þar kom þó að hann gaf kost á sér gegn Nixon sem hafði betur. Það var síðan ekki fyrr en árið 1976 að Reagan gaf aftur kost á sér eftir að repúblikanar höfðu gengið í gegn- um mesta niðurlægingarskeið sögu sinnar eftir Watergatehneykslið. Frækinn sigur Sagt var að alla alvöm hefði vant- að í framboð Reagans fyrst þegar hann reyndi. Árið 1976 var annað uppi á teningnum. Hann var ákveð- inn í að ná útnefhingu en varð frá að hverfa fyrir Gerald Ford sem síðan tapaði í forsetakosningunum fyrir Jimmy Carter. En í kosningunum árið 1980 var röðin óumdeilanlega komin að Reagan. Hann lagði allt undir og vann glæstan sigur á Cart- er. Reagan var í sturtu þegar andstæð- ingur hans hringdi og óskaði honum til hamingju með embætti forseta Bandaríkjanna. Þar með var sonur skósalans frá Tampico kominn í eitt valdamesta embætti heims. Hann ætlaði að verða fótboltastjama en náði því aldrei. Hann ætlaði að verða kvikmyndastjama en náði því heldur ekki. Það hafði gengið á ýmsu fram- an af ferli hans sem stjómmála- manns en þar kom að hann varð yfirburðasigurvegari. Daginn eftir rifjaði hann á blaða- mannafundi upp sögu sem Abraham Lincoln átti að hafa sagt eftir að hann var kjörinn forseti i fyrsta sinn. „Nú er erfiðinu lokið hjá ykkur,“ sagði hann við blaðamennina, „en vinnan er rétt að byrja hjá mér.“ Þetta er enn eitt dæmið um ánægju Reagans af að segja allt með stuttum sögum. Hann var sannarlega í essinu sínu þennan dag. Þjóðarstoltið Hann hikaði ekki við að taka sam- líkingu af Lincoln sem er nánast helgur maður í Bandaríkjunum. Re- agan gerði það hiklaust því fátt í sögu Bandaríkjanna vekur upp sterkari þjóðemistilfinningu en minningin um Lincoln. Það var því ljóst frá fyrsta degi hvaða stíl Reagan ætlaði að tileinka sér í Hvíta húsinu. Nú átti að hefja Bandaríkin aftur til fyrri virðingar eftir mörg áföll á liðn- um áratug. Reagan dró ekki dul á að hann kunni vel við að vera líkt við stór- mennin í sögu Bandaríkjanna. Mörgum þykir hann líkastur Eisen- hower í að láta forsetaembættið líta út eins og því fylgi ekki meira erfiði en að stjóma smábæ. Og trúna á framtíð Bandaríkjanna eiga þeir sameiginlega og ef til vill það einnig að vilja ekki gera hlutina flóknari en þeir þurfa að vera. Reagan hefur heldur ekki áhuga á að hafa of mik- il afskipti af stjóm ríkisins. Hann leggur mikið upp úr að velja sér hæfa ráðgjafa og lætur sér nægja að leggja línumar. Embætti forseta virðist heldur ekki reyna mikið á Reagan. Hann hefur lítið látið á sjá eftir að hann kom í Hvíta húsið. Það er ólíkt Carter sem virtist eldast mjög ört eftir að hann var forseti. Hann virðist taka lífinu létt. Sem stjómmálamaður er hann hreinn og beinn en virðist jafnvel bamalegur á köflum og tekur það ekki nærri sér þótt honum verði á í messunni. Að baki sér á hann ekki ýkja öflugt eða fjölmennt lið. Honum hefur aldrei verið sýnt um að mynda bandalög í pólitíkinni. Hann hefur mest hugsað um að koma til dyranna eins og hann er klæddur og annað hvort dugar það eða ekki. Ekki svo gamall Hann leggur mikið upp úr að eyða öllum áhyggjum almennings af aldri sínum. Hann vill láta líta út fyrir að hann sé fær í flestan sjó þrátt fyrir aldurinn og virðist hafa tekist allvel upp í því. Þegar hann var endurkjör- inn árið 1984 sagði hann að þetta væri aðeins byrjunin. Samt er erfitt að fá fólk til að gleyma því algerlega að maðurinn er á áttræðisaldri. Þegar Reagan er líkt við Eisen- hower gleymist oft að Reagan á ekki að baki þá reynslu í hemaði sem réð mestu um að Eisenhower var kjörinn til forseta. Fyrir vikið nýtur Reagan ekki þess trausts, þegar kemur að hermálum, sem Eisenhower gerði. Eisenhower var af almenningi talinn vera snillingur í herstjómarlist. Þar verða menn oftar til að líkja Reagan við rata. Hann er jafn yfirlýsinga- glaður þegar kemur að viðkvæmum þáttum í utanríkisstefnum Banda- ríkjanna og í öðmm og léttvægari málum. Sem forseti hefur hann hugs- að mest um að vekja stolt Banda- ríkjamanna að nýju en gerir sér ekki rellu út af leiðunum að því marki. Ekkert mál að vera forseti Margir segja að í embætti forseta fylgi Reagan sömu stefnu og þegar hann var ríkisstjóri í Kalifomíu. Þegar Reagan hefur háð kosninga- baráttu eftir að hann var ríkisstjóri hefur hann oft bent á að Kalifomía sé meðal stærstu ríkja heims og staða ríkisstjóra eitthvert umsvifamesta embætti í bandarískum stjómmálum. Það sé því bitamunur en ekki fiár á embættum ríkisstjóra í Kalifomíu og forsetaembættinu. Hann hefur minna viljað gera úr því að ríkisstjóri Kalifomíu hefur ekki utanríkismál á sinni könnu, þar þarf ekki að leggja fé til landvama og litlar áhyggjur að hafa af stjórn efnahagsmála á landsvísu. Samt leggur Reagan áherslu á að stjórn ríkisins sé þegar allt kemur til alls einföld og auðveld. Enginn efast þó um að vandamálin í samskiptum risaveldanna eru allt annað en einföld. Meðal Bandaríkja- manna hefur stundum borið á ótta við að Reagan sé ekki nægilega út- smoginn til að mæta fulltrúunum frá Kreml. Þar hafist aðeins við refir sem leiki á forsetann þegar kemur að við- kvæmum málum. Þannig verður stíll forsetans bæði til að tryggja honum vinsældir og vekja upp efasemdir um hæfni hans. En Reagan ætlar að hitta Gor- batsjov í Reykjavík og lætur lönd og leið allar efasemdir um að hann hafi ekkert í klæmar á rússneska birninum að gera. En það er á fund- um sem þessum sem fram kemur hvað í gamla manninum býr. GK Hamingjusöm fjölskylda í Hvíta húsinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.