Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1986, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1986.
17
íþróttir
Ákvörðun mótanefndar HSÍ um frestun Fram - KR vekur mikla athygli
„Samgönguerfiðleikar vegna veðurs
ástæðan fyrir frestun leiksins“
- segir Jón Hjaltalín Magnússon, fomi.HSÍ. Skipta starfsreglur orðið engu máli?
„Við fengum bréf frá stjóm hand-
knattleiksdeildar Fram og það var
tekið fyrir á stjómaríundi. Samþykkt
var að boða stjóm handknattleiks-
deildar Fram á okkar fundsagði Jón
Hjaltalín Magnússon, formaður HSI,
í samtali við DV í gærkvöldi en þá
var nýlokið mjög löngum stjómar-
fundi hjá Handknattleikssambandi
íslands.
Um fátt hefur verið meira rætt síð-
ustu daga en þá ákvöiðun mótaneínd-
ar HSÍ að fresta leik Fram og KR í
1. deild íslandsmótsins sem fara átti
fram á sunnudagskvöld. Allar starfs-
reglur mótanefridar vom brotnar og
svo virðist sem forráðamenn hand-
knattleiksins láti sér í réttu rúmi liggja
þótt reglur séu brotnar og áhorfendur
blekktir hundmðum saman í Laugar-
Michel Piatini lék sinn 70.
landsleik á laugardag og var
dapur.
dalshöllina. Jón Hjaltalín var í
gærkvöldi spurður að.því hvort honum
þætti að farið hefði verið að lögum í
þessu máli. Hann sagði: „Mér finnst
þetta íþróttaleg afstaða og hún er tek-
in alveg samkvæmt lögum. Mér finnst
að skynsamlega hafi verið haldið á
málum í þessu ákveðna tilfelli.
Samgönguerfiðleikar vegna
veðurs?
í reglugerð HSÍ um handknattleiks-
mót segir svo í 12. grein: „Óski félag
eftir frestun á leik í mótum á vegum
HSÍ skal skrifleg beiðni þar um send
formanni mótanefhdar eða skrifstofú
HSÍ í ábyrgð eða skeyti með minnst 7
sólarhringa fyrirvara nema veigamikl-
ar ástæður liggi fyrir frestunarbeiðni.
Veigamiklar ástæður em:
1. Samgönguerfiðleikar vegna veðurs
2. Farsóttir
3. Leikmenn em fjarverandi á vegum
HSÍ
Mótanefnd úrskurðar um fresti án
tafar og tilkynnir formönnum deilda
viðkomandi félaga, í ábyrgð eða
skeyti, svo og öðrum þeim sem málið
kann að varða.“
Alls ekki er hægt að segja að nein
af þeim þremur veigamiklu ástæðum,
sem tilgreindar em í reglugerðinni,
hafi verið til staðar á sunnudag. Eng-
ir leikmenn KR vom fjarverandi á
vegum HSÍ. Engar farsóttir geisuðu.
Engir samgönguerfiðleikar vom til
staðar vegna veðurs.
„Samgönguerfiðleikar vegna
veðurs“
Jón Hjaltalín var því næst spurður
að því hvort mótanefhd hefði farið að
lögum í þessu máli. Formaður HSÍ
brást hinn versti við en sagði síðan:
„f reglugerðinni em taldar upp þrjár
veigamiklar ástæður; Samgönguerfið-
leikar vegna veðurs, farsóttir og að
leikmenn séu fjar\’erandi á vegum
HSÍ.“
Á einhver þessara veigamiklu
ástæðna við í þessu tilfelh?
„Já, samgönguerfiðleikar vegna
veðurs. Leikmaðurinn komst ekki í
leikinn," sagði Jón Hjaltalin, formað-
ur HSÍ.
„Búnir að fá nóg“
„Við eigum alls ekki í stríði við KR
í þessu máli. Það eina sem við viljum
er að leikið sé eftir leikreglum innan
vallar sem utan hans,“ sagði Brynjar
Stefánsson hjá handknattleiksdeild
Fram er við slógum á þráðinn til hans
í gærkvöldi. Hann bætti við: „Það er
ekki séð fyrir endann á þessu máli
ennþá. Við erum í sannleika sagt bún-
ir að fá nóg af svona mgli hjá HSÍ
og því að traðkað sé á ukkur.“ -SK.
„Fordæmi er
ig tilkynnir formönnum deilda ástæðna við í þessu tilfelli? | Æm g| _ _ g| JL í |
línmiA iit í ■ lynr nendi
11 I llw Uí WB I I - segnr Kristján Öm, formaður handknattleiksdeildar KR I
‘ _ _ 1 í*rr olríl nA vnöwvil lm »♦ l \ rí\r\ Pn AV* í kmvon mnli fnwník <iA lAnf I
hreinar öfgar“
- segir ión H. Guðmundsson, form. mótanefndar |
„Ég tel að umræðan um þetta mál
sé öll komin út í hreinar öfgar. Þetta
er slæmt mál fyrir alla aðila og ég tel
mikilvægt að allir aðilar geri sér ljóst
að þessi ákvörðun var tekin vegna
mjög einkennilegra aðstæðna í þjóð-
félaginu," sagði Jón H. Guðmundsson,
formaður mótaneftidar HSÍ, í samtali
við DV í gærkvöldi.
„Ég fékk að vita af þessu máli um
klukkan sex á sunnudag. Formaður
handknattleiksdeildar KR hringdi þá
í mig og sagði mér að þeir þyrftu að
fá frestun á leiknum við Fram. Mér
fannst erfitt að haiha þeirri beiðni
vegna þess að fordæmi var fyrir slíkri
frestun. Um tvennt var að ræða, láta
leikinn fara fram eða fresta honum. í
samráði við Jón Hjaltalín Magnússon,
formann HSÍ, var síðan ákveðið að
fresta leiknum. Ég held að aðstæður
í þjóðfélaginu vegna leiðtogafundarins
hafi fyrst og fremst ráðið því að ákveð-
ið var að fresta leiknum."
- Nú var um að ræða einn leikmann
hjá Fram en þijá hjá Stjömunni.
Skipti það engu máli?
Nei, það skipti ekki öllu máli. Þessir
menn vinna allir við sömu störf. Að
mínu mati er þetta leiðindamál og að
vissu leyti hef ég samúð með frömu-
rum. En ég vil leggja áherslu á að
reynt verður að leysa þetta mál innan
handboltans ef svo má að orði kom-
ast,“ sagði Jón H. Guðmundsson.
-SK
„Ég skil að mörgu leyti von-
brigði Framara en það breytir ekki
þeirri staðreynd að við fórum fram
á að leiknum yrði frestað og það
fékkst í gegn,“ sagði Kristján Öm
Ingibergsson, fonnaður hand-
knattleiksdeildar KR, í samtali við,
DV í gærkvöldi.
„Ef við hefðum átt að leika gegn
Fram á laugardag þá hefðum við
fengið leiknum frestað. Ef hann
heföi verið á dagskrá klukkan tvö
á sunnudaginn hefðum vid fengið
honum frestað. Fyrir þessu er for-
dæmi frá leik Stjömunnar og
Breiðabliks. Það er rétt að við
báðum ekki um frestun fyrr en Ijóst
var að Hans Guðmundsson gat
ekki leikið. Þar eð hann var í þegn-
skylduvinnu fannst mér mjög
sanngjamt að leiknum skyldi
frestað. Að mínu mati var þetta
spuming um réttlæti og fordæmi."
KR
En er í þessu máli farið að lög-
um?
„Þó að mörg góð lög séu til þá
em líka til rnörg ólög. Auðvitað
þarf að koma inn i reglugerðina
ákvæði um þegnskylduvinnuna.
Annars er ég fyrsti maður til að
reyna að koma í veg fyrir allar
frestanir á leikjum. Það kemur
hins vegar ekki annað til greina
en að leika leikinn og hann hefur
verið settur á á fimmtudagskvöld-
ið. Það skiptir engu máli þótt
dómaramir hafi fyllt út leikskýrsl-
una. Þeir ákveða ekki úrslit í leik
sem búið er að fresta. Og það skipt-
ir heldur engu máli þótt í okkar
tilfelli hafi aðeins verið um einn
leikmann að ræða en þijá hjá
Stjömunni. Foniæmið var komið,“
sagði Kristján Öm og bætti því
við að verið gæti að mótanefndin
fengi vítiu. -SK
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
J
„Platini hefði
engu bjargað"
- í Reyhjavík, segir Henri Michel, þjálfari Frakklands
Frakkar hafa nú vaknað upp við
vondan draum. Þeir eiga nú ekki leng-
ur eitt besta knattspymulandslið
heims. Það er greinilegt að leikmenn
eins og Alain Giresse, Dominique Roc-
heteau og Maxime Bossis, sem em
hættir að leika með landsliðinu, og
Michel Platini, sem er nú í lægð, hafa
skilið eftir sig stór skörð.
„Það er greinilegt að Platini hefur
ekki náð sér eftir meiðslin sem hann
hefur átt við að stríða," sagði Henri
Mifchel, landsliðsþjálfari Frakklands.
Frakkar hafa leikið tvo leiki í Ev-
rópukeppni landsliða, gerðu jafhtefli,
0-0, við Islendinga og töpuðu, 0-2, fyr-
ir Rússum í París. „Þetta er mjög slæm
byijun hjá okkur og það er nær ljóst
að við náum varla að veija Evrópu-
meistaratitilinn," sagði Michel.
„Nei, ég sé ekki að við höfúm unnið
sigur í Reykjavík með Platini í liðinu.
Auðvitað er Platini afar snjall með
knöttinn en hann hefúr hreinlega ekki
fengið tækifæri til að sýna neitt gegn
baráttuglöðum íslendingum," sagði
Michel.
Menn velta því nú fyrir sér hvort
veldi Frakka sé fallið. Hvað em þeir
án Platini á fullum dampi? Hvað varð
um Brasilíu án Pele og Hollendinga
án Johann Cruyff? Hvað verður um
Argentinu án Maradona?
Á sama tíma og Frakkar em að
komast í öldudal era Rússar á hraðri
leið upp á við. Þeir sýndu það í París
þar sem þeir léku mjög góða knatt-
spymu. -sos
SJALFSTÆDISMENN
Veljum
Guðmund H.
Garðarsson
3sæti
■
Kosningaskrifstofan er á jarðhæð Húss
verslunarinnar, gengið inn Miklubraut-
ar megin.
Skrifstofan er opin frá 9.00-22.00 og
símar eru 681841 og 681845.
Stuðningsmenn.