Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1986, Blaðsíða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Madeleine
Svíaprinsessa
sá um að skemmta föður sínum
meðan Silvía drottning brá sér
til Þýskalands vegna veikinda
föður síns. Litla prinsessan var
á útopnu alla dagana og mátti
kóngsi hafa sig allan við að elta
þá stuttu. Karl Gústaf gegndi
hlutverki barnfóstru á meðan
eiginkonan var fjarri og þótti
standa sig með ágætum í hlut-
verkinu.
Karólína
af Mónakó
er bitur yfir umfjöllun um ófrjó-
semi eiginmannsins Stefanos'
og segir að baki liggja hreinan
illvilja í þeirra garð. Allar upplýs-
ingar um undanþágu makans
frá herþjónustu hafi legið fyrir
árum saman. Hins vegar þótti
fæðing annars barnsins gullið
tækifæri til að blása upp fréttirn-
ar en um leið að reyna að spilla
einlægri gleði fjölskyldunnar yfir
barnsfæðingunni. Það er víst
ekki tómur dans á rósum að
vera frægur og ríkur i henni ver-
öld.
Joseph
Kennedy
yngri er greinilega það sem
koma skal í Kennedyklaninu.
Flestir veðja á hann sem næsta
stjórnmálaskörung ættarinnar
og síðasta afrek hans var að fella
andstæðing sinn meó miklum
glans I kosningum. Sá fallni á
ekki síður til frægra aó telja,
hann heitir James Roosevelt og
er sonarsonur Franklins D. Ro-
osevelt sem þrisvar hlaut kosn-
ingu sem forseti Bandarikjanna.
Hver er
konan?
Stúlkan á myndinni varð síðar ein frægasta söngkona veraldar. Gekk und-
ir nafninu spörfuglinn Edith Piaf þekkja allir. Hún söng sig inn í hjörtu
hins vestræna heims en átti ákaflega erfítt með að höndla hamingjuna í einka-
lífi. Þarna er hún fjögurra ára gömul, heitir því myndarlega nafni Edith
Giovanna Gassion og er ljósmynduð í einni af hliðargötunum við Pigalle í
París.
Gullöld hippanna til sölu
Einu sinni vildu allir vera hippar. Nú vilja allir vera uppar nema fáeinar
eftirlegukindur sem aldrei geta gleymt árum blóma og friðar. Fyrir þær og
aðra forvitna fer nú óðum í vöxt að haldin séu samkvæmi þar sem sungið er
að hætti sjöunda áratugarins og klæðnaðurinn er frá þeim tíma. Þangað
koma gamlir hippar með börnin sín, sem gjarnan eru um tvítugt, og lifa að
nyu horfna daga.
í Ameríku, þar sem allt getur gerst, hafa verið opnaðir skemmtistaðir sem
bjóða ekkert annað en hippastemmningu. Á Manhattan er einn slíkur stað-
ur sem kallaður er Sweetwater. Hann var endurgerður fyrir tæpu ári og
kostaði um 80 milljónir að koma honum aftur um tvo áratugi í tíma. Þá
upphæð hafa eigendumir grætt aftur og gott betur.
Gráðugri menn en nokkur sannur hippi hefur nokkurntíma orðið hafa lagt
stórfé í að koma á fót farandsýningum þar sem getur að líta stælingar á
goðsagnavemm hippaáranna. Á þessu má græða vel og halda fjölda manns
uppi við uppalifnað. Þannig eru örlögin grimm en hvað um það. Allir virð-
ast skemmta sér vel.
Þetta er ný mynd af gömlum draumum.
Friðaður frá
Ekki leikur nokkur vafi á því að
eftir heimsókn leiðtoganna tveggja
hafa íslenska lögreglan og toll-
gæslan í Keflavík öðlast mikilvæga
reynslu. Til að mynda er nú alveg
á hreinu útlitsmunurinn á hryðju-
verkamönnum og friðarboðum.
Meðfylgjandi DV-mynd BG sýnir
okkur einn úr flokki hinna síðar-
nefndu - Austurríkismanninn
Waluliso þar sem hann stendur
með luktina og eplið í hjarta
Reykjavíkur. Að baki glittir í
Svörtu Maríu en fulltrúar laganna
handtóku hina vappandi friðardúfu
með reglulegu millibili á meðan
Ieiðtogafundirnir stóðu yfir.