Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986.
9
DV
Ferðamál
Æfingar á staðnum
Flugfarþegar eiga ekki margra
kosta völ að teygja úr sér á löngum
flugferðum. Flugvélar eru langsam-
lega oftast frekar þröngar vistarver-
ur og svo pakkaðar af fólki að ekki
gefst tækifæri til mikillar hreyfing-
ar. Þess vegna hefur einhver hug-
vitssamur áhugamaður um
líkamsrækt fundið upp líkamsæfing-
ar einmitt fyrir flugfarþega.
Þetta eru átta æfingar sem gott
er að notfæra sér í næstu flugferð.
1. Æfingar í sætinu
Ágætis upphitunaræfingar. Not-
aðu einfaldar, jafnar hreyfingar og
eins marga vöðva líkamans og frek-
ast er unnt. Stígðu í tæmar og lyftu
hælunum eins hátt og þú frekast
getur. Um leið skaltu rétta úr hand-
leggjunum og beygja þá til skiptis
og mgga þér fram og aftur í sætinu
samtímis eins og þú værir á gangi.
Gerðu þessa æfingu i þrjár mínútur.
2. Lyftu þér upp á tærnar
Þessi æfing eykur blóðstreymið til
fótanna. Sittu með olnbogana á
hnjánum, beygðu þig fram á við og
þiýstu öllum líkamsþunganum á
hnén. Stígðu í tæmar með hælana
eins hátt og þú getur. Láttu hælana
síga og lyftu tánum frá gólfinu. End-
urtaktu æfinguna þrjátíu sinnum.
3. Axlaæfingar
Endumæra liðamót og slaka, á
axlavöðvunum. Hreyfðu axlimar
varlega og með jöfnu millibili líkt
og í stóra hringi bæði fram á við og
aftur á bak.
4. Höfuðhreyfingar
Örva blóðrásina til hálsliðanna og
efsta hluta hryggjarins. Snúið höfð-
inu eins langt til hægri og mögulegt
er. Kinkið nokkrum sinnum kolli.
Snúið síðan höfðinu til vinstri og
Það er ekki nógu gott að eyða flugtimanum i að borða og lesa skemmtiblöð.
Notið timann og gerið líkamsæfingar.
Opið hús - Háskóli íslands
Munið opna húsið í Háskóla íslands á morgun, sunnu-
dag, frá kl. 10-18.
Alls verða 19 byggingar opnar. - Allir velkomnir.
Háskóli íslands.
''/'V/M
\ Utboð -
vegagerðin Snjómokstur
Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum i snjómokstur á eftirtöldum
vegum:
1. Norðurlandsvegur, Akureyri - Kross (45 km).
2. Norðausturvegur, Kross - Húsavík, (44 km).
3. Norðausturvegur, Auðbjargarstaðir - Kópasker (60 km).
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri og Húsa-
vík frá og með 20. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 3. nóvemb-
er 1986.
Vegamálastjóri.
kinkið kolli. Endurtakið þessa æf-
ingu sex sinnum.
5. Beygjur fram á við með
magann inn
Örva þarmastarfsmi og auka
blóðrásina. Dragðu magann eins vel
inn og mögulegt er. Beygðu efri
hluta líkamans fram á við um leið
og þú lyftir fótunum upp af gólfinu
eins hátt og þú getur. Láttu síðan
tæmar aftur nema við gólfið, slak-
aðu á magavöðvunum óg reistu
líkamann aftur. Endurtakið þrjátíu
sinnum.
6. Handasnúningur
Endumærir hendumar. Snúið
höndunum og teygið úr fingrunum.
Slakið á í eðlilegri handa- og fingra-
stöðu. Endurtakið fimmtán sinnum.
7. Fótahreyfingar
Endumæra ökklana. Hreyfið fæt-
uma í eins stóran hring og gólfrýmið
leyfir. Þetta er mjög góð fótaæfing.
Endurtakið hana fimmtán sinnum.
8. Hnén upp að olnboga
Örvar blóðrásina. Lyftu til skiptis
hægra og vinstra hné alveg upp að
öndverðum olnboga. Endurtakið
fimmtán sinnum hvorum megin.
Einnig fyrir framan sjónvarpið
Það væri kannski ekki úr vegi að
notfæra sér þessar líkamsæfingar
þegar við sitjum fyrir framan sjón-
varpið. Það er enginn vandi að
stirðna þar rétt eins og þegar flogið
er í háloftunum í þröngu flugvélar-
sæti.
En líkamsræktarráðunum fyrir
flugfarþega lýkur á því ráði að þegar
komið sé í flughöfhina sé ráðlegt að
bera farangurinn sinn sjálfur. Þann-
ig verður að taka heilmikið á og
reyna á vöðva sem sjaldan em not-
aðir. Og við liðkumst ekki aðeins
heldur eyðir þetta einnig hitaeining-
um og hverjum veitir af þvi?
A.Bj.
VEITIR FULLKOMIÐ ORYGGIIVETRARAKSTRI
Öruggari akstur á
ísilögðum vegum.
Gott veggrip í brekkum Góðir aksturseiginleikar á
með lausum snjó. ójöfnum vegum.
Stöðugleiki í hálku. Góðir hemlunareiginleikar
við erfiðar aðstæður.
'
Goodyear vetrardekk eru úr sérstakri gúmmíblönd'
með munstri sem gefur dekkinu mjög gott veggrip
Goodyear vetrardekk eru hljóðlát og endingargóð.
LEIÐANDI í VERÖLD TÆ.KNIÞRC
Goa
HEKLA HF
Laugavegi 170-172 Sími 28080 695500