Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Page 15
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986.
15
Bróðurparturinn af landhemum í
Asíu er við landamæri Sovétríkjanna
og Kína. Þar á móti hafa Kínverjar
um eina og hálfa milljón hermanna.
Öflugir á landi
Talið er að Sovétmenn hafi um 80
flugvélar af gerðinni Backfire í Asíu.
Þeim er hægt að fljúga mjög lágt
þannig að þær sjást illa í radar. Fyr-
ir vikið er talið að Kínverjar geti
ekki varist árásum þeirra. Þessum
vélum má og fljúga langt út á Kyrra-
hafið. Þær eru búnar flugskeytum
sem hæfa skotmörk í allt að 200
mílna fjarlægð.
Þessu til viðbótar hafa Sovétmenn
komið fyrir meðaldrægum eldflaug-
um af SS 20 gerð í Asíu. Japanir segja
að flaugarnar séu ekki færri en 165
og hefur þeim verið fjölgað allra síð-
ustu ár.
Þannig verða vaxandi umsvif Sov-
étmanna í Asíu í tölum talin. Annað
mál er síðan með áhrifin. Af hálfu
Bandaríkjamanna er litið á þessa
þróun sem ögrun við hagsmuni
þeirra. Caspar Weinberger, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
varaði Sovétmenn við því þegar hann
var í Japan nýverið að þeir hefðu
„farið út fyrir þau mörk í hernaðar-
uppbyggingu sem telja mætti að
kæmi að notum við vamir ein-
göngu."
Síðustu misseri hafa ríki við
Kyrrahaf svarað umsvifum Sovét-
manna í sömu mynt. Á næstu árum
á að fjölga skipum í Kyrrahafsflota
Bandaríkjamanna um 10%. Þau skip
sem fyrir em hafa verið búin betri
vopnum. Bandaríkjastjóm hefur og
hvatt bandamenn sína, sérstaklega
Japani, til að fylgja fordæminu og
efla herstyrk sinn. Einkum er lögð
áhersla á að Japanir styrki stöðu
sína á hafinu vestan við eyjarnar.
Þar um verður sá floti sem Sovét-
menn hafa í Vladivostok að fara
bæði á leið sinni suður á Kyrrahafið
og norður um.
Standa ekki jafnfætis
Þeir sem gagnrýna Bandaríkja-
stjórn fyrir að leggja aukna áherslu
á varnir við Kyrrahaf segja að her-
styrkur Sovétmanna þar sé stórlega
ofmetinn. Þeir segja að veikleikar
sovéska flotans séu miklir þrátt fyrir
að skip hans séu mörg. Skipin séu
sum hver orðin mjög gömul og úrelt.
Litlu breyti þótt reynt hafi verið að
endurbyggja nokkur þeirra. Sagt er
og að sjóliðar séu illa þjálfaðir.
Mörg skipanna eiga sér langa sögu
bilana. Á árinu 1984 sást t.d. til Sov-
étmanna þar sem þeir drógu logandi
kafbát til hafnar.
Bandaríkjamenn hrósa sér af að
eiga bestu flugsveit í heimi. Hana
hafa áhugamenn um kvikmyndir
fengið að sjá í myndinni Top Gun -
Þeir bestu. Sovétmenn viðurkenna
að sjálfsögðu ekki að þeirra bestu
menn standi Bandaríkjamönnunum
að baki. Enn verður þó sennilega bið
á að Sovétmenn geri sína menn
ódauðlega í kvikmynd.
Viðurkennt er að flotastöðin við
Cam Ranh sé vel í sveit sett en þó
sé sá galli á gjöf Njarðar að hún sé
langt frá höfnum í Sovétríkjunum.
Fyrir vikið eigi Bandaríkjamenn
auðvelt með að einangra hana ef
þurfa þykir.
Þeir bestu
Þá eru Bandaríkjamenn taldir hafa
mikla yfirburði í lofti á Kyrrahafs-
svæðinu. Þar hafa þeir sex flug-
móðurskip með samtals um 500
flugvélum. Á móti hafa Sovétmenn
aðeins tvö skip illa búin.
Nefnd á vegum Bandaríkjastjórnar
hefur komist að þeirri niðurstöðu að
Sovétmenn muni ekki á næstu árum
ná að verða umtalsvert flotaveldi.
Helsta verkefni sovéska flotans sé
að gæta kjarnorkukafbátanna sem
allajafna eru nærri ströndum heima-
landsins. Því eigi Sovétmenn lítið
erindi út á úthöfin með herskipa-
flota. .
Embættismenn í Japan og Ástralíu
hafa bent á að vaxandi floti Sovét-
manna, hvort sem hann hefur
stækkað eins mikið og sagt er eða
ekki, sé fyrst og fremst ætlað póli-
tískt hlutverk. Þessir segja að til-
gangur Sovétmanna sé fyrst og
fremst að kanna hvar þeir standi og
fá skýrt fram viðhorf Kyrrahafsríkja
gagnvart Sovétríkjunum.
Nýjar áherslur
Þessi yfirlýsing hefur orðið að eins
konar tákni fyrir breytta utanríkis-
stefnu Sovétmanna enda allt gert til
að koma ræðunni á framfæri. Hingað
til hefur utanríkisstefnan miðast við
Evrópu í aðalatriðum. Nú hafa Sov-
étmenn opnað austurgluggann.
Ef til vill átti það að gefa ræðunni
meiri þunga að hún var flutt í
Vladivostok, bækistöð Kyrrahafs-
flotans. Það þykir þó kaldhæðnislegt
að um höfnina þar fer hverfandi lítið
af varningi þótt staðurinn liggi vel
grafa ættingja sinna á Kurileyjum.
Slíkt hefur ekki gerst árum saman.
Átvik eins og þessi vekja meiri at-
hygli fyrir þá sök að á sama tíma er
ýmislegt á huldu um stöðu Banda-
fíkjanna við Kyrrahaf.
Þar má nefna að óvissa ríkir um
framtíð flotastöðvanna á Filippseyj-
um. Samningurinn við Filippseyinga
um þessar flotastöðvar rennur út.
árið 1991. Corazon Aquino hefur að
vísu sagt að hún leggist ekki gegn
veru Bandaríkjamanna á eyjunum
en engu að síður er vitað að þeir
mæta þar vaxandi aðstöðu. Banda-
rísk hernaðaryfirvöld segja að
ekkert geti komið í staðinn fyrir að-
stöðuna á Filippseyjum. Þó að sumir
efist um þá fullyrðingu þá yrði engu
að síður mjög kostnaðarsamt að
byggja upp nýja aðstöðu í staðinn
fyrir þá sem gæti tapast á Filippseyj-
um.
Þá hefur sambúð Nýsjálendinga og
Bandaríkjamanna farið versnandi
vegna banns þeirra við að skip með
kjarnorkuvopnum komi til hafnar á
eyjunum. Nokkur ríki við sunnan-
vert Kyrrahaf hafa fylgt í fótspor
Nýsjálendinga og lýst yfir sams kon-
ar banni.
HAUSTLAUKAÚTSALA
Virðingarleysi við banda-
menn
Telja verður að Bandaríkjamenn
geti sjálfum sér um kennt að sambúð-
in við ýmis Kyrrahafsríki hefur farið
versnandi. Bandaríkjamenn hafa
undanfarið talið sig eiga stuðning
þessara ríkja vísan og lítið hirt um
að rækja samvinnuna við þau. Við
þetta bætist að bandarísk útgerðar-
fyrirtæki neita allajafna að greiða
gjald fyrir fiskveiðar i landhelgi
þessara ríkja. Þannig var ástandið
við Kiribatieyjar þegar eyjaskeggjar
seldu Sovétmönnum fiskveiðiréttindi
þar.
Nú eru þess þó ýmis merki að
Bandaríkjamenn ætli að breyta
stefnu sinni í fiskveiðimálum og
borgi eftirleiðis fyrir fiskveiðileyfi í
landhelgi annarra ríkja. Þetta kann
þó að vera of seint því Sovétmenn
eru hinir liðlegustu í samningum um
fiskveiðar á þessu svæði og borga vel.
Alvara þessa máls hefur orðið
Bandaríkjamönnum ljós eftir að þeir
fóru að huga að flotauppbyggingu
Sovétmanna á Kyrrahafinu. Þeir ótt-
ast greinilega að samningar um
fiskveiðar séu aðeins upphafið að
sókn Sovétmanna út á Kyrrahafið.
Þýtt/GK
Þótt sovéski flotinn hafi ekki yfir mörgum flugvélum að ráða við Kyrrahafið þá er talið víst að þær standi fyrir sinu.
„Ég held að ógnunin frá Sovét-
mönnum sé ætluð fyrir friðartíma
fremur en ófrið,“ er haft eftir japön-
skum sérfræðingi í varnarmálum. Ef
það er erfitt að meta hernaðarlega
stöðu Sovétmanna á Kyrrahafi þá
er ekki síður vandasamt að meta
pólitísk áhrif af hernaðarumsvifum
þeirra.
Uppbót
Margir sérfræðingar álíta að Sov-
étmenn langi til að vinna það upp
með glæsilegum flota sem þeim hefur
mistekist að ávinna sér með dipló-
matískum aðferðum. Hvergi í lönd-
unum við Kyrrahafið hafa
Sovétmenn umtalsverð pólitísk og
efnahagsleg áhrif. Það er miklu
fremur að þeir hafi fjarlægst þessi
lönd eftir innrásina í Afganistan og
árásina á kóresku farþegaflugvélina.
Sovétmenn halda þó góðum sam-
skiptum við Norður-Kóreu, Víetnam
og styðja stjórnirnar í Kambútseu
og Laos. En allir þessir bandamenn
eru fremur baggi fyrir Sovétmenn en
að þeir hafi hagnast svo nokkru nemi
á viðskiptunum við þá. Og þessi lönd
standa þeim langt að baki þar sem
efnahagsþróun er örust við Kyrra-
hafið. Skipti Sovétmanna við ríkin
þar sem efnahagsþróunin er örust er
aftur á móti hverfandi lítil ef þá
nokkur.
Bandaríkjamenn hafa aftur á móti
víðtæk viðskipti við þessi lönd þrátt
fyrir að nokkuð hafi borið á tog-
streitu milli þeirra á síðustu misser-
um. Undanfarin tíu ár hafa viðskipti
Bandaríkjamanna við Kyrrahafs-
lönd þrefaldast. Á sama tíma standa
Sovétmenn algerlega utan við við-
skipti við þessi lönd. Vitað er að
Gorbatsjov hefur áhuga á að breyta
þessu. Um það vitnar m.a. ræða sem
hann hélt í Vladivostok nýverið þar
sem hann minnti á að Sovétríkin eru
líka Asíuríki.
við verslun. En allt um það þá talaði
Gorbatsjov um samvinnu við ná-
grannana en ekki herstyrk Sovét-
manna á staðnum.
I þessari sömu ræðu boðaði hann
fækkun í herliði Sovétmanna í Afg-
anistan, að vísu óverulega, og óskaði
eftir samningum við Kínverja um
gagnkvæma fækkun í landamæra-
herjum ríkjanna. Þá endurtók hann
gamalt boð um eins konar Helsinki-
sáttmála fyrir ríki við Kyrrahaf.
Sovétmenn hafa leitað eftir meiri
viðskiptum við Japani. Er talið að
það fari saman við áhuga Gor-
batsjovs á að auka afköst í sovésku
efnahagslífi. Til að ná markmiðum
sínum heima fyrir gæti japönsk
tækniþekking komið að góðum not-
um. Sévardnadse fór i opinbera
heimsókn til Japan í upphafi árs og
vildi greinilega að sambúðin við Jap-
ani batnaði frá því sem var á tíma
Gromykos.
Vandræði hjá Bandaríkja-
mönnum
Þá er það talið til vitnis um að
Sovétmenn langi að vingast við Jap-
ani að nýlega leyfðu þeir nokkrum
japönskum fjölskyldum að vitja