Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Side 17
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986. 17 evringur og blaöamaður, leikur Georg, eiginmann Stellu. Hann var í reynd allur lemstraður eftir mynd- ina. Gestur hefur áður leikið I myndunum Útlaginn, Gullsandur og Með allt á hreinu. DV-mynd JGH Tveir vanir að norðan, Þráinn Karlsson og Gestur Einar. Gestur með gifs á báðum handleggjum upp í krika, klórar sér í nefinu á öxi Guðrúnar Þorvarðardóttur. Halldór Þorgeirsson fylgist með. Fínn tími Myndin Stella í orlofi var tekin í sumar frá 12. júní og fram yfir versl- unarmannahelgi. Unnið var 17. júní og alla laugardaga. Þetta var tekið með hörkunni sex. „Þetta var feikilega skemmtilegur tími, fínn tími. Sumarfríið fór í þetta og meira til. En að leika í kvikmynd- um eins og þessari er mikil tilbreyt- ing frá blaðamennskunni, þó ég kunni vel við mig í því starfi. Þetta var samheldinn og skemmtilegur hópur. Og þrátt fyrir vosbúð og hrak- farir á stundum var alltaf verið að hugsa um mann.“ Gestur ekki í töku í dag Að sögn Gests eru ótrúlega mörg handtök sem þarf að gera í kringum eina upptöku áður en sjálfir leikar- arnir koma til sögunnar. „Það fer oft stór hluti dagsins í það að bíða. Einn daginn var sett á mig gifs snemma um morguninn. Klukkan fimm um daginn kom svo tilkynning- in: Gestur verður ekki í töku í dag.“ Gestur Einar Jónasson er ekki alls- endis óvanur kvikmyndatökuvél- inni. Stella í orlofi er fjórða kvikmyndin sem hann leikur í. Hann lék Þórð huglausa, þræl Gísla, í Út- laganum. I Gullsandi lék hann sjoppukónginn í sveitinni, en hann kom gullæðinu af stað, og í mynd- inni Með allt á hreinu var það smáhlutverk sem barþjónn. Tólf ár fastráðinn leikari Hann var í nítján ár viðloðandi leikhúsið á Akureyri, þar af tólf ár sem fastráðinn leikari. Hann hefur verið með þætti í Ríkisútvarpinu á Akureyri. Þessa stundina er hann með rabbþáttinn Um náttmál á rás 2 klukkan níu annað hvert fimmtu- dagskvöld. Margir úrvalsleikarar koma fram í myndinni Stella í orlofi, leikarar eins og Laddi, Edda Björgvinsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Öm Áma- son, Pálmi Gestsson, Eggert Þorleifs- son og Gísli Rúnar. Það er semsé allt heila skemmtigengið. Það er kvikmyndafélagið Umbi sem framleiðir myndina Stella í or- lofi. Það stóð einnig að myndinni Skilaboð til Söndru. Þær sem standa að kvikmyndafélaginu eru meðal annarra Guðný Halldórsdóttir (Duna), Ingibjörg Briem, Ragnheiður Harvey og Kristín Pálsdóttir. Þaðersagtað veðríðhafialdreiveriðbetra. Eittervíst. Verðiðhefur sjaldan veriðbetra. Dollarinn erá góðu verði-ogþín bíða lystisemdir Flórída, allt frá dýrindis mat og ævintýraheimi Walts Disneys til tónleika og skemmtana undir berum himni. Líttu til dæmis á þennan útreikning: Verð* Hótel Staður Dvöl A Kr. 21.488 Days Inn Orlando 11 dagar B Kr. 23.952 Dayslnn Orlando 18dagar C Kr. 23.766 Gateway St. Pete 11dagar D Kr. 27.686 Gateway St. Pete 18dagar Koníaksflaska fyrir að demba sér í ána. - Nú fékkstu að finna skemmtilega fyrir því sem Georg, eiginmaður Stellu. Værirðu til í að ganga í gegn- um þetta allt saman aftur? „Já, já, það er engin spurning. En ég get fullvissað þig um að það verð- ur ömgglega ekki farið eins illa með leikara í handriti aftur í bráð. Enda sagði Duna, höfundurinn, við mig: Gestur minn, ef ég hefði vitað að það yrði farið svona illa með þig hefði ég ekki skrifað handritið svona. En þessu fylgdi líka kostur. Eftir að ég fór í ána í fjórða sinn lofuðu þær mér koníaksflösku. Þær stóðu við það. Ég á hana ennþá heima, óupp- tekna, til minningar um gott sumar.“ -JGH s 1 r® Innifalið fiugferðir, akstur til og frá flugvelli og gisting. * Verð á mann í 4ra manna fjölskyldu (tvö böm undir 12 ára aldri). Ótal fleiri otrúlega ódýrir möguleikar. Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiöa, umboösmenn og ferðaskrifstofur. Söluskrifstofan Lækjargötu sími 690100, Hótel Esju slmi 690100, Álfabakka 10 sími 690100. FLUGLEIÐIR Upplýsingasími: 25100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.