Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Qupperneq 20
20
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986.
Rokkspildan
Bandaríski trompetleikarinn Leo
Smith er umdeildur maður. Menn
greinir ekki síður á um tónlist hans.
Tónleikarnir, sem hann hefur til
dærnis haldið hér á landi, hafa orðið
mönnum drjúgt þrætuepli. Tónlistar-
gagnrýnandi var ekki par hrifinn af
spilamennskunni meðan aðrir létu
hrifningu sína óspart i ljós.
Grammið hefur ráðist í að gefa út
plötu með Smith. Hún heitir ein-
faldlega Human rigths, eða Mann-
réttindi. „Það var auðsótt mál frá
hans hendi,“ sagði Örn Þórisson hjá
Gramminu í samtali við DV. „Við
gefum plötuna út í samvinnu við
bandaríska fyrirtækið Captel og
skiptum áhættunni á milli okkar.
Bi'eskt fyrirtæki sér um dreifingu
plötunnar. Við áætlum að henni
verði dreift út um allan heim."
Pólitísk tónlistarbylting
„Þessi plata boðar að mörgu leyti
byltingu á tónlistarferli Smith. Hann
fær til liðs við sig hljóðfæraleikara
úr ólíkum heimshlutum og reynir
þannig að eyða landamærum tónlist-
arinnar. Þess má geta að einn Islend-
ingur kemur fram á plötunni,
Þorsteinn Magnússon gítarleikari.
Platan boðar ekki bara breytingu
í tónlist Smith. Þetta er fyrsta platan
þar sem Smith orðar kastafaritrú-
sína sem hann tók upp fyrir nokkrum
árum. Þar með fetar hann í fótspor
tónlistarmanna eins og Peter Thosh
og fieiri. Kastafaritrúin er gegnum-
gangandi á plötunni ásamt umræðu
um mannréttindi til handa svertingj-
um í Suður-Afríku. Engin af fyrri
plötum Smith er eins pólitísk og
þessi.“
Eigin leiðir
- Að sögn Arnars teflir Grammið
nokkuð á tvær hættur með útgáf-
unni. Þar kemur ýmislegt til.
„Það er hætt við að ýmsum að-
dáendum Smith bregði í brún þegar
þeir hlýða á plötuna. Hún er mikil
breyting á hans ferli. En Smith vill
fara sínar eigin leiðir í tónlistinni.
Hann vill gera það sem hann hefur
ánægju af. Sú afstaða hans hefur
meðal annars leitt til áreksta við
Jass gagnrýnendur. Hann hefur
staðið nokkuð í skugganum undan-
farin ár vegna þess.
En við bindum miklar vonir við að
þessi nýja plata Leo Smith beini aug-
um jassáhugamanna að honum aftur.
Við bíðum spenntir eftir viðbrögð-
um.“
Rokkspildan
Þorsteinn J. Vilhjálmsson
Mezzoforte á Bylgjunni. Heimilislegur fundur með hlustendum.
DV-mynd Kristján Ari
Heima er best
Hljómsveitin Mezzoforte sat fyrir
svörum á heimilislegum blaða-
mannafundi á Bylgjunni á fimmtu-
daginn. Gegnt þeim sátu blaða- og
útvarpsmenn og skutu inn kurteis-
legum spurningum þar sem það átti
við. Allt var þetta í beinni útsend-
ingu og dreifðist víðs vegar um
hlustunarsvæði Bylgjunnar.
Fundurinn var meðal annars hald-
inn í tilefni af útkomu lagsins
Nothing last forever. Ný breiðskífa,
No limit, er svo væntanleg á markað
hér heima síðar í þessum mánuði og
um svipað leyti hefur hljómsveitin
mikla hljómleikaferð. Fyrstu tón-
leikamir verða hér heima, nánar
tiltekið í Broadway.
Hafi menn lagt trúnað á að óeining
ríki innan Mezzoforte þá var slíkur
orðrómur kveðinn niður á fundinum.
Menn gerðu að gamni sínu í mesta
bróðemi og allt lék í lyndi. Fjór-
menningarnir virtust sér vel meðvit-
andi um stöðu hljómsveitarinnar og
markmiðið að þeirra sögn að gera
eins vel í tónlistinni og mögulegt er,
án allra skýjaborga. Hljómsveitin á
trygga aðdáendur í Evrópu en enn
er England óunnið vígi. Uppgangur
Garden party er ekki talinn með. Það
verður gaman að fylgjast með fram-
gangi lagsins Nothing last forever
þar í landi.
En fyrst er það hljómleikaferð um
Evrópu. Við sjáum hvað setur.
Leo Smifh - á nýrri plötu frá Gramminu.
Foringjarnir fimm
„Við stofnuðum hljómsveitina
fyrir tæpum mánuði. Við höfum
æft linnulítið síðan,“ sagði Þórður
Bogason, söngvari hljómsveitar-
innar Foringjarnir.
Þessa nýju sveit skipa auk Þórð-
ar, Einar Jónsson gítarleikari,
Oddur F. Sigurbjörnsson trommu-
leikari, Jósep Sigurðsson, spilar á
hljómborð, og Steingrímur Erlings-
son, plokkar bassann. Þeir hafa
verið áður í hinum ýmsu hljóm-
sveitum. Þórður var til dæmis í
Þreki, Einar í Drýsli, Oddur í
Tappa tikarrassi, Steingrímur í Sex
púkum og Jósep í Fjörorku.
„Við ætlum að spila gott rokk. Á
dagskránni eru bæði frumsamin
lög og eins höfum við æft nokkur
þekkt lög til að spila á dansleikjum.
Þó við viljum aðallega halda tón-
leika þá eru dansleikirnir nauðsyn-
legir til að hafa í sig og á.
Við erum að skipuleggja dag-
skrána núna. Við ætlum að láta
mikið að okkur kveða í vetur,“
sagði Þórður Bogason.
’fbRINGJARNÚ\
c
Fimm í góðum fílingi.