Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Page 24
24
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986.
Til sölu Porsche 911, S, Carrera útlit, toppeintak.
Porsche umboðið, Austurströnd 4,
170 Seltjarnarnesi, s. 611210.
s. 61-12-10.
RÍKISÚTVARPIÐ
auglýsir starf fréttastjóra hljóðvarpsins laust til um-
sóknar.
Umsóknarfrestur er til 18. nóvember nk. og ber að
skila umsóknum til Ríkisútvarpsins, Skúlagötu 4, á
eyðublöðum sem þar fást.
nrv
RÍKISÚTVARPIÐ
ÞYSKA
SPÆNSKA
FRANSKA
ÍTALSKA
OG
ÍSLENSKA!
ENSKUSKÓLINN
S. 25330.
TÖGGURHF.
SAAB UMBOÐIÐ
Bíldshöfða 16 - Símar 681530 og 83104
Seljum ídag
Saab 900 GL árg. 1980, 3ja dyra,
dökkblár. beinskiptur, 4ra gíra,
ekinn aðeins 67 þús. km. Verð
aðeins kr. 275 þús.
Saab 900 turbo árg. 1982, 4ra
dyra, 5 gira, grænn, ekinn 80
þús. km, með topplúgu. raf-
magnsupphölurum, rafmagns-
hurðalæsingum o.fl. Verð
490.000,-
Saab 900 GLS árg. 1982, 5
I dyra, 5 gíra, ekinn 84.000 km.
I grænn. Verð 350.000,-
Saab 900 turbo 16 árg. 1984, 3ja
dyra, svartur, beinskiptur, 5 gíra,
ekinn 30 þús. km. Bill sem nýr.
Skipti möguleg á ódýrari Saab.
Opið laugardag kl. 12-16. Ath. breyttan opnunartíma.
Elie Wiesel er baráttumaður.
Barátta hans beinist að því að gera
lýðum ljósar ógnirnar sem fylgdu
útrýmingarherferð nasista gegn
gyðingum. Hann hefur fyrst og
fremst beitt pennanum fyrir sig og
þykir í verkum sinum hafa lagt
drjúgan skerf til mannréttinda-
mála. Fyrir verk sín í þessa veru
hefur hann hlotið friðarverðlaun
Nóbels í ár.
Það er ekki í fyrsta sinn sem
hann hlýtur viðurkenningu fyrir
afrek sín því á síðasta ári heiðraði
Ronald Reagan hann sérstaklega
fyrir framlag sitt til mannréttinda-
mála og bókmennta. Það gerðist á
sama tíma og Reagan var að undir-
búa ferð til Vestur-Þýskalands þar
sem m.a. var á dagskránni að skoða
grafreit þýskra hermanna úr síðari
heimsstyrjöldinni.
Skammaði forsetann
Þessi heimsókn var umdeild, eins
og frægt varð, og notað Wiesel
tækifærið þegar hann tók við við-
urkenningunni að reyna að telja
forsetann af að skoða grafreitinn.
„Þetta er ekki staður fyrir þig,
herra forseti," sagði Wiesel þá en
forstinn hélt sínu striki.
Elie Wiesel - mikilvirkur rithöfundur.
Vitnisburður
fyrir heiminn
Friðarverðlaunahafinn Elie Wiesel
Eliezer Wiesel, eins og hann heit-
ir fullu nafni, fæddist 30. september
árið 1928 í bænum Sighet í Rúmen-
íu þar sem heitir í Transylvaníu,
nærri landamærum Sovétríkjanna.
Foreldrar hans voru gyðingar sem
höfðu framfæri af kaupmennsku.
Hann lærði trúfræði gyðinga í
æsku og hefur það sett mark sitt á
öll verk hans í bókmenntum.
Hann hefur skrifað mikið um
æskuár sín. Hann var ellefu ára
þegar styrjöldin braust út og sext-
án ára var honum og íjölskyldu
hans hrundið inn um hlið útrým-
ingabúðanna í Auschwitz. Þar létu
móðir hans og yngsta systir lífið i
gasklefunum.
Frá Auschwitz var hann sendur
snemma árs til Buchenwald ásamt
föður sínum sem lét þar lífið. Hann
var frelsaður úr útrýmingarbúðun-
um 11. apríl árið 1945 af Banda-
ríkjamönnum. Hann ætlaði að fara
til Palestínu sem Bretar réðu þá
fyrir. Þeir meinuðu mörgum gyð-
ingum frá Austur-Evrópu að flytja
til landsins helga og var Wiesel
einn þeirra sem ekki fengu farar-
leyfi. Þess í stað var hann sendur
til Frakklands þar sem hann var
vistaður á heimili fyrir íjölskyldu-
laus ungmenni í Normandí.
Fullnuma I frönsku
Árin 1948 til 1951 var hann í Par-
ís og lagði þar stund á bókmenntir,
sálfræði og heimspeki við Sor-
bonne háskóla. Á þessum árum
náði hann góðu valdi á frönsku.
Hann vann fyrir sér með háskóla-
náminu með blaðamennsku,
kennslu og þýðingum.
Sem blaðamaður fór hann til
ísraels árið 1948. Hann fór sömu
erinda til Indlands árið 1952 og
ákvað þá að skrifa doktorsritgerð
um samanburð á siðfræði kristni,
gyðingdóms og hindúatrúar. Að
þessu verki vann hann um tíma en
gaf það síðan upp á bátinn.
Hann fór til Bandaríkjanna árið
1956 að skrifa um Sameinuðu þjóð-
imar fyrir blað í Israel. í New York
varð hann fyrir slysi og var bund-
inn við hjólastól í heilt ár á eftir.
Þetta varð til þess að hann sótti
um bandarískan ríkisborgararétt
enda rann dvalarleyfi hans út áður
en hann greri sára sinna. Síðar
sagði Wiesel svo frá að hann væri
þakklátur fyrir það sem fyrir hann
bar í upphafi dvalar sinnar í
Bandaríkj unum.
Þörffyrirað vitna
Allt frá barnæsku segist Wiesel
hafa verið staðráðinn í að gerast
rithöfundur. Tólf ára gamall setti
hann saman bók með athugasemd-
um við ritninguna. Þetta æskuverk
hefur þó aldrei verið gefið út. Það
var ekki fyrr en eftir veruna í út-
rýmingarbúðunum að hann sann-
færðist um þá köllun að verða
rithöfundur. Hann einsetti sér þá
að verja lífi sínu til að bera vitni
um þær hörmungar sem nasista-
stjórnin i Þýskalandi leiddi yfir
gyðinga.
Hann ákvað þó að halda þögn
sinni um reynslu sína í útrýmingar-
búðunum í tíu ár. „Ég vissi að ég
átti eftir að ná tökum á-máli mínu
og hugsun þannig að ég gæti svika-
laust tjáð hug minn um hörmung-
arnar svo allur heimurinn skildi,"
hefur Wiesel látið hafa eftir sér.
Hann skrifaði ekkert um reynslu
sína þennan tíma. Það var ekki
fyrr en ellefu árum eftir að hann
gekk út úr Buchenwald sem hann
lauk við 800 síðna bók sem hann
nefndi Og heimurinn hefur verið
þögull. Þessa bók skrifaði hann á
jiddísku og gaf út í Argentínu.
Hann reyndi síðan að fá bókina
útgefna á frönsku en það tókst
ekki fyrr en hann hafði stytt hana
niður í 127 blaðsíður og unnið að
verkinu í tvö ár.
I þessari útgáfu heitir bókin Nótt
og hefur komið út á nokkrum
tungumálum. Bókin vakti athygli
en náði ekki almennum vinsældum.
„Á þessum árum vildi fólk sem
minnst vita af útrýmingarherferð-
innni,“ sagði Wiesel í viðtali fyrir
skömmu. „Fáa langaði að rýna
lengra inn í myrkrið en það sem
hægt var að gera sér í hugarlund
af lestri Dagbókar Önnu Frank.“
Sjálfsævisögulegar skáld-
sögur
í kjölfar Nætur fylgdu nokkrar
stuttar sögur í sjálfsævisögulegum
stíl þar sem Wiesel hélt áfram að
skýra reynslu sína fyrir lesendum.
í þessum sögum birtist sektin yfir
að hafa lifað af þegar öðrum var
fórnað - viðfangsefni sem mjög
hefur verið áberandi í bókmenntum
gyðinga.
Ein frægasta þessara skáldsagna
er Betlari í Jerúsalem þar sem saga
gyðinga er enn viðfangsefnið en að
þessu sinni í ljósi reynslunnar úr
Sex daga stríðinu. Þessi bók varð
metsölubók í Bandarikjunum og
Frakklandi.
Wiesel hefur og gefið gaum að
örlögum gyðinga í Sovétríkjunum
og hefur verið framarlega í flokki
baráttumanna fyrir rétti þjóðar
sinnar til að flytja frá Sovétríkjun-
um. Líta má á friðarverðlaunin sem
viðurkenningu á þeirri baráttu.
Wiesel kom fyrst til heimabæjar
síns 20 árum eftir að hann var flutt-
ur þaðan með valdi af nasistum.
Hann skrifaði bók um ferð sína og
kallaði Goðsagnir okkar tíma. Hún
lýsir vel þrá hans til að upplifa
berskuna og bera vitni um reynslu
sína sem hefur verið þungamiðjan
í flestum verk hans.
„Holocaust"
Wiesel hefur átt ríkan þátt í að
kynna umheiminum reynslu gyð-
inga á styrjaldarárunum. Hann er
þó ekki alls kostar sáttur við allt
það sem sagt hefur verið, skrifað
og filmað um aðförina að gyðing-
um. Eitt sinn sagði hann að „betra
væri að þegja en að segja illa frá“.
Hann hefur átt stóran þátt í að
festa orðið „holocaust" i ensku
máli - hliðstætt orð er vart til í
íslensku - en telur að merking þess
hafi aflagast í meðförum manna.
Þótt verk Wiesels fjalli að mestu
um gyðinga þá snerta þau mann-
réttindamál almennt. f verkum
sinum varpar hann fram siðfræði-
legum spurningum sem varða fleiri
en gyðinga. Hann hefur hlotið
margháttaða viðurkenningu fyrir
verk sín, þar á meðal bókmennta-
verðlaun víða um lönd. Hann hefur
og oft verið orðaður við friðarverð-
laun Nóbels áður. Á síðasta ári
lögðu m.a. 60 þingmenn á þýska
Sambandsþinginu til að honum
yrðu veitt verðlaunin.
Wiesel býr ásamt konu sinni og
tveim börnum í New York. Hann
kenndi um skeið við háskóla þar
en frá árinu 1976 hefur hann verið
prófessor við háskólann í Boston.
Hann þykir nokkuð sérvitur í hátt-
um. M.a. forðast hann flestar
lystisemdir í mat og drykk ef frá
er talið að hann hefur mikið dá-
læti á súkkulaði.
Þrátt fyrir umsvif við kennslu og
fyrirlestrahald þá taka ritstörfin
mest af tíma hans. Hann lætur sig
flest mannlegt varða og hefur m.a.
tekið virkan þátt í baráttunni gegn
kjarnorkuvopnum. Hann hefur
sagt að „menn geti vart gerst sekir
um ægilegra morð en að drepa tím-
ann“.
GK