Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1986, Page 37
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986. 37 4. flokkur karia: Valsstrákamir burstuðu B-lið Fylkis og Þróttur marði A-iið Fylkis í æsispennandi leik Valur-Fylkir B 22-2 Valsmenn eiga örugglega eftir að verða ofarlega á öllum vígstöðvum í 4. flokki karla í vetur. Lið þeirra er skipað mjög jafiisterkum leikmönnum og þeir skora því mörk úr öllum stöð- um á vellinum. Hraðaupphaupin útfæra þessir ungu strákar eins og best gerist í meistaraflokki og þeir ráða yfir fjölbreytni í vamarleiknum sem sjaldgæft er að sjá hjá þetta ung- um leikmönnum. Leikur Vals og B-liðs Fylkis í 4. flokki karla á Reykjavíkurmótinu var alger einstefna frá upphafi til enda. Valsmenn voru með sitt sterkasta lið í fyrri hálfleik og leiddu eftir hann með 9 mörkum gegn einu. I síðari hálfleik skipti Theódór Guðfinnsson, þjálfari Valsmanna, öllum varamönn- unum inn á og spiluðu þeir jafhvel enn betur en byijunarliðið hafði gert í fyrri hálfleiknum. Það dró sífellt í sundur með liðunum og lokatölur urðu 22 mörk gegn 2 Valsstrákunum í vil. Allt Valsliðið spilaði vel að þessu sinni, en ekki er hægt að dæma um raunverulegan styrk þessa, mótstaðan var svo til engin. Fylkisstrákamir gerðu sitt besta og margt gott leynist í liði þeirra þrátt fyrir þennan slæma skell. Mörkin: Valur, Magnús Haraldss., Valur Ö. Amarss. og Svavar Jóhann- esson 4 hver. Halldór Halldórsson og Einar Ö. Birgiss. 3 hvor, aðrir færri. Hlynur Þór Sveinbjömsson skoraði bæði mörk Fylkis. Þróttur-Fylkir A 10-9 Þessi leikur var æsispennandi frá upphafí til enda. Aldrei munaði meira en tveimur mörkum á liðunum og þau skiptust á að leiða leikinn. Fyrirfram bjuggust víst flestir við léttum sigri hinna stóm og stæðilegu Fylkisstráka en Þróttarar vom á annarri skoðun. Góður vamarleikur þeirra setti leik- menn Fylkis út af laginu og í sóknar- leiknum spiluðu Þróttarar mjög skynsamlega og biðu eftir góðum fær- um. Þróttarar uppskáru eins og þeir sáðu, þeir stóðu uppi í leikslok sem verðskuldaðir sigurvegarar. Vera má að Fylkismenn hafi vanmetið and- stæðinga sína í þessum leik, a.m.k. tókst þeim aldrei að sýna svipaðan leik og gegn B-liði Víkings í fyrstu umferð Reykjavíkurmótsins. Ragnar Blöndal skoraði 4 mörk fyrir Þrótt og Páll Þórólfsson gerði 3. Fyrir Fylki skoraði Kristinn Tómas- son 3 og þeir Þórhallur Jóhannesson og Dagur Eggertsson gerðu 2 mörk hvor. Urslit Úrslit leikja ú Reykjavíkurmótinu í handknattleik sunnudaginn 12. októb- er. 4. flokkur karla Valur-Fylkir, B Þróttur-Fylkir, A 3. flokkur karla KR-Ármann B Ármann A-Fram Valur-Fylkir, 2. flokkur karla Víkingur-ÍR Fylkir-Þróttur Umsjón: * nm Ragnar Hermanns- son Næst verður spilað sunnudaginn 19. október á Reykjavikumiótinu. Spilað verður í Laugardalshöllinni og hefjast fyrstu leikirnir kl. 13. 22-2 10-9 27-6 25-14 Fylkir gaf. 23-23 21-16 Fiæðsluhomið Tognanir em líklega algen- gustu íþróttameiðslin. Við tognun verður rof í vöðvavef og/eða lið- böndum. Samfara þessu verður blæðing inn á hið skaddaða svæði og það bólgnar upp. Hversu alvar- leg tognun er fer eftir þvi hversu mikið rof vorður. Oftast er um minniháttar meiðsli að ræða en stundum em tognanir það slæmar, að langan tíma tekur að fá sig góðan af þeim. Mjög mikilvægt er að meðhöndla tognanir rétt. Sérstaklega skiptir miklu máli að farið sé rétt að með- an meiðslin em fersk, þ.e. fyrstu 48 stundimar ef'tir að þau eiga sér stað. Sú meðferð sem þá er veitt á að núða að því að draga úr blæð- ingu inn á hið skaddaða svæði og hindra þannig bólgu. Meðhöndlun ú ferskum tognun- um er skipti í þrjá þætti: 1. Kæling, staðbundin kæling. Venjulegast er notaður kæli- I»ki en einnig er hægt að hrúka ísmola sem vafðir eru inn í blautan klút. Kælt er í 10-12 mínútur í senn á 2-3 klst. fresti f 2 sólarhringa eftir að tognun verður. Þess ber að geta að sumir sérfræð- I ingar telja rangt að byrja að kæla I fyrr en 5-6 tímum eftir að tognun- I in verður. I 2. Þrýstingur: Mjög mikilvægur ■ hluti af meðhöndlun „ferskra“ | tognana. Kæling og þrý'stingur . em oft gefin saman, og er þá | teygjubindi einfaldlega vafið ■ yfir ísbaksturinn eða kælipok- ’ I ann, utan um hið skaðaða I svæði. ■ Mikilvægt er að hafa þrýsting á I meiðslunvmi að staðaldri í a.m.k. ■ nokkra daga. Ef vel er vafið veitir | teygjubindi stuðning og hindrar . bólgu. | 3. Einnig er gott að „lyfla“ hinu . skaðaða svæði ofar, á ég við að | ef t.d. er um ökklatognun að ■ ræða er gott að hvílast með I hátt undir fætinum þannig að | blóðið streymi frá skaðaða ■ svæðinu. I Að lokum skal mönmun bent á að I nota aldrei hita á „fersk“ meiðsli. I Hití eykui- blóðflseði til skaddaða I svæðisins og veldur þannig auk- inni bólgu. Einnig verður það ekki I ofbrýnt fyrir fþróttamönnum að * nota skynsemina og byrja ekki of | snemma af æfa að nýju eftir . meiðsli. I Piandknattleikur unglinga F.v. Óskar Bjarni Oskarsson og Magnús Már Haraldsson M260. Tvískiptur, alsjálfvirkur. Verð aðeins kr. 16.650,- stgr. 280 DL. Hálfsjálfvirkur. Verð aðeins kr. 14.495,- stgr. 2 áva a bV<9ð> ^CAP 120 FM. 120 lítra frystiskápur. Verð aðeins kr. 12.990,- stgr. Umboðsmenn um land allt. Kælitæki, Njarðvík Árvirkinn, Selfossi Mosfell, Hellu Kaupfélag Vestmannaeyinga Vestmannaeyjum Kask, Höfn, Hornafirði Rafvirkinn, Eskifirði Kaupf. Héraðsbúa, Egilsstöðum Kaupf. Þingeyinga, Húsavík KEA, Akureyri Valberg, Ólafsfirði Kaupf. Skagfirðinga, Sauðárkróki Kaupf. Húnvetn., Blönduósi Oddur Sigurðsson, Hvammstanga Póllinn hf„ ísafirði Kaupf. Stykkishólms, Stykkishólmi Verslunin Blómsturvellir, Hellissandi Húsprýði, Borgarnesi Skagaradíó, Akranesi JL-húsið, Hringbraut, Rvk. DL 150. Hálfsjálfvirkur. Verð aðeins kr. 9.985,-stgr. Það býður enginn betur. Skipholti 7, símar 20080 og 26800.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.