Alþýðublaðið - 28.06.1921, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 28.06.1921, Blaðsíða 1
Alþýðublaði CjJ-eílö út aí .AJþýduflolcjksmssB., 1921 Þ/iðjudaginn 28 júai. Dómur. Vegna þess, að dómur sá, sem hér fer á eftir er líklega einstakur að því, leyti að hann snýst sð nokkru ieyti um þjóðfélagsstefnu þá, sem oítast er nefnd bolsivismi, en að réttu lagi heitir kommun- ismi, þykir rétt að birta hann hér eins og hann stendur i Dómabók Reykjavíkur. Eins og menn eflaust rekur minni til ritaði Snæbjörn Jónsson grein í Eimreiðina í fyrra sem hann nefndi >Bolsivisminn<. Greinin var mjög hógvært rituð og vakti mikla eftirtekt vegna þess ekki sízt, að hún hafði á sér miklu minni öfgablæ, en flest það sem áður hafði verið ritað um stefnuna. Dómurinn sýnir hve sum ir menn geta gert sig hlægilega, þegar heimskan (0: vanþekkingin) ber þá ofurliði um stund. Árið 1921, flmtudaginn 16. júni var i bæjarþingi Reykjavíkur í málinu nr. 7 1921, Snæbjörn Jóns- son gegn Páli Stefánssyni upp- kveðinn svohijóðandi dómur: Snæbjörn Jónsson stjórnarráðs ritari hefír, að undangenginni árangursiausri sáttatilraun, höfðað mál þetta fyrir bæjarþingi Reykja- víkur með stefau útgeflnní 3 jan- úar þ. á. gegn Páli Stefánssyni heildsala hér i bænum, og kraflst þess að ummæli nokkur, er stefnd- ur viðhafði i bréfl, er virðist hafa verið til eiganda tímaritsins >Eim reiðarinnar«. verði dæmd dauð og ómerk, og stefndur dæmdur í þá hegningu fyrir þau, er lög frekast leyfa, þar sem steínandi telur þau fyililega meiðandi fyrir sig, þá hefir stefnandi og krafíst máis- kostnaðar eftir mati réttarins. Stefndur heflr hinsvegar krafíst algjörðrar sýknunar i málinu og málskostnaðar eftir mati léttar ins. Hin umstefndu ummæii eru svo- hljóðandi: sllka svivirðing, sem eg tel grem þá um Bolsivismann, sem einhver úr fiokd m^snféiagsius ; hrakmenna og kallar sig Snæbjöm Jónsson heflr látið hana flytjac. . Tiidrög þessa eru þau að i nóvember 1920 sendi útgefandi nefnds iímarits bréf til ýmsra manna þar á meðal stefnds, og bauð þeim ritið til kaups Stefnd ur svaraði þessu með bréfi, sem hann reyadar heflr ekki uadirrltað, en viðurkent að hafa ritað og í bréfl þessu eru hin umstefndu um- mæli viðhöfð, og þess jafnframt getið, um leið og endursend eru 2 hefti téðs tímarits, að hann vilji ekki gerast kaupandi ritsins, vegna greinar um Bolsivismann, sem var í heftura þessum. Bréf þetta var sent eiganda tímaritsíns opið, og komst ekki í hans hendur fyr en það hafði gengið í gegnum hendur verkafólks hans. Fékk hann svo steínanda bréflð i hend- ur, og heimilaði honum að nota það eftir vild. Til afsökunar sér heflr stelndi haldið því fram, að það hafl ekki verið tilgangur sinn að meiða eða móðga neinn ákveðinn mann, enda hafí hann alis ekki þekt stefnanda eða vitað nema Snæ- björn Jónsson væri gervinafn höf- undarins, en tilgangur sinn hafl verið sá að láta það í ijósi, að hann hafí þá skoðun eða álit á bolsivismanum, að hann sé svívirði- legur og að hann áliti það því svívirðilegt að hafa þá stefnu, og hljóti því að teija hvern þann hrakmenni, sem siíkt geri, án tillits til þess hver eða hvar hann sé. Og með því að hin umrædda grein tímaritsins beri það með sér, að höfundur hennar sé fylgj- andi Boisivismanum verði hið sama að ganga yfír hann og aðra fylgismenn stefnu þessarar, án þess að tiigangurinn hafi verið að móðga stefnanda sérstaklega. Það verður nú að viðurkenna það með stefndum, að hin um rædda grein virðist benda á, að höfuodur hennar sé vinveittur olt nefndri stefnu, en án þess að nokkur dómur sé lagóur á gildi 145 töiubi stefaunnar yfirleitt, verður að telja það með öllu ósannað, að þeir sem fylgja henni að málum, megi allir teijast hrakoienoi eða úr flpkki þeirra, en um stefnanda sérstak- lega hefír engin tilraun verið gerð íil að sanna það. Og þar sem hin umstefndu ummæli verða að telj- ast meiðandi, en hinsvegar eigi sönnur færðar á réttmæti þeirra, verður að dæma þau dauð og ó- merk, og stefndan til að greiða sekt i ríkissjóð samkvæmt 217. gr. hinna almennu hegningarlaga frá 25. júní 1869, sem þykir eftir atvikura þeim, sem frá er skýrt hér að framan hæfilega ákveðin 50 krénur en vararefsingin 10 daga einfalt fangelsi. í málskostnað þykir stefndur eiga að greiða stefnanda 50 krónur. Því dæmist rétt vera: Hin umstefndu ummæli eiga að vera dauð og ómerk. Stefndur, Páll Stefánsson greiði 50 króna sekt { ríkissjóð, og komi 10 daga einfalt fangelsi i hennar stað, ef hún er ekki greidd í tæka tíð. Svo greiði hann og stefnanda, Snæbirni Jónssyni 50 krónur í málskostnað. Dóminum ber að fullnægja áð- ur en 15 dagar eru liðnir írá lög- birtingu hans, að viðlagðri aðför að lögum. Tildar. Heyrst hefir að stofn- uð verði ísleczk orða á uæstunni, sem kölluð verði Fálkaorðan. Heflr þá Jón Magnússon ekki til einkis setið, ef hann kemur því til ieiðar að slíkt tildur verði inn- Ieitt { hið unga íslenzka ríki; en senniiega er fiðringur kominn i hnappagatið á vinstra boðangi ýmissa bvoddanna hér og þá far- ið að þyrsta efttr því, að verða „ríddari af ránfuglinum", eins og almenningur kallar það. „Vitleys- an ríður ekki við einteyming", 1 sagði karlian.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.