Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Side 3
T LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986. Akveginn skulu menn ríða 47 , — * 1 Nú eru jólin loksins komin hjá kaupmannastéttinni því að sú há- tíð sem hjartanu er skyldust byrjar alltaf fyrst í þeim herbúðum enda er vissara að kaupa jólalaukana tímanlega svo að þeir komi upp seinnipartinn í desember en ekki einhvern tímann í maí, einnig er betra að senda vinum og vanda- mönnum hangikjötið fyrr en seinna og þar að auki verður að kaupa jólarjúpurnar með góðum fyrirvara því að það er talið nauðsynlegt að láta þessa vesalinga hanga í svo sem hálfan mánuð áður en þeir eru étnir. En þó að jólin séu komin á fulla ferð niðri í Hafnarstræti og víðar munu nokkrir dagar enn í það að Ríkisútvarpið fari að þreyta okkur með jingle bells og Rúdólfi með rauða nefið en hins vegar er vertíð góðra málefna hafin því að hingað kom ung stúlka í gær og vildi endi- lega selja mér ullartrefil og sokka. Nú er ég síður en svo á móti því að styrkja gott málefni en það er ekki sama hvernig það er gert. Það er til dæmis miklu skynsamlegra að kaupa ullartrefil og sokka í þeim tilgangi en happdrættismiða því að í fyrra tilfellinu situr maður ein- faldlega uppi með trefil og sokka en í því síðara á maður það á hættu að fá vinninginn sem er yfirleitt annaðhvort gönguferð á Esju eða þriggja vikna dvöl á heilsuhæli. Og svo byrja auglýsingarnar sem eru svo sem þolanlegar í fyrstu þrjátíu skiptin sem maður horfir á þær en fara að verða dálítið leiði- gjarnar úr því. Allt þetta gerir það að verkum að á Þorláksmessukvöld er hér um bil hver einasti Islendingur orðinn auralaus, fótalaus og vitlaus og hefur varla orku til að hamfletta Háaloft Benedikt Axelsson rjúpugreyin sem hanga ennþá á hausnum úti á svölum og bíða í ofvæni eftir því að verða étin. Annar handleggur Ágætur maður sagði einhvern tímann að það væri svo sem allt í lagi að stunda sjálfsmorð sem tóm- stundagaman en það hlyti að vera eitthvað bogið við þann mann sem gæti hugsað sér að gera þetta að atvinnu sinni. Þótt þessi speki geti átt við flesta atburði vil ég taka það fram að mér datt hún ekki i hug vegna þess að ég var að fjalla um hátíðina sem huggar með fagnaðarsöngvum hvert angur manns heldur vegna þess að mér datt allt í einu í hug frumvarp til laga um reiðvegi sem í? HÉk intfi SfcTOTA STÁt-FAR BBA HVORT PEiHj ER M/'ÐAfl i nokkrir þingmenn lögðu fram ekki alls fyrir löngu og verður sjálfsagt samþykkt um svipað leyti og frost fer úr jörðu og framkvæmdir geta hafist. Til að forðast misskilning vil ég taka það fram að sum mál á Al- þingi eru skynsamlegri en önnur og það er af og frá að allir þing- menn hafi áhuga á að gera sjálfs- morð að atvinnu sinni, allra síst þeir sem eru að fara í prófkjör um þessar mundir og eru ekki öruggir um fyrsta sætið. En hvað varðar frumvarpið um reiðvegina er það dálítið skemmti- Ieg tilviljun að forðum daga orti Steinn Steinarr Frumvarp til laga um akvegi meðfram reiðvegum og hljóðar það svo með leyfi forseta: Hver landstjórn sé framsýn og fáist við athafnir góðar, sem fólki má verða til blessunar, giftu sem einhleypu. Meðfram hverjum og einstökum reiðvegi þessarar þjóðar skal þegar í stað leggja akveg úr járnhentri steinsteypu. Um leið er oss nauðsyn að láta þeim kumpánum blæða, sem listina drógu í vanvirðu spillingardíkisins, því færist á kontó þess framtaks, sem um er að ræða, það fé, sem veitt er til málverkakaupa ríkisins. Og orðstír vor lifir í verki, sem mikils er metið, þótt margt fari i súginn og þjóðin sé allskonar neyð slegin. Að endingu virðist mér óhætt að láta þess getið, að akveginn skulu menn ríða, en aka reiðveginn. Vonandi gengur reiðvegagerðm Það eiga þeir fyllilega skilið og betur en hin svo að þingmenn og ' þó fyrr hefði verið. aðrir sem eru ekki þegar af baki dottnir geti gert það á sómasamleg- Kveðja um vegi. Ben.Ax. Finnurðu átta breytingar? 17 Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragði eins. En á neðri myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafnlega erfitt að finna þessar breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að leysa þetta trúum við því að allt komi þetta að lokum. Merkið með hring eða krossi þar sem breytingarnar eru og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dag- ar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veitum þrenn verðlaun: Vasadiskó frá Radiobúðinni h/f (verðmæti kr. 2.990,-), heyrnartól (Headphone) frá Radiobúðinni h/f (verðmæti kr. 1.980,-) og nuddpúða frá Radiobúðinni h/f (verðmæti kr. 1.400,-). í þriðja helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu en ný þraut kemur í næsta helgarblaði. Góða skemmtun! Merkið umslagið: „Átta breytingar- 17“ c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykja- vík. Verðlaunahafar reyndust vera: Dagheimilið Bakkaborg, Blöndubakka 2, 109 Reykjavík (vasadiskó); Sólveig Klara Káradóttir, Skipasundi 56, 104 Reykjavík (heyrnartól); Erla Sigurðardóttir, Ægisbyggð 12, 625 Ólafsfirði (nudd- púði). Vinningarnir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.