Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1986, Blaðsíða 8
52 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986. in um Mario Cuomo Verður ríkisstjórirm í New Yorkríki forsetaefni demókrata er harm leggur ríkisstj órastarfið á hilluna? Sumir telja að Mario Cuomo, ríkis- stjóri í New Yorkríki, verði næsta forsetaefni demókrata. Aðrir telja það aftur á móti ólíklegt og benda á að þótt Grover Cleveland, Theodore Roosevelt og Franklin D. Roosevelt hafi allir verið ríkisstjórar í New Yorkríki áður en þeir fluttu í Hvíta húsið þá sé engin vissa fyrir því að Cuomo eigi eftir að gera það. Það hefur gengið erfiðlega að fá Cuomo sjálfan til að varpa ljósi á framtíðaráætlanir sínar. Eitt sinn, er hann var spurður hvort hann hefði áhuga á að verða útnefndur forseta- efni, sagði hann: „Ég vil ekki útiloka það því það er margt í því sambandi sem ég get hvorki skilð né ímyndað mér. Eg er ekki guð. Eigir þú krist- alskúlu þá geturðu sagt mér hvað framtíðin ber í skauti sér. Það er líka allt í lagi. Ég á hana hins vegar ekki og get það ekki.“ Ekki óvenjuleg yfirlýsing . Sumir telja að svar á borð við þetta sýni hroka sem sé meiri en góðu hófi gegnir. Aðrir segja að yfirlýsing af þessu tagi sé í rauninni ekkert annað en það sem aðrir hafi sagt á undan honum þegar þeir hafi hvorki viljað segja já né nei við svipaðar aðstæður. Hann sé að beita því gamla bragði að láta aðra áhuga- sama menn um forsetaembættið bítast en ætli sér svo að gefa kost á sér þegar þeir hafi vegið hver annan. Hann sé því í rauninni að gefa kost á sér og styrkja stöðu sína með því að segja að hann hafi ekki tekið neina ákvörðun. Þeir sem næst hon- um standa eru þó þeirrar skoðunar að hann sé ekki að leika neinn slíkan leik. Hann sé miklu ærlegri og hrein- lyndari maður en svo að hann beiti slíkum brögðum. 14 ár í stjórnmálum Mario Cuomo er nú 54 ára gamall. Hann vildi ekki koma nærri stjórn- málum fyrr en hann var orðinn fertugur og var ekki kjörinn til opin- bers embættis fyrr en hann var orðinn 43 ára. Hopum hefur verið lýst þannig að hann sé sífellt að glima við sjálfan sig til þess að reyna að'samræma langanir hjarta og hug- ar og þjáist alltaf af nokkurri sektarkennd sem rekja megi til þess sem hann nefnir sjálfur „uppeldi mitt í kaþólskri trú“. Mario Cuomo var fjórða bam ít- alskra foreldra sem komu til Banda- ríkjanna frá Salemohéraði sem er skammt fyrir sunnan Napólí. Fjöl- skyldan bjó um tíma í Queens í New York en íjölskyldufaðirinn, Andrea, vann fyrir konu sinni og bömum með því að reka nýlenduvöruverslun sem hann hélt opinni allan sólarhringinn alla daga vikunnar. Braust úr viðjum fátæktar Mario tókst einhvern veginn að brjótast úr viðjum þeirrar fátæktar sem hann var alinn upp við og fór að lesa lög við S. Johnsháskólann. Hann ber þess þó alltaf merki hvar hann var alinn upp og sumir segja að honum líði alltaf illa í nærveru ríks fólks og valdamikils. Sjálfur hefur hann sagt frá gamansögu sem hann sagði eitt sinn í boði hjá David Rockefeller en hún þykir sýna af- stöðu hans til þessa fólks á nokkuð skýran hátt: „Ég sagði þeim,“ segir Cuomo, „að ég ætti eitt sameiginlegt með þeim. Ég sagði að afi minn hefði dáið í kauphallarhruninu mikla 1929. Verðbréfasali einn hefði stokkið út um glugga og lent á afa gamla og vagninum hans.“ Sumir þeirra sem unnið hafa fyrir Cuomo segja að hann hafi aldrei komist yfir <þau áhrif sem fátæktin hafði á hahn forðum. Þá hafi það orðið honum mikið áfall er honum tókst ekki að fá starf hjá verðbréfa- fyrirtæki í Wall Street þrátt fyrir Cuomo skrifar undir lög sem herða viðurlög við eiturlyfjasölu við skóla í New Yorkríki. mjög gott próf í háskóla. Hann og annar nemandi voru jafnháir og hæstir. Hann líti því ríkt og valda- mikið fólk grunsemdarauga. Og einn fyrrverandi samstarfsmaður segir: „Mario Cuomo treystir engum utan fjölskyldunnar." Hvað segir Cuomo sjálfur um þetta? Er ríkisstjórinn var nýlega spurður að því hvað hann hefði ætlað að segja um þau ummæli sem sagt er frá hér að ofan þá segir hann: „Það er ekk- ert undarlegt þótt einhver telji að ég sé svona. Það er bara ekki satt.“ Svo bætti hann við: „Ég hef ekki andúð á þeim sem fara með völd. Reynslan hefúr hins vegar kennt mér að á móti hverjum og einum sem býr í kastala eru margir í göturæsinu þar sem fátt er um skraut." Hann kveðst þó kjósa frekar fólk sem hafi sjálft komist til eigna og í því sambandi hafa menn rifjað upp gagnrýni hans á samstarfsmann fyrir að hafa setið brúðkaup Karólínu Kennedy og ónotast við annan fyrir að hafa geng- ið í Harvardháskóla en hann hefur löngum þótt með nafntoguðustu há- skólum Bandaríkjanna. Erfiðleikar í samskiptum við fréttamenn Hver svo sem skýringin kann að vera á þessum aðfinnslúm Cuomo þá er ljóst að samstarfsmenn eru ekki þeir einu sem stundum verða fyrir barðinu á honum því löngum hefur farið af honum orð fyrir að vera stirður í samskiptum við fréttamenn. Það kann að stafa af því að hann er sagður mjög viðkvæmur fyrir því sem um hann er skrifað. Hefur hann í því sambandi látið orð falla um óvönduð vinnubrögð. Sumum þykir hann hafa gengið fulllangt í þessu efni og hafa menn rennt stoðum undir þá skoðun með þvi að segja frá ummælum ríkis- stjórans við fréttamann er Lincoln forseti var til umræðu. Þá sagði Cu- omo: „Það er einkennilegt hve lélega umfjöllun Lincoln fékk í blöðum fyr- ir Gettysburgræðuna." Var hann að verja Mafíuna? Þá er þess einnig minnst er Cuomo var að ræða við hóp fréttamanna í fyrra. Þá kom Mafían til umræðu en það getur vart talist einkennilegt þegar haft er í huga að Cuomo er ítalskur Bandaríkjamaður sem gegn- ir háu embætti. „Eruð þið að segja mér að Mafían sé skipulögð sam- tök?“ sagði hann þá. „Ég get sagt ykkur að það er hreinn þvættingur." Það er ekki að furða þótt þessi um- mæli hafi leitt til þess að fréttamenn hafi varpað fram þeirri spurningu í skrifum sínum hvort Cuomó væri í rauninni að neita því að Mafían væri til. Hann segir nú að hann sjái eftir þessum ummælum sínum og skýrir þau á þennan hátt: „Ég er mjög vakandi fyrir fullyrðingum um að skipulögð glæpastarfsemi sé ein- göngu stunduð af ítölskum Banda- ríkjamönnum. Sumt fólk virðist ganga út frá því að alla glæpi megi rekja til þeirra og sumir virðast líta svo á að allir ítalskir Bandaríkja- menn séu glæpamenn. Sumir hafa jafnvel haldið því fram við mig að faðir minn hljóti að hafa greitt Maf- íunni þóknun fyrir að fá að reka nýlenduvöruverslunina óáreittur en það gerði hann ekki. Bendlaður við spillingu Cuomo er demókrati frá Queens og hann er valdamikill. Það er því ekki undarlegt þótt sumir telji hann tengjast spillingaröflum því Queens er þekkt fyrir hneykslismál sem skot- ið hafa upp kollinum á síðari árum. Engar beinar ásakanir hafa verið bornar fram opinberlega á ríkisstjór- ann en hann hefur orðið fyrir umtali af þessum sökum og veit það. Kaþólsk trú lyftistöng Rætur og tengsl ríkisstjórans hafa því stundum valdið honum erfiðleik- um á stjómmálasviðinu en hann á aftur á móti kaþólskri trú sinni vel- gengni sína að verulegu leyti að þakka. I rauninni varð hún til þess að hann hóf afskipti af stjórnmálum. Hún varð til þess að hann var feng- inn til þess að miðla málum er upp kom deila milli áhrifamanna af ít- ölskum ættum í Corona í Queens og borgaryfirvalda er rífa átti hús sem þetta fólk átti svo hægt væri að reisa skóla á lóðunum. Síðan fékk John V. Lindsey borgarstjóri Cuomo til þess að leysa deilu í Forest Hills í Queens er miðstéttarfólk af gyðinga- ættum reyndi að koma í veg fyrir að reist yrðu þar hús fyrir fátæka svert- ingja. Cuomo segist hafa tekið þessi málamiðlunarstörf að sér vegna breyttrar afstöðu í Vatíkaninu er það hafi farið að leggja að kaþólikkum að „taka þátt í að leysa vandamál þessa heims í stað þess að segja sjálfu sér að því hefði mistekist af því það hefði ekki gengið í klaustur til þess að vefa körfur til að brúa þetta óþægilega bil á milli fæðingar og dauða“, eins og ríkisstjórinn orðar þetta sjálfur. Upp úr þessu hófst svo stjómmálaferill Marios Cuomo. Gagnrýni en... Það er ljóst að Cuomo hefur orðið fyrir gagnrýni. Sumpart ræður þar afstaða hans til fólks, einkum þeirra efnameiri, og sumpart tilhneiging hans til þess að einangra sig um of frá öðru fólki. Margir telja sig þvi aldrei hafa kynnst manninum nógu vel til þess að geta gert sér rétta mynd af honum. Þó er það skoðun sumra þeirra sem hvað best þekkja til í Demókrata- flokknum að hann hafi meira til að bera til þess að verða forsetaefni hans en flestir eða allir flokksbræður hans sem sagðir eru hafa augastað á Hvíta húsinu. Þannig er Cuomo sagður hafa bæði til að bera þann skilning á eðli og stefnu flokksins og þá reynslu í fjármálum sem for- setaframbjóðandi verði að hafa. Það er því ljóst að hann á sér öfluga stuðningsmenn. Betra að bíða Einn þeirra sem styður Mario Cu- omo í baráttunni fyrir að ná endur- kjöri til ríkisstjóraembættis í New Yorkríki nú í byrjun nóvember með því að safna fé í kosningasjóð hans segist engan mann frekar vilja sjá þar en vill að hann bíði með að leita eftir því að verða útnefndur til fram- boðs í forsetakosningum þar til árið 1992. Skýringuna segir hann þá að Cuomo þurfi að kynna sér utanríkis- mál mun betur en hann hafi gert áður en hann geti gefið kost á sér til þessa valdamikla embættis. Aidrei komið til Norður-Evr- ópu Þessi stuðningsmaður er ekki einn um að efast um getu ríkisstjórans til þess að fást við þau margslungnu alþjóðavandamál sem við er að glíma í dag. Áhrifamenn benda á að Cuomo hafi aldrei komið til Norður-Evrópu, aldrei til Japans og aldrei til ísraels. Þá hefur hann hafnað boðum um að

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.